RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Íslensku bókmenntaverðlaunin 2025 11.02.2026 54:02
Víðsjá dagsins er tileinkuð Íslensku bókmenntaverðlaunum sem afhent verða á Bessastöðum í kvöld. Við heyrum brot úr viðtölum við höfunda sem tilnefndir eru í flokki skáldverka, þau Eirík Jónsson, Sigrúnu Pálsdóttir, Þórdísi Helgadóttir, Hauk Már Helgason og Jón Kalman Stefánsson
Jötungíma kveður, Gárur og Garður-Paradísarfuglar ÍD/rýni 10.02.2026 51:51
Um helgina frumsýnir sviðslistahópurinn Díó leiksýninguna Jötungíma kveður í Turninum í Elliðaárstöð. Hugmyndin að verkinu kom til Aðalbjargar Árnadóttur á gönguferð á Laugarnestanga, en þá sá hún allt í einu manninn sinn, Hannes Óla, fyrir sér í hlutverki sjarmerandi risasvepps að kveða minningarorð um mannkynið. Við hittum þau hjónin í þætti dagsins, en hugum líka að sviðslistum á öðrum vettvang...
Katti Frederikssen um Grænland, Tilboð mánaðarsins, Ekki hugmynd/rýni 09.02.2026 52:26
„Við höfum alltaf horft á Dani sem nýlenduherra en okkur hefur alltaf verið kennt að Danir séu góðir nýlenduherrar. Og sumir trúa því enn,“ segir Katti Fredrikssen bókaútgefandi, skáld og fyrrverandi menningarmálaráðherra Grænlands. Katti er málfræðingur að mennt og hefur um árabil verið ötul talskona grænlenskrar tungu. Víðsjá hitti Katti í Norræna húsinu og ræddi við hana um upphaf ástríðunnar f...
Á. Birna í BERG, Myrkir/rýni, Fröken Dúlla/rýni og Sölvi Kolbeins 05.02.2026 52:21
„Ég kalla þessi stóru leirker stundum bara táraglös, þau minna á stundaglös, en telja tár og tengjast okkar innri sjó, okkar innri sjávarföllum,“ segir Á. Birna Björnsdóttir um einkasýninguna Þegar ég lít upp hefur tunglið breytt um lögun, sem opnaði nýverið í gallerí Berg við Klapparstíg. Við lítum við í Berg Contemporary í Víðsjá dagsins. Sölvi Kolbeinsson lítur einnig við í hljóðstofu og segir...
Svipmynd af þorpi: Eyrarbakki 04.02.2026 52:03
Hjónin Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson hlutu menningarviðurkenningu Árborgar árið 2025 fyrir áratuga starf í þágu menningarlífsins í sveitarfélaginu. Þau gáfu nýverið út bók um horfin hús á Eyrarbakka, en af þeim 300 húsum sem þar stóðu á blómaskeiði þessa sögufræga verslunarstaðar standa aðeins 120 þar enn í dag. Við sækjum menningarhjónin Ingu Láru og Magnús Karel heim í Víðsj...
Gyrðir í Glerhúsinu, Hanna Dís í Hakk og Þegar ég sé þig/rýni 03.02.2026 52:15
Það kom ýmsum á óvart þegar Gyrðir Elíasson tók sig til og opnaði myndlistarsýningu í Garði á Reykjanesi fyrir tæpum tveimur árum og sýndi þar hvorki meira né minna en 1200 myndverk. Gyrðir segir Reykjanesið hafa kynnt undir myndlistarmanninum í sér, þótt hann hafi raunar lengi í sér blundað. Nýverið opnaði hann aðra einkasýningu sína, sem hann nefnir Í morgunbirtu, í Glerhúsinu við Vesturgötu og...
