Brotkast ehf.
Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: brotkast.is
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Um styrkhæf sjónarmið meirihlutans | Harmageddon | S04E42 11.11.2026 3:34
Til er fólk sem telur að fjölmiðlastyrkur stjórnvalda eigi eingöngu að ná til þeirra miðla sem ganga í takt við ákveðnar meginstraumslínur í umdeildum málum. Fjölmiðlar sem styðja ekki ákveðnar rétttrúnaðarstefnur skuli þannig fjársveltir á meðan þeir sem kyrja kórinn verði í áskrift að fjármagni skattgreiðenda. Slík sjónarmið eru í reynd sterkustu rökin fyrir því hvers vegna fjölmiðlar ættu aldre...
S04E67 - „ÞETTA ER SPILLING!“ – Brynjar Karl hjólar í Reykjavíkurborg 10.11.2026 18:49
Brynjar Karl Sigurðsson, körfuboltaþjálfari og forsvarsmaður íþróttafélagsins Aþenu, mætir í Spjallið og fer yfir harðvítugar deilur félagsins við Reykjavíkurborg um framtíð íþróttastarfs í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl fer mikinn og sakar embættismenn borgarinnar um spillingu, vanrækslu og óeðlilega ráðstöfun opinbers fjár. Hann fullyrðir meðal annars að 89 milljónir króna hafi runnið frá velferð...
Ísland verður eins og Svíþjóð! | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E66 09.11.2026 19:56
Ástralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína á innflytjendastefnu Evrópuríkja, íslam og vaxandi áhrif íslamskrar hugmyndafræði á vestræn samfélög. Í þessu viðtali við Frosta Logason í Spjallinu fer Hill yfir þá þróun sem hann telur ógna framtíð Evrópu. Hann ræðir afbrotatíðni innflytjenda, kynferðisbrot, velferðarkerfi N...
Ólukka ríkisstjórnarflokkanna | Harmageddon | S04E41 04.11.2026 11:01
Stórfurðuleg atburðarrás sem hófst á undarlegu tísti framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins hefur leitt til harðrar deilu á milli fyrrverandi forseta Íslands. Komið hefur fram að stigmögnun í kjarnorkustríð er ekki opinber stefna Flokks fólksins heldur eingöngu persónuleg skoðun framkvæmdastjórans sem þó er talið miklu léttvægara heldur en að Ólafur Ragnar hafi endurtíst skjali Rússlands um p...
Kærleikurinn sem flæmdi kennara út | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E64 02.11.2026 19:13
Frosti Logason og Helga Dögg Sverrisdóttir ræða starfslok hennar sem dönskukennara við Síðuskóla á Akureyri og aðdraganda þeirra. Helga rekur viðbrögð við grein sinni um kyn og fræðslu barna, en að sögn Helgu urðu skrifin upphaf að ágreiningi og breyttum samskiptum á vinnustaðnum. Í umræðunni segir Helga frá fundi með skólastjóra og mannauðsstjóra þar sem Eva Hauksdóttir lögmaður aðstoðaði hana. A...
Teitur Atlason - Er fjölmenningin að bresta? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E63 29.10.2026 19:11
Frosti Logason og Teitur Atlason ræða mótmæli og óeirðir í Evrópu og velta fyrir sér hvað liggi að baki óánægjunni. Þeir ræða húsnæðisvanda, lífskjör, ferðaþjónustu og innflytjendastefnu og greinir meðal annars á um stöðu innviða álfunnar. Innflytjendamál eru fyrirferðarmikil í samtalinu. Þeir ræða aðlögun, atvinnuþátttöku, afbrot og velferðarkerfið og kalla eftir gögnum um stöðu ólíkra hópa. Einn...
Tjáningarfrelsi á útsölu | Harmageddon | S04E40 28.10.2026 9:35
Hér á Íslandi er til fólk í áhrifastöðum sem vill henda þeim í fangelsi sem tjá sig um áhyggjur sínar af þróun útlendingamála. það er ekkert nýtt að róttæklingar vilji misnota lög í pólitískum tilgangi en það er verra þegar kjörnir fulltrúar á Alþingi eru komnir þangað. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Frakkland er fallið | Harmageddon | S04E39 23.10.2026 6:01
Fjölmiðlar hér á landi sem erlendis reyna enn að selja okkur þá hugmynd að óeirðirnar í Frakklandi séu fyrst og fremst mótmæli framhaldskólanema. Að loftslagsbreytingar séu að gera nemendum svo erfitt fyrir og ekki sé hægt að taka samræmd próf í svo miklum hita. Þess vegna sé verið að brenna niður opinberar byggingar, verslanir og bíla. En nú hefur forseti Frakklands reyndar gefið það út að skemmd...
Jóhannes Loftsson - Þetta gæti verið mun verra en við höldum! | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E62 21.10.2026 19:30
Geta afleiðingar COVID-bólusetninganna verið að koma fram fyrst núna, fimm árum síðar? Og hvers vegna hefur ekki farið fram ítarlegra uppgjör á sóttvarnaraðgerðum og ákvörðunum heilbrigðisyfirvalda? Jóhannes Loftsson, verkfræðingur og stjórnarmaður í Heilsuvon, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni. Jóhannes var áberandi í gagnrýni á sóttvarnaraðgerðir á COVID-tímanum og hefur unda...
Ofbeldi og eyðilegging | Harmageddon | S04E38 20.10.2026 7:19
Óeirðirnar í Frakklandi ættu að vera víti til varnaðar. Óvarleg fjölmenningar- og innflytjendastefna getur reynst vestrænum samfélögum stórhættuleg. Vonandi eru einhverjir loksins að vakna. En svo eru auðvitað þeir vinstrimenn sem hafa slíkt horn í síðu vestrænna gilda að þeir virðast helst fagna ástandinu. Og láta sig dreyma um að íslensk ungmenni taki sér óeirðaseggina til fyrirmyndar. Við fjöll...
Reynir Grétarsson - Frá milljarðaviðskiptum til gagnslausra hugsana | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E61 12.10.2026 16:51
Reynir Grétarsson er einn af athyglisverðari frumkvöðlum og fjárfestum Íslands. Hann var aðeins 24 ára þegar hann stofnaði ásamt félögum sínum fyrirtækið Lánstraust, sem síðar varð Creditinfo, og átti eftir að vaxa langt út fyrir landsteinana. Í þessu viðtali við Frosta Logason fer Reynir yfir ævintýralegt lífshlaup sitt, allt frá fyrstu skrefunum í íslensku viðskiptalífi á tíunda áratugnum til up...
Kolbeinn Stefánsson: Þegar pólitík ræður vísindunum – og fjölmiðlar gleypa allt | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E60 08.10.2026 15:36
Hvað gerist þegar pólitísk hugmyndafræði fær að ráða för í vísindum og fjölmiðlar birta niðurstöður rannsókna án þess að spyrja gagnrýninna spurninga? Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni. Tilefnið er umdeild skýrsla hugveitunnar Equimundo um viðhorf íslenskra karla til jafnréttis, karlmennsku og ofbeldis. Niður...
„Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E59 05.10.2026 15:56
Gunnar Dan, hlaðvarpsstjórnandi og rithöfundur, snýr aftur í Spjallið með nýja bók, UFO 202, og segir óhætt að fullyrða að mikið hafi breyst frá því hann settist síðast niður með Frosta til að ræða eitt dularfyllsta viðfangsefni samtímans. Undanfarin misseri hafa fyrrverandi starfsmenn bandaríska hersins og leyniþjónustustofnana stigið fram með ótrúlegar frásagnir af óþekktum fljúgandi fyrirbærum,...
Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E37 01.10.2026 12:42
Í Harmageddon þætti dagsins veltum við fyrir okkur hversu þolinmóðir íslenskir kjósendur ætla að vera gagnvart Viðreisn og Samfylkingu sem sýna engin merki þess að ætla ná þeim tökum á efnahagsmálum sem þau voru kosin til að gera. Við ræðum líka um mikinn árangur sem Já-hliðin náði fram í nýlegri þjóðaratkvæðagreiðslu með drjúgri aðstoð úr sjóðum skattgreiðenda og fjöllum um óhóflega notkun Íslend...
Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E58 29.09.2026 13:35
Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri, er gestur Spjallsins að þessu sinni. Tilefnið er ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun, en samtalið vindur fljótt upp á sig og verður að víðtæku uppgjöri við íslensk stjórnmál og þróun samfélagsins undanfarna áratugi. Óli Björn ræðir hvers vegna hægrimenn misstu sjálfstraustið og...
Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E36 23.09.2026 13:02
Fyrir nokkrum vikum var ágengni Trumps gagnvart Grænlandi sögð sýna að Ísland gæti ekki lengur treyst Bandaríkjunum og yrði að leita skjóls í Evrópusambandinu. Nú hefur náðst farsælt samkomulag um Grænland, allir eru hæstánægðir og stærsta röksemdin fyrir inngöngu Íslands í ESB virðist hafa gufað upp. Við fjöllum um þetta og fleiri mál líðandi stundar í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift...
Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E57 21.09.2026 19:16
Jón Helgi Egilsson, doktor í peningamálahagfræði, segir að Ísland geti boðið húsnæðislán með föstum vöxtum til mun lengri tíma en nú tíðkast. Hann tók þátt í vinnu á vegum fyrri ríkisstjórnar sem miðaði meðal annars að því að gera tíu ára vaxtafestingu að raunhæfum valkosti fyrir íslenska lántakendur. Sú vinna hafi hins vegar verið stöðvuð eftir að Daði Már Kristófersson tók við embætti fjármálará...
Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E35 16.09.2026 5:59
Erlendir ríkisborgarar eru aðeins um fjórðungur vinnuaflsins en tæplega 57% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá fyrstu sjö mánuði ársins. Við ræðum þessar sláandi tölur og spyrjum hvers vegna stjórnvöld virðast hafa meiri áhyggjur af umræðunni en vandanum sjálfum. Við förum einnig yfir hvernig stríð stjórnvalda gegn nikótínpúðum virðist hafa leitt til aukinna sígarettureykinga meðal ungmenna, kynj...
Sigmundur Davíð: „Við verðum að ná stjórn á landamærunum“ | Spjallið með Frosta | S04E56 15.09.2026 19:04
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni. Í viðtalinu ræðir hann niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið og gagnrýnir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við ósigrinum. Hann segir stjórnvöld hafa misst af tækifærinu til að sameina þjóðina og telur fráleitt að halda lífi í gamalli aðildarumsókn eftir að þjóðin hefur sagt n...
Hallalausu fjárlögin: Núllið þeirra - reikningurinn okkar | Harmageddon | S04E34 09.09.2026 4:29
Ríkisstjórnin fagnar hallalausum fjárlögum fyrir árið 2027. En þegar betur er að gáð fæst núllið meðal annars með hærri sköttum og gjöldum, rýrari bótum og aðgerðum sem gætu aukið verðbólguþrýsting. Við förum yfir það sem leyndist á bak við glansandi kynninguna og spyrjum: Eru fjárlögin raunverulega hallalaus - eða hefur reikningurinn einfaldlega verið færður yfir á almenning? Fáðu þér áskrift og...
Debbie Hayton: „Transkonur eru karlar – sættið ykkur við það“ | Spjallið með Frosta | S04E55 07.09.2026 18:38
Debbie Hayton er breskur kennari, blaðamaður og verkalýðsbaráttukona sem gekkst sjálf undir kynleiðréttingu árið 2012. Þrátt fyrir það hefur hún orðið ein ötulasta gagnrýnisröddin gegn nútíma kynvitundarpólitík og þeirri hugmyndafræði sem hún telur hafa tekið yfir umræðuna um transfólk. Í þessu ítarlega viðtali ræðir Debbie við Frosta Logason um eigin æsku, vanlíðanina sem leiddi til kynleiðréttin...
Við viljum ráða okkur sjálf | Harmageddon | S04E33 02.09.2026 2:49
Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með viðbrögðunum erlendis við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Víða er henni fagnað sem verðskuldaðri áminningu til Evrópusambandsins um að sífellt fleiri Evrópubúum hugnast illa sú aukna miðstýring sem sambandið stefnir að. Viðbrögðin hér heima hafa þó verið af öðrum toga. Tapsárir já-sinnar virðast margir haldnir þeirri meinloku að Nei-ið hafi aðeins...
Bjarni Benediktsson: „Ríkisstjórnin er augljóslega í brekku“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E54 01.09.2026 19:00
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, sest hjá Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um stöðu efnahagsmála, uppnám á vinnumarkaði og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB-viðræður. Bjarni segir niðurstöðuna „hart nei“ og mikið áfall fyrir Evrópusinnuðu stjórnarflokkana. Hann telur ríkisstjórnina vera í brekku eftir að verðbólga...
Richard Werner: Why EU Membership Would Be a Grave Mistake for Iceland | S04E53 27.08.2026 1:00:39
Professor Richard Werner warns Icelanders against surrendering their monetary sovereignty by joining the European Union and eventually adopting the euro. In this wide-ranging interview, recorded ahead of Iceland’s referendum on reopening EU accession negotiations, Werner argues that joining the euro would be one of the worst economic decisions Iceland could make. By abandoning the Icelandic króna,...
Athygli ríkisstjórnarinnar á að vera á efnhagsmálum | Harmageddon | S04E32 27.08.2026 7:06
Á baráttufundi já-hliðarinnar í vikunni talaði Kristrún á þann veg að helst mætti skilja að hún væri búin að gefast upp á verkefninu, sem ríkisstjórnin hefur varla byrjað á, og væri nú sannfærð um að aðeins kommissararnir í Brussel gætu kveðið niður verðbólguna á Íslandi. En ríkisstjórnin gæti byrjað á því að efna sinn hlut í síðustu kjarasamningum. Hún gæti afturkallað gjaldahækkanir sem hafa þrý...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet