RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ 588 episodes

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Author

RÚV

Category

Arts

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 2, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Huldukona Fríðu Ísberg, myndlistarrýni Rögnu Sigurðar og Lausaletur/rýni 17.12.2025

Rithöfundurinn Fríða Ísberg segir útgangspunkt skáldsögunnar Huldukonunnar hafa verið klisjan og að fjörðurinn, 20.öldin, sveitarómantíkin og hið eilífa sumar hafi svo komið í eðlilegu framhaldi. En tilfinningin um klisjuna átti þó eftir að umbreytast í sköpunarferlinu og rannsóknin hafi breyst í mikla glímu, ekki síst vegna innbyggðra fordóma Fríðu sjálfrar gagnvart því hvað alvöru bókmenntir eru...

Jólakveðja Arnar Magnússonar, Rauði fiskur Rúnu og Vegur allrar veraldar/rýni 16.12.2025

Í jólabókaflóðinu þetta árið er að finna bók fyrir allra yngstu lesendurna sem er algjör perla. Bók sem kom fyrst út árið 1972 en hefur nú verið endurútgefin, Rauði fiskurinn eftir Rúnu. Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur myndsköpun Rúnu fundið sér farveg innan leirlistar, bókskreytinga, málverks og hönnunar. Rúna er fædd í nóvember árið 1926 svo hún verður hundrað ára á næsta ári, en hún flutti...

Vegur allrar veraldar, arkitektúr og geðheilbrigði #4 og Andrými/rýni 15.12.2025

Vegur allrar veraldar, síðara bindi stórvirkis Sigríðar Hagalín um Ólöfu ríku Loftsdóttur, höfðingja og húsfreyju á Skarði, kom út fyrr í haust. Þungamiðja sögunnar er víg Björns Þorleifssonar, hirðstjóra konungs á Íslandi, sem Ólöf kona hans hefndi grimmilega, en sögunum af því ber ekki endilega saman og ekki sama hver segir frá. Af einhverjum sökum er lítið um heimildir um sögulega atburði á á 1...

Stúlka með fálka, Gerðarverðlaun, Móðurást:Sólmánuður/rýni 11.12.2025

Þórunn Valdimarsdóttir, sagnfræðingur, rithöfundur og skáld, sendi nýverið frá sér bókina Stúlka með fálka, sem hún skilgreinir sem Skáldævisögu - fullorðinsminningar til aðgreiningar frá fyrri ævibók. Þórunn á 40 ára höfundarafmæli á næsta ári en í þessu verki fer hún í gegnum störf sína og ævi en eins og hún segir sjálf í inngangi bókarinnar er „ævisaga afbragð til að skoða kjarna þess að vera m...

Blái pardusinn Hljóðbók, La Boheme Óðs, Hlaðan / rýni 10.12.2025

Sigrún Pálsdóttir er gestur Víðsjár í dag og segir frá skáldsögu sinni Bláa pardusinum hljóðbók, sem hefur verið tilnefnd til bæði Fjöruverðlauna og Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Bókin segir frá þremur persónum sem allar eru að hlusta á sömu hljóðbókina, Bláa pardusinn, og sem allar upplifa söguna mjög ólíkt. Líf þessara þriggja einstaklinga fléttast svo saman á óvæntan hátt undir lok sögunnar....

Ósmann, arkitektúr og geðheilbrigði #3 og Kosmískt skítamix/rýni 09.12.2025

Við Vesturós Héraðsvatna um aldamótin 1900 bjó heljarmennið Jón Magnússon sér byrgi, og þar starfaði hann í 40 ár við að ferja menn og skepnur yfir stórfljótið. Ósmann var einstakur karakter, mannvinur, veiðimaður og skáld, og saga hans vakti áhuga rithöfundarins Joachim Schmidt, sem búsettur hefur verið á Íslandi síðustu 20 ár. Joachim segir okkur af skáldsögunni Ósmann í síðari hluta þáttar. Hil...

Morðhórur, Ó eilífi foss og Útreiðartúrinn/rýni 08.12.2025

Ófeigur Sigurðarson lítur við í hljóðstofu, en hann þýddi nýverið smásagnasafn chileska rithöfundarins Roberto Bolaño, Putas asesinas, eða morðhórur í íslenskri þýðingu Ófeigs. Smásögurnar í safninu eru álitnar með því besta sem höfundurinn gaf frá sér og í því koma öll hans helstu einkenni og efnistök; kynferðismál, ofbeldi, ljóðlist, glötuð æska og umkomuleysi í framandi heimi. Ó eilífi foss sem...

Í ísbúð Steinunnar Arnbjargar og Bach-að um jólin með Davíð Þór og Tómasi Guðna 04.12.2025

Við kynnum okkur nýútkomna plötu sellóleikarans og ljóðskáldsins Steinunnar Arnbjargar Stefánsdóttur, sem hún kallar Í ísbúð/Radość życia. Platan er eins konar portrett af Íslandi, sprottin úr tónleikaferð sem hún hélt í, ásamt tveimur öðrum flytjendum sem búsettir eru á Norðurlandi. ,,Einu sinni áttu öll börn á Íslandi sveit. Nú á Ísland mörg tungumál," - segir Steinunn, og útskýrir með því efnis...

Söngfjelagið, Dugguvogur 42 og myndlistarrýni Rögnu Sigurðardóttur 03.12.2025

Við hefjum þáttinn á því að líta út úr húsi með Henný Hafsteinsdóttur minjaverði, til að ræða Dugguvog 42, hús sem Gunnar Guðmundsson byggði fyrir G.G. hf. Húsið er hluti af listasögu borgarinnar því Gunnar fór í samstarf við enga aðra en Gerði Helgadóttur sem útfærði vegglistaverk á Dugguvog 42, innblásin af vélum og bílavarahlutum. Hilmar Örn Agnarsson, kórstjóri Söngfjelagsins, lítur við í hljó...

Mynd&hand skólasaga, Hildigunnur Sverrisdóttir pistill, Blái pardusinn hljóðbók/rýni 02.12.2025

Saga myndlistar og handíðaskólans, sögur inni í sögum og utangarðssaga fólks með geðræna kvilla, - sögur af ýmsum gerðum einkenna viðfangsefni Víðsjár dagsins. Við kynnum okkur líka jóladagatal Árnastofnunar, sem einmitt inniheldur ýmsa sögulega mola, og minnumst stuttlega hins merkilega myndlistarmanns, Kristjáns Guðmundssonar, sem lést nýverið og markaði mikilvæg spor í sögu íslenskrar myndlista...

Allt frá hatti oní skó, Hvít hljóð og Allt sem við hefðum getað orðið/rýni 01.12.2025

Í gallerí SÍM við Hafnarstræti 16 stendur nú yfir samsýning myndlistarkonunnar Kristínar Elvu Rögnvaldsdóttur og ljóðskáldsins Guðbjargar Guðmundsdóttur, Hvít hljóð og nokkur Ílát. Þar fá ílát sem alla jafna er hent út á heimilum landsmanna óvænt mikilvægi og teiknaðar tilfinningaveirur stökkva fram úr ljóði sem skrifað var á vökudeildinni. Kvennasagan, og götin í henni, spilar líka stórt hlutverk...

Piparmeyjar, Wadada Leo Smith, jólakettlingar í Eyjafirði og Þegar mamma mín dó/rýni 27.11.2025

Nýlega lék jazzgoðsögnin Wadada Leo Smith á stappfullum tónleikum í Iðnó, í lok sinnar síðustu tónleikaferðar um Evrópu eftir 60 ára feril. Wadada hefur sótt Ísland heim í nígang og haft mikil áhrif á íslensku jazzsenuna og Tumi Árnason ætlar að segja okkur af því í þætti dagsins. Við hringjum líka norður í Eyjafjörð, því þar tekur myndlistarkonan Aðalheiður Eysteinsdóttir vel á móti fólki á aðven...

Sigurður Ámundason / Svipmynd 26.11.2025

„Listamenn eru eins og prestar,” segir Sigurður Ámundason myndlistarmaður, sem fylgir Víðsjá út í Gróttuvita í dag. „Við fjöllum um mannlega breiskleika, samfélagið og tölum um tilfinningar. Munurinn á myndlistarmönnum og prestum er að myndlistarmenn predika ekki. Við felum alltaf það sem við erum að reyna að segja.” Sigurður sýnir um þessar mundir í vitanum og vitavarðahúsinu. Sýningin sem kallas...

Úlfar Þormóðsson, Rán Flygenring, Arkitektúr og geðheilbrigði 25.11.2025

Úlfar Þormóðsson kemur til okkar með nýja bók. Bókina sendi hann frá sér fyrir stuttu en til þess þurfti hann að leita til annars forlags en því sem vanalega hefur verið með hans bækur á sínum snærum. Í bókinni fjallar Úlfar um endurkomu stóra málverkafölsunarmálsins inn í íslenska umræðu; segir frá viðbrögðum sínum og tilfinningum en einnig ýmsu fleiru og sumu átakanlegu. Blaka er nýjasta hugarsm...

Helga Páley Friðþjófsdóttir í Þulu, Tríó Sunnu Gunnlaugs, Þú sem ert á jörðu/rýni 24.11.2025

Við höldum í Gallerý Þulu á sýninguna Í hringiðu alls, þar sem Helga Páley Friðþjófsdóttir sýnir ný málverk. Málverkið hefur lengi verið kjarninn í hennar listrænu nálgun, þar sem óhlutbundinn veruleiki verður til í gegnum marglaga ferli þar sem spuni, innsæi og endurtekning leika stóran þátt. En líka tíminn og auðvitað efinn. Sunna Gunnlaugsdóttir jazzpíanisti verður einnig gestur okkar í dag en...

Heima Judith Hermann, RDF rýni, myndlistarpistill Rögnu og hafnar.space 20.11.2025

Minna fer fyrir þýddum bókum en íslenskum í jólabókaflóðinu, en við ætlum að bæta úr því í þætti dagsins og fá til okkar einn af okkar færustu þýðendum í hljóðstofu, Elísu Björgu Þorsteinsdóttur. Hún þýddi nýlega skáldsögu Judith Hermann, Heima, en Hermann er einn fremsti höfundur hins þýska bókmenntaheims og mörgum íslenskum lesendum vel kunn. Katla Ársælsdóttir fór nýverið á Reykjavík Dance Fest...

Guðrún Hannesdóttir - svipmynd 19.11.2025

Guðrún Hannesdóttir fæddist þann 18. júní árið 1944 og fagnaði því áttræðisafmæli sínu í fyrra. Hún nam listasögu í Lundi og síðar bókasafnsfræði við Háskóla Íslands, starfaði lengst af sem bókasafnsfræðingur og hafði meðal annars umsjón með bókasafni Myndlistarskólans í Reykjavík. Fyrsta ljóðabók Guðrúnar, Fléttur, kom út árið 2007, og sama ár hlaut hún Ljóðstaf Jóns úr Vör. Síðan hefur Guðrún ge...

Jötunsteinn Andra Snæs, Ásmundur Ásmunds í Glerhúsinu og Staðreyndirnar/rýni 18.11.2025

Í Glerhúsinu opnaði nýverið einkasýning Ásmundar Ásmundssonar, sem hann vann í samstarfi við ofurgreindina og myndræn verkfæri hennar. Kveikjan að verkinu er skemmdarverkið á Nord Stream 2 gasleiðslunni í september árið 2022, umfangsmiklu umhverfis og efnahagshryðjuverki sem hefur dvalið í djúpinu og undirvitundinni síðan, en Ásmundur gerir tilraun til að kalla fram með samtali við nútímavölvuna....

Dularfullar raddir skelja, Frumbyrjur, Booker og arkitektúr og fegurð 17.11.2025

Um helgina opnaði nýtt innsetningarverk Höllu Steinunnar Stefánsdóttur, Af dularfullum röddum skelja, í Náttúrusafni Kópavogs. Tilefnið er að margrómað skeljasafn Jóns Bogasonar er þar nú aftur til sýnis. Við hlustum eftir röddum skelja í Víðsjá dagsins og heyrum líka þrettánda pistil Óskars Arnórssonar um arkitektúr, sem tileinkar þennan síðasta pistil sinn arkitektúr og fegurðinni. En við byrjum...