Hús sem hverfa, Rubin Pollock, Ormstunga/rýni 02.02.2026 51:03
Síðastliðnar vikur hefur Víðsjá ferðast um borgarlandslagið með Henný Hafsteinsdóttur minjaverði Reykjavíkur og byggingar sem gætu verið á leið í niðurrif. Í dag hittum við Henny á miklum uppbyggingarreit, Borgartúni 5, sem í daglegu tali er kallaður Vegagerðarreiturinn. Þarna er að finna lágreistar iðnaðarbyggingar frá miðri síðustu öld sem eru meðal fárra minja um liðna tíma innan um háreistar n...
Myrkir músíkdagar, Blómstrandi framtíð og Mergur/rýni 29.01.2026 52:43
Í dag hefjast Myrkir músíkdagar, sem standa yfir fram á sunnudag. Við lítum við á æfingu fyrir upphafstónleika Myrkra hér í upphafi þáttar og hittum fyrir þær Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Báru Gísladóttur, sem báðar eiga ný hljómsveitarverk sem frumflutt verða á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg í kvöld. Katla Ársælsdóttir rýnir í Merg, nýtt íslenskt tón og leikverk eftir Katrí...
Tumi Magnússon/svipmynd 28.01.2026 47:56
Tumi Magnússon er fæddur í Reykjavík 1957 en ólst upp við jaðar Mosfellsbæjar í stórum bræðrahóp. Á heimilinu var myndlist upp um alla veggi og hugur Tuma stefndi alltaf í þá átt. Hann fór í Myndlista og handíðaskólann en ákvað að hætta eftir fornámið og klára námið í Hollandi. Hann langaði í nýtt umhverfi en svo hafði það líka áhrif að faðir hans, myndlistarmaðurinn Magnús Pálsson, var þarna orði...
Meyjar og völd, kínversk handrit og arkitektapistill Magneu 27.01.2026 51:58
Bambusinn þjónar mikilvægu hlutverki í handritasögu Kínverja, sem skrifuðu gjarnan frekar á bambus en silki, áður en pappírinn var fundinn þar upp. Prentlistina eigum við líka Kínverjum að þakka, en elstu minjar um skrifað mál eru frá því um 13 öldum fyrir okkar tímatal. Jón Egill Eyþórsson er einn okkar fremsti sérfræðingur á sviði austur-asískra fræða og uppfræðir okkur um kínverska handritamenn...
Hamlet og Galdrakarlinn í Oz 26.01.2026 51:48
Sýningum Hamlet lauk fyrr í mánuðinum en uppsetning Borgarleikhússins vakti mikla athygli og mikið umtal í haust. Við mælum okkur mót við leikstjóra verksins, Kolfinnu Nikulásdóttur og ræðum um sýningartímabilið og séreinkenni þessarar tilteknu uppsetningar. Trausti Ólafsson, leikhúsrýnir segir einnig frá Galdrakarlinum í Oz, sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á laugardag.
Una Björk Kjerúlf handhafi Ljóðstafs Jóns úr vör, fyrsta útvarpssendingin, Tumi Árnason/pistill 22.01.2026 52:10
Una Björk Kjerúlf hlaut í gær Ljóðstaf Jóns úr Vör, en verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2001 í minningu skáldsins Jóns úr Vör. Ljóð Unu Bjarkar kallast Framlag mitt í minningabanka nærri útdauðra ljóðaen í rökstuðningi dómnefndar segir að það sé listilega lipurt og leikandi en efni þess sé nokkuð kvíðablandið þegar betur er að gáð. Við ræðum við Unu Björk Kjerúlf í þætti dagsins. Einnig mi...
Óskar Árni Óskarsson / Svipmynd 21.01.2026 52:19
Gestur svipmyndar er Óskar Árni Óskarsson. Hann er fæddur í Reykjavík árið 1950 og var ekinn heim af spítalanum á feiknar stórum, rauðum olíubíl frá Esso. Hann ólst upp í Þingholtunum nánast í bakhúsi Borgarbókasafnsins en flutti síðan í Skipholtið á unglingsárum en þar las hann uppgötvaði helstu skáld samtíma síns. Óskar hefur lengi fengist við ljóðagerð, smáprósagerð, myndljóðasmíði, útgáfu og þ...
Blind date í Ásmundarsal og frönsk kvikmyndahátíð 20.01.2026 52:58
Á sýningunni Blind date, sem opnaði í Ásmundarsal um helgina, umbreytist innihald pennaveskis í himingeiminn, alda gleypir harmónikkuslóð á kínverskri strönd, plútóblýantur mætir jafnóðum strokleðrum í yfirstærð og tilfinningin fyrir víðáttunni í hversdagsleikanum er kitluð úr öllum höfuðáttum. Við bregðum okkur í hlutverk þriðja hjólsins með myndlistarmönnunum Kristínu Karólínu Helgadóttur og Sig...
Ólöf frá Hlöðum, Didda les bréf Ólafar, Freyja Þórsdóttir pistill 19.01.2026 52:53
Ólöf frá Hlöðum er meðal umfjöllunarefna í þætti dagsins. Tilefnið er að út er komin í bókarformi grein sem hún skrifaði við upphaf síðustu aldar, og sem birtist fyrst í Eimreiðinni árið 1906. Bernskuheimilið mitt kallast þessi litla fallega græna bók sem Flóra menningarhús á Akureyri gaf út í haust. Og af þessu tilefni verður endurfluttur pistill sem önnur skáldkona, Didda, flutti hér í Víðsjá ár...
Heimahöfn Eirúnar Sigurðardóttur, Kim Hyesoon í Mengi og Sjá dagar koma/rýni 15.01.2026 53:32
Í dag opnar einkasýning myndlistarkonunnar Eirúnar Sigurðardóttur í Grafíksal Hafnarhússins. Sýninguna nefnir hún Heimahöfn, en hún samanstendur af fjórum viðamiklum útsaumsverkum, auk grafíkverks. Heimahöfn er í raun framhald af einkasýningu Eirúnar á Svavarssafni á Höfn í Hornafirði í fyrra, og báðar byggja á hugleiðingum um það að eiga einhvers staðar heima. Skáldin Fríða Ísberg og Brynja Hjálm...
Hrafnhildur Arnardóttir Shoplifter / Svipmynd 14.01.2026 52:40
„Þetta er einhver huglæg efnafræði. Að blanda saman elementum og sjá hvaða líðan maður upplifir út frá því,“ segir Hrafnhildur Arnardóttir, Shoplifter, um starf listamannsins. Hún segir vinnustofuna vera einskonar rannsóknarstofu þar sem allt í einu, eins og fyrir einskæran galdur, passi allt og úr verður verkið sem átti að koma. „Og maður er bara fullviss, án þess að hafa nokkuð fyrir sér í því n...
Múslimar á Íberíuskaga og Skuggi sem mælieining 13.01.2026 49:22
Saga múslima á Íberíuskaga spannar níu aldir, en lauk árið 1614 þegar hundruð þúsunda múslima höfðu verið flutt nauðungaflutningum frá Spáni. Áhrif þessa tíma má sjá um gervallann skagann, bæði á Spáni og í Portúgal, en þrátt fyrir það hefur ekki alltaf ríkt sátt um umfang þessara áhrifa eða þýðingu. Nýlega kom út hjá Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur smáritið Al-andalus, saga múslima á Íberíuskaga....
DRIPP, María Magdalena og Bústaðurinn/rýni 12.01.2026 51:31
María Magdalena var fyrst til þess að hitta Jesú upprisinn, og fyrir henni treysti hann boðskap sínum. Í frumkristni var skrifum um hana ýtt til hliðar og í gegnum söguna hefur ímynd hennar sem aukapersónu orðið ofan á. Síðustu ár hafa ýmsir viljað rétta hlut hennar og bent á árþúsunda áhrif feðraveldisins í söguskoðun kristninnar. Meðal þeirra er Þórey Guðmundsdóttir, sem lítur við í hljóðstofu í...
Sólveig Aðalsteinsdóttir - svipmynd 07.01.2026 47:45
Sólveig Aðalsteinsdóttir, myndlistarkona, segist dragast að því sem vekur hjá okkur tilfinningu fyrir hinum stóra tíma. Þannig afhjúpar útlistaverkið hennar Streymi tímans til dæmis fyrir okkur jökulsorfnar klappir og minnir á smæð okkar í jarðsögulegu samhengi. Í verkum sínum umbreytir Sólveig gjarnan hversdagslegum hlutum á fínlegan og næman hátt, þannig að úr verða ljóðrænir skúltúrar, verk sem...
Tónfölsunarverkstæðið, BSÍ, Óresteia/rýni og Huldukonan/rýni 06.01.2026 49:21
Á sunnudag tekur svokallað Tónfölsunarverkstæði yfir Salinn í Kópavogi. Á verkstæðinu starfar hópur ungs tónlistarfólks sem hefur sérhæft sig í svokölluðum sögulegum spuna, en hópurinn býður áheyrendum upp á tónlist af fjölbreyttu tagi og stíl, en af óljósum uppruna. Við lítum inn á Tónfölsunarverkstæðið og forvitnumst nánar um málið. Við höldum líka áfram með bókarýnina, að þessu sinni rýnir Soff...
Smekkleysa og Laurie Anderson, Gunnhildur Þórðardóttir og Brúðubíllinn/rýni 05.01.2026 52:27
Heimsókn Laurie Anderson til Íslands markar lok viðamikillar sýningar á verkum Steinu Vasulka í Listasöfnunum í bænum, en líka upphaf afmælisárs Smekkleysu, sem fagnar í ár 40 ára tilveru sinni. Ásmundur Jónsson, eða Ási í Smekkleysu, lítur við í hljóðstofu, til að rifja stuttlega upp fyrir okkur tilurð Smekkleysu og segja okkur af goðsögninni Laurie Anderson. Trausti Ólafsson rýnir í nýja sýningu...
Drífa Viðar 29.12.2025 51:08
Í Víðsjá dagsins rifjum við upp þátt frá því í mars á þessu ári, þar sem við fjölluðum um myndlistarkonuna, rithöfundinn og gagnrýnandann Drífu Viðar. Þá var verið að leggja lokahönd á stóra og veglega bók um Drífu, bók sem nú hefur komið út og sem er tilnefnd til Fjöruverðlauna í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis. Þær Elísabet Gunnarsdóttir, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Auður Aðalsteinsdótti...
Jólalag Ríkisútvarpsins 2025, Leikárið 2025, Ósmann/rýni, Þyngsta frumefnið/rýni, 22.12.2025 46:10
Hreiðar Ingi Þorsteinsson er höfundur Jólalags Ríkisútvarpsins árið 2025. Lagið samdi hann við gamla þjóðvísu, Kerling heitir Grýla, sem birtist án tilgreinds höfundar í Stafrófskveri handa börnum, útgefnu á Akureyri, árið 1873. Hreiðar Ingi er jafnframt stjórnandi kammerkórsins Huldar, sem flytur lagið, en Huldur er óvenjulegur kór sem frumflutt hefur fjölda íslenskra kórverka á skammri ævi sinni...
Ljóðajól 18.12.2025 54:22
Víðsjá dagsins verður undirlögð af ljóðum og tónlist, en fyrst og fremst ljóðum. Fimm höfundar sem öll hafa gefið út bók á árinu segja frá bókunum og lesa ljóð: Eiríkur Örn, Guðmundur Andri Thorsson, Móheiður Hlín Geirlaugsdóttir, Natasha S. og Sigurlín Bjarney Gísladóttir. Tónlist þáttar er sömuleiðis fengin af hljómplötu sem kom út á árinu, HIK-Translations, úr smiðju þeirra Unu Sveinbjarnardót...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.