Gunnlaugur Bjarnason og Ármann Jakobsson
Flimtan og fáryrði
Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda og Gunnlaugur Bjarnason, óperusöngvari, vita sitt hvað um óperur og íslenskar bókmenntir fyrri alda og í þessum þáttum tala þeir um bæði þessi efni. Þora meðan aðrir þegja...
Author
Gunnlaugur Bjarnason og Ármann Jakobsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
45 – Sennur á Þingvöllum 25.09.2023 44:54
Hlustendur völdu Ölkofra sögu sem umföllunarefni 45. þáttar og Ármann og Gunnlaugur ræða hann en um leið 119. og 120. kafla Njáls sögu þegar Skarphéðinn auðmýkir alla helstu höfðingja Íslands með orðkynngi sinni. Talið berst líka að Jane Austen og Charlotte Brontë, tákngildi mjólkur sem lekur um „litlaskarð“ karlmanna, mansöngsdrápum lögsögumanns sem stundum kallaði sig Burstakoll, mökum skordýra,...
44 – Bárðar saga og miðaldasagnfræðin 11.09.2023 35:49
Gunnlaugur og Ármann ræða hina lítt þekktu Bárðar sögu Snæfellsáss sem hefur öll helstu einkenni sagnfræðirita en er misskilin í nútímanum vegna fjölda annarsheimsvætta og vegna þess að nútímafræðimenn meta stundum miðaldarit vegna þess hversu vel þau falla að heimsmynd nútímans. Eins kemur fram að Bárðarsöguhöfundur einn skilur muninn á risa og trölli. Þá er rætt um náttúrunafnakenninguna, vinsæl...
Króka-Refs saga – Upplestur 05.09.2023 4:18
Fyrir áskrifendur okkar á Patreon les Gunnlaugur upp vel valdar Íslendingasögur og þætti. Hérna birtist brot úr fyrstu sögunni, Króka-Refs sögu, en þar sem hér er komið sögunni segir frá því hvernig Refur fór með óvini sína þá Gunnar og Bárð. Ef þú vilt hlusta á söguna í heild sinni þá geturðu gerst áskrifandi að Patreon síðunni okkar: https://bit.ly/44EZknZ
43 – Dularfullu bréfin 28.08.2023 45:00
Gunnlaugur og Ármann ræða Snorra Sturluson sagnaritara og bróðurson hans Sturlu Þórðarson en Sturla er helsta heimildin um víg Snorra í september 1241 og segir ólíkt frá því í Hákonar sögu og Íslendinga sögu í Sturlungusafninu. Talið berst einnig að hlýjum mánuðum, orðheldni jarla, Ólafi krónprins, ríkum ekkjum, mildi aldraðs fólks, ráðstefnudólgum og merkingu orðanna út og utan. En hver voru hins...
42 – Erfiðar hálfsystur 14.08.2023 35:19
Í þessum þætti berst talið að fornaldarsögum Norðurlanda og einkum Hrólfs sögu kraka en líka að skrítnum smekk 15. aldar manna, sifjaspellum í fornsögum, Indiana Jones, Prins Valíant og Andrew prins. Gunnlaugur og Ármann ræða Rafn ofursta og Skuld drottningu, andsetna gelti og þýskar prinsessur sem eru eins og mý á mykjuskán, þættar sögur, hinn heilaga gral, fégræðgi Svía, galdra og hamskipti, val...
41 – Loki og unglingaveikin 31.07.2023 32:50
Loki kemur við sögu í Snorra-Eddu og eddukvæðum. Hann er guð og ekki guð, karl og kona, jötunn en þó ekki, stundum í hryssulíki og getur breytt sér í flugu og lax. Margt á Loki sameiginlegt með Óðni – en var hann heimsendaguð eða kannski skólafélagi Gunnlaugs? Og í hvaða höfuðátt búa jötnarnir? Eru Loki og Útgarða-Loki sama veran? Skrópaði tröllkonan Þökk í lýðveldiskosningunum 1944? Er letin kann...
40 – Pabbapólitík miðalda 17.07.2023 38:24
Gunnlaugur og Ármann ræða eddukvæðið Vafþrúðnismál, visku og háan aldur jötna, hvernig guðirnir svindla alltaf, fjölþætta merkingu ergihugtaksins á miðöldum, merkingarkjarna og merkingarauka en víkja einnig að hómóerótískum málverkum af Kain og Abel, fornu íslensku sjónvarpsefni, spennumyndinni Red Eye og bandarísku stafsetningarkeppninni. En myndi Ármann ekki fara með sigur í samsvarandi íslenskr...
39 – Bókablætið og Íslenzk fornrit 03.07.2023 43:07
Íslenzk fornrit eru virðulegasta útgáfa fornsagna og hafa komið út í rúm 90 ár. Í þessum þætti ræða Gunnlaugur og Ármann þennan þjóðrækna bókaflokk sem þátt í viðleitni sinn til að endurvekja bókablæti á Íslandi. Á dularfullan hátt leiðir þetta þá í að ræða söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Einnig berst talið að tilraunum Ármanns til að búa til nýja Íslendingasögu og því hvernig Gunnlaugur v...
38 – Vandræðabarnið Gunnlaugur (sýnishorn) 29.06.2023 6:44
Gunnlaugur og Ármann ræða Gunnlaugs sögu en óminnishegrinn sveimar yfir þeim þannig að úr verður kátlegt minnisleysingjaleikrit. Meðal annars berst talið að fjárfestingarstefnu Gunnlaugs ormstungu, óhefðbundnum lækningaraðferðum hans, Gunløgsgade í Kaupmannahöfn, hvort Gunnlaugur og Hrafn hafi verið rapparar síns tíma eða hvort óskynsamlegt sé að færa særðum andstæðingi vatn. En afsannaði Jón Sigu...
37 – Illmenni fornsagnanna 19.06.2023 36:17
Gunnlaugur og Ármann ræða helstu fanta og fúlmenni fornsagnanna, m.a. í ljósi skrifa Einars Ólafs Sveinssonar, Åsfrid Svensen og Carol Clover. Í ljós kemur að Gunnlaugur hefur steingleymt miðjunni á Njálu og feluleikjasnilld Þráins Sigfússonar. Einnig ræða þeir sjónarhorn í frásögnum, vísu Þóris jökuls, hnyttin tilsvör unglingsdrengja, íslenskan Sherlock Holmes á 10. öld, f-orðið, norsku gamansemi...
Jólaþáttur III - Þessi hnífur á að vera þungur 23.12.2022 1:02:51
Gunnlaugur og Ármann ræða kvikmyndaaðlaganir norræns miðaldaarfs út frá eigin brigðula minni. Til umræðu eru ást Ármanns á Three Billboards Outside Ebbing, Missouri, Njáluaðlögun Gunnlaugs með eiturlyfjasöluþema, endasleppur söngvakeppnisframi hans og „unheimlich“ atvik í Danmörku. Einnig Hávamálasiðferðið, áhugaleysi fornmanna á Norðurljósum, gagnrýnin hugsun, táknfræðilegur tilgangur brossins, l...
Jólaþáttur II – Guð pissar á sig 20.12.2021 55:49
Séra Sveinn Valgeirsson kemur í heimsókn í sérstökum jólaþætti þar sem rætt er um muninn á prestsstörfum í borg og landsbyggð, kraftaverk miðalda og jarteinasögur, íslenska dýrlinga, sérgreiðslur til presta, hversu illa Svíar voru liðnir á miðöldum, áhuga Gunnlaugs á Hallmark-bíómyndum og muninn á Lúter og Luther. Einnig um jólasiði í ýmsum löndum, gjafir vitringanna, presta í fjölskyldu Ármanns,...
34 – Á morgni hins endurreista lýðveldis 29.11.2021 28:22
Guðni Jónsson gaf út 42 fornsögur nánast á ljóshraða á 5. og 6. áratugnum og á undan honum gerði Sigurður Kristjánsson bóksali Íslendingasögur að þjóðareign. En hversu mikilvægar eru þær í þjóðarsálinni, hve lengi hafa þær verið vinsælar og hver er þáttur bóksala í Bankastræti í vinsældum þeirra? Er Ármann nógu háfleygur til að hafa samið heiti þáttarins upp úr sér? Hvað varð um Torfa sögu Valbran...
33 – Drekar og smáfuglar 22.11.2021 25:52
Hvaða dreka nennti J.R.R. Tolkien að telja með sem alvöru norræna dreka? Og hver eru tengsl drekans við pabba þinn? Hversu gaman er að hefja ævistarfið eftir 73 ára aldur? Eru unglingar aðeins hættulegir í hóp? Voru loðbrækur CGI síns tíma? Gunnlaugur og Ármann ræða mælsku og kurteisi dreka, fólk sem talar við gæludýrin sín og Júragarðinn í ljósi kenninga Sigmund Freud um „das unheimliche“ í þess...
32 – Rebbasögur 14. aldar 15.11.2021 25:32
Ármann og Gunnlaugur glíma við hugmyndina um „unglegar Íslendingasögur“ og ræða tæknibrellur í Króka-Refs sögu. Getur verið að Hrafnkell Freysgoði hafi líka haft 15. aldar klippingu og hver var Remo Giazotto og hvernig tengist hann Íslendingasögunum? Eru „trúverðugt“ og „sagnfræðilegt“ samheiti? Hefði sonur Gunnlaugs átt að heita Refur? Hvers vegna töldu menn smekk Íslendinga hafa hnignað á 14. öl...
31 – Ari fróði og mæðraveldið 08.11.2021 23:21
Hver fann upp ostaskerann? Eru menn enn óljúgfróðir eða er nútíminn ekkert nema falsfréttir? Var Ingólfur Arnarson fyrsti landnámsmaðurinn? Voru landnámsmenn umhverfisböðlar? Var fræðimennska fyrri tíma stundum eins og skyggnilýsingar? Hefði höfundur Egilssögu nefnt son sinn Órækja þegar systir hans notaði nafnið Egill? Voru konur Íslendingasagnakennarar? Mun Gunnlaugur verða þekktur í sögunni sem...
30 – Allir norskir stýrimenn heita Bárður 01.11.2021 23:02
Gunnlaugur og Ármann ræða áhugaleysi fræðimanna á austmönnum í sögunum sem hefur snúist við seinustu áratugi. Margt fleira bera á góma, m.a. skrárnar í útgáfum Guðna Jónssonar, dönsku og bresku kvennablöðin, heimildagildi Íslendingasagna, hvernig sé að vera tvíburi, Velvakandi, innflytjendauppruni Ármanns, verð á skírnarathöfnum fyrir hlaðvarpsstjórnendur og Ármann nær að koma að tilvitnun í þýska...
29 – Bestu vinir Mjallhvítar 25.10.2021 29:44
Framdi Þór fyrsta hatursglæpinn? Voru Íslendingar hræddir við dverga? Hvers vegna gleymir Ármann stöðugt nafninu Alvís? Hverjir breytast í steina? Er Möndull erótískt nafn? Hvers vegna man fólk um fimmtugt aðeins dönsk nöfn dverganna sjö? Ármann og Gunnlaugur ræða dverga í eddukvæðum og Snorra-Eddu, þróun þeirra til nútímans og atvinnumöguleika dvergaleikara á öld tölvutækninnar.
28 – Plebbalegur matarsmekkur Norðlendings 18.10.2021 26:24
Á að bera fram d í nafninu Halli? Er Ármann hörgabrjótur? Hversu lengi þurfa menn að burðast með syndir fortíðarinnar og hversu fákænn þarf maður að vera til að hengja sjálfan sig? Gunnlaugur og Ármann fjalla um einn af áhugaverðustu Íslendingaþáttunum í Morkinskinnu sem Gunnlaugi finnst þó ekki fyndinn (fyrr en Ármann hermir eftir Maggie Smith).
27 – 900 ára samtalsmeðferð 11.10.2021 24:56
Gunnlaugur og Ármann huga að Íslendingaþáttum og ræða hvor sé fremri, Freud eða Jung. Voru dróttkvæði flutt með fyndinni röddu? Fundu Þjóðverjar upp rómantíkina á 19. öld? Hvað er betra en að láta kónginn hjala við sig? Og að lokum: hvað er hægt að kaupa hjá Bókmenntafélaginu á Hagatorgi?
26 – Grettir og galdranornin 04.10.2021 23:57
Ármann og Gunnlaugur snúa aftur vegna fjölda áskorana, gæta þess að minnast ekki á pestina en ræða þess í stað neista heiðninnar árið 1030. En hvernig var Grettir klipptur? Var hann hinn íslenski Van Helsing? Hver eru tengsl múmínálfa við kristnitökuna? Hvað er Gunnlaugur aldrei kallaður? Er Ármann snjallari en Sauron? Og hvern hringirðu í?
Sérstakur jólaþáttur – Jólin eru tími álfa og óvætta 23.12.2020 33:26
Flimtan og fáryrði hafa lokið göngu sinni í bili og þá kemur að aukaefninu! Jólin eru hátíð ljóss og friðar – og berserkja, álfa og annarra óvætta. Gunnlaugur og Ármann eru í jólaskapi í sérstökum jólaþætti sem vegna fjölda áskorana var bætt við hlaðvarpið þar sem þeir ræða eigin jólahefðir og afstöðu Íslendinga fyrr og síðar til yfirnáttúrulegra afla. Meðal annars berst talið að 109 ára konum og...
24 – Á slóðum væringja 16.11.2020 33:37
Hverjir voru Væringjar og hvernig varð sagnaritun um þá til? Og er Grís gott nafn á sveinbörn? Ármann og Gunnlaugur ræða við Sverri Jakobsson sagnfræðing sem sendir brátt frá sér bók um Væringja og dvelja að mestu í Miklagarði en þó er einnig vikið að Rússum og talið berst að seinasta skipti sem Sverrir og Ármann voru saman á öldum ljósvakans. Þetta er seinasti þáttur Flimtans og fáryrða í bili en...
23 – Stjörnulögfræðingar 09.11.2020 31:03
Hrafnkels saga er fáum öðrum Íslendingasögum lík. Höfundur hefur takmarkaðan áhuga á ættfræði og nennir ekki að lýsa útliti manna en hefur áhuga á nýríkum stjörnulögfræðingum, hefndarþyrstum griðkonum og slyngum skósveinum. En tekst Ármanni að koma Friedrich Nietzsche að í þættinum? Og taka þeir virkilega ekki eftir því að Sámur er hundsnafn? Gunnlaugur og Ármann eru komnir alla leið til Austfjarð...
22 – Unglingagengi ræðst á varnarlausa 02.11.2020 30:36
Gunnlaugur og Ármann fá góðan gest, Guðrúnu Nordal, og aftur er haldið á Sturlungaöld og rætt um eitt helsta voðaverk aldarinnar þegar hópur af vopnuðum unglingum réðst á konur og börn á Sauðafelli. Þessi þáttur er alls ekki fyrir þá sem finnst of mikið ofbeldi í Game of Thrones!
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.