TBR
Tbr Listinn
Íslenskt bókahlaðvarp
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sumarlestur! 01.06.2026 35:33
Síðasti þátturinn í seríu 2 hefur litið dagsins ljós! :( Alma og Fjóla setjast niður og ræða um stemninguna sem þær vilja hafa í lestrinum í sumar. Bæði í bókunum og í umhverfinu sem þær ætla að lesa í. Heyrst hefur að þær séu báðar að plana mikið ferða og sólarfrí, spurningin er bara hvort að veðurguðirnir hlusti á bænir þeirra og gefi þeim smá sól með lestrinum. Og auðvitað fóru þær í smá útir...
RDG Bókakarakterar og bóklegir hlutir 28.05.2026 49:30
Anna Karen og Fjóla standa vaktina að þessu sinni á meðan Alma spókar sig í sólinni á Spáni. Efni þáttarins að þessu sinni er létt bókaspjall og svo RDG eða R**a, drepa, giftast þar sem þemað eru bæði bókakarakterar og bókalegir hlutir eða aðstæður. Léttur og skemmtilegur þáttur að þessu sinni! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
Yesteryear - HÖSKULDARVIÐVÖRUN 18.05.2026 1:20:31
Alma og Fjóla eru báðar nýbúnar með bók sem er sjóðheitt umræðuefni þessa dagana, en það er engin önnur en bókin Yesteryear eftir Caro Claire Burke! Stelpurnar gætu talað endalaust um bókina en hafa þó sett niður nokkur atriði sem þær ætla að tala um, einfaldlega því þær fengu ekki lengri upptökutíma. Annars sætu þær líklega ennþá í Kompunni á Borgarbókasafninu í Grófinni að tala um þessa bók... ...
PÍB - Remarkably Bright Creatures 11.05.2026 49:37
Við erum strax komnar með annan þátt af poppkorn í blaðsíðunum! Í þetta sinn setjast Alma og Fjóla niður og ræða saman um bók og mynd; Remarkably Bright Creatures. Þær eru sammála um flest allt sem viðkemur bæði bók og mynd en við viljum endilega heyra hvað ykkur finnst! Kolkrabbar, menn að taka út þroska og bara allt væbið. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvar...
Bækur sem létu okkur gráta 04.05.2026 29:10
Þátturinn í dag er heldur rólegur og smá sár. Við förum yfir þær bækur sem hafa látið okkur gráta í gegnum tíðina. Við fórum samt ekki yfir allar, Alma og Fjóla væru enn í upptökum ef svo væri... Við viljum alltaf á okkur tárum bæta svo ef þið hafið grátibækur í farteskinu endilega deilið þeim með okkur! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
Bókakrydd kemur í heimsókn! 28.04.2026 57:52
Í þessum þætti fáum við frábæran gest, en það er engin önnur en hún Íris sem rekur Bókakrydd. Við stelpurnar erum búnar að vera ansi forvitnar um Bókakrydd þar sem við erum rétt að fá smjörþefinn af þeim frábæru hlutum sem sem Íris ætlar sér. Við ræðum við hana um hvað Bókakrydd er, hvað er henni mikilvægt og hvert hún ætlar sér. Að sjálfsögðu förum við svo langt út fyrir umfjöllunarefnið eins o...
Poppkorn í blaðsíðunum 13.04.2026 43:22
Í dag, eftir tveggja vikna pásu, kemur út nýr liður hjá okkur sem við erum að kalla Poppkorn í blaðsíðunum! Í þessum þáttum lesum við bók, horfum svo á myndina og ræðum bæði bók og mynd. Erum við sáttar við hvernig bókin kom út? Hvort fannst okkur betri platform fyrir söguna? Ná karakterarnir að skína í gegn? Var myndin jafnvel betri en bókin???? Umfjöllunarefni þáttarins er SPOILER Project Hail...
Fyrsta bls - Síðasta bls 22.03.2026 1:16:34
Alma og Fjóla tækla verkefnið "fyrsta blaðsíða - síðasta blaðsíða" sem stelpurnar settu sér fyrir fyrir nokkrum þáttum síðan. Alma var með bókina "The Nowhere Girls" og Fjóla var með bókina "The Inevitable Victorian Thing". Þetta voru eins ólíkar bækur og hugsast getur og sagan segir að Fjóla er ennþá mjög ringluð og Alma er enn meiri rauðsokka eftir þennan þátt. Þið finnið okkur á öllum samfélags...
Kúrekarómans 16.03.2026 1:06:43
Í þessum þætti fengu þær Fjóla og Anna Karen það verkefni frá Ölmu að lesa eina kúrekarómans. Alma var stödd á bókamessu og var því fjarri góðu gamni (eða bara í öðru gamni). En hún skildi eftir þau fyrirmæli að við læsum Chasing the wild eftir Elliott Rose og ræddum svo í þætti. Við setjum höskuldar viðvörun á þennan þátt þar sem við förum frekar vel yfir söguna en einnig er um frekar gróft orðbr...
Lestrarlægðar þerapíur 02.03.2026 46:41
Fjóla og Alma fara í gegnum nokkur tips and tricks til að koma mani í gegnum erfiðu lestralægðirnar sem vilja stundum leggjast á man. Alma kemur einnig með nokkrar hugmyndir af bókum, sem er auðvelt að lesa, ef þið eruð alveg týnd í bókaflórunni! Gleymdum við einhverju eða viltu segja frá þínum aðferðum til að losna úr lægð? Segðu okkur frá því á samfélagsmiðlunum okkar! Þið finnið okkur á öllu...
Bókahrollar 23.02.2026 1:11:50
Alma og Anna Karen ræða saman um nokkra bókahrolla (e. bookish pet peeves) og fara yfir hvað fer verst í þær. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
Ég hef aldrei - Bókaútgáfa 16.02.2026 1:23:39
Stelpurnar eru komnar með lista af spurningum, svona Ég hef aldrei stemning, og svara þær allar! Einnig erum við að byrja nýja áskorun þar sem við lesum fyrstu og síðustu blaðsíðuna af bók og reynum að giska hvað gerist í henni. Síðan komum við saman og látum ykkur vita hvað gerðist í raun og veru í bókunum okkar. Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta;...
Pucking Mad About You 02.02.2026 39:17
Alma og Anna Karen taka fyrir bókina Pucking Mad About You eftir elsku bestu Karen C. McDermott okkar. Þetta er bókin sem kom okkur í íshokkí gírinn áður en Heated Rivalry tók yfir líf okkar, já allra nema Önnu Karenar þó að hún hafi lofað að horfa á þættina fyrir næstu upptökur! Bókina hennar Karenar má finna á Amazon en einnig er hægt að sérpanta hana í gegnum bóksölu stúdenta ef þið viljið ei...
Heated Rivalry 19.01.2026 1:03:03
Alma og Fjóla setjast niður í þætti dagsins og tala um nýjasta æðið sitt. Íshokkí rómans þættina Heated Rivalry! Myndatakan, þættirnir, bækurnar, höfundurinn, leikararnir, þetta bara getur ekki orðið betra! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlistinn
1 stjörnu umsagnir - íslensku þýddar 12.01.2026 51:05
Stelpurnar koma saman og segja okkur frá nokkrum einnar stjörnu umsögnum um bækurnar sem þær hafa lesið og nokkrar sem þær ætla sér að lesa, twistið er að þær íslensku þýddu þær allar! Mikið hlegið, smá pirringur og svakalega skemmtilegar umsagnir svo þið ættuð ekki að láta þennan þátt framhjá ykkur fara! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlisti...
Nýársþáttur! 05.01.2026 56:48
Alma og Fjóla taka upp fyrsta þátt ársins. Stiklum við á ansi mörgu þennan þátt en við förum snögglega yfir þær bækur sem við lásum í jólafríinu, tölum um tölvuleikinn Split Fiction sem Alma kláraði yfir jólin og leikritið Hamlet sem þær fóru á ásamt Lilju og Þorbjörgu skvísum. Við hlökkum til frábærs lesárs með ykkur! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta...
Áramótaþáttur! 29.12.2025 1:06:51
Í þættinum í dag förum við í smá hraðaspurningar og teljum upp flestar bækurnar sem við höfum lesið frá því í byrjun ágúst. Alma sá algjörlega um að búa til spurningar svo Fjóla og Anna KAren vita ekkert hvað þær eru að fara út í. Við viljum óska ykkur gleðilegrar hátíðar og frábært nýtt ár, við þökkum innilega fyrir að þið hafið verið okkur samferða á þessu frábæra bóka ári! Megum við eiga frá...
Jólaþáttur! 22.12.2025 1:31:39
Alma og Anna Karen taka smá spjall um jólin og bækur. Fjóla er því miður fjarri góðu gamni en við óskum henni góðra jóla þar sem hún er stödd! Anna Karen stjórnar þessum þætti með sterkri hendi og spyr Ölmu nokkrar spurningar sem hún svo sjálf svarar líka. Gott spjall um allt tengt jólunum og eins og svo oft með þessar stöllur fer spjallið um víðan veg, kannski of víðann en samt ekki. VVið ósku...
Heimsins besti dagur í helvíti - Viðtal 15.12.2025 1:50:48
Fjóla sest niður með Lilju Ósk Snorradóttur í einlægu spjalli um upplifun hennar af veikindum í kjölfar höfuðáverka. En Lilja skrifaði og gaf út bókina Heimsins besti dagur í helvíti þar sem hún segir frá þessu ferli. Bókin er einlæg og hrá með persónulegri frásögn þar sem engin glansímynd er til staðar. Þessi bók á fullt erindi inn á hvert heimili og er virkilega mikilvæg til að vekja athygli á s...
Jólabókaflóðið 08.12.2025 1:05:59
Fjóla veik, Anna Karen þunn og Alma með rugluna. Þetta getur ekki verið nema góður þáttur! Hér förum við yfir nokkrar bækur úr jólabókaflóðinu, þær sem við erum sérstaklega spenntar fyrir eða höfum þegar lesið og elskum! (Einnig kemur Alma með eilítið skemmtiatriði, en við skulum ekkert vera að tala um það...) Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlist...
Sesselía Ólafs - Silfurberg 01.12.2025 1:08:29
Alma oog Fjóla fengu til sín frábæran gest en hún Sesselía Ólafs kom til okkar til að ræða nýju og fyrstu bókina sína Silfurberg. Frábært spjall um bókina, listina og Ölmu að fangirl-a. Við mælum innilega með þessari bók í jólapakkann í ár! Þið finnið Sesselíu á þessum samnfélagsmiðlum; Tiktok; sesseliao Insta; sesseliao Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta...
Dóra og Alma spjalla! 24.11.2025 59:44
Í þessum þætti fær Alma til sín góða gesti, þó önnur taki virkari þátt í umræðunni. Mæðgurnar Dóra og Emma kíkja æí heimsókn og hjálpa Ölmu með þáttinn þar sem að Anna Karen og Fjóla eru fjarri góðu gamni. Tala Alma og Dóra um allskonar bóka-, og Dóru, tengda hluti og dálítið mikið um Bóksölu stúdenta, sem stendur þeim báðum nú frekar nærri! Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TB...
Afmælisþáttur Önnu Karenar! 17.11.2025 1:01:27
Nú fer að líða að afmælinu hennar Önnu Karenar svo að hún fékk að taka algjöra stjórn á þessum þætti! Við förum hér yfir hvað við myndum velja af hlutum sem Anna Karen setur fram fyrir okkur. Stundum erum við mjög sammála og stundum erum við mjög ósammála, en gerist það ekki á bestu bæjum? Hvað myndir þú velja? Þið finnið okkur á öllum samfélagsmiðlum; Tiktok; TBR Listinn hlaðvarp Insta; tbrlist...
Jólafólin - Viðtal 11.11.2025 1:07:51
Í þætti vikunnar fengum við góða gesti í stúdíó til okkar. Feðginin og þjóðfræðingana Dagrúnu og Jón. En þau voru rétt í þessu að gefa út bókina "Gömlu Íslensku Jólafólin" þar sem þau hafa rýnt í gamlar heimildir og fræði um sögu jólasveina á Íslandi, segja frá jólasveinum sem við ef til vill vissum ekki af ásamt því að segja frá sögu Grýla og Leppalúða mun nánar en áður hefur tíðkast Þetta er vir...
Hryllingsbækur! 27.10.2025 1:10:21
Alma og Anna Karen ræða nokkrar bækur sem gaman er að taka í október og nóvember! Bækurnar sem við tölum um eru eftirtaldar; A Short Stay in Hell - Steven L. Peck Graveyard shift - M.I. Rio The Haar - David Sodergren Gone to See the River Man - Kristopher Triana What moves the Dead - T. Kingfisher Something Wicked This way Comes - Ray Bradbury Hare House - Sally Hinchcliff The Other Side of the...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.