RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.ruv.is
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Hverafugl, Himna, viðkvæmni og Harðindi 02.07.2026 53:05
Freyja Þórsdóttir fjallar í pistli sínum um viðkvæmni og styrk út frá ólíkum sjónarhornum. Það sem virðist viðkvæmt eða sterkt við fyrstu sýn getur fengið á sig annan blæ í víðara samhengi. Til dæmis þegar það er skoðað gegnum linsu djúptíma. Með þetta í huga lítur hún meðal annars til máttarins sem býr í blómum. Vala Sigþrúðar Jónsdóttir, myndlistarmaður, kom við á sýningunni Himnu í Norræna húsi...
Davíð Þór á Gljúfrasteini 01.07.2026 50:20
Í Víðsjá dagsins komum við okkur fyrir í betri stofunni á Gljúfrasteini ásamt tónlistarmanninum Davíð Þór Jónssyni og ræðum, í sérstökum aukaþætti Aldrei las ég Laxness, um tónlist innan og í kringum verk Halldórs Laxness, sem og; eðli og tengsl ritlistar, tónlistar, hversdagsleikans og tilverunnar. Einnig verður leikið á flygilinn beint upp úr textum Halldórs og snert á sönglögum sem samin hafa v...
Hermeto Pascoal, Jón Arason Hólabiskup og Jeff Parker 29.06.2026 54:14
Í þættinum hugum við að brasilísku tónskáldi sem féll frá síðasta haust, Hermeto Pascoal, en Jazzklúbburinn Múlinn hefur boðað til tónleikatvennu nú á þriðjdag og miðvikudag þar sem leikin verða lög eftir þetta ólíkindatól. Tónleikarnir hafa yfirskriftina Viva Hermeto! og er þar markmiðið að fagna lífi hans, en á dagskránni má heyra ýmsar gerðir brasilískra tónstíla á borð við; samba, choro, baiao...
Umbreyting, Dugguvogur 42 og Lisa O'Neill 25.06.2026 53:54
Umbreyting eða Layover er sýning í Biðstofu Nýlistarsafnsins sem verður opnuð gestum og gangandi nú klukkan sex í Marshall húsi. Umbreyting er í senn sýning, sem og opin vinnustofa þar sem þau Agnes Ársælsdóttir og Helena Sólveigar Aðalsteinsbur vinna hörðum höndum að því að skrásetja gjörninga í gjörningaarkíf Nýlistarsafnsins en sýningin rekur einnig slóð hugmynda og listamanna sem hafa ferðast...
Brenninetla, Villistrákar og Henry Threadgill 23.06.2026 51:52
Við mælum okkur mót við meðlimi tríósins Brenninetlu; hljómsveit sem leikur djass og frjálsan spuna, en sækir líka áhrif í ýmsar aðrar áttir. Brenninetla lenti í örðu sæti í Músíktilraunum nú í vor og vinnur nú hörðum höndum að gerð sinnar fyrstu breiðskífu. En þeir félagar munu koma fram á tónleikum í Jazz Sunday Reykjavík tónleikaröðinni í Iðnó nú á sunnudag. Við ræðum við tríóið í þættinum. Gau...
Fuglamál, skáldskaparlist á Grænlandi og G. Weller 22.06.2026 52:11
Marta María Jónsdóttir, rithöfundur og myndlistamaður, sendi frá sér skáldsögu nú á dögunum sem nefnist Fuglamál. Bókin er fjölskyldusaga sem segir frá ungu pari sem eignast nokkuð óvenjulegt barn, Ídu, sem talar tungum, fer í undarleg flogaköst og á sér ímyndaðan vin, fuglinn Pótó. Við ræðum við Mörtu Maríu um Fuglamál í þætti dagsins. Haukur Þorgeirsson rannsóknarprófessor fjallar um horfnu syst...
Hverafugl, Arnhildur Pálmadóttir og Stomp, clap, hey 18.06.2026 50:43
Hverafugl kallast ný hátíð sem sett verður í Hveragerði í næstu viku. Þar hafa listrænir stjórnendur, þau Halldór Smárason, Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir og Lilja María Ásmundsdóttir stefnt saman tónlistarfólki úr ólíkum kimum tónlistarsenunnar. Hátíðin hefur verið lengi í undirbúningi með heimafólki og hluti efnisskránnar er tónlist tengd svæðinu en tónleikar munu einnig spretta upp á óvæntum st...
Smáborg, háborg, Endurlit Hallsteins Sigurðssonar og listagyðjan 16.06.2026 52:56
Um næstu helgi verður opnuð sýning á Kjarvalsstöðum; Smáborg, háborg –Reykjavík í mynd. Þetta er yfirlitssýning á verkum sem endurspegla Reykjavíkurborg frá sjónarhorni listamanna á því 240 ára tímabili sem hún hefur verið til sem kauptún. Við gerum okkur ferð á Kjarvalsstaði í þættinum og náum tali af sýningarstjórunum þeim Markúsi Þór Andréssyni, Sigurði Trausta Traustasyni og Sunnu Ástþórsdóttu...
