Gunnlaugur Bjarnason og Ármann Jakobsson
Flimtan og fáryrði
Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda og Gunnlaugur Bjarnason, óperusöngvari, vita sitt hvað um óperur og íslenskar bókmenntir fyrri alda og í þessum þáttum tala þeir um bæði þessi efni. Þora meðan aðrir þegja...
Author
Gunnlaugur Bjarnason og Ármann Jakobsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sumarþáttur — Vellíðan er aukaatriði 08.06.2026 1:03:53
Gunnlaugur og Ármann fagna 70. þætti og ræða söngleikinn Koppafeiti (Grease), meðal annars Grís-æði vorsins 1979 og Grease Horror sýningu Fjölbrautarskóla Suðurlands sem þó er ekki djarfasta sýning söngleiksins á Íslandi. Talið berst að samskiptum í foreldrahópum, hugmyndum Schopenhauers um þjáningu og leiðindi, bók Ármanns um smápersónur, of fullkomnu fólki, hugarfari listaskólanema, method-leik...
69 – Brosnan baular 05.04.2026 51:00
Gunnlaugur og Ármann fá góðan gest, Kristínu Lilju Thorlacius til að ræða frægasta glymskrattasöngleik sögunnar, Mamma Mia sem Judy Craymer, Catherine Johnson og Phyllida Lloyd spunnu upp úr lögum Björns og Benny úr ABBA og er hugsanlega lægsti mögulegi tónlistarsamnefnarinn. Tvö af þremur eru afar hrifin af lögum ABBA en Gunnlaugur furðu ósnortinn. Talið berst að miklu viðskiptaviti Svíanna, hver...
68 – 18. aldar fuckboi 23.02.2026 50:24
Gunnlaugur og Ármann (oft kallaðir Statler og Waldorf óperuheimsins) ræða stórvirki Mozarts, Don Giovanni , og eru aldrei þessu vant frekar hrifnir þó að Mozart fari illa með tenórinn. Sönn iðrun, flókin sögusamúð, hefndarþyrstar aukapersónur og hinn nýlátni José van Dam koma við sögu en talið berst líka að auðginntum sveitapiltum, líkindum Leporello og Fígaró, allsnöktum púkum og RÚV-börnum sem þ...
67 – Byltingin er eilíf 26.01.2026 58:03
Gunnlaugur og Ármann ræða nú óperu John Adams, Nixon in China (1987) og um leið kínverk stjórnmál 1960–1980 og hvernig kaldrifjað útspil á kosningaári tryggði framhaldslíf mannkynsins. Talið berst einnig að hinum erótíska sjónvarpsþætti Heated Rivalry, hipp og kúl rithöfundum, mönnum sem svitna mikið, stórleikaranum Paul Giamatti, kvikmyndinni Tillsammans, Maófötum 8. áratugarins, svarthvítum kvik...
66 – Geta Þjóðverjar dansað? 06.10.2025 48:18
Gunnlaugur og Ármann eru komnir til New York og búnir að kynna sér Sögu úr Vesturbænum (West Side Story) sem upphaflega hét East Side Story og hefur tvisvar verið kvikmynduð og auk heldur verið flutt á Íslandi. Þeir ræða líka tegundaflokkun sviðsverka með miklum söng, stöðu Puerto Rico í Bandaríkjunum, hið mikla nef Bernsteins, muninn á grínmyndum og Green-myndum, þjóðerni Morgan Kane, dularfullan...
65 – Maðurinn sem æpti bravó! 22.09.2025 50:51
Gunnlaugur og Ármann geta ekki haldið sig frá Verdi og nú er það óperan sem mörgum finnst sú besta í heiminum, Rigoletto , sem var fyrsta íslenska óperusýningin hjá Þjóðleikhúsinu árið 1951. Talið berst meðal annars að sjálfum Stefanó Íslandi, líkindum Rigoletto við Ölkofraþátt, tyrkneskum teppasölumönnum, hörðum kennurum, dauðarómantík 19. aldar og Íslandsmeti Guðmundar Jónssonar í löngum tón. En...
64 – Batman á heima á Selfossi 17.06.2025 51:15
Ármann og Gunnlaugur ræða frægustu leðurblöku menningarsögunnar, þ.e. Die Fledermaus eftir sjálfan valsakónginn Johann Strauss yngri sem hugsanlega fann upp söngleikinn. Eins hvernig snobb og lágkúra fara saman eða hvernig góð gagnrýni eigi að vera. Þá berst talið að íslensku uppfærslunni 1999 sem látin var gerast í Grafarvoginum, rússablæti tveggja metra Íslandsvinarins Rolf Rippert, hundinum Sno...
63 – Pavarotti rekur tána í 27.05.2025 48:44
Gunnlaugur og Ármann halda alla leið til Egyptalands að ræða frumsýningu Aidu sem Ismail khediv pantaði af Giuseppe Verdi þegar Súezskurðurinn var opnaður. Talið berst einnig að brottför Roberto Alana úr sýningu Zeffirellis, Sam Wanamaker og dóttur hans, Oddi lögmanni og Gyldenløve stiftamtmanni, hinum austur-evrópska framburði á þ og eina núlifandi konung heimsins sem ekki man eftir ríkisári sínu...
Páskaþáttur – Guð er með öll spilin á hendi 20.04.2025 53:39
Gunnlaugur og Ármann eru uppfullir af heilögum anda þegar þeir ræða rokkóperuna Jesus Christ Superstar sem fyrst var konseptplata og hefur verið sýnd um heim allan og er líka afar „meta“. En þeir ræða líka eina nótt í Bangkok með öllu nema Yul Brynner, dansverkið Hringi Orfeusar, Amal og næturgestina, Getsemane-falsettuna, þrjá of fjórum meðlimum ABBA, sjakalagaul Sebastians Bach og byltingar sem...
61 – Puccini og kynlífsbyssurnar 14.04.2025 59:23
Nú eru Gunnlaugur og Ármann komnir að hinum tilfinningasama stórreykingamanni Puccini og óperu hans Madame Butterfly sem Malcolm McLaren gerði fræga á ný árið 1984 og varð síðar að söngleiknum Miss Saigon. Talið berst einnig að leikriti David Hwang, tónleikaflutningi á aríum, menningarnámi Gwen Stefani, Susan Boyle og háa tóninum, Chuck og Bob í Löðri, „the willing suspension of disbelief“ og að f...
60 – Krípí stelpur og kexát 02.04.2025 56:32
Gunnlaugur og Ármann hafa afar misjafnar skoðanir á Töfraflautunni, hinstu óperu Mozarts, en eru sammála um ágæti kólóratúrsöngkonunnar Cristinu Deutekom. Talið berst að sjálfsögðu að frímúrurum, stolnum jólalögum, Hanswursthefðinni, þrítölunni, Rokklingunum, rassabókum, Herra Bean og „krípi stelpunni“. Um leið upplýsa þeir ungviðið um hvað ipod var, lýsa yfir aðdáun á ódýrum páskaeggjum, ræða eft...
59 – Í þessum mjúka þræði ... 17.03.2025 52:05
Fáir tengja Gilbert og Sullivan við hrollvekjur en Gunnlaugi og Ármanni tekst samt að gera það í þessum þætti þar sem rætt er um The Mikado, Savoy-óperuna, „patter song“, grínbarítóna, rímsnilld Gilberts og fleiri einkenni þessara ágætu bresku samstarfsmanna. Talið berst einnig að framlínustarfsfólki, samfélagsmiðlahegðun James Blunt, gaslýsingum Mary Poppins, sjálfsmorðshugleiðingum lítilla fugla...
58 – Brúðkaupið! 10.03.2025 53:12
Gunnlaugur og Ármann eru á leið í brúðkaup og fyrir því stendur sjálft undrabarnið Wolfgang (ásamt Lorenzo Da Ponte). Brúðkaup Fígarós er iðulega talin besta ópera allra tíma þó að aðalandstæðingarnir reynist óvænt vera foreldrar söguhetjunnar. Talið berst einnig að tegundaflokkun gamanópera, endurnýtingu óperustefja, fornu bakkelsi og eldri talsetningarhefðum, mistryggum aðlögunum og gagnrýni, pr...
57 – Húmor flyst ekki alltaf vel 10.02.2025 52:47
Gunnlaugur og Ármann gæða sér á tournedos og ræða þriðja frægasta Jóakim nútímans, tónskáldið Rossini og hina vinsælu óperu hans, Rakarann í Sevilla. Rossini sló snemma í gegn en þróaðist frá opera buffa yfir í ellisyndir á langri ævi og var jafnan spaugsamur lífsnautnamaður. Talið berst einnig að 18. aldar ævintýramanninum Beaumarchais, mikilvægi dulargerva fyrir gamansögur, samskiptum Rossini og...
Jólaþáttur V: Kjöthleifsát og kynusli 23.12.2024 1:01:14
Ármann og Gunnlaugur snúa aftur í fimmta jólaþátt þessa langlífa, sívinsæla og sumir myndu segja sígilda hlaðvarps en sérstakur gestur þessa sögulega þáttar er Kristín Lilja Thorlacius Björnsdóttir kvikmyndafræðingur og eiginkona Gunnlaugs. Í tilefni jólanna er ekki rætt um óperur heldur söngleikinn The Rocky Horror (Picture) Show og næstum samnefnda kvikmynd. Auk þess er rætt aðeins um konfekt og...
55 – Brothætta konan og eitraða karlmennskan 11.12.2024 51:10
Gunnlaugur og Ármann ræða Carmen eftir franska tónskáldið Bizet og í leiðinni óhjákvæmilega 19. aldar rithöfundinn Prosper Mérimée og söngkonuna Mariu Callas. Gunnlaugur segir hræðilegan brandara um Bach og Offenbach og eftir það getur þátturinn ekki annað en batnað. Sögunni víkur að tækniblæti Frakka, hollenska sjálfræðinu, barnabókum með smyglurum og sígaunum, covidtímanum sællar minningar og m...
54 – Óhefðbundin fegurð óperusöngvara 27.11.2024 50:50
Gunnlaugur og Ármann ræða óperettu sem Ármann hefur raunar séð á sviði, Kátu ekkjuna eftir Franz Lehar sem var meistari léttleikans og gleðinnar fyrir utan að hefja þrítugu konuna til vegs og virðingar í óperettuheiminum og semja mörg „Tauberlied“. Árið 1905, staðurinn er keisaraveldið Austurríki-Ungverjaland og meðal þess sem ber á góma eru latir tenórar, Parísarbragurinn, fullorðinsaldur hobbita...
53 – Nazgúlaskrækir brjóstmylkinga 13.11.2024 55:52
Nú beina Gunnlaugur og Ármann sjónum að sjálfum Richard Wagner og tveimur af þekktustu óperum hans, Rínargullinu og Valkyrjunni. Gunnlaugur rekur raunir sínar úr alþjóðlegum Wagner-hópum og síðan berst talið að jafnvel enn verri aðdáendum hans sem höfðu listamannsmetnað sjálfir. Eins ræða þeir Gesamtkunstwerk og „willing suspension of disbelief“, framburðarslekju, „verkamannaklassík“ og hið mikla...
52 – Leiksoppar og rannsóknaræfingar 06.11.2024 58:51
Ármann og Gunnlaugur eru ekki sérfróðir um óperur eins og þeir hamra á en hafa báðir horft á Ævintýri Hoffmanns (1881) eftir Frakkann Jacques Offenbach, samtíðarmann Verdi og Wagners. Þar með hafa þeir hætt sér inn í fúafenjasvæði gamanóperunnar og umræðuna um hvort grín þýðist yfirleitt. Fram kemur að Ármann þekkir tónlistina mjög vel en hafði ekki hugmynd um efni óperunnar eða að hún sé um E.T.A...
51 – Varasamir vasaklútar 30.10.2024 1:04:38
Nú fer hlaðvarpið rækilega út fyrir þægindarammann, yfirgefur Íslendingasögur í bili og beinir sjónum að óperum í staðinn. Í fyrsta þætti er rætt um Ótello (1887) eftir græningjann Giuseppe Verdi og vin hans Boito. Enginn man eftir Busseto en Gunnlaugur og Ármann ræða sameiningu Ítalíu, nýlendustefnuna, Odd lögmann, hugtakið FOMO, Ivan heitinn Rebroff, eldri skilgreiningar á offitu, Nietzsche og s...
Jólaþáttur IV: Jólatré í janúar 23.12.2023 47:53
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra Íslands kemur í heimsókn í jólaþáttinn sem er jafnframt 50. þáttur hlaðvarpsins og hefur Gunnlaugur mandarínur á borðum af því tilefni. Þar sem þau Ármann eru systkini er rætt um dálæti formæðra þeirra á Bolla og Ítalíuferð Katrínar með Njálu í farangrinum. Meðal annars sem ber á góma er hvort tekist sé á um Íslendingasögurnar á ríkisstjórnarfundum, dálæti Katr...
49 – Drottningar breyta sér í svölur og skáld flytja kvæði 20.11.2023 49:11
Gunnlaugur og Ármann ræða hina gömlu lummu um sannleiksgildi Íslendingasagna og fornrita yfirleitt sem almenningur (einkum eldra fólk) hefur mikinn áhuga á. Talið berst einnig að Landnámu og landamerkjadeilum, Kristínu Geirsdóttur og trú aldamótakynslóðarinnar á að Íslendingasögur séu sannar, yfirheyrslum lögreglu sem skemmtiefni, óvinsældum Sveinbjarnar Rafnssonar, fegurð sannleikans, hvort Krist...
48 – Jekyll og Hyde á íslenskum miðöldum 06.11.2023 30:54
Gunnlaugur og Ármann ræða Fóstbræðrasögu og þá glannalegu hugmynd Ármanns að Þorgeir Hávarsson og Þormóður Kolbrúnarskáld séu dæmi um tvífaraminnið sem síðar komst í tísku og tákngervingar tvöfeldninnar í mannssálinni. Þetta tengist umræðunni um raunsæi, tilfinningalega dýpt, sögusamúð, táknsæi og hugmyndaheimi vísindabyltingarinnar. Þeir ræða líka Gerplu og hugmyndir Helgu Kress um að Fóstbræðra...
47 – "Ei ber því að leyna" 23.10.2023 47:04
Gunnlaugur og Ármann ræða bókmenntagrein sem varðveittist í öðrum textum, dróttkvæði í Íslendingasögum og konungasögum. En eru þau eftir skáldin sem þau eru kennd? Hvort eru flokkar eða drápur betri? Var Gísli súrrealisti? Hvers vegna er engin vísa eftir Sviðu-Njál í sögu hans? Hverjir fara helst í hungurverkfall og hver var sælkeri mikill og matvandur mjög? Talið berst líka að þriggja manna hjóna...
46 – Elskið friðinn, strjúkið orðskviðinn 09.10.2023 1:01:08
Gunnlaugur og Ármann fá Vigdísi Hafliðadóttur sem eitt sinn var fyndnasti háskólaneminn í heimsókn og þau ræða orðskviði og almennan fróðleik í Grettis sögu og Hávamálum. Vigdís reynir að stela titlinum „rödd almennings“ frá Gunnlaugi þó að hún sé með BA-próf í heimspeki og síðan ræða þau þriggjadísabækling, Mjallhvíti og Lenín, kviksetningu, bitlinga Hallgerðar, kómíska talgalla, sundvenjur og hv...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.