RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Lyktarheimur Íslendinga og áhrif tunglsins á líf og ljóð 03.03.2026 53:45
Sagnfræðingurinn Ragnhildur Björt Björnsdóttir hefur síðustu misseri legið yfir heimildum og skrifað ritgerð um lyktarheim Íslendinga á tímabilinu 1870-1920. Við rannsóknir sínar styðst hún við aðferðir svokallaðrar tilfinningafræði, með samanburði á sjálfsbókmenntum og skilgreiningum millistéttarinnar á æskilegri hegðun. Hún heldur fyrirlestur um efnið á Minjasafni Akureyrar á fimmtudag, en lítur...

Köln 75, Birtínur og Útvarp Matthildur 02.03.2026 52:59
Í þætti dagsins hittum við þá Sævar Jóhannsson, tónlistarmann og Ólaf Sverri Traustason, skiptilykil hjá Bíó paradís, og ræðum um kvikmyndina Köln 75 sem sýnd er næsta laugardag á Þýskum kvikmyndadögum sem og tónleika sem þeir ætla að blása til í kvikmyndahúsinu að lokinni sýningu. Tónleika sem verða eins konar tilbrigði við víðfræga Kölnartónleika bandaríska tónlistarmannsins Keith Jarretts. Trau...

Birtingur, Eliane Radigue og Laxnesssafn Magnúsar Jóhanns 26.02.2026 53:44
Birtingur Voltaire verður frumsýndur í nýrri leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar hjá Leikfélagi Akureyrar í kvöld. Í raun er um rokkóperettu að ræða, en tónlistina gerði Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson. Við hefjum þáttinn á því að taka púlsinn á leikstjóranum og leikhússtjóranum Bergi Þór og heyra af verkinu og aðdragandanum. Franska tónskáldið Éliane Radigue lést fyrr í vikunni, 94 ára að aldri. Radigu...

Albína Thordarson arkitekt / Svipmynd 25.02.2026 51:34
Albína Thordarson arkitekt er fædd árið 1939 í Reykjavík og það er óhætt að segja að arkitektúrinn sé henni í blóð borinn. Faðir hennar Sigvaldi Thordarson rak um tíma arkitektastofu á heimili fjölskyldunnar í Hlíðunum og Albína sá aldrei neitt annað fyrir sér en að verða arkitekt. Teikniblöð og umræða um hönnun voru alltaf hluti af lífinu og leiðin lá rakleitt í nám í arkitektúr til Danmerkur eft...

Caroline Shaw, Söguhringur frásagnarfélag og Síðustu dagar skeljaskrýmslisins 24.02.2026 54:36
Bandaríska tónskáldið, fiðluleikarinn og söngkonan Caroline Shaw kemur fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á föstudagskvöld. Shaw er ein sú mest spennandi rödd sem ómar í samtímatónlist og allar hennar viðurkenningar eru til vitnis um það. Á tónleikunum verða flutt fjögur verk og ásamt Shaw sjálfri syngur Kammerkórinn Aurora, undir stjórn Sigríðar Soffíu Hafliðadóttur. Sigríður Soffía lítur við í...

Klifun Margrétar Jónsdóttur, Henry Threadgill ævisaga 23.02.2026 51:30
„Rauði liturinn er blóð. Bara það að vera kona og vera ein, og starfa í myndlist, þar er mjög erfitt. Laun kvenna hafa verið miklu lægri. Það er bara töff að vera í þessu,“ segir Margrét Jónsdóttir um eitt verka sinna sem nú hangir uppi í Listasal Mosfellsbæjar. Verkin á sýningunni eru máluð á ólíkum tímum en tala saman á óvæntan hátt. Stór eldri vatnslitaverk kallast á við nýrri verk þar sem frum...
Kurtág 100 ára, Cantores Islandiae og Carmen/rýni 19.02.2026 52:45
Þátturinn er undirlagður af tónlist, þó úr mjög ólíkum áttum sé. Trausti Ólafsson fjallar um uppsetningu Kammeróperunnar á óperu Bizet, Carmen, sem frumsýnd var í Tjarnarbíói um liðna helgi. Við kynnum okkur Gregorssöng, eða sléttsöng, sem sönghópurinn Cantores Islandiae hefur sérhæft sig í og býður áhugasömum að njóta á tónleikum í Breiðholtskirkju á laugardag. En við byrjum á því að hringja til...
Aldrei las ég Laxness / Barn náttúrunnar 18.02.2026 55:14
Í dag fer af stað bókaklúbbur Víðsjár sem nefnist Aldrei las ég Laxness, sem hefur það markmið að lesa allar skáldsögur nóbelskáldsins Halldórs Kiljan Laxness í tímaröð. Við hefjum leika á því að ræða fyrstu skáldsögu Halldórs, Barn náttúrunnar, með góðum gestum, þeim Vilhelmi Neto, leikara og Halldóri Guðmundssyni, rithöfundi. Klúbburinn er hugsaður fyrir þau sem hafa lítið kynnt sér Laxness, þau...

Carmen í Tjarnarbíói, Skrifarar sem skreyttu handritin sín, Freyja Þórsdóttir/pistill 17.02.2026 54:45
Frægasta ópera franska tónskáldsins Bizet; Carmen, var frumsýnd í útfærslu Kammeróperunnar um liðna helgi og eins og hópsins er von og vísa er um nýstárlega uppsetningu að ræða. Kristín Sveinsdóttir bregður sér þar í hlutverk Carmen og hún lítur við í hljóðstofu ásamt leikstjóra sýningarinnar, Adolf Smára Unnarssyni. Freyja Þórsdóttir heimspekingur fjallar um það hvernig umhverfið sem við sköpum o...
Hörður í Gerðarsafni, Dúkkuverksmiðjan, Barn náttúrunnar 16.02.2026 55:07
Hörður Ágústsson er lykilpersóna í íslenskri menningarsögu. Hann var í framvarðarsveit myndlistar á síðustu öld, leiðandi rödd módernismans og lykilmaður í þróun abstraktsins hér á landi. Hörður var einnig mikilvirkur fræðimaður á sviði íslenskrar húsagerðalistar og brautryðjandi í bókahönnun og auglýsingagerð. „Í mér eru arkitekt og ljóðskáld, og þeir eru sífellt að rífast,“ sagði hann eitt sinn,...
Á milli mála í Skáldu, Sumé- fyrsta grænlenska heimildamyndin, Minnisblöð veiðimanns /rýni 12.02.2026 54:30
Við heimsækjum bókabúðina Skáldu þar sem útgáfu nýs bókverks var fagnað um síðustu helgi. Bókverkið kallast Á milli mála: fiður, fingur, fálmarar og höfundar eru þær Agnes Ársælsdóttir og Anna Andrea Winther. Bókin er hluti af listrannsókn sem hófst með kexi fyrir bæði hunda og menn. Einn hluti verksins voru keramíkskúlptúrar sem settir voru upp við Tjörnina í Reykjavík í tengslum við Listahátíð 2...

Íslensku bókmenntaverðlaunin 2025 11.02.2026 54:02
Víðsjá dagsins er tileinkuð Íslensku bókmenntaverðlaunum sem afhent verða á Bessastöðum í kvöld. Við heyrum brot úr viðtölum við höfunda sem tilnefndir eru í flokki skáldverka, þau Eirík Jónsson, Sigrúnu Pálsdóttir, Þórdísi Helgadóttir, Hauk Már Helgason og Jón Kalman Stefánsson
Jötungíma kveður, Gárur og Garður-Paradísarfuglar ÍD/rýni 10.02.2026 51:51
Um helgina frumsýnir sviðslistahópurinn Díó leiksýninguna Jötungíma kveður í Turninum í Elliðaárstöð. Hugmyndin að verkinu kom til Aðalbjargar Árnadóttur á gönguferð á Laugarnestanga, en þá sá hún allt í einu manninn sinn, Hannes Óla, fyrir sér í hlutverki sjarmerandi risasvepps að kveða minningarorð um mannkynið. Við hittum þau hjónin í þætti dagsins, en hugum líka að sviðslistum á öðrum vettvang...
Katti Frederikssen um Grænland, Tilboð mánaðarsins, Ekki hugmynd/rýni 09.02.2026 52:26
„Við höfum alltaf horft á Dani sem nýlenduherra en okkur hefur alltaf verið kennt að Danir séu góðir nýlenduherrar. Og sumir trúa því enn,“ segir Katti Fredrikssen bókaútgefandi, skáld og fyrrverandi menningarmálaráðherra Grænlands. Katti er málfræðingur að mennt og hefur um árabil verið ötul talskona grænlenskrar tungu. Víðsjá hitti Katti í Norræna húsinu og ræddi við hana um upphaf ástríðunnar f...
Á. Birna í BERG, Myrkir/rýni, Fröken Dúlla/rýni og Sölvi Kolbeins 05.02.2026 52:21
„Ég kalla þessi stóru leirker stundum bara táraglös, þau minna á stundaglös, en telja tár og tengjast okkar innri sjó, okkar innri sjávarföllum,“ segir Á. Birna Björnsdóttir um einkasýninguna Þegar ég lít upp hefur tunglið breytt um lögun, sem opnaði nýverið í gallerí Berg við Klapparstíg. Við lítum við í Berg Contemporary í Víðsjá dagsins. Sölvi Kolbeinsson lítur einnig við í hljóðstofu og segir...
Svipmynd af þorpi: Eyrarbakki 04.02.2026 52:03
Hjónin Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson hlutu menningarviðurkenningu Árborgar árið 2025 fyrir áratuga starf í þágu menningarlífsins í sveitarfélaginu. Þau gáfu nýverið út bók um horfin hús á Eyrarbakka, en af þeim 300 húsum sem þar stóðu á blómaskeiði þessa sögufræga verslunarstaðar standa aðeins 120 þar enn í dag. Við sækjum menningarhjónin Ingu Láru og Magnús Karel heim í Víðsj...
Gyrðir í Glerhúsinu, Hanna Dís í Hakk og Þegar ég sé þig/rýni 03.02.2026 52:15
Það kom ýmsum á óvart þegar Gyrðir Elíasson tók sig til og opnaði myndlistarsýningu í Garði á Reykjanesi fyrir tæpum tveimur árum og sýndi þar hvorki meira né minna en 1200 myndverk. Gyrðir segir Reykjanesið hafa kynnt undir myndlistarmanninum í sér, þótt hann hafi raunar lengi í sér blundað. Nýverið opnaði hann aðra einkasýningu sína, sem hann nefnir Í morgunbirtu, í Glerhúsinu við Vesturgötu og...

Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.