Ormstungur

Ormstungur

Arts IS ↓ 104 episodes

Íslendingasögurnar! Ormstungur er umræðuþáttur þar sem tveir kennarar, Hjalti Halldórsson og Oddur Ingi, ræða helstu Íslendingasögurnar á léttu nótunum. Tilgangur hlaðvarpsins er að styðja við lestur og upplifun á Íslendingasögunum.

Author

Ormstungur

Category

Arts

Podcast website

www.ormstungur.is

Latest episode

Jun 12, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

14. Gísla saga Súrssonar - Uppgjör 12.06.2026

Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Gíslinn gerður upp og við förum í sjálfskipaða útlegð frá Vestfjörðum.

13. Gísla saga Súrssonar - Einhamar 12.06.2026

Kaflar 34-38 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Lokaorustan harðnar. Gísli fer upp á Einhamar og fellur þaðan. Við föllum öll með honum og Ormstungur falla endanlega á prófinu.

12. Gísla saga Súrssonar - Fé er best eftir feigan 12.06.2026

Kaflar 31-33 í skólaútgáfu Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Njósnar-Helgi fær háðuglega útreið, en ekki verri en Eyjólfur grái þegar feðraveldið fær á snúðinn. Gísla er orðið svo illt í maganum að hann fær sturlaða drauma.

11. Gísla saga Súrssonar - Draumfarir slæmar 12.06.2026

Kaflar 28-30 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Þorkell fellur, ekki fyrir eigin hendi en þó fyrir eigin sverði. Gestur hinn spaki er farinn að toga í spotta. Magaverkir Gísla ágerast og valda honum slæmum draumförum. Hann er þó háll sem áll og ólíklegt að Ormstungur geti nokkurn tímann fangað hann.

10. Gísla saga Súrssonar - Hasar í Hergilsey 12.06.2026

Kaflar 25-27 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Njósnar-Helgi sýnir hvers hann er megnugur en Gísli er snjallari. Hann er nú orðinn frægur enda enginn hraustari eða hugrakkari. Ekki er hann þó gæfumaður.

9. Gísla saga Súrssonar - Útlaginn 12.06.2026

Kaflar 23-24 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Ormstungum hefur ekki tekist að fanga Gísla. Þá er kynntur til sögunnar 007 Íslands, útsendari Eyjólfs gráa, sjálfur Njónsar-Helgi. Gísli reynir enn að fá bróður sinn til að hjálpa sér en Þorkell hafði ekki lesið 152. kafla Njálu og skilur við bróður sinn beran að baki.

8. Gísla saga Súrssonar - Draumkonur 12.06.2026

Kaflar 20-22 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Ormstungur missa Gísla frá sér og hann hrekst að heiman og fer í leiðinni illa með þrælinn Þórð. Hann er dæmdur sekur og fer að finna fyrir ónotum í maganum.

7. Gísla saga Súrssonar - Skammt er þá milli illra verkra og stórra 12.06.2026

Kaflar 17-19 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Nefið belgir út nasirnar og hnusar í allar áttir. Það hefur voveiflegar afleiðingar síðar meir en fyrst er Nefinu komið fyrir kattarnef. Þess á milli játar Gísli á sig morð.

6. Gísla saga Súrssonar - Eigi kann ég helskó að binda ef þessir losna 12.06.2026

Kaflar 14-16 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Þorgrímur reimar skó... já það er merkilegt! Grásíða fær að væta sig blóði í annað sinn og það í höndum manns á nærbuxunum.

5. Gísla saga Súrssonar - Nú falla öll vötn til Dýrafjarðar 12.06.2026

Kaflar 11-13 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Allt vitlaust fyrir vestan! Vötn renna öll til Dýrafjarðar, reflar eru gefnir en ekki þegnir og að lokum er framið morð. Síðast en ekki síst mætir Nefið til leiks.

4. Gísla saga Súrssonar - Oft stendur illt af kvennahjali 12.06.2026

Kaflar 7-10 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Nú dregur til tíðinda. Bræður skipta búi og eftir stendur spurningin: Stendur oft illt af kvennahjali?

3. Gísla saga Súrssonar - Vestfirðir 952 12.06.2026

Kaflar 4-6 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Vestfirðir 952. Það er súld. Lönd eru keypt, fólk giftist og vinir skera sig á púls. Basic.

2. Gísla saga Súrssonar - Allt er vænt sem byrjar í Noregi 12.06.2026

Kaflar 1-3 í skólaútgáfu. Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026. Eins og allar góðar sögur byrjar Gísla saga í Noregi. Nánar tiltekið í Súrnadal. Stemmningin er eins og nafn dalsins gefur til kynna - súr.

1. Gísla saga Súrssonar - Lagt á borð 12.06.2026

Þáttaröð sem tekin var upp árið 2020 en endurhljóðblönduð 2026 Varúð! Hjalti og Oddur eru komnir til Vestfjarða. Það eru blikur á lofti. Útlaginn sjálfur er á skurðarborðinu og það súrnar í stúdíóinu um leið og krufningin hefst.

x Flosi Þorgeirsson 25.05.2026

Viðtalið var upprunalega tekið árið 2021 en endurhljóðblandað árið 2026.  Flosi Þorgeirsson er sagnfræðingur, tónlistarmaður og sérlegur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Flosi og félagi hans, Baldur Ragnarsson, héldu úti hlaðvarpsþáttunum Draugar Fortíðar sem var eitt vinsælasta íslenska hlaðvarp landsins. Í þáttunum fjölluðu þeir um alls kyns söguleg viðfangsefni allt frá mönnum sem skjóta sér ú...

x Brynhildur Þórarinsdóttir 14.05.2026

Hinn margverðlaunaði rithöfundur Brynhildur Þórarinsdóttir hefur legið yfir Íslendingasögunum í gegnum tíðina og miðlað þeim til barna. Hún fór yfir af hverju þessar sagnir eiga erindi enn þann dag í dag, jafnt við unga sem aldna. Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026. 

x Einar Kárason 01.05.2026

Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.  Einar Kárason er rithöfundur, ljóðskáld og sérstakur áhugamaður um Íslendingasögurnar. Gerðar hafa verið kvikmyndir og leikverk eftir bókum Einars og ber þar til dæmis nefna Djöflaeyjuna. Einar er einn mesti sérfræðingur okkar í Sturlungu og hefur hann gefið út bækurnar Óvinafagnaður, Ofsi, Skáld og Skálmöld...

x Vala Garðarsdóttir 24.04.2026

Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.  Vala Garðarsdóttir, fornleifafræðingur, kom og fræddi okkur um fornminjar og lifnaðarhætti víkingaaldar. Hvar er silfur Egils, bogi Gunnars og Grásíða? Kannski finnur þú svör við þessum spurningum í þættinum!

x Ármann Jakobsson 18.04.2026

Viðtalið var upprunalega tekið árið 2020 en endurhljóðblandað árið 2026.  Ormstungur eru peð á taflborði Íslendingasagnanna en kynna til leiks kónginn til að hefja skákina. Ármann Jakobsson, prófessor í miðaldabókmenntum, tók Ormstungur í stutta kennslustund. Hlustið og hlýðið!

7. Gunnlaugs saga Ormstungu - Uppgjör 31.03.2026

Sagan gerð upp. Farið er yfir hetjuskap og kvarði smíðaður til að meta hann í Íslendingasögunum. Hjalti kveður Odd í kútinn. Hvaða máltíð væri Gunnlaugs saga? Hvaða lag? Stóru spurningunum er svarað í þessum rosalega uppgjörs þætti! Einnig lagðar línur fyrir framtíðina.

6. Gunnlaugs saga Ormstungu - Örlögin bíta 31.03.2026

Sagan nær hámarki. Draumar og blóð. Stirt er á milli Helgu og Hrafns. Þungt yfir þrátt fyrir partýhald.. Lágskýjað. Ský dregin fyrir sólu.  Gulli og Hrafn eiga í basli að finna stað fyrir hólmgöngu því þær hafa verið bannaðar á Íslandi. Af hverju? Rætist draumur Þorsteins? Hverjir munu liggja í valnum? Það er allavega dramatískt lokauppgjör milli Gulla og Hrafns!

5. Gunnlaugs saga Ormstungu - Þótti þér hann ei drápunnar verður? 31.03.2026

Það eru sænskir dagar hjá Gulla. Sem er slæmt því Hjalti er einn helsti áhugamaður um tilvistarkreppu Svía og orðið ,,lagom”. Leikar fara að æsast í sögunni þegar Gulli og Hrafn fara að kveðast á fyrir framan konung.

4. Gunnlaugs saga Ormstungu - Eigi skal haltur ganga 31.03.2026

Gulli slær í gegn en sullur hefur myndast á fæti hans. Ekkert virðist þó geta stöðvað hann í leið sinni til heimsfrægðar. Eða hvað? Áhugaverðar umræður fara á flug um skikkjur og primaloft úlpur.

3. Gunnlaugs saga Ormstungu - Skáldið vill út 31.03.2026

Gulli Ormstunga stimplar sig inn í söguna ásamt Helgu fögru. Ástin svífur yfir vötnum. Grasið er samt alltaf grænna hinum meginn. Gulli reynir hvað hann getur að komast á vit ævintýranna og sýna hvað í honum býr. Það ætlar þrautinni þyngra að komast af landi.

2. Gunnlaugs saga Ormstungu - Ekki er mark að draumum 31.03.2026

Persónur sem leggja jarðveginn fyrir aðalpersónur sögunnar seinna meir eru kynntar til leiks. Syni Egils Skallagrímssonar, Þorsteini Egilssyni, dreymir draum og fær Austmann til að ráða. Það boðar ekki gott!

Listen to the Ormstungur podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.