Tal

Eftirmál

Arts IS ↓ Odcinki: 31

Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.buzzsprout.com

Autor

Tal

Kategoria

Arts

Strona podcastu

www.buzzsprout.com

Ostatni odcinek

7 lip 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android 5 mln+ pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Krýsuvíkurmálið 07.07.2026

Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru spurningar sem lögreglan fékk aldrei svör við. Atburðarásin vakti líka um stórar spurningar um stöðu geðheilbrigðismála hér á landi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður fór með rannsókn þe...

Morðið á Hannesi Þór Helgasyni 01.04.2026

Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði verknaðinn en hann var hugfanginn af kærustu Hannesar og hafði fyrir morðið sett ástarjátningu til hennar á YouTube. Patrik Atlason, systursonur Hannesar, va...

Rock star Supernova ævintýrið 16.02.2026

Átta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa og  samkeppnisaðilar á markaði fóru í samstillt átak til að koma sem flestum atkvæðum í gegnum símakosningu. Magni lenti í fjórða sæti í keppninni en við heimkomu færði ráðherra honum gjöf...

Wok On málið / Quang Le 02.02.2026

Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í málinu sem kennt er við veitingastaðinn Wok On þar sem hann var einn eigenda. Málið er talið vera umfangsmesta mansalsmál Íslandssögunnar, teygir anga sína í ótal áttir og tekur óvænta stefnu o...

PIP brjóstapúðamálið 19.01.2026

Yfir 400 íslenskar konur fengu grædda í sig ólöglega silikonpúða á árunum 2000-2010 frá fyrirtækinu PIP. Í brjóstapúðunum var iðnaðarsilikon í stað læknisfræðilegs silikons og voru þeir í mörgum tilvikum byrjaðir að leka. Í Eftirmálum förum við yfir þetta risastóra svikamál og ræðum við eina þeirra sem fékk púðana grædda í sig með skelfilegum afleiðingum. Málið er enn í gangi fyrir dómstólum meira...

Skáksambandsmálið 06.01.2026

Sérsveitin réðist inn í húsnæði Skáksambands Íslands með látum í janúar 2018 eftir að dularfullur pakki barst þangað. Um svipað leyti féll íslensk kona fram af svölum á heimili sínu á Spáni og lamaðist. Þessi atvik og fleiri urðu hluti af Skáksambandsmálinu svokallaða, marglaga sakamáli sem líkist einna helst kvikmyndahandriti. Í þættinum förum við yfir atburðarásina með fréttamanninum Sunnu Sæmun...

Raðmorðinginn og íslenska eiginkonan 22.12.2025

Rex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt fjölda kvenna á Gilgo ströndinni í New Jersey og bíður nú réttahalda vestanhafs. Talið er að hann hafi framið einhver ódæðisverkanna á meðan Ása var í fríi með börn þeirra á Íslandi. Við förum y...

Hvarf Lúðvíks Péturssonar í Grindavík 08.12.2025

Í dimmum og köldum janúarmánuði árið 2024 átti sér stað hræðilegt slys í Grindavík þegar jörðin opnaðist og Lúðvík Pétursson, verktaki sem var við gröfuvinnu á svæðinu, hvarf ofan í sprunguna. Þjóðin stóð á öndinni á meðan fordæmalaus leit fór fram í stórhættulegum aðstæðum. Í þættinum er rætt við dætur Lúðvíks sem vilja endurheimta líkamsleifar föður síns. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -NOLA snyr...

Braggamálið 18.02.2025

Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann.  Þátturinn er í boði: Nettó     Duck & Rose Sjö...

Gýgjarhólsmálið 03.02.2025

Í mars 2018 kom upp morðmál á sveitabænum Gýgjarhóli II í uppsveitum Árnessýslu þegar maður varð bróður sínum að bana með hrottafengnum hætti. Málið lamaði samfélagið í sveitinni og  fjölskylda bræðranna sat eftir í sárum. Í þættinum fara börn fórnarlambsins yfir áfallið, baráttuna fyrir dómstólum og hvernig líf þeirra breyttist þennan örlagaríka dag.  Þátturinn er í boði: Nettó     Duck & Ros...

