RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Fyrsti apríl 01.04.2026 50:44
Þáttur dagsins er tileinkaður aprílgabbinu. Rifjuð eru upp nokkur góð aprílgöbb, auk þess sem uppruni aprílgabbsins og skyldra hefða er kannaður.
Ísmús vefurinn, draumaíbúðir arkitektanema og Jötungíma kveður/rýni 31.03.2026 50:46
Víðsjá leit við í Listaháskólanum og ræddi við nema á fyrsta ári um arkitektúr framtíðarinnar. Þau Gylfi Halldórsson og Urður Ýr Þorsteinsdóttir segjast finna fyrir mikilli ábyrgð verandi í þessu námi og að þau séu að mörgu leyti sammála gagnrýnni umræðu síðustu missera um arkitektúr, þó margt sé vel gert. „Við vitum að við getum gert þetta vel, en það þarf að vera vilji fyrir því að borga fyrir g...

Barrokkbandið Brák, Haukur Þorgeirs #2, Spaðar 30.03.2026 55:35
Reykjavík Early Music Festival er alþjóðleg barokkhátíð sem haldin er hér í Reykjavík, í þriðja sinn í ár, en þar leika íslenskir og erlendir hópar, sem sérhæfa sig í upprunaflutningi, tónlist frá miðöldum, endurreisnartímanum, barokktímabilinu og rómantíska tímanum. Opnunartónleikarnir fara fram annað kvöld í Hörpu og eru í höndum Barrokkbandsins Brákar og í þættinum lítum við inn á æfingu hjá ba...

Unnur Ösp á Leiklistardaginn, Dáland og Afbygging stóriðju í Helguvík 26.03.2026 52:19
Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona, leikstjóri og leikhöfundur flytur ávarp sitt í tilefni af alþjóðlega leiklistardeginum, sem haldinn er hátíðlegur á morgun, þann 27. mars. Við hugum líka að tónlist Purcell og samlanda hans, John Dowland og tónleikum þriggja tónlistarmanna undir yfirskriftinni Dáland, sem fara fram í Mengi annað kvöld Listamannateymið Libia & Ólafur Ólafsson opnuðu í febrúar 2024...

Bernd Ogrodnik / Svipmynd 25.03.2026 52:45
Bernd Ogrodnik er fæddur og uppalinn í Þýskalandi en hefur búið hér á landi frá árinu 1982. Hann heillaðist af veröld brúðuleikhússins á unga aldri og var snemma farinn að búa til sína eigin töfraheima. Hann ætlaði samt alltaf að verða tónlistarmaður og megnið af tímanum fór í að æfa sig á hljóðfæri, allt þar til að hann fékk nóg. Pressan í náminu og andrúmsloft eftirstríðsáranna í Þýskalandi þren...
Tolli Morthens, Gallerí Port og hugvekja Freyju Þórsdóttur 24.03.2026 53:04
„Í mínu innra landslagi var tilfinningin svoldið eins og landslagið sem ég er að mála, svona slepptu, treystu og leyfðu þér að bráðna, leyfðu þér að vera eins og vorið á Hrafntinnuskeri,“ segir Tolli Morthens um yfirstandandi málverkasýningu í gallerí Þulu, sem hann kallar Fingraför árstíða. Verkin vann hann eftir göngu að Fjallabaki með góðum hópi fólks úr jaðarsettri stöðu, en Tolli segist hafa...
Loji Höskulds í Köben, Vörumerkið Laxness, Haukur Þorgeirs pistill #1 23.03.2026 54:52
Myndlistarmaðurinn Loji Höskuldsson opnaði sýninguna Nágranna á dögunum í Kaupmannahöfn. Útsaumsverk Loga eru löngu orðin áhugafólki um myndlist hér á landi kunn en hann hefur á síðustu árum einnig haslað sér völl í Danmörku. Listamaðurinn segir aukna viðveru sína í konungsríkinu óneitanlega hafa haft áhrif á myndmál sitt en hann tvinnar hönnunarvörur saman við hversdagslega hluti neyslumenningari...
Tilfinningasteinar, Auðlindagarðar og Jón Nordal tónleikar Caput 19.03.2026 51:55
Samsýningin Auðlindagarðar fjallar um venslin á milli stóriðju og stafrænna innviða samtímans, þar sem stórar ákvarðanir um náttúruauðlindir eru teknar í sterílu skrifstofuumhverfi og sú náttúra sem flest okkar sjá er á skjáhvílum vinnutölvanna okkar. Listamennirnir, þau Agnes Ársælsdóttir, Hrafkell Tumi Georgsson, Sölvi Halldórsson og Eleni Iermia, vinna staðbundið inn í Slökkvistöðina, sem var á...
Aldrei las ég Laxness / Undir Helgahnúk 18.03.2026 54:36
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar, Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga þáttarins er að þessu sinni Undir Helgahnúk sem kom út árið 1924. En verkið skrifaði Halldór í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið sem er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróðu...

Dómur Finns Arnars, Ljóðamót á Akureyri og Mömmó/rýni 17.03.2026 54:50
Dómur kallast sýning Finns Arnars Arnarssonar í Ásmundarsafni, þar sem hann hefur búið í tjaldi síðustu vikur og varið dögunum í að mála kúlulaga hvelfinguna á eftri hæð safnsins. Finnur er nýfluttur úr tjaldinu en vistarverurnar standa eftir sem vitnisburður um líf listamannsins og í kúlunni birtast okkur hugmyndir um karlmennsku og hlutverk okkar í jarðvistinni. Við lítum við í síðari hluta þátt...
Áning Elínar Elísabetar í Þulu, The Wall, Gæðablóð / rýni 16.03.2026 52:21
Elín Elísabet Einarsdóttir hefur um árabil starfað sem teiknari en í Covid ákvað hún að nú væri komin tími á að gefa myndlistinni meira pláss. Og þegar hún fór að mála úti í náttúrunni var ekki aftur snúið. Líkt og æðarkollan sem sækir í sama hreiður kynslóð eftir kynslóð sækir Elín Elísabet í staði á landinu sem hún tengist fjölskylduböndum. Þar vappar hún um í kyrrð og einveru með fuglum og plön...
Mömmó í Borgó og myndlist á tímum kalda stríðsins 12.03.2026 54:56
Annað kvöld verður leikritið Mömmó frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Leikritið er eftir hinn rómaða leikhöfund Paulu Vogel, sem hefur óhikað tekið fyrir flókin félagsleg og pólitísk mál og sló í gegn hér á landi og víðar með leikriti sínu Ökutímar. Agnar Jón Egilsson leikstýrir verkinu og segir okkur nánar af sýningunni í fyrri hluta þáttar. Á morgun hefst líka hugvísindaþing Háskóla Íslands, þar sem þ...
Guðrún Kristjánsdóttir / Svipmynd 11.03.2026 52:37
Guðrún Kristjánsdóttir er fædd árið 1950 og nam myndlist í Reykjavík og Aix-en-Provence. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1986 og hefur síðan sýnt víða, hér á landi og erlendis. Nýverið opnaði yfirlitssýning á verkum Guðrúnar á Kjarvalsstöðum og það er þar sem Víðsjá hitti listakonuna sem er gestur þáttar í Svipmynd vikunnar. Þær fáu minningar sem Guðrún á úr bernsku tengjast náttúrunni. Hún...
Aðflæði Guðmundar Ármann og leikhústónlist Hjálmars H Ragnarssonar 10.03.2026 58:03
Guðmundur Ármann á að baki langan feril í myndlist og myndlistarkennslu og nýlega opnaði yfirlitssýning á verkum hans á Listasafni Akureyrar, undir yfirskriftinni Aðflæði. Guðmundur flutti til Akureyrar árið 1972, eftir prentmyndasmíðanám, nám í Myndlista- og handíðaskólanum og við Valand-listaháskólann í Gautaborg. Víðsjá mælti sér mót við Guðmund Ármann á sýningunni, sem einkennist af fjölbreytt...

Dýrkun, Birtingur og Heima 09.03.2026 53:56
Í Víðsjá dagsins heyrum af nýjum bókaklúbbi fréttastofunnar á Rúv. Þau eru nýbúin að lesa eitt þekktasta rit upplýsingarinnar, Birting eftir Voltaire, sem kom fyrst út í Frakklandi á því herrans ári 1759. Gauti Kristmannsson rýnir í Heima eftir þýska rithöfundinn Judith Hermann og við veltum upp tengslum Steins Elliða, aðalpersónu Vefarans mikla frá Kasmír eftir Halldór Kiljan Laxness og áhangendu...

Brothætt, Nína Sæmundsson og tónlistarpistill Tuma Árnasonar 05.03.2026 55:45
Við hefjum þáttinn á því að heimsækja sviðslistakonuna Steinunni Önnu Knútsdóttur, sem stendur þessa dagana að þátttökuverkefni um hið brothætta og ófullkomna, og safnar bæði brotnu leirtaui og sögum í aðstöðu sinni á Dansverkstæðinu við Hjarðarhaga. Tumi Árnason flytur svo sinn hálfsmánaðarlega pistil um miðbik þáttar og fjallar meðal annars um stafrænan draugagang píanóleikara í parís og rými in...

Björn Steinar Sólbergsson - svipmynd 04.03.2026 57:26
Björn Steinar Sólbergsson tók við stöðu organista við Akureyrarkirkju árið 1986, þá nýkominn heim úr námi í Evrópu, aðeins 25 ára gamall. Þar starfaði hann í 20 ár, og hefur starfað í önnur 20 við Hallgrímskirkju í Reykjavík, þar sem hann er nú tónlistarstjóri og organisti, ásamt því að kenna við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Að sögn Björns Steinars eigum við orgelinu stóra í Hallgrímskirkju mikið að þ...

Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.