RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Íslenski dansflokkurinn 50 ára, Til hamingju með að vera mannleg 27.04.2023 55:00
Íslenski dansflokkurinn fagnar um þessar mundir 50 ára afmæli. Flokkurinn var stofnaður árið 1973 eftir þó nokkurn aðdraganda. Það voru svo ballettmeistararnir Alan Carter og Julia Claire sem komu hingað til lands til að vinna að stofnun þessa atvinnu dansflokks 1. júní 1973. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Íslenski dansflokkurinn, sem hefur nú aðstöðu í Borgarleikhúsinu, hefur öðlast...
Svipmynd af rektor Listaháskóla Íslands, Maístjarnan 26.04.2023 51:08
Kristín Eysteinsdóttir hefur verið ráðin nýr rektor Listaháskóla Íslands. Kristín er auðvitað þjóðkunn kona. Eftir stuttan tónlistarferil fór hún í nám í dramatúrgíu til Árósa, tók svo meistaragráðu í leikstjórn í London og starfaði um árabil sem fastráðinn leikstjóri við Borgarleikhúsið. Hún tók við starfi Borgarleikhússtjóra 2014 og stýrði leikhúsinu við góðan orðstír, sýningar slógu aðsóknarmet...
Horfinn heimur, bókmenntahátíð, skjalavarsla 25.04.2023 55:00
Á morgun verður heimildamyndin Horfinn heimur eftir Ólaf Sveinsson forsýnd í Bíó Paradís. Myndin fjallar um gerð Kárahnjúkavirkjunar og hefur verið mörg ár í vinnslu. Hún var að mestu tekin sumarið 2006, skömmu áður en byrjað var að safna vatni í Hálslón Kárahnjúkavirkjunar, en einnig næstu sumur á eftir, og síðast árið 2021 mynduðu kvikmyndagerðarmennirnir þær breytingar sem orðið hafa á svæðinu...
Smáatriðin, Svartþröstur, óáþreifanlegur menningararfur 24.04.2023 55:00
Kona með háan hita vegna veirusýkingar tekur bók eftir Paul Auster úr bókaskápnum heima hjá sér. Á saurblaðinu er áritun frá fyrrverandi kærustu. Minningarnar flæða fram og smátt og smátt kynnumst við fyrrverandi kærustunni betur, en líka sögumanni. Þetta er fyrsta portrettið af fjórum sem myndast í huga sögumannsins í Smáatriðunum eftir sænska rithöfundinn Iu Genberg. Smáatriðin hlaut August-verð...
Guðmundur Andri Thorsson, Berglind María Tómasdóttir og barnamenning 18.04.2023 55:00
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur kemur í heimsókn með nýútkomna bók sem hann kallar Rimsírams. Þar er að finna alls kyns stutta texta, hugleiðingar um líf og samfélag, lífsreglur sem skipulagðar eru eftir gömlu íslensku mánuðunum, kveðskap, reynslu- og bernskusögur. Guðmundur Andri er gestur Víðsjár í síðari hluta þáttarins. Tíbrá tónleikaröðin heldur áfram í Salnum í Kópavogi í kvöld þar sem...
Kristinn E. Hrafnsson og tíminn, Sif Ríkarðsdóttir og tilfinningar 17.04.2023 55:00
Í Víðsjá dagsins: samtal um myndlist og tímann og tilfinningar í Íslendingasögum. Í Hverfisgalleríi var opnuð á laugardag sýningin allt er nálægt þar sem finna má ný og nýleg verk eftir Kristinn Hrafnsson. Verkin hafa öll með sjálfan tímann að gera, hvernig hann streymir áfram á sínum skrykkjótta hraða, hvaðan hann kemur og hvert hann fer. Við hittum myndlistarmanninn í galleríinu. Við veltum líka...
Biðin eftir Godot, köttur mús og greind, og tónlistarlegt samhengi 13.04.2023 55:00
Sveinn Einarsson, leikstjóri, rithöfundur og fyrrverandi leikhússtjóri, var einn þeirra heppnu sem fengu að upplifa umbyltingu leikhússins í París um miðja síðustu öld. Leikhús fáránleikans hitti hann beint í hjartastað og verk Samuel Beckets gáfu hans kynslóð rödd sem enn talar til okkar. Á sunnudag flytur Leiklestrarfélagið Beðið eftir Godot í Borgarleikhúsinu og það er Sveinn sem stýrir þar ein...
Til hamingju með að vera mannleg, Come closer 12.04.2023 55:00
Sigríður Soffía Níelsdóttir, eða Sigga Soffía, er danshöfundur og dansari sem hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum frá því hún útskrifaðist sem dansari frá Listaháskóla Íslands 2009. Hún frumsýnir nýtt leikverk í Þjóðleikhúsinu þann 19.apríl, verkið kallast Til hamingju með að vera mannleg og er unnið upp úr samnefndri ljóðabók. Bókina skrifaði Sigga Soffía þegar hún gekk í gegnum krabbameinsmeðf...
Kriðpleir í svipmynd og Djöfulsins snillingur 05.04.2023 55:00
Sjálfsalinn heitir nýtt útvarpsleikverk leikhópsins Kriðpleirs sem frumflutt verður um páskana. Kriðpleir er skipaður þeim Ragnari Ísleifi Bragasyni, Friðgeiri Einarssyni, Árna Vilhjálmssyni og Bjarna Jónssyni og þeir vita vel að tilveran er full af reddingum og misvel borguðum giggum. Í Sjálfsalanum hefur Ragnar ráðið sig í fast starf og sagt skilið við félaga sína í harkinu, þá Friðgeir og Árna....
Stabat Mater, Glataðir snillingar, Óræð myndlist 04.04.2023 55:00
Við ræðum við Hallveigu Rúnarsdóttur sópransöngkonu í þætti dagsins, um eitt dáðasta tónverk barrokktímans, Stabat Mater eftir Pergolesi, sem samið var við einn þekktasta sálm kristninnnar. Hallveig mun flytja verkið ásamt Hildigunni Einarsdóttur og Kammersveit Reykjavíkur á Skírdag í Hallgrímskirkju. Hafnarborg, menningarmiðstöð Hafnarfjarðar, verður viðkomustaður okkar í þætti dagsins. Í Sverris...
Arfur og umhverfi, Svikull silfurljómi, Sakamoto 03.04.2023 53:41
Á laugardaginn opnaði sýning myndlistarkonunnar Unu Bjargar Magnúsdóttur í samkomuhúsinu á Súðavík. Una Björg er fjórði listamaðurinn sem velst til þátttöku í sýningarröð Listasafns ASÍ þar sem skipulagðar eru einkasýningar valinna listamanna á tveimur stöðum á landinu. Víðsjá sendir útsendara af stað og lítur inn í samkomuhúsið á Súðavík og fær að heyra af sýningunni Svikull silfurljómi frá lista...
Djöfulsins snillingur, Listbókamessa, Óbragð 30.03.2023 55:00
Reykjavík Art Book Fair / Listbókamessa eða Bókverkamessa fer fram um helgina í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Þetta er í annað sinn sem listbókamessan fer fram hér á landi en sambærilegar messur eru haldnar um allan heim. Þar koma saman listamenn og hönnuðir sem nota bókverkið sem listform, lítil listbókaforlög, gallerí og söfn sem stunda útgáfu á prentuðu efni af öllum toga, allt frá ljóða-...
Svipmynd af listamanni: Melanie Ubaldo 29.03.2023 52:52
Melanie Ubaldo fæddist árið 1992 á Filippseyjum en býr nú og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2022, hefur tekið þátt í fjölda sýninga hérlendis og erlendis og eru verk hennar í eigu helstu safna landsins. Melanie hlaut styrk úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur fyrir efnilega listamenn 2021 og hún hlaut, ásamt félö...
Fikta, Vanþakklái flóttamaðurinn, Gork 28.03.2023 55:00
Harmonikkuliekarinn Jónas Ásgeir Ásgeirson hlaut á dögunum íslensku tónlistarverðlaunin í flokki sígildrar og samtímatónlistar fyrir plötuna Fikta. Platan er nefnd eftir verkinu Fikta eftir Friðrik Margrétar - Guðmundsson en einnig er á henni að finna verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Atla Ingólfsson og Finn Karlsson. Jónas Ásgeir er einn af fáum íslendingum með framhaldspróf...
Fyrirbæri, Hugo Llanes, Prinsessuleikarnir, leiklistardagurinn 27.03.2023 51:55
Fyrirbæri kallast rými við Ægisgötu, rekið af listamönnum og hýsir vinnustofur fjölbreyttra listamanna - vel yfir þrjátíu talsins. Þetta eru listamenn á öllum aldri með ólíkan bakgrunn og ólíka reynslu, sum að taka sín fyrstu skref önnur eiga langan og farsælan feril að baki. Í Fyrirbæri er sýningarsalur en þetta er líka vettvangur fyrir fólk til að kaupa samtímalist beint af vinnustof...
Kjarvalstaðir 50 ára, sannleikur í sjónrænu efni, Íslandsklukkan 23.03.2023 53:31
Myndlistarhúsið á Miklatúni sem í daglegu tali heitir Kjarvalsstaðir og er hluti af Listasafni Rvk er fimmtíu ára. Þetta fallega hús hannað af Hannes Kr. Davíðssyni arkitekt sem var þar m.a. undir áhrifum af japönskum innblæstri í norrænan módernisma, þar sem áhersla var lögð á ómeðhöndluð náttúruefni bygginga ásamt léttleika og einföldun allra drátta. Vígsla hússins fór fram 24. Mars 1973 undir l...
Svipmynd af Ágústi Guðmundssyni 22.03.2023 55:00
Ágúst Guðmundsson kvikmyndaleikstjóri fékk heiðursverðlaun íslensku kvikmyndaakademíunnar á Eddu verðlaununum. Ágúst er fæddur 1947, gekk í Menntaskólann í Reykjavík, lærði leiklist en fór svo í nám til Bretlands, í The national Film School, þaðan sem hann útskrifaðist 1977. Fjórum árum síðar frumsýndi hann sýna fyrstu kvikmynd í fullri leng, Land og syni. Ágúst tók þátt í því sem hefur verið kall...
Að rekja brot, menning á mannöld, fegurðin í hversdagsleikanum 21.03.2023 55:57
Í Gerðarsafni stendur nú yfir sýningin Að rekja brot, þar sem sex erlendir listamenn rannsaka nýlenduhyggju, rasisma og kúgun. Með því að rekja brot sinnar eigin sögu og sjálfsmyndar rannsaka listamennirnir um leið stöðu sína í samfélaginu og setja fram á fjölbreyttan hátt. Daría Sól Andrews er hugmyndasmiður og sýningarstjóri sýningarinnar en hún segir viðfangsefnið hafa verið sér hugleikið til f...
Íslensku myndlistarverðlaunin 2023 20.03.2023 55:00
Víðsjá dagsins er tileinkuð þeim listamönnum og sýningum sem hlutu verðlaun á Íslensku myndlistarverðlaunum þann 16.mars síðastliðinn. Við grípum niður í viðtöl við Hrafnkel Sigurðsson sem er myndlistarmaður ársins, Ásgerði Birnu Björnsdóttur sem hlaut hvatningarverðlaunin, Ragnheiði Gestsdóttur sem átti eitt verkanna í samsýningu ársins, Hjólið V: Allt í góðu, og Ragnheiði Jónsdóttur sem hlaut he...
Myndlist á Íslandi: ný myndlistarstefna og framtíðarsýn 16.03.2023 55:00
Íslensku myndlistarverðlaununum verða afhent í kvöld við hátíðlega athöfn í Iðnó, en þetta er í sjötta sinn sem verðlaunin eru veitt. Í dag stendur svo yfir ráðstefna í Þjóðmenningarhúsinu, þar sem staða myndlistar í íslensku samfélagi er reifuð. Að ráðstefnunni standa Menningar- og viðskiptaráðuneytið og Myndlistarmiðstöð. Af þessu tilefni verður Víðsjá dagsins með öðruvísi sniði, við fáum til ok...
Svipmynd af Jónmundi Grétarssyni, Millibilsmaður 15.03.2023 55:00
Jónmundur Grétarsson leikari ólst upp í Vesturbænum í Reykjavík og Garðabæ. Hann sló í gegn í söngleiknum Bugsy Malone sem settur var á svið í Loftkastalanum árið 1997 en ætlaði samt ekkert endilega að verða leikari. Þónokkrum árum síðar, eftir glæstan feril í fótbolta, fór Jónmundur til San Francisco að læra leiklist. Stuttu eftir heimkomu stofnaði hann ásamt félögum sínum leikhópinn Elefant, en...
Ljósmyndir Rúnars Gunnarssonar, Draumaþjófurinn, Smithsonian 14.03.2023 55:00
Rúnar Gunnarsson ljósmyndari er fæddur árið 1944. Hann fékk sína fyrstu myndavél árið 1957 og fór þá beinustu leið út að mynda og hefur verið að mynda síðan. Ljósmyndasýnin á verkum Rúnars opnaði dyr sínar í myndasal Þjóðminjasafns Íslands síðastliðinn laugardag og kallast sýningin Ekki augnablikið heldur eilífðin Rúnar segir drifkraftinn á bak við ævistarfið vera þörfina fyrir að fanga andblæ tím...
Prinsessuleikarnir, Kerfi í Berg contemporary, Roni Horn 13.03.2023 52:34
Í Berg Contemporary við Klapparstíg var opnuð um liðna helgi sýningin Kerfi þar sem ný verk eftir Heklu Dögg Jónsdóttur myndlistarkonu eru til sýnis. Verkin á sýningunni eru þrenns konar: þarna er vídeóverk þar sem þrír litir blandast saman á vatnsyfirborði, í öðru verki rúlla hvítir og svartir textar yfir vegginn á plastrúllum, og svo eru þarna stór pappírs verk, sem ná frá gólfi og upp í loft. M...
María Mey, Velkomin til Téténíu 09.03.2023 54:15
María Mey sem hin hreina mær hefur verið einn helsti innblástur listamanna af öllu tagi frá því að hún kom fram á sjónarsviðið. Hin hreina og óflekkaða mær er þó ekki svo óflekkuð í huga allra og í seinni tíð hafa femínískir guðfræðingar varpað ljósi á allskyns annarskonar útgáfur af Maríu, sem í sumum tilfellum er nærbuxnalaus og dónaleg. Sigríður Guðmarsdóttir guðfræðingur er ein þeirra sem teku...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.