RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ 588 episodes

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Author

RÚV

Category

Arts

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 2, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Unnur Ösp á Leiklistardaginn, Dáland og Afbygging stóriðju í Helguvík 26.03.2026

Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona, leikstjóri og leikhöfundur flytur ávarp sitt í tilefni af alþjóðlega leiklistardeginum, sem haldinn er hátíðlegur á morgun, þann 27. mars. Við hugum líka að tónlist Purcell og samlanda hans, John Dowland og tónleikum þriggja tónlistarmanna undir yfirskriftinni Dáland, sem fara fram í Mengi annað kvöld Listamannateymið Libia & Ólafur Ólafsson opnuðu í febrúar 2024...

Bernd Ogrodnik / Svipmynd 25.03.2026

Bernd Ogrodnik er fæddur og uppalinn í Þýskalandi en hefur búið hér á landi frá árinu 1982. Hann heillaðist af veröld brúðuleikhússins á unga aldri og var snemma farinn að búa til sína eigin töfraheima. Hann ætlaði samt alltaf að verða tónlistarmaður og megnið af tímanum fór í að æfa sig á hljóðfæri, allt þar til að hann fékk nóg. Pressan í náminu og andrúmsloft eftirstríðsáranna í Þýskalandi þren...

Tolli Morthens, Gallerí Port og hugvekja Freyju Þórsdóttur 24.03.2026

„Í mínu innra landslagi var tilfinningin svoldið eins og landslagið sem ég er að mála, svona slepptu, treystu og leyfðu þér að bráðna, leyfðu þér að vera eins og vorið á Hrafntinnuskeri,“ segir Tolli Morthens um yfirstandandi málverkasýningu í gallerí Þulu, sem hann kallar Fingraför árstíða. Verkin vann hann eftir göngu að Fjallabaki með góðum hópi fólks úr jaðarsettri stöðu, en Tolli segist hafa...

Loji Höskulds í Köben, Vörumerkið Laxness, Haukur Þorgeirs pistill #1 23.03.2026

Myndlistarmaðurinn Loji Höskuldsson opnaði sýninguna Nágranna á dögunum í Kaupmannahöfn. Útsaumsverk Loga eru löngu orðin áhugafólki um myndlist hér á landi kunn en hann hefur á síðustu árum einnig haslað sér völl í Danmörku. Listamaðurinn segir aukna viðveru sína í konungsríkinu óneitanlega hafa haft áhrif á myndmál sitt en hann tvinnar hönnunarvörur saman við hversdagslega hluti neyslumenningari...

Tilfinningasteinar, Auðlindagarðar og Jón Nordal tónleikar Caput 19.03.2026

Samsýningin Auðlindagarðar fjallar um venslin á milli stóriðju og stafrænna innviða samtímans, þar sem stórar ákvarðanir um náttúruauðlindir eru teknar í sterílu skrifstofuumhverfi og sú náttúra sem flest okkar sjá er á skjáhvílum vinnutölvanna okkar. Listamennirnir, þau Agnes Ársælsdóttir, Hrafkell Tumi Georgsson, Sölvi Halldórsson og Eleni Iermia, vinna staðbundið inn í Slökkvistöðina, sem var á...

Aldrei las ég Laxness / Undir Helgahnúk 18.03.2026

Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar, Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga þáttarins er að þessu sinni Undir Helgahnúk sem kom út árið 1924. En verkið skrifaði Halldór í Benediktínaklaustrinu í Clervaux veturinn 1922, þá tvítugur - og hafði kaþólsk trú sterk áhrif á verkið sem er uppvaxtarsaga Atla Kjartanssonar, prestssonar sem gengur í gegnum mikla erfiðleika í æsku, missir bróðu...

Dómur Finns Arnars, Ljóðamót á Akureyri og Mömmó/rýni 17.03.2026

Dómur kallast sýning Finns Arnars Arnarssonar í Ásmundarsafni, þar sem hann hefur búið í tjaldi síðustu vikur og varið dögunum í að mála kúlulaga hvelfinguna á eftri hæð safnsins. Finnur er nýfluttur úr tjaldinu en vistarverurnar standa eftir sem vitnisburður um líf listamannsins og í kúlunni birtast okkur hugmyndir um karlmennsku og hlutverk okkar í jarðvistinni. Við lítum við í síðari hluta þátt...

Áning Elínar Elísabetar í Þulu, The Wall, Gæðablóð / rýni 16.03.2026

Elín Elísabet Einarsdóttir hefur um árabil starfað sem teiknari en í Covid ákvað hún að nú væri komin tími á að gefa myndlistinni meira pláss. Og þegar hún fór að mála úti í náttúrunni var ekki aftur snúið. Líkt og æðarkollan sem sækir í sama hreiður kynslóð eftir kynslóð sækir Elín Elísabet í staði á landinu sem hún tengist fjölskylduböndum. Þar vappar hún um í kyrrð og einveru með fuglum og plön...

Mömmó í Borgó og myndlist á tímum kalda stríðsins 12.03.2026

Annað kvöld verður leikritið Mömmó frumsýnt í Borgarleikhúsinu. Leikritið er eftir hinn rómaða leikhöfund Paulu Vogel, sem hefur óhikað tekið fyrir flókin félagsleg og pólitísk mál og sló í gegn hér á landi og víðar með leikriti sínu Ökutímar. Agnar Jón Egilsson leikstýrir verkinu og segir okkur nánar af sýningunni í fyrri hluta þáttar. Á morgun hefst líka hugvísindaþing Háskóla Íslands, þar sem þ...

Guðrún Kristjánsdóttir / Svipmynd 11.03.2026

Guðrún Kristjánsdóttir er fædd árið 1950 og nam myndlist í Reykjavík og Aix-en-Provence. Hún hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1986 og hefur síðan sýnt víða, hér á landi og erlendis. Nýverið opnaði yfirlitssýning á verkum Guðrúnar á Kjarvalsstöðum og það er þar sem Víðsjá hitti listakonuna sem er gestur þáttar í Svipmynd vikunnar. Þær fáu minningar sem Guðrún á úr bernsku tengjast náttúrunni. Hún...

Aðflæði Guðmundar Ármann og leikhústónlist Hjálmars H Ragnarssonar 10.03.2026

Guðmundur Ármann á að baki langan feril í myndlist og myndlistarkennslu og nýlega opnaði yfirlitssýning á verkum hans á Listasafni Akureyrar, undir yfirskriftinni Aðflæði. Guðmundur flutti til Akureyrar árið 1972, eftir prentmyndasmíðanám, nám í Myndlista- og handíðaskólanum og við Valand-listaháskólann í Gautaborg. Víðsjá mælti sér mót við Guðmund Ármann á sýningunni, sem einkennist af fjölbreytt...

Dýrkun, Birtingur og Heima 09.03.2026

Í Víðsjá dagsins heyrum af nýjum bókaklúbbi fréttastofunnar á Rúv. Þau eru nýbúin að lesa eitt þekktasta rit upplýsingarinnar, Birting eftir Voltaire, sem kom fyrst út í Frakklandi á því herrans ári 1759. Gauti Kristmannsson rýnir í Heima eftir þýska rithöfundinn Judith Hermann og við veltum upp tengslum Steins Elliða, aðalpersónu Vefarans mikla frá Kasmír eftir Halldór Kiljan Laxness og áhangendu...

Brothætt, Nína Sæmundsson og tónlistarpistill Tuma Árnasonar 05.03.2026

Við hefjum þáttinn á því að heimsækja sviðslistakonuna Steinunni Önnu Knútsdóttur, sem stendur þessa dagana að þátttökuverkefni um hið brothætta og ófullkomna, og safnar bæði brotnu leirtaui og sögum í aðstöðu sinni á Dansverkstæðinu við Hjarðarhaga. Tumi Árnason flytur svo sinn hálfsmánaðarlega pistil um miðbik þáttar og fjallar meðal annars um stafrænan draugagang píanóleikara í parís og rými in...

Björn Steinar Sólbergsson - svipmynd 04.03.2026

Björn Steinar Sólbergsson tók við stöðu organista við Akureyrarkirkju árið 1986, þá nýkominn heim úr námi í Evrópu, aðeins 25 ára gamall. Þar starfaði hann í 20 ár, og hefur starfað í önnur 20 við Hallgrímskirkju í Reykjavík, þar sem hann er nú tónlistarstjóri og organisti, ásamt því að kenna við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Að sögn Björns Steinars eigum við orgelinu stóra í Hallgrímskirkju mikið að þ...

Lyktarheimur Íslendinga og áhrif tunglsins á líf og ljóð 03.03.2026

Sagnfræðingurinn Ragnhildur Björt Björnsdóttir hefur síðustu misseri legið yfir heimildum og skrifað ritgerð um lyktarheim Íslendinga á tímabilinu 1870-1920. Við rannsóknir sínar styðst hún við aðferðir svokallaðrar tilfinningafræði, með samanburði á sjálfsbókmenntum og skilgreiningum millistéttarinnar á æskilegri hegðun. Hún heldur fyrirlestur um efnið á Minjasafni Akureyrar á fimmtudag, en lítur...

Köln 75, Birtínur og Útvarp Matthildur 02.03.2026

Í þætti dagsins hittum við þá Sævar Jóhannsson, tónlistarmann og Ólaf Sverri Traustason, skiptilykil hjá Bíó paradís, og ræðum um kvikmyndina Köln 75 sem sýnd er næsta laugardag á Þýskum kvikmyndadögum sem og tónleika sem þeir ætla að blása til í kvikmyndahúsinu að lokinni sýningu. Tónleika sem verða eins konar tilbrigði við víðfræga Kölnartónleika bandaríska tónlistarmannsins Keith Jarretts. Trau...

Birtingur, Eliane Radigue og Laxnesssafn Magnúsar Jóhanns 26.02.2026

Birtingur Voltaire verður frumsýndur í nýrri leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar hjá Leikfélagi Akureyrar í kvöld. Í raun er um rokkóperettu að ræða, en tónlistina gerði Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Við hefjum þáttinn á því að taka púlsinn á leikstjóranum og leikhússtjóranum Bergi Þór og heyra af verkinu og aðdragandanum. Franska tónskáldið Éliane Radigue lést fyrr í vikunni, 94 ára að aldri. Radigu...

Albína Thordarson arkitekt / Svipmynd 25.02.2026

Albína Thordarson arkitekt er fædd árið 1939 í Reykjavík og það er óhætt að segja að arkitektúrinn sé henni í blóð borinn. Faðir hennar Sigvaldi Thordarson rak um tíma arkitektastofu á heimili fjölskyldunnar í Hlíðunum og Albína sá aldrei neitt annað fyrir sér en að verða arkitekt. Teikniblöð og umræða um hönnun voru alltaf hluti af lífinu og leiðin lá rakleitt í nám í arkitektúr til Danmerkur eft...

Caroline Shaw, Söguhringur frásagnarfélag og Síðustu dagar skeljaskrýmslisins 24.02.2026

Bandaríska tónskáldið, fiðluleikarinn og söngkonan Caroline Shaw kemur fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á föstudagskvöld. Shaw er ein sú mest spennandi rödd sem ómar í samtímatónlist og allar hennar viðurkenningar eru til vitnis um það. Á tónleikunum verða flutt fjögur verk og ásamt Shaw sjálfri syngur Kammerkórinn Aurora, undir stjórn Sigríðar Soffíu Hafliðadóttur. Sigríður Soffía lítur við í...

Klifun Margrétar Jónsdóttur, Henry Threadgill ævisaga 23.02.2026

„Rauði liturinn er blóð. Bara það að vera kona og vera ein, og starfa í myndlist, þar er mjög erfitt. Laun kvenna hafa verið miklu lægri. Það er bara töff að vera í þessu,“ segir Margrét Jónsdóttir um eitt verka sinna sem nú hangir uppi í Listasal Mosfellsbæjar. Verkin á sýningunni eru máluð á ólíkum tímum en tala saman á óvæntan hátt. Stór eldri vatnslitaverk kallast á við nýrri verk þar sem frum...

Kurtág 100 ára, Cantores Islandiae og Carmen/rýni 19.02.2026

Þátturinn er undirlagður af tónlist, þó úr mjög ólíkum áttum sé. Trausti Ólafsson fjallar um uppsetningu Kammeróperunnar á óperu Bizet, Carmen, sem frumsýnd var í Tjarnarbíói um liðna helgi. Við kynnum okkur Gregorssöng, eða sléttsöng, sem sönghópurinn Cantores Islandiae hefur sérhæft sig í og býður áhugasömum að njóta á tónleikum í Breiðholtskirkju á laugardag. En við byrjum á því að hringja til...

Aldrei las ég Laxness / Barn náttúrunnar 18.02.2026

Í dag fer af stað bókaklúbbur Víðsjár sem nefnist Aldrei las ég Laxness, sem hefur það markmið að lesa allar skáldsögur nóbelskáldsins Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Við hefjum leika á því að ræða fyrstu skáldsögu Halldórs, Barn náttúrunnar, með góðum gestum, þeim Vilhelmi Neto, leikara og Halldóri Guðmundssyni, rithöfundi. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau...

Carmen í Tjarnarbíói, Skrifarar sem skreyttu handritin sín, Freyja Þórsdóttir/pistill 17.02.2026

Frægasta ópera franska tónskáldsins Bizet; Carmen, var frumsýnd í útfærslu Kammeróperunnar um liðna helgi og eins og hópsins er von og vísa er um nýstárlega uppsetningu að ræða. Kristín Sveinsdóttir bregður sér þar í hlutverk Carmen og hún lítur við í hljóðstofu ásamt leikstjóra sýningarinnar, Adolf Smára Unnarssyni. Freyja Þórsdóttir heimspekingur fjallar um það hvernig umhverfið sem við sköpum o...

Hörður í Gerðarsafni, Dúkkuverksmiðjan, Barn náttúrunnar 16.02.2026

Hörður Ágústsson er lykilpersóna í íslenskri menningarsögu. Hann var í framvarðarsveit myndlistar á síðustu öld, leiðandi rödd módernismans og lykilmaður í þróun abstraktsins hér á landi. Hörður var einnig mikilvirkur fræðimaður á sviði íslenskrar húsagerðalistar og brautryðjandi í bókahönnun og auglýsingagerð. „Í mér eru arkitekt og ljóðskáld, og þeir eru sífellt að rífast,“ sagði hann eitt sinn,...

Á milli mála í Skáldu, Sumé- fyrsta grænlenska heimildamyndin, Minnisblöð veiðimanns /rýni 12.02.2026

Við heimsækjum bókabúðina Skáldu þar sem útgáfu nýs bókverks var fagnað um síðustu helgi. Bókverkið kallast Á milli mála: fiður, fingur, fálmarar og höfundar eru þær Agnes Ársælsdóttir og Anna Andrea Winther. Bókin er hluti af listrannsókn sem hófst með kexi fyrir bæði hunda og menn. Einn hluti verksins voru keramíkskúlptúrar sem settir voru upp við Tjörnina í Reykjavík í tengslum við Listahátíð 2...

Listen to the Víðsjá podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.