RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Skref fyrir skref, tónlistarmenn af frumbyggjaættum og sumarkveðja 25.06.2024 54:42
Við lítum inn í sýningarrýmið Á milli, við ingólfsstræti, en þar hanga upp olíumálverk eftir Sturlu Sigurðarson. Sýningin nefnist Skref fyrir skref og samanstendur af 6 málverkum í abstrakt expressjónískum stíl sem hverfast öll minningar sem eru duldar í líkamanum. Við ræðum við Sturlu í þætti dagsins. Við rifjum upp tónlistarpistil Jelenu Ciric frá því í fyrra um tónlistarmenn af frumbyggjaættum...
Læknar og borgarskipulag, Hallbjörg Bjarnadóttir og afmæliskort frá Hildigunni Birgisdóttur 24.06.2024 50:52
Í þættinum kíkjum við inn á Mokkakaffi við Skólavörðustíg. Þar var opnuð á dögunum sýning á pínupínu litlum vatnslitamyndum í stórum álrömmum. Og myndefnið á myndunum kemur allt úr einu og sama afmæliskortinu. Það er Hildigunnur Birgisdóttir, myndlistarmaður sem nú sýnir líka verk sín fyrir Íslands hönd á tvíæringnum í Feneyjum, sem hefur sett þessar litlu dularfullu myndir upp á veggina á Mokka í...
Margrét Blöndal i8, Kúmbíu tónlist, Herdís Anna Við Djúpið 20.06.2024 51:52
„Það eru undur allt í kringum okkur, við þurfum bara að gefa þeim gaum,“ segir myndlistarmaðurinn Margrét Blöndal sem sýnir um þessar mundir í i8 galleríi. Þetta er fjórða einkasýning Margrétar í i8, en hún er löngu þekkt fyrir sín fíngerðu og ljóðrænu verk sem unnin eru þvert á miðla, og sem hafa verið sýnd víða, hér heima og erlendis. Þín er vænst / Do not go roughly into that good night, kallas...

Svipmynd af myndlistarmanni / Haraldur Jónsson 19.06.2024 53:19
Haraldur Jónsson myndlistarmaður var getinn í Noregi, fæddist árið 1961 í Helsinki og náði svo að búa í Danmörku áður en hann sigldi með Gullfossi til Íslands á leikskólaaldri. Hann hóf nám í barnaskóla ári á undan jafnöldrum sínum og fluttist til Frakklands þegar hann lauk MR nítján ára gamall. Hann segir framandgervingu alltaf hafa verið hluta af sér, honum líði best í kjarnanum. Haraldur lít...

Þjóð í mynd, Bruce Springsteen í Sjomlahorni 18.06.2024 50:28
Sjomlahornið heldur áfram göngu sinni í þættinum en þar skoðum við hin ýmsu menningarfyrirbæri sem karlmenn hafa laðast sérstaklega að í gegnum tíðina með þeim afleiðingum að skapast hefur eins konar gaurastemning í kringum tiltekin verk eða listamenn. Að þessu sinni hugum við að bandaríska tónlistarmanninum Bruce Springsteen og fáum hjálp frá Bergi Ebba til að greina sjomlastemninguna í kringum g...

Skjóta, hýbýlahollusta og Rótarskot 13.06.2024 52:29
Skjóta nefnist ný íslensk ópera eftir Sigrúnu Gyðu Sveinsdóttur en hún var frumflutt í Ásmundarsal um síðustu helgi. Óperan fjallar um fótbolta og loftslagsbreytingar og hvernig hálfleikur í fótbolta getur verið myndlíking fyrir afmarkaðan tíma, til ákvarðanatöku, í loftslagsmálum. Verkið blandar saman nýklassískum söng og kraftmikilli danstónlist en leikur sér einnig með rýmið í Ásmundarsal á ska...

Sjomlar 12.06.2024 51:02
Sjomlahorn Víðsjár er smásería sem hefst í dag. Hún greinir menningarsjomla og sjomlaverk úr baksýnisspegli þeirra sem hafa velt sér upp úr þeim. Í þessu fyrsta horni ætlum við að skoðum við hina víðfrægu bók Infinite Jest eftir bandaríska rithöfundinn David Foster Wallace. Þúsund blaðsíðna doðrant með óskýrum söguþræði, litlu letri og um 300 aftanmálsgreinum og öllu tilheyrandi. Bókin er afar erf...

Flökt, Molem tónlist og nýræktarstyrkir 11.06.2024 51:29
Tveir rithöfundar hlutu á dögunum nýræktarstyrki Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Að þessu sinni hlutu þau Birgitta Björg Guðmarsdóttir og Sölvi Halldórsson styrkinn. Við komum til með að heyra þau segja frá verkunum og lesa uppúr þeim í þætti dagsins. Þorleifur Sigurlásson verður einnig með okkur í dag en undanfarnar vikur hefur hann verið að segja frá tónlistarstefnum frá ólíkum heimshornum sem e...
Kassíópeia, Minnisvarðar Friðgeirs 10.06.2024 51:25
Guðný Guðmundsdóttir hefur búið í Þýskalandi frá því að hún útskrifaðist úr Mynd- og handíðaskólanum 1993. Í listsköpun sinni vinnur Guðný með ólíka miðla, teikningu, málverk, klippimyndir, skúlptúr, vidjó og ljósmyndun. Á sýningunni Kassíópeiu í Hafnarborg notar Guðný reynslu sína af því að vera hafnað og speglar í grískri goðafræði, og veltir um leið fram spurningum um sjálfselsku og sært egó. M...
Happy Pinoy, sending frá Feneyjum og Mahler 06.06.2024 55:34
Happy Pinoy er listhópur Filippseyinga á Íslandi, og þau ætla að taka Klúbb listahátíðar yfir í Iðnó á laugardag. Hópurinn lýsir sér sem asísku klisjunni því saman hlæja þau, elda og syngja. Á viðburðinum ætla þau að bjóða upp á filippíska menningu, meðal annars Sinulog-dansa, hlaðborð matar á bananalaufum, harana-serenöður, ljóðlist – og karókí. Við kíkjum í heimsókn til Marví Gil en íbúð hennar...
Svipmynd: Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir 05.06.2024 49:37
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir er myndasöguhöfundur, barnabókahöfundur, tónlistarkona og myndlistarkona. Lóa Hlín elskar að reyna að skilja fólk og í myndasögum hennar birtist hárbeitt samfélagsrýni þar sem hún greinir tíðarandann á einstakan hátt. Hún er einn af stofnendum hljómsveitarinnar FM Belfast og hefur gefið út nokkrar barnabækur, bæði sem myndhöfundur og rithöfundur og var bók hennar Grísafjörð...
Typisch gluggaveður, Surtsey á mannöld 04.06.2024 53:43
Davíð Örn Halldórsson hefur fyrir löngu skapað sér sess í íslensku myndlistarlífi. Hann útskrifaðist úr Listaháskólanum árið 2002 og hefur síðan haldið fjölda einkasýning hér og erlendis. Verk Davíðs eru jafnan litrík abstrakt málverk, þar sem birtast vísanir í óvæntar áttir, jafnt teiknimyndir, graffíti eða vestræna listasögu. Hann notar jöfnum höndum sprey, málningu, liti og lökk, og festir huga...
Gildi, Á milli mála, lýðræðisvæðing listanna 03.06.2024 53:03
Við hefjum þáttinn á því að fara niður að Tjörn, þar sem þær Agnes Ársæls og Anna Andrea Winther sýna keramikskúlptúra í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Verkið, sem þær kalla Milli mála er hluti af stærra rannsóknarverkefni þar sem þær rannsaka samband manns við umhverfi sitt og stigveldið sem birtist í fagurfræði og framkomu okkar við dýr. Listamennirnir segjast pínu hræddir um afdrif verkan...
Vigdís Finnbogadóttir í Loftskeytastöðinni, nornir í dönskum bókmenntum 30.05.2024 53:27
Hvað varð til þess að Vigdís Finnbogadóttir varð fyrsta konan í heiminum til að verða kjörin þjóðhöfðingi í lýðræðislegum kosningum? Þessari spurningu leitast sýningin Ljáðu mér vængi í Loftskeytastöðinni við að svara, auk þess að varpa ljósi á ævi og störf Vigdísar. Við sækjum sýninguna heim og ræðum við Maríu Theódóru Ólafsdóttur forstöðumann Loftskeitastöðvarinnar. Auk þess verður rætt við Snæd...
Svipmynd af klarínettuleikara / Arngunnur Árnadóttir 29.05.2024 55:22
Arngunnur Árnadóttir er tónlistarkona og rithöfundur. Hún byrjaði snemma að læra á hljóðfæri. Eftir að hafa lokið forskóla Tónmenntaskólans í Reykjavík langaði hana að hefja nám á saxófón en vegna fingralengdar var henni frekar ráðlagt að leggja fyrir sig klarínett. Á unglingsárum sínum kom henni til hugar að hætta hljóðfæranámi en á þeim tíma spilaði hún í fyrsta skipti með sinfóníuhljómsveit og...

Púls, félagslegt húsnæði og nýr leikhússkóli 28.05.2024 51:23
Um liðna helgi opnuðu tvær sýningar í Listval við Hverfisgötu, á bak við þær eru listamennirnir Helga Páley Friðþjófsdóttir og Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttur. Sýning Hólmfríðar Sunnu kallast Púls og sýnir málverk þar sem efnið sjálft ræður för á ferð um hringrás náttúrunnar; himinn, jörð, plöntur, hold og kynjaverur og allskyns óvænt form birtast þar í mjúkum tónum og lífrænum formum. Hólmfríður...
Aldan í Þorlákshöfn, Í myrkrinu fór ég til Maríu, Anatólískt rokk, ólesnar bækur 27.05.2024 53:33
„Íslendingar eru ekki alveg búnir að fatta hversu mikil auðlind aldan er, og hversu mikið aðdráttarafl býr í Þorlákshöfn.“ Þetta segir Elín Signý Ragnarsdóttir, dansari og einn af stórnarmeðlimum í Brimbrettafélagi Íslands, en nú stendur til að setja landfyllingu í höfnina og þar með eyðileggja öldu sem er sú besta á landinu og þó víðar væri leitað. Gegn þessum framkvæmdum berst Brimbrettafélag Ís...
Viibra, ekkert og Grafreiturinn í Barnes 23.05.2024 51:46
Í þættinum heyrum við af nýrri plötu og útgáfutónleikum flautuseptettsins Viibru, en stallsysturnar sjö sem sveitina skipa ferðuðust víða um heim með Björk Guðmundsdóttur á síðustu árum, blésu í fjölbreyttar flautur sínar og runnu í raun nánast saman við tónlistina. Við hittum í þættinum Berglindi Maríu Tómasdóttur, flautuleikara og Margréti Bjarnadóttur, danshöfund, og ræðum tónleika í Hörpu á su...

Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.