Flugslysið í Skerjafirði 20.01.2025

Í ágúst árið 2000 hrapaði lítil flugvél í sjóinn í Skerjafirði í Reykjavík með sex manns innanborðs. Fólkið var á leið heim eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar vélin hætti við lendingu á síðustu stundu. Flugslysið vakti strax upp stórar spurningar og varð að risastóru fréttamáli þar sem aðstandendur fórnarlambanna tóku rannsóknina í eigin hendur til að komast að sannleikanum. Friðrik Þór Guðmun...

Öskjuhlíðarmálið 29.12.2024

Eitt þekktasta sakamál okkar tíma er Öskjuhlíðarmálið eða GAP málið svokallaða. Fá morðmál hafa vakið meiri óhug meðal þjóðarinnar sem hélt niðri í sér andanum á meðan leit stóð yfir af Einari Erni Birgis, farsælum og vinamörgum viðskipta- og íþróttamanni í blóma lífsins. Eftir nokkurra daga leit játaði viðskiptafélagi hans og vinur að hafa myrt hann og komið líkinu fyrir í gjótu á Reykjanesi, en...

Jón stóri 20.12.2024

Jón stóri var á árunum 2009 til 2013 umtalaðasti og umdeildasti maður landsins. Hann lifði og hrærðist í undirheimunum og talaði opnskátt um fíkniefnaneyslu og glæpi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlaviðtölum þar sem allt var látið flakka. Líf hans einkenndist af glamúr og partýstandi en hann átti líka mjög myrkar hliðar. Í Eftirmálum förum við yfir lífshlaup Jóns stóra og ræðum við fyrrum kærustu h...

Aukaþáttur - Vendingar í máli Söndru Sigrúnar 05.09.2024

Fjölskylda Söndru Sigrúnar Fenton vinnur nú að því með íslenskum lögmanni að reyna að fá hana framselda til Íslands.  Lögmaðurinn hefur rætt við íslensk stjórnvöld og er í sambandi við dómsmálaráðuneytið vegna málsins. Lögmaðurinn og Margrét Fenton, mamma Söndru Sigrúnar, ræða stöðuna í þættinum. 

Búsáhaldabyltingin 20.03.2024

Mótmælin í kjölfar efnahagshrunsins 2008 eiga engan sinn líka í sögunni. Allt byrjaði þetta friðsamlega en mótmælin stigmögnuðust samhliða reiði og ólgu í samfélaginu. Á endanum sauð upp úr og upplausnarástand ríkti á Austurvelli, þar sem eldur logaði víðs vegar, mótmælendur köstuðu skyri, eggjum og grjóti í lögreglumenn og reyndu að brjóta sér leið inn í Alþingishúsið. Stefán Eiríksson, sem var l...

Rauðagerðismálið 04.03.2024

Nýr veruleiki blasti við í íslensku samfélagi einn sunnudagsmorgun í febrúar 2021 þegar fréttir bárust af kaldrifjuðu morði í Rauðagerði, götu í rólegu fjölskylduhverfi í Reykjavík. Sá myrti var skotinn níu sinnum fyrir utan heimili sitt. Atburðurinn var fordæmalaus, minnti einna helst á aftöku og þótti marka aukna hörku í undirheimum Íslands. Í Eftirmálum förum við yfir atburðarásina í þessu umfa...

Mál Róberts Downey og uppreist æra 20.02.2024

Líklega óraði engan fyrir því að barátta þolenda kynferðisbrotamannsins Roberts Downey fyrir upplýsingum um uppreista æru myndi verða til þess að sprengja ríkisstjórn Íslands haustið 2017, en svo fór. Uppreist æru málið hristi hressilega upp í þjóðinni og óvænta stefnu þegar þegar meðmælabréf með dæmdum barnaníðingum voru gerð opinber. Málið skók þjóðina, stjórnmálin og umræðuna en Sigríður Anders...

Bitcoin-málið 05.02.2024

Innbrot í gagnaver í Reykjanesbæ í lok árs 2017 markaði upphaf Bitcoin-málsins svokallaða, sem oft er talað um sem stærsta þjófnað Íslandssögunnar. Málið tók nýja og ævintýralega stefnu þegar Sindri Þór Stefánsson, einn þeirra sem tók þátt í innbrotinu, trauk úr fangelsinu að Sogni og flaug til útlanda í sömu flugvél og forsætisráðherra. Alda Hrönn Jóhannsdóttir, sem rannsakaði málið, ræðir þessa...