Ora verksmiðjan, The Selkie Poetry Reading og Flóðreka/rýni 13.11.2025

Reykjavík Dance Festival hófst í gær og stendur yfir fram á sunnudag, með fjölda viðburða. Í kvöld stígur dansdúettinn Beauty and the beast, uppskálduð hljómsveit og lífstíðarsamstarf danshöfundanna Amöndu Apetrea og Höllu Ólafsdóttur, á svið Iðnó með sýningu sem þær nefna The Selkie Poetry Reading, og við tökum á þeim stöllum púlsinn. Við heyrum einnig rýni í dans í þætti dagsins, Trausti Ólafsso...

Ingi Garðar Erlendsson / Svipmynd 12.11.2025

Ingi Garðar Erlendsson básúnuleikari, tónskáld, kennari og Reykvíkingur ársins, brennur fyrir tónlistarkennslu. Sjálfum var honum rétt básúna í tónlistarskóla Keflavíkur þegar hann var tíu ára, hljóðfæri sem hefur fylgt honum síðan. Hann lærði kennslu, tónsmíðar og hljóðfræði í Reykjavík og Den Haag, og hljóðfæraviðgerðir í Wales. Ingi Garðar stofnaði ásamt félögum sínum Slátur, samtök listrænt ág...

Maðurinn í skiltinu, arkitektúr og kapítalismi, Ottoman tónlistarhefð 11.11.2025

Við hefjum þáttinn á því að hringja til Danmerkur og kynna okkur bók sem var að koma út hjá Angústúru, skáldsöguna Maðurinn í skiltinu eftir chileska rithöfundinn María Jose Ferrada. Jón Hallur Stefánsson þýddi og segir frá höfundi og verki. Einnig fjallar Óskar Arnórsson fjallar um tengsl arkitektúrs og kapítalisma og Ásgeir Ásgeirsson segir frá heimi tyrkneskrar ottóman tónlistar.

Frá ómi til hljóms, Land til sölu og Hamlet/rýni 10.11.2025

Frá ómi til hljóms kallast heimildamynd eftir Ásdísi Thoroddsen sem nú er í sýningu í Bíó Paradís. Tónlistin á dögum Sveins Þórarinssonar amtskrifara er undirtitill kvikmyndarinnar en hún fjallar um þá miklu byltingu sem átti sér stað í tónlistarlífi landsins á 19.öldinni. Katla Ársælsdóttir rýnir í leikgerð Kolfinnu Nikulásdóttur á Hamlet Shakespears, sem frumsýnd var nýverið á litla sviði Borgar...

Flóðreka, Tíðir og myndlistarpistill Rögnu Sigurðardóttur 06.11.2025

Á laugardag frumsýnir Íslenski dansflokkurinn glænýtt verk, Flóðreka, á Nýja sviði Borgarleikhússins. Flóðreka sprettur upp úr samstarfi danshöfundarins Aðalheiðar Halldórsdóttur, Jónsa úr Sigur Rós og ÍD, en verkið er innblásið af rómaðri sýningu Jónsa, Flóði, sem sýnd var í Listasafni Reykjavíkur á síðasta ári. Við stígum inn í heim náttúruaflanna með danshöfundinum, Aðalheiði Halldórsdóttur, í...

Sóley Stefánsdóttir - svipmynd 05.11.2025

Þegar Sóley Stefánsdóttir þreytist á því að semja á píanóið, með sína jöfnu stillingu og fyrirframgefnu ramma, tekur hún upp harmónikkuna, sem andar inn og út og krefst þess að hugsað sé í hendingum. Hún hefur á eftirtektarverðum ferli flysjað af sér íhaldsamari hluta tónlistaruppeldisins en nýtt sér þá gagnlegri til að draga fram einstaka rödd, sitt eigið djúphugsaða tónlistartungumál sem segir h...

Listen to the Víðsjá podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.