RÚV
Segðu mér með Viktoríu Hermannsdóttur
Gestur úr öllum kimum þjóðfélagsins deila sögu sinni með hlustendum. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Stefanía Thors 12.07.2022 41:54
Stefanía Thors varð óvart kvikmyndaklippari en klippir í dag kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Hún lærði leiklist í Tékklandi og bjó þar í þrettán ár og vann sem leikkona á daginn og aðstoðarklippari á kvöldin til þess að eiga í sig og á.
Heiða B. Heiðarsdóttir 11.07.2022 39:29
Árið 1964 birtist í Morgunblaðinu auglýsing þar sem auglýst var eftir ungum hjónum til að taka að sér kjörbarn. Þeir sem höfðu áhuga voru beðnir um að senda bréf merk Kjörbarn - 9203. Þetta barn var Heiða B. Heiðarsdóttir sem eignaðist yndilega foreldra. Hún leitaði hins vegar lengi að blóðföður sínum og komst ekki að sannleikanum um hann fyrr en hún var komin á sextugsaldur. Við heyrum sögu Heiðu...
Árni H. Kristjánsson 07.07.2022 37:46
Árni H. Kristjánsson hefur undanfarin ár rannsakað svokallaðar vöggustofur sem reknar voru á Íslandi fyrir um hálfri öld. Þar dvöldu ungbörn við afar sérstakar aðstæður sem hafa líklega haft langtímaáhrif á mörg þeirra. Árni hefur ásamt öðrum vöggustofubörnum barist fyrir því að rekstur þeirra verði rannsakaður og að börnin fá réttlæti Árni dvaldi sjálfur á slíkri vöggustofu og segir það hafa móta...
Birgitta Haukdal 06.07.2022 40:21
Þegar Birgitta var 15 ára gömul sá hún auglýsingu í blaði þar sem auglýst var eftir stjörnum morgundagsins. Hún var barnfóstra hjá frænku sinni og fór með börnin á Broadway til þess að fylgjast með prufunni en þó í öruggri fjarlægð því hún þorði ekki að taka þátt. Gunnar Þórðarson sá hana þó í leynum og fékk hana til að taka lagið og segja má að þar hafi fræjum að söngferli hennar verið sáð. Birgi...
Böðvar Sturluson 05.07.2022 41:32
Böðvar Sturluson flutningabílstjóri þekkir lífið á veginum betur en flestir. Hann var varla farinn að tala þegar hann var orðinn svo heillaður af vörubílum að ekkert annað komst að. Hann reyndi að fara aðrar leiðir í lífinu en þessi óbilandi áhugi á vélum og vörubílum hafði betur. Undanfarin àr hefur hann glímt við nýrnabilun á lokastigi sem gerði það að verkum að hann var bundinn við nýrnavél hál...
Sigríður Gísladóttir 04.07.2022 40:02
Sigríður ólst upp hjá móður sem var glímdi við mikil geðræn veikindi. Ung taldi hún það vera á sinni ábyrgð að sjá um móður sína og passa upp á hana. Hún upplifði sinnuleysi kerfisins og hét því að hjálpa börnum í sömu stöðu þegar hún gæti. Það hefur hún gert með því að stofna úrræðið Okkar heimur þar sem börn fólks með geðrænan vanda fá aðstoð.
Tinna Björk Kristinsdóttir 15.02.2021 40:28
Tinna Björk Kristinsdóttir hefur vakið athygli í hlaðvörpunum Þarf alltaf að vera grín? og Mistería. Hún hefur vitað frá unga aldri að hún bæri stökkbreytt gen sem veldur arfgengri heilablæðingu en þetta gen finnst bara í nokkrum fjölskyldum á Ísland og veldur yfirleitt heilablæðingum hjá ungu fólki. Móðir hennar ber líka genið en hvorugar hafa fengið heilablæðingu. Hún segir mikilvægt að skilgrei...
Svala Jóhannesar- Ragnheiðardóttir 11.02.2021 42:21
Gestur þáttarins er Svala Jóhannesar- Ragnheiðardóttir sem hefur starfað með heimilislausum í þrettán ár. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
Lára Ómarsdóttir 10.02.2021 40:11
Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir
Eva Ruza Miljevic 09.02.2021 39:41
Blómasalinn og skemmtikrafturinn Eva Ruza hefur vakið athygli undanfarin ár á samfélagsmiðlum Hún segir frá lífi sínu í blómabúðinni þar sem hún og móðir hennar eru stundum hálfgerðir sálfræðingar. Hún segir líka frá stóra draumnum um að birta í dálknum Hverjir voru hvar í Séð og heyrt og ævintýralegt ferðalag föður síns frá Króatíu þar sem hann ólst upp auk þess sem hún talar um lífið í skemmtana...
Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir 09.02.2021 39:39
Gestur þáttarins er Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir sem ræðir um einamanleika, samskipti og útskúfun sem hún varð fyrir í æsku. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.
Eliza Reid 03.12.2020 39:25
Gestur þáttarins er Eliza Reid forsetafrú. Umsjón hefur Viktoría Hermannsdóttir.
Ásta Dís Guðjónsdóttir 02.12.2020 39:50
Gestur þáttarins er Ásta Dís Guðjónsdóttir sem starfar fyrir PEP, samtök fólks í fátækt. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.
Sigþrúður Guðmundsdóttir 02.12.2020 40:33
Gestur þáttarins er Sigþrúður Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf. Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir.
Hannes Halldórsson 06.08.2020 39:30
Það lá aldrei beinast við að fótbolti yrði að ferli hjá Hannesi Þór Halldórssyni eftir að hann slasaðist illa á snjóbretti þegar hann var 14 ára. Hann segir frá því hvernig hann vann sig upp innan tveggja sviða - fótbolta og kvikmyndagerðar, til þess að þurfa ekki að veðja á annað hvort. Langir vinnudagar hafa skilað honum farsælum ferli á báðum sviðum - þó að það sé ekki endilega alltaf auðvelt a...
Erla Hlynsdóttir 05.08.2020 39:24
Erla Hlynsdóttir er eini Íslendingurinn sem hefur unnið mál gegn íslenska ríkinu þrisvar sinnum fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Hún ræðir erfitt samband sitt við föður sinn sem fyrirfór sér fyrir um þremur árum síðan en áður hafði hann hrellt og ofsótt Erlu án þess að hún gæti nokkuð gert.
Steinþór Hróar Steinþórsson 04.08.2020 38:47
Steindi Jr. ætlaði sér alltaf að verða leikstjóri og stefnir þangað enn. Hann fékk vini sína til að leika sér með í stuttmyndum en endaði sjálfur fyrir framan myndavélina þegar allir höfðu gefist upp á endalausum myndatökum hans. Fyrir örfáum árum íhugaði hann að sækja um í leiklistarskólanum til þess að sækja sér "alvöru" menntun en stóra tækifærið kom þegar hann fékk hlutverk í myndinni Undir tr...
Jasmina Vajzovic Crnac 30.07.2020 40:21
Fyrstu æskuár Jasminu eru sveipuð áhyggjuleysi en allt breyttist þegar stríðið braust út í heimalandi hennar, Bosníu Hersegovinu. Í fjögur ár voru fjölskylda hennar flóttamenn í eigin landi sem lifðu við stöðugan ótta í ömurlegum aðstæðum.
Jóhann Gunnar Arnarsson 29.07.2020 39:23
Hinn sídansandi Jóhann Gunnar starfaði sem bryti á Bessastöðum lengi. Hann hefur alltaf verið óhræddur við að fara eigin leiðir og á eflaust með litríkustu fataskápum landsins.
Jónína Einarsdóttir 28.07.2020 42:46
Jónína Einarsdóttir hefur lifað ævintýralegu lífi en hún og eiginmaður hennar hafa starfað og búið í Gíneu - Bissá. Hún segir frá rannsóknum sínum sem snúa meðal annars að sorg mæðra sem missa börn sín og sveitadvölum - en rannsóknir hennar teygja sig yfirleitt bæði til Íslands og Gíneu - Bissá enda segir hún flest vera sammannlegt.
Helga Braga Jónsdóttir 23.07.2020 40:02
Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir ætlaði sér að verða dramaleikkona en endaði í gríninu. Hún ræðir lífið, ferilinn, kaupæðið, matarfíknina og hvernig hún tók á því þegar það féllu á hana skuldir sem hún var í ábyrgð fyrir.
Tómas Þór Þórðarson 22.07.2020 41:30
Íþróttafréttamaðurinn Tómas Þór var við það að gefast upp á því að hann myndi einhvern tímann grenna sig þegar hann fékk neitun um að fara í magaermisaðgerð vegna þess að hann var of þungur. Hann ræðir hvernig líf hans gjörbreyttist í kjölfarið en á nokkrum árum hefur hann misst 125 kíló og öðlast nýtt líf.
Eyrún Eyþórsdóttir 21.07.2020 40:16
Lögreglukonan Eyrún Eyþórsdóttir mátti þola ofsóknir eftir að hafa stýrt verkefni gegn hatursáróðri hjá lögreglunni. Hún ræðir lögreglustarfið og sögur Íslendinga sem settust að í Brasilíu og eiga hug hennar allan.
Brynja Nordquist 16.07.2020 38:07
Brynja Nordquist var um árabil ein þekktasta fyrirsæta landsins auk þess sem hún var flugfreyja í háloftunum í tugi ára. Hún ræðir litríkt lífshlaup sitt og hvernig það er að vera orðin löglegur eldri borgari sem er óhrædd við að skemmta sér og öðrum á samfélagsmiðlum.
Alma Hafsteinsdóttir 15.07.2020 41:13
Alma Hafsteinsdóttir byrjaði að spila í spilakössum 5 ára með afa sínum en hafði ekki hugmynd um að það myndi heltaka líf hennar síðar. Spilafíknin stýrði lífi hennar í mörg ár en í dag hjálpar hún öðrum í sömu stöðu með því að vekja athygli á vandanum.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.