Brotkast ehf.
Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Kristján Ingi: „Sönnunarbyrðin er hjá já-liðinu“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E40 08.07.2026 17:31
Þjóðaratkvæðagreiðslan um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands að ESB nálgast hratt. En hvað er raunverulega undir? Er Ísland að taka óþarfa áhættu eða mikilvægt skref til framtíðar? Í þessum þætti ræðir Frosti Logason við Kristján Inga Mikaelsson, fjárfesti, annan eiganda MGMT Ventures og einn af stofnendum Visku. Kristján fer yfir hvers vegna hann telur að rökin gegn aðild Íslands að ESB vegi þ...
Evrópusambandið ekki lýðræðislegt | Harmageddon | S04E27 07.07.2026 7:58
Lýðræðishalli Evrópusambandsins er gríðarlegur. Í Evrópuþinginu, þar sem Ísland fengi 6 þingmenn af 720, er engin löggjöf samin. Hún er samin í ráðherraráðinu þar sem atkvæðavægi hvers ráðherra fer eftir íbúafjölda ríkisins á bak við hann. Ísland væri þar með 0,1% atkvæðavægi. Hægt er að ná málum þar í gegn með auknum meirihluta. Ursula Von Der Leyen er ekki kjörinn framkvæmdarstjóri heldur var hú...
Bakslagið #41 - Guðlaugur Þór Þórðarson 06.07.2026 1:35:17
Sverrir Helgason, Helgi Bjarnason og Guðlaugur Þór Þórðarson ræða málin. Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum í upphafi þáttarins.
1200 kindur fyrir eina langreið | Harmageddon | S04E26 01.07.2026 8:28
Aðgerðarsinninn Paul Watson hefur þjappað Íslendingum saman í að standa vörð um rétt Íslendinga til að stunda hvalveiðar. Starfsmaður Hvals í Hvalfirði sem fíflaðist með hræ einnar skepnunnar var þó ekki að gera málstaðnum neinn greiða enda veiðimenn almennt sammála um að bráðinni skuli sýnd full virðing sem þar var ekki gert. En útfrá dýraverndunarsjónarmiðum er rétt að benda á að slátra þarf 120...
Snorri Másson: Fullveldi, fjölmiðlar, transbörn og framtíð Íslands | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E40 29.06.2026 16:15
Í þessu ítarlega viðtali ræðir Frosti við Snorra Másson um stærstu hitamál samtímans - allt frá fullveldi Íslands yfir í transumræðuna, fjölmiðla, menningarstríð og stöðu stjórnmálanna á Íslandi. Snorri fer ítarlega yfir hvers vegna hann telur að þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB sé meira en bara „viðræður“, hvers vegna hann telur fullveldi skipta grundvallarmáli og hvaða áhrif innganga gæti haft á ís...
Bakslagið #40 - Davíð Bergmann 29.06.2026 2:41:21
Jón Þormar, Helgi Bjarnason og Davíð Bergmann ræða málin.
Sjálfseyðandi samkennd | Harmageddon | S04E25 24.06.2026 8:31
Í þætti dagsins fjöllum við um lifandi dæmi þess þegar umburðarlyndið ber okkur ofurliði. Borgin Hamtramck í Michigan lagði nefnilega á árum áður mikla áherslu á fjölbreytileika og inngildingu, og samþykkti meðal annars lög sem leyfðu múslimum að útvarpa bænakalli um borginna 5 sinnum á dag. Nokkrum árum síðar tók við meirihluti í borgarstjórn Hamtramck sem hafði á að skipa múslimum eingöngu og þe...
Sósíalisti vs Álhattur - geta þeir verið sammála um eitthvað? | ESB, Epstein, vók og New World Order | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E39 23.06.2026 16:54
Í þessum nýjasta þætti af Spjallinu fær Frosti Logason til sín tvo ólíka gesti: Guðjón Heiðar Valgarðsson, þáttastjórnanda Álhattsins og kunnan greinanda samsæriskenninga, og Tjörva Schiöth, doktorsnema í sagnfræði og yfirlýstan sósíalista. Þrátt fyrir að standa á sitthvorum enda hins pólitíska rófs kemur fljótt í ljós að þeir eru sammála um ýmislegt — sérstaklega þegar kemur að Evrópusambandinu,...
Vaxa saman í gegnum stjörnuspekina | Fullorðins | S03E17 20.06.2026 4:40
Hera Gísladóttir, heilsumarkþjálfi og stjörnuspekingur, ólst upp úti á landi en fann alltaf að hún væri meiri borgarstelpa. Hún byrjaði snemma að vinna fyrir sér í fiski en segir að stjörnuspeki hafi breytt lífi sínu. Það hafi samt komið frekar óvænt í fangið á henni þegar hún fór með eiginmanni sínum, Ásgeiri Kolbeins, á fund með einum reyndasta stjörnuspekingi landsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu...
Giftist Palestínumanni - síðar kom í ljós að hann var Hamas-liði á Íslandi | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E38 19.06.2026 17:18
Í þessu viðtali segir Sigurlín Guðmundsdóttir frá sambandi sínu við palestínskan hælisleitanda sem hún kynntist árið 2022, hjálpaði til Íslands og giftist bæði samkvæmt íslömskum sið og síðar borgaralega. Það sem byrjaði sem ástarsaga breyttist hins vegar í martröð. Eftir árásirnar 7. október segir Sigurlín að eiginmaður hennar hafi fagnað árásunum, og í kjölfarið hafi hann viðurkennt fyrir henni...
Matarkarfan og ráðstöfunartekjurnar | Harmageddon | S04E24 17.06.2026 9:30
Evrópusinnar á Íslandi gleymdu að taka hlutfall af ráðstöfunartekjun með í reikninginn þegar þeir ætluðu að telja fólki trú um að matarkarfan væri ódýrari í Evrópusambandinu en á Íslandi. Þá virðast þeir einnig hafa gleymt því að afnema þurfi verndartolla á landbúnaðarvörum til þess að lækka verðið á sömu matarkörfu. Það er kannski ekki skrítið að þetta sama fólk telji sig þurfa að kíkja í pakkann...
„21 árs dóttir mín fékk túrbókrabbamein eftir bólusetningu“ – Hrafn krefst svara | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E33 16.06.2026 4:12
Í þessu viðtali segir Hrafn Margeirsson frá erfiðustu reynslu lífs síns: missi 21 árs dóttur sinnar sem lést úr mjög ágengu ristilkrabbameini árið 2024. Hrafn er sannfærður um að veikindi dóttur sinnar tengist Covid-bólusetningum sem hún fékk árið 2021. Hann rekur þá atburðarás sem varð til þess að hann skipti um skoðun á bólusetningunum, segir frá leit sinni að svörum eftir andlát dótturinnar og...
Bakslagið #39 - Eva Þorsteinsdóttir 16.06.2026 2:36:27
Jón Þormar, Sverrir Helgason og Eva Þorsteinsdóttir ræða málin.
Ivan Kaufmann: „Þau tóku fyrirtækið mitt, mannorðið og líf mitt“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E34 | Þátturinn í heild sinni 15.06.2026 1:02:57
Ivan Kaufmann hefur verið sakaður um að vera „leppur Rússa“ af íslenskum stjórnvöldum. Í þessu ítarlega viðtali við Frosta Logason segir Kaufmann sína hlið á Vélfagsmálinu í fyrsta sinn af fullum þunga. Kaufmann heldur því fram að íslensk stjórnvöld hafi aldrei sýnt honum nein gögn sem réttlættu aðgerðirnar gegn honum, þrátt fyrir að hann hafi lagt fram umfangsmikil gögn um eignarhald sitt og viðs...
Hvað segja rannsóknir um innflytjendur og afbrot? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E36 12.06.2026 8:59
Hafa innflytjendur meiri tilhneigingu til að fremja afbrot? Hvað segja rannsóknir frá Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi og Bandaríkjunum? Og hvers vegna virðast niðurstöður vera svo ólíkar milli landa? Í þessu viðtali ræðir Frosti Logason við Margréti Valdimarsdóttur, doktor í afbrotafræði við Háskóla Íslands, sem var nýkomin af alþjóðlegri ráðstefnu í Stokkhólmi þar sem fjallað var um tengsl innflytje...
Ísland þyrfti veikari krónu áður en evran yrði tekin upp | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E35 11.06.2026 5:26
Konráð Guðjónsson hagfræðingur ræðir við Frosta Logason um mögulega upptöku evru á Íslandi og segir að staða Íslands sé ólík stöðu flestra ríkja sem hafa gengið inn í evrusvæðið. Í viðtalinu bendir hann á að Ísland sé nú þegar hluti af innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn og að því sé óvíst hversu mikill viðskiptaábatinn af upptöku evru yrði. Hann telur jafnframt að Ísland myndi líklega þu...
Innflytjendamál ógni þjóðaröryggi | Harmageddon | S04E23 10.06.2026 21:48
Jonathan Hall, óháður eftirlitsaðili með hryðjuverkalöggjöf í Bretlandi, segir stjórnvöld þurfa að ræða tengsl innflytjendamála og þjóðaröryggis af meiri hreinskilni. Hann varar við að fjandsamleg ríki geti nýtt sér ólöglega innflytjendur og að einstaklingar sem hafa upplifað stríð og áföll geti í sumum tilvikum skapað aukna öryggisáhættu. Ummælin koma í kjölfar hnífaárásar í Belfast sem valdið he...
Ivan Kaufmann: Þorgerður Katrín sagði að ég ætti að selja Vélfag Íslendingi | Spjallið | S04E34 09.06.2026 9:15
Ivan Kaufmann hefur verið sakaður um að vera „leppur Rússa“ af íslenskum stjórnvöldum. Í þessu ítarlega viðtali við Frosta Logason segir Kaufmann sína hlið á Vélfagsmálinu í fyrsta sinn af fullum þunga. Kaufmann heldur því fram að íslensk stjórnvöld hafi aldrei sýnt honum nein gögn sem réttlættu aðgerðirnar gegn honum, þrátt fyrir að hann hafi lagt fram umfangsmikil gögn um eignarhald sitt og viðs...
Þorgerður Katrín: Af hverju vill hún leiða Ísland inn í ESB? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E33 03.06.2026 23:44
Í þessu ítarlega viðtali sest Frosti Logason niður með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að ræða eitt stærsta pólitíska álitaefni samtímans: mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þau fara yfir:• Hvort ríkisstjórnin hafi nægilegt umboð til að hefja ESB-vegferðina• Af hverju Þorgerður telur samningsstöðu Íslands sterkari nú en áður• Áhrif Donald Trump, Grænlandsmálsins og br...
Útilokun Miðflokksins stefna frá Valhöll | Harmageddon | S04E22 02.06.2026 8:08
Sjálfstæðisflokkurinn telur að leiðin upp úr sögulegu fylgishruni sé að ráðast gegn Miðflokki og mála hann upp sem óstjórntækan öfgaflokk. Þannig telur flokkurinn sig geta endurheimt stöðu sína sem fjöldahreifing skynsamra hægri manna. Einnig ræðum við í þessum þætti um skynsama stefnu NoBorders samtakanna um að íslenskt velferðarkerfi eigi að bjóða öll velkomin, rekstur Icelandair sem er ekki sam...
Bakslagið #38 - Jakob Bjarnar 01.06.2026 2:34:15
Jón Þormar, Helgi Bjarnason og Jakob Bjarnar ræða málin.
Segir að Heiða Björg hafi útrýmt heimilisleysi í Reykjavík | Fullorðins | S03E16 31.05.2026 3:31
Ragnar Erling Hermannsson hefur barist fyrir málefnum heimilislausra í nokkur ár og hefur háð baráttu við fíkniefnadjöfulinn. Hann segir okkur sína sögu í þættinum í dag. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Missti báða foreldra sína með stuttu millibili skömmu eftir fermingu | Fullorðins | S03E15 29.05.2026 2:34
Ingibjörg Birna Ársælsdóttir missti báða foreldra sína úr krabbameini, þegar hún var sjálf bara táningur. Í þætti dagsins segir hún okkur frá því hvernig hún komst í gegnum árin á eftir og hvað hún gerði til að búa sér til fallegt og farsælt líf. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Sjálfstæðisflokkurinn ekki hægriflokkur | Harmageddon | S04E21 27.05.2026 17:33
Kjósendur Sjálfstæðflokksins vakna nú upp við þann veruleika að þeir hafa kosið enn eina vinstristjórnina í Reykjavík. Flokkurinn virtist vera ná sér eftir erfitt gengi undanfarið en nú þarf kraftaverk að gerast í Reykjavík til að kjósendur muni treysta flokknum aftur á næstu árum. Jafnvel grjótharðir, innmúraðir Sjálfstæðismenn þurfa nú að fara horfast í augu við þá staðreynd að forysta flokksins...
Ævintýraprinsinn Björgvin Halldórsson | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E32 27.05.2026 6:10
Jakob Frímann Magnússon er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann fer hér yfir kynni sín af Björgvini Halldórsyni heitnum en þeir félagar tengdust vinaböndum í gegnum tónlistina og spannaði sú vinátta marga áratugi. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.