Kichin, Njáluhöfundur og Himna 15.06.2026 50:59
Í Hvelfingu Norræna hússins stendur yfir sýningin Himna; Goðsagnir & skáldskapur úr jörðu. Sýningin er samsýning átta listamanna sem koma víðsvegar að en verk þeirra skoða endurnýjun jarðvegs sem grundvallarferli sem gerir jörðina byggilega og lífi kleift að kvikna, dafna og endurnýja sig. Í þætti dagsins gerum við okkur ferð í Norræan húsið og tökum sýningarstjórann Thomas Pausz tali um Himnu. Ha...
Við Djúpið, Óður til gleðinnar og fuglar í Flatey 11.06.2026 51:58
Í þættinum sláum á þráðinn til Flateyjar og ræðum við, rithöfundinn og bókaútgefandann, Ragnar Helga Ólafsson sem siglir þar milli eyja, klifrar í klettum og vitjar fugla með fuglafræðingum. Við kynnum einnig til leiks nýjan myndlistarrýni. Vala Sigþrúðar Jónsdóttir verður reglulega með okkur fram á sumarið og næsta vetur, og deilir með okkur upplifun sinni af sýningum sem okkur þykja einstaklega...
Aldrei las ég Laxness / Úngfrúin góða og Húsið 10.06.2026 53:21
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga mánaðarins er Úngfrúin góða og Húsið en hún er stutt verk sem Halldór skrifar um efri stétt í þorpinu Eyvík og tilraunum hennar til að stjórna narratífunni um sjálft sig. Sagan er talin byggð á raunverulegum atburðum sem og upplifunum Halldórs sjálfs þegar hann sigldi ungur til Kaupmannahafnar. Sögumaður ver...
Ísland í fjarska, Köngurváfa og Ingeborg Bachmann 09.06.2026 52:12
Í Víðsjá dagsins höldum við á Listasafn Íslands og heimsækjum þar listfræðing og forverði til að forvitnast um málverkasafn danska 18. aldar greifans Otto Thott. Meðal þeirra gersema sem hann lét eftir sig voru yfir 30 olíumálverk af íslensku landslagi eftir óþekktan höfund sem hafði greinilega aldrei komið til Íslands því fátt minnir á íslenska náttúru í verkunum. Listasafn Íslands fékk þessi ver...
Samfélag í bleyti til Feneyja, Sinfóárið framundan, Haukur Þorgeirs pistill #11 08.06.2026 56:09
Sinfóníuhljómsveit Íslands sendi frá sér dagskrárbækling fyrir næsta tónleikaár og verður þar ýmsu til tjaldað. Nýr Aðalhljómsveitarstjóri, Barbara Hannigan, tekur við. Nýr staðarlistamaður og staðartónskáld taka til starfa og margar stórstjörnur sígildrar tónlistar koma að utan. Guðni Tómasson, framkvæmdarstjóri sveitarinnar, heimsækir okkur og segir frá tónleikaárinu. Haukur Þorgeirsson, rannsók...
James Merry, Rót/rýni og Maístjarnan 04.06.2026 52:06
Við lítum við á sýningu James Merry, sem opnaði um liðna helgi í Listasafni Íslands og hefur yfirskriftina Ummyndlingar. Þar eru til sýnis grímur sem James hefur búið til á 15 ára tímabili, að stórum hluta í samstarfi við Björk Guðmundsdóttur, en sýning hennar, Echolalia er sýnd í safninu samhliða. Við heyrum líka umfjöllun Trausta Ólafssonar um brúðuleiksýninguna Rót, sem sýnd er í Tjarnarbíói í...
Fischersund / Svipmynd 03.06.2026 48:43
„Það er í raun mjög fyndið að við höfum öll farið þessa leið,“ segja systurnar Lilja, Ingibjörg og Sigurrós Birgisdætur um leiðina inn í myndlistina, en þær stofnuðu ásamt Jónsa bróður sínum ilmhúsið Fischersund sem hefur sprungið út sem hálfgerð sköpunarverksmiðja þar sem ilmvörur en líka myndlist og tónlist streyma út. „Pabbi er vélsmiður og mamma sjúkraliði, en það er kannski þetta traust og þe...
Samfélag heilagra, Franziscuskóli á Skriðuklaustri, Haukur Þorgeirs pistill #10 02.06.2026 50:59
Í Víðsjá dagsins rennum við upp að herrasetrinu á menningar- og sögustaðnum Skriðuklaustri og hittum þar Oddnýju Eir Ævarsdóttur, nýjan forstöðumann Gunnarsstofnunar, sem tók við því starfi í janúar síðastliðnum. Meðal þess sem hún er með í farvatninu er glænýr skóli fyrir skrifandi fólk sem hún kallar Franziscuskóla. Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, segir okkue frá Kálfi munki á 14. öld s...
Í beinni á Listahátíð 01.06.2026 51:48
Sameiginleg bein útsending Víðsjár og Lestarinnar frá Iðnó, sem hefur nú verið umbreytt í klúbb Listahátíðar í Reykjavík. Viðmælendur í þættinum eru Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Hrefna Lind Lárusdóttir, Eygló Höskuldsdóttur, Kjartan Hólm, Rósa Jóhannesdóttir, Helgi Zimsen, Jóhannes Zimsen, Viðar Eggertsson, Elísabet Indra Ragnarsdóttir, Anna Rún Tryggvadóttir, Chloe...
Heyr himna og glænýir nýræktarstyrkhafar 28.05.2026 52:06
Við lítum í heimsókn í sögufrægt hús hér í borg, Englaborg við Klambratún, þar sem myndlistarmaðurinn Sigtryggur Bjarni Baldvinsson býr ásamt fjölskyldu sinni. Jón Engilberts og eiginkona hans Tove Engilberts byggðu húsið eftir heimkomu frá Kaupmannahöfn en örlögin höguðu því þannig að Sigtryggur og fjölskylda keyptu Englaborg af Engilberts-fjölskyldunni. Stór hluti hússins er vinnustofa og í dag...
Svipmynd af Skaftfelli á Seyðisfirði 27.05.2026 54:47
Menningarmiðstöðin Skaftfell á Seyðisfirði var stofnuð árið 1998 og er ein langlífasta sjálfstæða listamiðstöð á landinu. Skaftfell hefur frá upphafi staðið fyrir öflugu sýningahaldi með áherslu á samtímalist og þar hefur líka verið starfrækt veitingahús og gestavinnustofa, sem að öllum líkindum er sú fyrsta sinnar tegundar á landinu. Að baki stofnun Skaftfells stóð öflugur hópur einstaklinga úr ó...
Bókmenntir Venesúela, viðgerð á brothættri skál, Haukur Þorgeirs pistill #9 26.05.2026 52:07
„Það sem bókmenntin hefur er að draga fólk saman. Við getum ekki elskað það sem við kunnum ekki. Þannig að það er minn heiður að geta gefið eitthvað út frá Venesúela, sem kannski kynnir fyrir Íslendingum hvernig við erum sem þjóð í Venesúela,“ segir Helen Cova rithöfundur og bókaútgefandi hjá Karíba útgáfunni, en hún var að gefa út fyrstu íslensku þýðinguna á skáldsögu frá Venesúela, Mamma mjöll o...
Skáldaþing í Múlaþingi, Ómur í Selárdal, Nína Hjálmars um Feneyjatvíæring 21.05.2026 51:30
Í gær hófst 11 daga ljóðahátíðin Skáldaþing, með viðburðum á Egilsstöðum, Hallormsstað og Seyðisfirði, en á hátíðinni verða ýmsar ljóðatengdar uppákomur og viðburðir, myndlistarsýningar og gjörningar. Víðsjá byrjaði daginn á því að hlusta á ljóðalestur í sundi á Egilsstöðum og ræða við þær Kötlu Rut Pétursdóttur og Gunnhildi Þórðardóttur, skáld, myndlistarkonur og verkefnastjóra ljóðahátíðanna Ská...
Yrsa Roca Fannberg / Svipmynd 20.05.2026 52:29
Yrsa Roca Fannberg er gestur Víðsjár í dag en hún er tilnefnd til Edduverðlauna sem leikstjóri ársins. Yrsa er fædd í Reykjavík árið 1973 en hefur búið stóran hluta ævi sinnar á Spáni og í Svíþjóð. Hún ólst upp við ferðalög og ævintýri á jafn ólíkum eyjum og Formentera og Flatey, svo forvitni og áhugi á eðli manneskjunnar varð snemma hluti af lífinu. Hún sökk inn heim kvikmyndanna þegar hún var vi...
Rót brúðusýning, Huldur Í fossgljúfri og Nína Hjálmars í Feneyjum 19.05.2026 52:10
Kammerkórinn Huldur var stofnaður fyrir um fimm árum síðan. Kórinn samanstendur að mestu af fyrrverandi meðlimum kórs Menntaskólans við Hamrahlíð en stofnandi kórsins og kórstjóri er Hreiðar Ingi Þorsteinsson. Huldur hefur nú gefið út plötu sem kallast Í fossgljúfri en meirihluti verkanna er saminn af meðlimum kórsins. Við fáum tvo þeirra til að segja okkur frá plötunni, þá Kormák Loga Bergsson og...
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS