RÚV

Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur

Arts IS ↓ 51 episodes

Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir

Author

RÚV

Category

Arts

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Aug 7, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Rósa Ólöf Ólafíudóttir 07.08.2025

Rósa Ólöf Ólafíudóttir ólst upp í mikilli fátækt og bjó á mörgum vistheimilum þar sem hún hlaut misgott atlæti. Hún þráði ekkert heitar en að fá að búa hjá móður sinni sem þráði að hafa börn sín hjá sér en fékk ekki. Rósa vinnur nú að því að skrifa sögu bróður síns heitins, Lalla Johns.

Valdimar Guðmundsson 06.08.2025

Valdimar Guðmundsson.

Sema Erla Serdaroglu 05.08.2025

Sema Erla Serdaroglu hefur verið áberandi undanfarið ár í baráttu fyrir réttindum flóttafólks. Hún hefur fengið hótanir í ýmsu formi síðan hún hóf að vinna fyrir þennan hóp og hefur ekki tölu á öllum þeim hótunum sem henni hafa borist. Gjarnan er vísað í uppruna hennar en Sema er hálf tyrknesk en hefur alltaf búið á Íslandi, gekk hér í skóla og er fermd til kristinnar trúar þó hún aðhyllist engin...

Auður Guðjónsdóttir 31.07.2025

Auður Guðjónsdóttir hefur í yfir þrjá áratugi barist fyrir rannsóknum á mænuskaða eftir að Hrafnhildur dóttir hennar lamaðist í alvarlegu bílslysi. Við heyrum sögu Auðar og Hrafnhildar heitinnar í þættinum í dag.

Patrik Atlason 30.07.2025

Þegar Patrik Atlason var lítill ætlaði hann að verða betri en pabbi sinn í fótbolta. Þegar það gekk ekki eftir sneri hann sér alfarið að tónlistinni og það hefur heldur betur skilað sér enda er hann einn vinsælasti tónlistarmaður landsins í dag. Hann reynir ekki að fela hvaðan hann kemur og segist hafa fengið meira en margir aðrir. Hann ræðir lífið, ferilinn og áfallið sem mótaði fjölskylduna þega...

Gerður Jónsdóttir - Gerða Inshape 29.07.2025

Íþróttafræðingurinn Gerða Jónsdóttir hefur slegið í gegn með líkamsræktarnámskeið sín undir nafninu Inshape. Hún ræðir æskuna í Mosfellsdalnum, íþróttirnar, sáran systurmissi, áföll og hvernig getur hjálpað manni á öllum aldursskeiðum.

Bríet Ísis Elfar 24.07.2025

Söngkonan Bríet hefur verið lengi í sviðsljósinu þrátt fyrir ungan aldur. Hún var 16 mánaða þegar hún byrjaði að fara í svett indjánaathafnir með móður sinni sem hún segir hafa mótað sig mikið. Hún ræðir bernskuna, ferilinn og það sem framundan er.

Júlía Margrét Alexandersdóttir og Freyr Gígja Gunnarsson 23.07.2025

Hjónin Júlía Margrét og Freyr Gígja ræða à einlægan og opinskáan hátt um geðhvörf sem Júlía veiktist fyrst af fyrir 15 árum. Þau veita dýrmæta innsýn inn í það hvernig er að veikjast af þessum sjúkdóm og vera aðstandandi í þeim aðstæðum.

Gulla Bjarnadóttir 08.08.2024

Gulla Bjarnadóttir átti óvenjulega æsku. Fyrsta árið var hún vistuð á barnaheimili þar sem foreldar hennar deildu um forræði yfir henni. Móðir hennar var andlega veik og faðir hennar glímdi við alkhólisma en hann fékk á endanum forræðið yfir henni. Hann hvarf oft í nokkra daga þegar hann datt í það en móðir hennar brýndi fyrir henni að láta engan vita af því svo kerfið myndi ekki skipta sér af. Hú...

Nadine Guðrún Yaghi 07.08.2024

Fjölmiðlakonan Nadine Guðrún Yaghi er hálf íslensk og hálf líbönsk. Foreldrar hennar skildu þegar hún var fimm ára og móðir hennar þorði ekki að senda hana og systur hennar einar til pabba þeirra í frí vegna aðvarana annarra um að kannski kæmu þær ekki aftur til baka. Hún heldur sambandi við föður sinn og vann meðal annars á sumrin í menntaskóla á hótelkeðjum í Miðausturlöndum sem faðir hennar var...

Ingi Hans Ágústsson 06.08.2024

Ingi Hans Ágústsson hefur alltaf búið á Íslandi en er af þýskum uppruna en foreldrar hans fluttu bæði til Íslands eftir stríð. Hann bjó við mikinn harðræði í æsku; ofbeldi og mikinn aga. Hann segist í raun aldrei hafa elskað foreldra sína en hafi þó ákveðið sem ungur maður að láta af reiðinni í garð þeirra fyrir sig. Hann á albróður í Þýskalandi sem hann hefur aldrei hitt og átti systir sem var gr...

Óskar Finnsson 01.08.2024

Árið 2019 greindist Óskar Finnsson matreiðslumeistari með banvænt krabbamein og lífslíkurnar voru sagðar vera innan við tvö ár. Hann gjörbreytti öllu sínu lífi. Hann segist fyrst og fremst þakklátur fyrir að vera enn hér og fá að hafa tilgang. Hann ræðir matreiðsluna, baráttuna við krabbameinið, æðruleysið og ævintýrin.

Páll Matthíasson 31.07.2024

Páll Matthíasson fyrrverandi forstjóri Landspítalans segir margt hafa breyst í geðlækningum. Hann lærði geðlækningar í Bretlandi eftir að hafa ferðast um Suður-Ameríku í nokkra mánuði með vinum sínum. Í Bretlandi kynntist hann öðrum aðferðum en þekktust hér heima og hefur unnið að því að breyta kerfinu hér heima frá því hann kom frá námi. Hann segir margt gott hafa breyst þó vissulega megi margt b...

Bergþóra Snæbjörnsdóttir 30.07.2024

Bergþóra Snæbjörnsdóttir rithöfundur og baráttukona segist skrifa útaf þráhyggjum sínum. Hún hætti að drekka fyrir tólf árum eftir að hafa reynt að hætta alla sunnudaga eftir djamm. Hún hefur undanfarið hjálpað flóttafólki frá Palestínu og fór til Egyptalands til að ná í fjölskyldu vinar síns og segir það hafa verið ótrúlega upplifun að hjálpa til við að sameina fjölskyldu sem hafði ekki verið sam...

Jóhannes Kr. Kristjánsson 25.07.2024

Fjölmiðlamaðurinn Jóhannes Kr Kristjánsson missti föður sinn þegar hann var 11 ára gamall og segist stundum hugsa um að líf sitt hefði orðið öðruvísi ef það hefði ekki gerst. Hann varð reiður í kjölfarið og var sendur sem unglingur á heimavistarskóla. Hann lifir og hrærist í blaðamennskunni og hefur undanfarið unnið að þáttum þar sem hann hefur verið fluga á vegg hjá kynferðisbrotadeild lögreglunn...

Sandra Barilli 24.07.2024

Sandra Gísladóttir eða Sandra Barilli eins og hún er gjarnan kölluð vissi ekkert hvað hún var að fara út í þegar hún tók að sér hlutverk umboðsmannins Mollý í þáttunum Iceguys ásamt því að framleiða þættina. Hún lærði leiklist en segist þó eiginlega alls ekkert vilja leika þó hún hafi reynt fyrir sér hér og þar. Sandra ræðir Ítalíu, leiklistarnámið, leiklistina, framleiðslu og karíóki svo eitthvað...

Agnar Bragason 23.07.2024

Agnar Bragason forstöðumaður í Batahúsi missti móður sína, stjúpföður og tvö systkini í bruna þegar hann var sjö ára gamall. Líf hans varð ekki samt eftir það. Hann ólst upp við alkhólisma og ofbeldi og leiddist út í afbrot og neyslu á unglingsárum. Hann sat margoft inn í fangelsum þar til honum tókst að komast á breinu brautina fyrir tólf árum síðan og er í dag að hjálpa fólki í sömu sporum og ha...

Una Torfadóttir 18.07.2024

Söngkonan Una Torfadóttir hefur alltaf verið óhrædd við að hafa sínar eigin skoðanir. Hún segir það vera gjöf úr æsku þar sem hlustað var á hana. Hún kemur úr tónelskri fjölskyldu sem syngur gjarnan saman þegar þau hittast og viðurkennir hún að líklega finnist einhverjum það undarlegt. 19 ára gömul greindist hún með krabbamein sem hún segir hafa kennt sér dýrmæta lexíu og breytt sýn sinni á lífið.

Jóna Dóra Karlsdóttir 17.07.2024

Jóna Dóra Karlsdóttir missti tvo syni sína í hræðilegum bruna árið 1985. Tveimur árum síðar stofnaði hún ásamt fleirum samtökin Ný dögun eftir að hafa komist að því að enga hjálp var að fá fyrir aðstandendur í hennar sporum. Á dögunum hlaut hún fálkaorðuna fyrir störf sín í þágu syrgjenda. Jóna Dóra ræðir sorgina, strákana sína og hvernig það er hægt að lifa áfram eftir að upplifa barnsmissi.

Agnar Jón Egilsson 16.07.2024

Agnar Jón Egilsson var á dögunum valinn leikstjóri ársins á Grímunni. Hann fór ungur að lifa tvöföldu lífi - í samtökunum 78 og á djamminu aðeins 14 ára gamall. Honum fannst hann ekki passa inn í normið en fann sig í leiklistinni og sérstaklega í spuna eftir að hafa upplifað mikinn kvíða. Agnar er á tímamótum í lífi sínu; nýskilinn og kominn í nýtt starf. Agnar ræðir unglingsárin, kvíðann, eltihre...

Ástrós Rut Sigurðardóttir 20.07.2022

Ástrós var rétt rúmlega tvítug þegar hún tókst á við það verkefni að fylgja manni sínum í gegnum erfið veikindi. Þau ákváðu að lifa lífinu lifandi meðan þau gætu og gera allt sem þeim langaði til. Milli þess barðist hann fyrir lífi sínu en á endanum sigraði krabbameinið og fyrir þremur árum lést Bjarki Már, aðeins 32 ára gamall. Þá stóð Ástrós uppi ein með tæplega eins árs barn og hafði enga hugmy...

Guðmundur Ingi Þóroddson 19.07.2022

Guðmundur Ingi hefur setið um 16 ár af ævi sinni í fangelsi og þekkir fangelsismál út og inn. Hann er formaður Afstöðu - félags fanga sem barist hefur fyrir bættum úrræðum í fangelsum landsins. Hann telur fangelsiskerfið hér á landi vera langt á eftir öðrum Norðurlandaþjóðum og margt sé hægt að gera til þess að koma í veg fyrir frekar glæpi fanga og endurkomur í fangelsin.

Hulda Vilhjálmsdóttir 18.07.2022

Hulda Vilhjálmsdóttir myndlistarkona ræðir listina og lífið.

Sigríður Lund Vídó Hermannsdóttir 14.07.2022

Útvarpskonan Sigga Lund var frá barnæsku afar trúuð og taldi sig vanta æðri tilgang í lífið. Hún gifti sig 18 ára en skildi nokkrum árum síðar og endaði í biblíuskóla í Bandaríkjunum. Það var örlagarík ferð sem endaði með að hún var í sértrúarsöfnuði næstu árin þar sem hún réði litlu sem engu um líf sitt en treysti á leiðsögn leiðtoga safnaðarins.

Svavar Georgsson 13.07.2022

Svavar Georgsson var ungur þegar hann leiddist út á ranga braut. Hann var heimilislaus í mörg ár og bjó meðal annars í tjaldi í rjóðri í Breiðholti í tvö ár. Fyrir tæpum þremur árum sneri hann lífi sínu við til þess að geta verið til staðar fyrir börnin sín og einbeitir sér í dag að því að reyna verða betri maður og láta gott af sér leiða til samfélagsins. Við heyrum sögu Svavars í dag.

Listen to the Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.