RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Jöklaminni, Tumi Árna um Jazzþorpið, Haukur Þorgeirs pistill #8 18.05.2026 54:05
„Við reiðum okkur á gögn sem eru útreiknuð í samhengi við náttúru og veðurfar og erum auðvitað griðarlega þakklát fyrir það. En að sama skapi þá býr það til þessa fjarlægð, og þessa kannski stjórnunaráráttu okkar gagnvart náttúru og umhverfi. Að halda að við getum nýtt okkur þessi gögn að öllu leyti, sem er auðvitað ekki rétt. Og það er kannski þetta hráa og berskjaldaða í okkur sem þarf að vera t...
Aldrei las ég Laxness / Salka Valka 13.05.2026 56:47
Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Salka Valka sem kom út í tveimur bindum árin 1931 og 1932, og segir verkið sögu Salvarar Valgerðar Jónsdóttur, sem er kölluð Salka Valka, en hún elst upp á Óseyri við Axlarfjörð, á miklum umbrotartímum í lífi íslensku þjóðarinnar. Samlesari Sölku Völku og sérstakur gestur þáttar er Berg...
Í hæfilegu magni, leturgerðin Rúna og Mzungo/rýni 12.05.2026 48:39
Ljóðskáldið Heiða Vigdís Sigfúsdóttir gaf nýverið út ljóðabókina Í hæfilegu magni hjá Forlaginu. Þar fylgir lesandi konu sem virðist í upphafi falla að öllum helstu viðmiðum samfélagsins, en reynist eftir því sem á líður búa yfir fjölbreyttari karaktereinkennum en þar rúmast. Við ræðum við Heiðu í þætti dagsins og kynnum okkur einnig nýja leturgerð sem kallast Rúna en það er grafíski hönnuðurinn o...
Gabríela Friðriksdóttir, Hinsegin Salka Valka, Haukur Þorgeirs pistill #7 11.05.2026 52:47
„Ef maður er ekki alltaf að, þá er hjartað manns ekki opið fyrir tækifærunum. Í gamla daga voru menn oft að vinna bara fyrir ákveðnar sýningar, en ég held að þetta sé öfugt. Þú bara gerir og gerir og þá kemur sýningin til þín. Þetta er þannig sem þetta virkar,“ segir Gabríela Friðriksdóttir. Í vikunni verður sýndarveruleika innsetningin Playing with Fire, sem hún gerði í samstarfi við píanóstjörnu...
Ásta Fanney, Álfheiður Erla og Ása Bríet 07.05.2026 55:04
Lady Lazarus, tónleikar sópransönkonunnar Álfheiðar Erlu Guðmundsdóttur og píanistans Kunal Lahiry, eru lokatónleikar á svokallaðri ECHO Rising Stars tónlistarhátíð, sem fer fram í Hörpu um helgina. ECHO Rising Stars er verkefni á vegum samtaka evrópskra tónleikahúsa sem gefur ungu og framúrskarandi tónlistarfólki færi á að koma fram á bestu tónleikasviðum Evrópu, þar á meðal í Hörpu. Við heyrum n...
Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður 06.05.2026 44:29
Endurfluttur þáttur frá 2024: Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er fædd í Reykjavík árið 1960 en bjó um árabil í Frakklandi, Ítaliu og Bandaríkjunum. Hún stundaði nám í fatahönnun í París og við Parson School of Design í New York. Eftir útskrift starfaði hún hjá erlendum tískuhúsum á borð við Calvin Klein, Ralph Lauren, La Perla og Gucci, en ákvað árið 2000 að flytja heim til Íslands og stofna...
Forvitin rauð á Hönnunarmars, Freyja heimspekipistill, Innblástur-rýni 05.05.2026 50:03
Síðastliðin misseri hafa tveir grafískir hönnuðir, þær Hólmfríður Benediktsdóttir og Una María Magnúsdóttir kafað ofan í heim tímaritsins Forvitin rauð, málgagn íslensku rauðsokkahreyfingarinnar. Tímaritið kom út einu sinni til tvisvar á ári frá 1972 til 1982, og voru umfjöllunarefnin jafnréttismál, stjórnmál og bókmenntir. Þær Hólmfríður og Una María opna sýningu á afrakstri rannsóknarvinnu sinna...
Suðurríkjaherforingi frá Big Sur, Margot Gamm, Haukur Þorgeirs pistill#6 04.05.2026 50:20
Í þætti dagsins ræðum við við Þórð Sævar Jónsson, þýðanda og skáld, um þýðingu sem hann var að senda frá sér á skáldsögu bandaríska rithöfundarins Richard Brautigans, Suðurríkjaherforingi frá Big Sur. Haukur Þorgeirsson fer með okkur aftur til hins kaþólska Íslands og heyrum við brot úr Katrínardrápum og öðrum kvæðum um heilagar meyjar. Við sláum einnig á þráðinn austur á Höfn í Hornafjörð en þar...
Salka: Ástin og dauðinn 30.04.2026 55:31
Í þættinum tökum við örlítið forskot á bókaklúbbinn Aldrei las ég Laxness og ræðum fyrsta hluta Sölku Völku og sýninguna Salka; Ástin og dauðinn, við leikkonuna, leikskáldið og leikstjórann Unni Ösp Stefánsdóttur. Sýningin er einleikur á vegum þjóðleikhússins og Landnámsseturs Íslands, byggður á fyrsta bindi skáldsögunnar og hefur vakið umtalsverða athygli undanfarna mánuði.
Alþjóðlegi dansdagurinn og svipmynd af Ástu Fanney 29.04.2026 53:08
Í þættinum flytur Steinunn Ketilsdóttir, danshöfundur og framkvæmdastjóri Dansverkstæðisins, ávarp í tilefni af Alþjóðlega dansdeginum 2026. Einnig endurflytjum við svipmynd sem Víðsjá gerði af feneyjafara Íslands í ár Ástu Fanneyju Sigurðardóttur. Svipmyndin er frá 2024.
Þykjó, Sölvi Kolbeinsson, +1 og stígvél 28.04.2026 53:03
Í Víðsjá dagsins hittum við Sigríði Sunnu Reynisdóttur, einn af hönnuðum Þykjó, og ræðum við hana um hönnunarteymið og hljóðfærasmiðju sem þær standa fyrir í Jazzþorpinu í Garðabæ. Við heyrum einnig af verkum Sölva Kolbeinssonar og Ingibjargar Elsu Turchi og Hróðmars Sigurðssonar en öll koma þau fram í Jazzþorpinu. Þá rifjum við upp fimm ára ráðgátu frá ströndum þar sem forláta stígvéli skolaði þa...
Ymur, Máría, Éditions Grasset og Pissuskálin 27.04.2026 54:03
Friðrik Margrétar-Guðmundsson sendi frá sér plötuna Ymur um helgina. Hann verður gestur Víðsjár og segir frá tilurð verksins og umfjöllunarefni hennar. Haukur Þorgeirsson, málfræðingur og rannsóknarprófessor við Árnastofnun, heldur áfram að fjalla um íslenska ljóðlist fyrri alda, í dag segir Haukur okkur frá Máríu, móður guðs, í kvæðum íslenskra skálda á miðöldum. Við heyrum af pólitískum menninga...
Katrín Elvarsdóttir / Svipmynd 22.04.2026 50:43
Katrín Elvarsdóttir heillaðist af kvikmyndalistinni sem unglingur og það var sá áhugi sem leiddi hana á slóðir ljósmyndunar, en ljósmyndin hefur alla tíð verið hennar miðill í myndlistinni. Mikill Frakklands áhugi dró Katrínu á allar franskar kvikmyndahátíðir sem buðust og franska nýbylgjan og David Lynch áttu síðar eftir að hafa djúp áhrif á fagurfræði verka hennar. Hún eignaðist sína fyrstu mynd...
Feneyjatvíæringur, 850 ára refilssaumuð ástarsaga og Ég, Jóhanna/rýni 21.04.2026 52:36
Hin 850 ára saga af Flóres og Blankiflúr var eins konar metsölubók miðalda og gífurlega vinsæl um alla Evrópu, meðal annars hér á landi. Nýverið hafði lítið félag í þorpinu Assenede í Belgíu frumkvæði að því að sagan yrði saumuð út í 93 metra refil og hafði samband við fræðimenn þeirra 12 landa þar sem eldgamlar þýðingar á sögunni hafa fundist. Síðasta árið hafa þrjár íslenskar konur setið við og...
Staðarandi og steinsteypa, Tálkvendi í 79 af stöðinni, Haukur Þorgeirs pistill#5 20.04.2026 51:38
Í þætti dagsins ræðum við við Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, rithöfund, um erindi sem hún flutti á aldarafmælismálþingi um rithöfundinn Indriða G. Þorsteinsson, þar sem hún greindi persónu Gógóar í skáldsögunni 79 af stöðinni sem tálkvenndi. Birgitti heimsækir þáttinn og skýrir frá greiningunni. Haukur Þorgeirsson, málfræðingur, heldur áfram með sína vikulegu pistla um íslenska ljóðlist fyrri alda...
Terta í Elliðaárstöð, Þórdís Erla Zoega í Berg Contemporary 16.04.2026 53:35
Meðal verðlaunahafa á Hönnunarverðlaunum Íslands 2025 var þverfaglega hönnunarteymið Terta. Hópurinn endurhannaði Elliðaárstöð og umhverfi hennar fyrir Orkuveituna og úr varð eftirtektarverður áfangastaður, svæði sem var áður afvikið iðnaðarsvæði en iðar nú af lífi árið um kring. Við hittum tvo meðlimi Tertu, þær Brynhildi Pálsdóttur, hönnuð og Evu Huld Friðriksdóttur, arkitekt í þætti dagsins. Vi...
Aldrei las ég Laxness / Vefarinn mikli frá Kasmír 15.04.2026 56:16
Bókaklúbbur Víðsjár heldur áfram: Vefarinn mikli frá Kasmír gaf Halldór Kiljan Laxness út árið 1927 við alls konar undirtektir. Sagan hverfist um unga manninn Stein Elliða sem haldinn er miklu hugarvíli og núrótík og leitar lausna við kvillum sínum í stóru hugmyndakerfum heimsins. Í þættinum ræða Tómas og Natasha S., skáld og rithöfundur, bókina sín á milli.
Bókumbók, artivismi og arkitektúr, Sæmundur Fróði/rýni 14.04.2026 54:01
Sigrún Perla Gísladóttir, arkitekt, vill hugsa um arkitektúr sem afl til umbreytinga í átt að meira réttlæti, vellíðan og sjálfbærni. Í tillögu hennar að verndun hafsvæða við landið dregur hún meðal annars fram með sjónrænum hætti neðanjarðarborgir og kórallahella sem eru tengdari okkur en við höldum. Perla mun kynna verkefnið á málþingi um Artivisma í Norræna húsinu á morgun og við ræðum við hana...
Heiðvirðir einstaklingar í Hafnarborg, Lunga skólinn, Haukur Þorgeirs pistill #4 13.04.2026 50:52
Í Hafnarborg sýnir um þessar mundir pólska listamanna tvíeykið Austur-Íslendingar, en það skipa þau Weronika Balcerak og Lukas Bury. Titill sýningarinnar, Heiðvirðir einstaklingar, er sóttur í auglýsingu sem birtist í smáauglýsingablaði Tímans árið 1991, en sýningin hverfist um samskipti á milli Póllands og Íslands. Samskipti, sem hófust með viðskiptum löngu áður en Pólverjar urðu stærsti hópur in...
Tilfinningar í forn-norrænum ritum, leikhúsupplifanir í Borgarnesi og Finnlandi 09.04.2026 52:47
„Þegar nánar er að gáð þá finnum við hvernig tilfinningarnar ólga undir yfirborðinu, þó enginn hafi kannski beint orð á þeim,“ segir Brynja Þorgeirsdóttir, lektor við íslensku og menningardeild HÍ, en hún stendur, ásamt fleiri fræðimönnum, að nýlegu greinasafni sem hverfist um tilfinningar í forn-norrænum bókmenntum sem við fræðumst nánar um í þætti dagsins. Einnig segir Trausti Ólafsson frá sterk...
Fuglar, eyjar og örnefni á Breiðafirði 08.04.2026 52:18
Þorvaldur Þór Björnsson hefur í rúma fjóra áratugi skrásett örnefni og fuglategundir við Breiðafjörð auk þess að teikna upp kort af eyjum og skerjum. Hann er í dag starfsmaður Náttúrufræðistofnunar en var það alls ekki þegar hann hófst handa við skráningarnar. Framan af var þetta stefnulaust áhugamál, sem hófst þegar hann taldi fuglategundir sem gutti á gúmmíbát við Reykjavík. Við tóku áralangar s...
Gáttir Benedikt Hjartarson, Haukur Þorgeirs #3, Töfrafugl/ rýni 07.04.2026 52:13
Við munum heyra í Benedikti Hjartarsyni prófessor í almennri bókemenntafræði og meningarfærði við háskóla íslands, en hann gaf nýverið út bókina Gáttir, heimsbókmenntir á Íslandi 1913-1943. Í Gáttum hugar Benedikt að áhrifum heimsbókmenntanna á íslenskt menningarlíf á fullveldis árunum. Mikil áhersla var lögð á að byggja upp íslenska nútímamenningu og liður í því verkefni var að kynna nýjustu stra...
Fyrsti apríl 01.04.2026 50:44
Þáttur dagsins er tileinkaður aprílgabbinu. Rifjuð eru upp nokkur góð aprílgöbb, auk þess sem uppruni aprílgabbsins og skyldra hefða er kannaður.
Ísmús vefurinn, draumaíbúðir arkitektanema og Jötungíma kveður/rýni 31.03.2026 50:46
Víðsjá leit við í Listaháskólanum og ræddi við nema á fyrsta ári um arkitektúr framtíðarinnar. Þau Gylfi Halldórsson og Urður Ýr Þorsteinsdóttir segjast finna fyrir mikilli ábyrgð verandi í þessu námi og að þau séu að mörgu leyti sammála gagnrýnni umræðu síðustu missera um arkitektúr, þó margt sé vel gert. „Við vitum að við getum gert þetta vel, en það þarf að vera vilji fyrir því að borga fyrir g...
Barrokkbandið Brák, Haukur Þorgeirs #2, Spaðar 30.03.2026 55:35
Reykjavík Early Music Festival er alþjóðleg barokkhátíð sem haldin er hér í Reykjavík, í þriðja sinn í ár, en þar leika íslenskir og erlendir hópar, sem sérhæfa sig í upprunaflutningi, tónlist frá miðöldum, endurreisnartímanum, barokktímabilinu og rómantíska tímanum. Opnunartónleikarnir fara fram annað kvöld í Hörpu og eru í höndum Barrokkbandsins Brákar og í þættinum lítum við inn á æfingu hjá ba...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.