Hvarf Valgeirs Víðissonar 22.01.2024

Í sumar eru 30 ár síðan Valgeir Víðisson hvarf sporlaust af heimili sínu á Laugavegi.  Hvarfið er eitt umtalaðasta og dularfyllsta lögreglumál okkar tíma og rannsóknin stóð yfir árum saman. Ótal flökkusögur urðu til og lögeglu bárust fjöldi ábendinga og samsæriskenninga í gegnum árin en allt kom fyrir ekki, hvarf Valgeirs er enn óupplýst. Hörður Jóhannesson fyrrum rannsóknarlögreglumaður rifjar up...

Lekamálið 09.01.2024

Hanna Birna Kristjánsdóttir sætti líflátshótunum og þurfti lögregluvernd þegar hún var innanríkisráðherra fyrir áratug. Ástæðan er Lekamálið svokallaða, þegar minnisblaði með persónuupplýsingum um hælisleitendur var lekið úr ráðuneyti hennar til fjölmiðla. Í framhaldinu fór af stað fordæmalaus atburðarás og úr varð eitt stærsta fréttamál áratugarins. Lekamálið varð til þess að Hanna Birna hætti al...

Catalinumálið 12.09.2023

Catalina Ncogo var umtalaðasta kona landsins árið 2009 og hristi rækilega upp í íslensku samfélagi. Saga Catalinu er lyginni líkust en hún fór frá því að vera húsmóðir í Vestmannaeyjum í að vefja karlmönnum um fingur sér og halda úti umfangsmestu vændisstarfsemi Íslandssögunnar í næsta húsi við lögreglustöðina á Hverfisgötu. Fallið var hátt þegar hún hlaut þungan fangelsisdóm fyrir milligöngu um v...

Dularfullt andlát á Litla–Hrauni 03.09.2023

Þegar fangi lést með dularfullum hætti og án sýnilegra áverka á Litla-Hrauni árið 2012 fór af stað löng og afdrífarík atburðarás. Tveir alræmdustu handrukkarar landsins voru ákærðir í málinu, en ekki er allt sem sýnist. Annar þeirra, Annþór Karlson, fer yfir þetta óvenjuega mál í þættinum en rannsóknin er ein sú ítarlegasta sem lögregla hefur ráðist í á síðari árum og tók fimm ár fyrir dómstólum....

Lúkasarmálið 22.02.2023

Umtalaðasti hundur Íslandssögunnar er án efa kínverski smáhundurinn Lúkas sem hvarf á Akureyri sumarið 2007. Út breiddist sú lygasaga að hópur drengja hefði leikið sér að því að drepa varnarlausan hundinn með hrottafengnum hætti. Þjóðin sameinaðist í sorg, haldnar voru minningarathafnir og kommentakerfi netheima loguðu. Þegar Lúkas fannst á lífi nokkrum vikum síðar tók málið aðra stefnu og varð ke...

Flugslys við Þingvallavatn 24.01.2023

Ein erfiðasta og umfangsmesta leit sem lögregla og björgunarsveitir hafa farið í hér á landi var þegar lítil flugvél hvarf í byrjun febrúar 2022. Fjórir voru um borð í vélinni, vanur íslenskur flugmaður og þrír erlendir ferðamenn og áhrifavaldar. Dagana fyrir slysið höfðu þeir ferðast um landið íslenskum vini sínum, Jóni Ragnari Jónssyni. Í Eftirmálum lýsir Jón Ragnar frá fyrstu hendi þeirri óhugn...

Ísafjarðarmálið 11.01.2023

Eitt umtalaðasta fréttamál síðari tíma er Ísafjarðarmálið svokallaða sem setti íslenskt samfélag á hliðina í tvígang. Málið kom upp árið 2006 þegar DV birti forsíðu með fyrirsögn um einhentan kennara sem olli gríðarlegu fjaðrafoki. Málið skaut svo aftur upp kollinum sjö árum síðar en þá komu í ljós aðrar hliðar á því. Andri Ólafsson, blaðamaðurinn sem skrifaði upphaflega um málið, fer yfir atburða...

Słuchaj podcastu Eftirmál w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS