RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ 871 episodes

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is

Author

RÚV

Category

Arts

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Oct 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Heimildamynd Yrsu Roca Fannberg um Grund, Natasha S. um rússneskar bókabúðir 18.02.2025

Kvikmyndagerðakonan Yrsa Roca Fannberg hefur starfað á hjúkrunarheimilinu Grund undanfarin 16 ár meðfram því að búa til heimildamyndir og kenna skapandi heimildamyndagerð í Háskóla Íslands. Árið 2014 frumsýndi hún Salóme en hún fjallaði um móður Yrsu og samband þeirra mæðgna en líka um samband kvikmyndagerðamanns við viðfangsefni sitt. Árið 2019 kom Síðasta haustið, mynd um síðasta haust ábúenda á...

Stara í Gerðarsafni, Dietrich/rýni og tónlistarpistill Jelenu Ciric 17.02.2025

Um miðjan janúar var Ljósmyndahátíð Reykjavíkur haldin hátíðleg á höfuðborgarsvæðinu. Meðal sýninga sem þá opnaði, og stendur enn, er samsýning í Gerðarsafni sem ber yfirskriftina Stara. Sýningin er með verkum 8 listamanna, og þar af fimm ljósmyndara, sem mynda sjálft sig og fólkið nærri sér, í tilraun til að skilja eigið sjálf. Þau velta fyrir sér stöðu sinni í samfélaginu og hvernig flokkar og h...

Grátur steinanna, ástarbréf og List í ljósi 13.02.2025

Ástin mun svífa yfir vötnum í þætti dagsins. Á morgun er dagur heilags Valentínusar og af því tilefni hefur Kvennasögusafnið boðað Dag ástarbréfsins, í Landsbókasafninu á degi ástarinnar, í samstarfi við Ástarsögufélagið, Ástarrannsóknarfélagið og fleiri. Þar mun fara fram fjölbreytt dagskrá, þar sem meðal annars verða sýnd ástarbréf úr safnkosti og flutt örerindi um ástarbréf. Meðal þeirra sem fl...

Kristófer Rodriques Svönuson / svipmynd 12.02.2025

Kristofer Rodríquez Svönuson, slagverksleikari og tónskáld, hefur vakið athygli fyrir þá Suður-Amerísku strauma sem hann hefur blásið í íslensku tónlistarsenuna, bæði sem trommari í félagi við aðra, en líka með sinni eigin hljómplötu, Primo, sem var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2020. Hann nam slagverksleik í FÍH og hélt svo í framhaldsnám til Kúbu og Kólumbíu. Á vesturströnd Kólumbí...

Hope Inga Bjarna Skúlasonar, Sally Mann og ritskoðun í Texas, Heim/rýni 11.02.2025

Hope nefnist nýútkomin plata píanóleikarans Inga Bjarna Skúlasonar en á henni leikur hann ný lög úr eigin smiðju ásamt Hilmari Jenssyni, Anders Jormin og Magnúsi Tryggvasyni Eliassen. Við ræðum við Inga Bjarna um plötuna í þætti dagsins og heyrum nokkur vel valin brot af henni. Trausti Ólafsson rýnir í Heim eftir Hrafnhildi Hagalín sem er sýnt um þessar mundir í Þjóðleikhúsinu. Og við veltum fyrir...

Sally Mann, Skeljar og Kristín Þorvaldsdóttir, huldukona í íslenskri myndlist 10.02.2025

Á Listasafni Ísafjarðar stendur nú yfir merkileg myndlistarsýning. Um er að ræða sögusýningu, og að öllum líkindum fyrstu einkasýningu, myndlistarkonunnar Kristínar Þorvaldsdóttur. Kristín var fædd á Ísafirði árið 1870 og fór 12 ára gömul til Kaupmannahafnar í myndlistarnám. Hún lærði líka í Þýskalandi og hugði á framhaldsnám í Róm þegar hún var kölluð heim til að annast börn systur sinnar, sem ha...

Lífið- leiksýning, Brúðkaup Fígarós/rýni, Jelena Ciric/tónlistarpistill 06.02.2025

Í dag flytur tónlistarkonana Jelena Ciric sinn annan pistil um tónlistarmenn sem gáfu aðeins út eina hljómplötu á ferlinum en sem höfðu samt sem áður mikil áhrif á söguna. Pistill dagsins fjallar um þau Jeff Buckley og Sophie, en bæði létust langt fyrir aldur fram. Stjarna beggja skín enn skært, og stjarna Buckley sérstaklega síðustu daga því nýverið var frumsýnt heimildamynd um hann á Sundance kv...

Stefán Máni - Svipmynd 05.02.2025

Margverðlaunaði metsöluhöfundurinn Stefán Máni er einhver afkastamesti rithöfundur landsins og heldur á næsta ári upp á 30 ára rithöfundaafmæli sitt með fleiri en 30 bækur útgefnar. Hann er fæddur í Reykjavík en ólst upp í Ólafsvík og bjó þar fram yfir tvítugt. Stefán Máni hefur gefið út skáldsögur frá árinu 1996 en sló í gegn með glæpasögunni Svartur á leik árið 2004, sem kvikmynduð var nokkrum á...

Snorri Sigfús Birgisson, Pull í Rýmd, Duna/rýni 04.02.2025

Snorri Sigfús Birgisson verður einn af gestum Víðsjár í dag. Við ræðum verkið Fantasy and Clockwork sem Snorri Sigfús samdi og tileinkaði vini sínum, Hreini Friðfinnssyni myndlistarmanni. Hreinn varð áttræður í febrúar 2023 og skipulögðu vinir hans óvænta veislu af því tilefni, þar sem Snorri Sigfús frumflutti verkið. Við heyrum af veislunni, tilurð verksins og innblæstri, en þeir Snorri Sigfús og...

Víkingur fær Grammy, Hliðarspor, Strá fyrir straumi / rýni, Árið án sumars / rýni 03.02.2025

Við hefjum þáttinn á því að hringja í nýbakaðan Grammy-verðlaunahafa, Víking Heiðar Ólafsson. Þær Kristín Sveinsdóttir söngkona og Þórunn Guðmundsdóttir verða einnig gestir okkar í dag. Kristín syngur í Hliðarspori, nýrri óperu Þórunnar sem fruflutt verður á fimmtudag, og í Brúðkaupi Fígarós, sem Kammeróperan sýnir nú í Borgarleikhúsinu. Báðar óperurnar, og reyndar Rakarinn í Sevilla sem Óður sýni...

Veðurskeytin, Jinn andar, Ifigenía í Ásbrú/rýni, Myrkir músíkdagar/rýni 30.01.2025

Veðurskeytin er leikin heimildarmynd sem verður frumsýnd í Rotterdam um helgina. Myndin fjallar um tímamót í lífi ástríðufulls fræðimanns, en Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í miðaldafræðum frá Cambridge-háskóla, þarf að endurskoða líf sitt þegar hann er greindur með geðhvörf. Bergur Bernburg leikstýrir og skrifar einnig handritið ásamt Jóni Atla Jónassyni, en þeir eru æskuvinir Marteins Helga....

Gallery Port / Svipmynd 29.01.2025

Þeir Árni Már Þórdísar Viðarsson og Skarphéðinn Bergþóruson stofnuðu Gallery Port í litlu bakhúsi í dimmu porti við Laugaveginn árið 2016. Galleríið hefur fest sig rækilega í sessi á undanförnum árum sem eitt framsæknasta rými borgarinnar, en þar er hlúð að grasrótinni og einblínt á unga og upprennandi listamenn, þó eldri og reyndari listamenn sýni þar líka í bland. Eftir fjögur ár í dimmu skúmask...

Innviðir í Árnastofnun, Árið án sumars, Ferðalok 28.01.2025

Húsnæði Árnastofnunnar í Árnagarði hefur verið táknmynd eða hulstur utan um efnismenningu handritasafns Árna Magnússonar í rúm 50 ár. Nú hefur stofnunin verið flutt yfir Suðurgötuna og í Eddu en um liðna helgi stóð hópur listamanna, fræðimanna, hönnuða og arkitekta að sýningu í yfirgefnu húsnæði Árnastofnunnar sem þau kölluðu Innviði. Um sýningarstjórn sáu þeir Marteinn Sindri Jónsson og Unnar Örn...

Skógarhögg Thomas Berhard, karókílög Alter-Eyglóar á Ölveri, Ungfrú Ísland/rýni 27.01.2025

Við lítum inn á eina elstu krá bæjarins, Ölver sportbar, en þar stendur tónskáldið og sviðslistakonan Eygló Höskuldsdóttir Viborg fyrir viðburðum í vikunni í nafni hliðarsjálfsins Alter-Eyglóar. Í tilraun til þess að snúa á alræði streymisveitanna og finna leið til að lifa á tónlistinni ákvað Eygló, sem stundaði framhaldsnám í tónsmíðum í Berklee og NYU, að skella í nokkur poppkennd karókílög. Á Ö...

Elín Gunnlaugsdóttir á Myrkum, Anna Rós Árnadóttir ljóðskáld, Rakarinn í Sevilla /rýni, Jelena Ciric pistill 23.01.2025

Við hefjum þáttinn á því að taka á móti Önnu Rós Árnadóttur, handahafa Ljóðstafs Jóns úr Vör. Anna Rós les sigurljóðið Skeljar og segir frá innblæstrinum að baki. Myrkir músíkdagar hefjast á morgun og standa yfir fram á sunnudagskvöld með fjölda viðburða. Meðal þeirra eru tvær öróperur Elínar Gunnlaugsdóttur fluttar í stigunum í opnu rými Hörpu. Elín segist hafa sérstaklega gaman af því að leika s...

Hjálmar H Ragnarsson / Svipmynd 22.01.2025

Hjálmar H Ragnarsson er fæddur og uppalinn á Ísafirði, sonur Sigríðar Jónsdóttur Ragnar og Ragnars H Ragnar. Faðir hans var skólastjóri tónlistarskólans á Ísafirði, sem þá var hýstur að stórum hluta á heimili þeirra, svo Hjálmar ólst bókstaflega upp umkringdur tónlist. Hann segir þó að ýmislegt annað hafi komið til greina, þegar hann velti fyrir sér framtíðinni, því á heimilinu voru hin ýmsu mál r...

Listmeðferð Sigríðar Björnsdóttur, David Lynch og Undir eplatrénu/rýni 21.01.2025

,,Ég treysti sjálfri mér og hef trú á þessu tæki sem listmeðferðin er. Hún er tæki til að tjá tilfinningar sínar og vinna með og losa sig við erfiðar tilfinningar. Myndsköpunin er þá notuð til að vinna með sig persónulega og til að þroskast í gegnum." - er meðal þess sem haft er eftir myndlistarkonunni og listþerapistanum Sigríði Björnsdóttur í bók þeirra Ágústu Oddsdóttur og Egils Sæbjörnssonar u...

Hallgrímur Árnason/Ró og Æði, David Lynch og árið 2024 í arkitektúr/Magnea Guðmundsdóttir 20.01.2025

David Lynch sótti Ísland heim árið 2009 og þá tók kvikmyndafræðingurinn Sigríður Pétursdóttir viðtal við hann í útvarpsþættinum Kviku. Þau ræddu meðal annars innhverfa íhugun, en David Lynch hefur verið mikill talsmaður hugleiðslu í sinni nálgun. Hann líkti hugmyndum við fiska; Ef þú vilt veiða litla fiska, haltu þig í grunnu vatni. En ef þú vilt ná stórum fiskum þarftu að fara á dýpið, sagði hann...

Gréta Kristín Ómarsdóttir um Ungfrú Ísland, Schoenberg og bruninn í LA, Helen Cova 16.01.2025

Annað kvöld verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu ný leikgerð upp úr skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur, Ungfrú Ísland. Sagan hverfist um fjóra einstaklinga í Reykjavík árið 1963 sem allir hafa sína drauma en misjöfn tækifæri til að láta þá rætast. Þetta eru tímar samfélagslegra jarðhræringa og handan við hornið eru baráttur og byltingar. Við ræðum við leikstjórann Grétu Kristínu Ómarsdóttur í þætti dag...

Birnir Jón Sigurðsson 15.01.2025

Birnir Jón Sigurðsson, sviðslistamaður og rithöfundur, segist ekki hafa átt sterkar fyrirmyndir á unga aldri. En hann dáist almennt að listafólki sem er áhugasamt, jákvætt, spennt og drífandi. Honum líður best í óvissunni, þegar það er ekkert handrit, og planar aldrei langt fram í tímann. Kannski þess vegna er hann svo hrifinn af samsköpun í leikhúsinu. Birnir hefur gefið út bækurnar Strá og Fugla...

Listen to the Víðsjá podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.