RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ 871 episodes

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is

Author

RÚV

Category

Arts

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Oct 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Júlíönuhátíð, Dvelur í Grasagarði, Níels er Napóleon / rýni 20.03.2025

Hugmyndin að Júlíönu - hátíð sögu og bóka kom til Grétu Sig Bjargardóttur snemma morguns þegar hún var að undirbúa morgunmat á Hótel Egilssen í Stykkishólmi. Gréta heldur að þar hafi Júlíana sjálf verið að verki, og segir að hugmyndin hafi sprottið fram fullsköpuð. Gréta segir okkur nánar af skáldinu Júlíönu og hátíðinni Júlíönu í þætti dagsins. VIð kynnum okkur einnig myndlistarsýningu meistarane...

Svipmynd af tónlistarnema í Georgíu: Ólína Ákadóttir 19.03.2025

Píanóleikarinn Ólína Ákadóttir segist vera bæði forvitin og hvatvís. Þeir dýrmætu eiginleikar urðu til þess að hún ákvað að fara til Georgíu í skiptinám og dvelja þar í eitt ár, en hún stundar annars framhaldsnám í píanóleik við tónlistarháskólann í Osló. Georgía er um margt ólík Noregi, og Íslandi, og áherslurnar í tónlistarnáminu sömuleiðis. Víðsjá skoraði á Ólínu að mæta í stúdíó 12 og segja hl...

Garg bókabúð, Eiríkur Örn Fimm ljóð, Stormur/rýni 18.03.2025

Það er ekki á hverjum degi sem nýjar bókaverslanir opna dyr sínar hér á landi. En það gerðist í síðustu viku í Vesturbæ Reykjavikur. Bókabúðin kallast Garg og á bak við hana stendur bókahönnuðurinn Helga Dögg Ólafsdóttir sem dreymir um að búðin verði félagsmiðstöð bókanörda. Við lítum inn í Garg í þætti dagsins. Eiríkur Örn Norðdahl sendi nýverið frá sér nýja ljóðabók sem ber titilinn Fimm ljóð. B...

Innkaupapokinn, kynbundið ofbeldi í þjóðsögum og örvæntingarpistill #3 17.03.2025

Innkaupapokinn eftir leikhópinn Kriðpleir og Elísabetu Jökulsdóttur, sem nú er í sýningu í Borgarleikhúsinu, byggir á 30 ára gömlu verki Elísabetar, Mundu töfrana. Verkið hefur fylgt Elísabetu í meira en þrjá áratugi og líka skotið rótum í öðrum verkum hennar. Hún reyndi að koma verkinu á fjalirnar en fékk oftast þau svör að það væri of ljóðrænt og vantaði allan strúktúr. En nú hefur leikhópnum Kr...

Tónlist og sjálfstæðisbarátta Grænlands, Þetta er Laddi/rýni 13.03.2025

Fyrir ofan Nuuk stendur stytta af trúboðanum Hanse Egede, en koma hans til Vestur-Grænlands árið 1721 markar upphaf nýlendutímans í sögu landsins. Styttan hefur margsinnis verið skemmd, hausinn jafnvel fengið að fjúka og á hana krotað; DECOLONIZE. Við skoðum samvirkni grænlensku sjálfstæðisbaráttunnar og tónlistarsögu landsins í þætti dagsins. Nína Hjálmarsdóttir rýnir líka í leiksýninguna Þetta e...

Drífa Viðar / Svipmynd 12.03.2025

Í Víðsjá dagsins kynnum við okkur myndlistarkonuna, rithöfundinn og gagnrýnandann Drífu Viðar. Drífa fæddist í Reykjavík árið 1920 og ólst upp ásamt stóru systur sinni Jórunni Viðar hjá móður sinni, Katrínu Viðar píanókennara. Eftir menntaskóla sótti hún tíma í myndlist og norrænum fræðum áður en hún sigldi til Bandaríkjanna árið 1938. Hún lærði myndlist í New York á sama tíma og Nína Tryggvadótti...

Brím, Skartgripaskrín Ursulu Andkjær Olsen, Menningarnótt á Grænlandi 11.03.2025

Við kynnum okkur Brím, nýja íslenska óperu sem verður frumsýnd í Tjarnarbíói á fimmtudagskvöldið. Höfundur tónlistarinnar, Friðrik Margrétar Guðmundsson og höfundur texta og leikstjóri verksins, Adolf Smári Unnarsson, segjast vilja takast á við samtímann og stóru spurningarnar í verkinu, en ódauðleg list, auðvald og nepótismi eru meðal viðfangsefna þess. Við ræðum einnig við Maó Alheimsdóttur og H...

Stefán Ragnar Höskuldsson, grænlenska rokksveitin Sumé og Örvæntingarpistill Birnis Jóns#2 10.03.2025

,,Ég vissi að ég vildi verða flautuleikari um leið og ég prófaði fyrst að spila á flautu 8 ára gamall. Frá þeim tíma varð flautan það eina sem komst að í mínu lífi," segir flautuleikarinn Stefán Ragnar Höskuldsson. Hann hreppti fyrir helgi stöðu 1. flautuleikara við Berlínarfílharmóníuna, sem að margra mati er fremsta sinfóníuhljómsveit heims. Við hringjum til Chicago í upphafi þáttar og heyrum hl...

Darraðarljóð á 75 ára afmæli, 60 kílóa þríleikurinn, bókamarkaðurinn 06.03.2025

Í kvöld og annað kvöld heldur Sinfóníuhljómsveit Íslands upp á 75 ára afmæli sitt með stapp-uppseldum tónleikum í Eldborg, þar sem öllu verður tjaldað til. Meðal verka á efnisskránni er 60 ára gamalt tónverk Jóns Leifs, Darraðarljóð. Verkið er skrifað fyrir nokkuð stóra hljómsveit og kór, er gífurlega krefjandi og hefur aldrei verið flutt áður. Víðsjá leit við á lokaæfingu í Hörpu í morgun og hitt...

Svipmynd af Hennar rödd 05.03.2025

Hennar rödd eru félagasamtök stofnuð af þeim Chanel Björk Sturludóttir og Elínborgu Kolbeinsdóttur með það að markmiði að vekja athygli á stöðu kvenna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi. Innblástur verkefnisins kom frá Letetia B. Jonsson, móður Chanel, en hún er af jamaískum og breskum uppruna og bjó hér á landi fyrir um það bil 10 árum síðan og tók virkan þátt í samfélagi kvenna af erlendum...

Úthverfa, Sólon í Slunkaríki, Innkaupapokinn 04.03.2025

Síðastliðinn föstudag opnaði ný sýning í Gallerí Úthverfu á Ísafirði. Þetta er samsýning fjögurra listamanna, þeirra Önnu Hrundar Másdóttur, Eyglóar Harðardóttur, Ingibjargar Sigurjónsdóttur og Katrínar Agnesar Klar. Sýningin kallast í Í lit, sýningarstjóri er Ingólfur Arnarsson, en hann var einmitt fyrsti listamaðurinn til að sýna í Úthverfu, sem áður hét Slunkaríki, fyrir akkúrat 40 árum síðan....

Karnival hefðin, Ólga, Birnir Jón Sigurðsson: Örvæntingarpistill 03.03.2025

Ólga er samsýning sem fjallar um hlutverk kvenna í mótun íslenskrar listasenu á níunda áratugnum. Önnur bylgja femínisma hafið skollið með látum á vestrænan heim áratuginn á undan með tilheyrandi umbreytingum og auknum sýnileika kvenna á öllum sviðum þjóðfélagsins, líka í myndlistinni. Við ræðum við sýningarstjórann Becky Forsythe í þætti dagsins. Einnig verður rætt við Gunnellu Þorgeirsdóttur um...

Bækur og brjáluð fræði, tónlistarpistill Jelenu Ciric og Stífluhringurinn 27.02.2025

Þegar vísindasagnfræðingurinn og rithöfundurinn Steindór J Erlingsson hlustaði á nýja hljómplötu Inga Bjarna Skúlasonar fylltist hann skyndilega fítonskrafti og lagði í að lesa óhreyft ljóðahandrit sem hann hafði skrifað á myrkum tíma í lífi sínu. Steindór er meðal fjögurra fyrirlesara á málþingi undir yfirskriftinni Bækur og brjáluð fræði, sem fer fram í Norræna húsinu á laugardag. Gunnhildur Una...

Þórunn Elísabet Sveinsdóttir / Svipmynd 26.02.2025

„Ég lærði dáldið mikið seint, að ef maður er hræddur við eitthvað, þá á maður að gera það. En ég var hrædd lengi,“ segir Þórunn Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, myndlistarkona og margverðlaunaður búninga- og sviðsmyndahönnuður. Þórunn Elísabet er fædd árið 1952 á Siglufirði. Hún stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og árið 1982 hélt hún sína fyrstu einkasýningu í Nýlistasafni...

Misskilningur í skipulagsmálum, Hjálparsagnir hjartans, uppáhaldstónverk Egils Arnarssonar 25.02.2025

Við komum við í Kling og bang úti á Granda og hittum þar listamanninn Sólbjörtu Veru Ómarsdóttir og ræðum við hana um sína fyrstu einkasýningu sem opnuð var þar í rýminu um síðustu helgi og nefnist Misskilningur í skipulagsmálum. En í verkunum skoðar hún hversdagslega hluti sem til eru innan veggja flestra heimila út frá tengslum okkar við þá en leitast einnig við að mæta hlutunum á þeirra eigin f...

Fyrirgef mér námslánin mín, Glerþræðirnir og Sun Ra 24.02.2025

Fyrirgef mér námslánin mín kallast sýning Unu Gunnarsdóttur í gallerí Fyrirbæri við Ægisgötu. Þetta er yfirlitssýning verka sem Una hefur unnið eftir útskrift úr námi í Danmörku fyrir tæpum áratug, en hún lærði myndlist í Det Kongelige Danske Kunstakademi með áherslu á listmálun og heimspeki. Titill sýningarinnar vísar í námslánatímabilið. Tímabil mikillar jafnvægislistar milli náms, vinnu og barn...

Brotin kona e. Simone de Beauvoir, Negla í Salnum 20.02.2025

Smásagnasafnið Brotin kona eftir femíníska tilvistarspekinginn Simone de Beauvoir kom út árið 1967 og var hennar síðasta skáldverk. Þar er að finna þrjár sögur sem endurspegla á ólíkan hátt togstreytuna á milli sjálfsmyndar kvenna og hefðbundinna kynhlutverka. Bókin kom út þýðingu Jórunnar Tómasdóttur í haust, Ásdís Rósa Magnúsdóttir ritstýrði og Irma Erlingsdóttir, ritaði innganginn. Við ræðum vi...

Svipmynd af vinnustofu í Varanasi 19.02.2025

Síðustu ár hefur hópur íslenskra listamanna heimsótt Varanasi á Indlandi og dvalið þar á vinnustofum Kriti gallerísins, sótt sér næringu og innblástur. Afrakstur dvalarinnar má sjá á sýningu sem nú stendur yfir í Listasafni Árnesinga og hefur yfirskriftina Meðal guða og manna. Um sýningarstjórn sér Pari Stave, en hópurinn telur sex mótaða og margreynda íslenska listamenn, þau Margréti H. Blöndal,...

Heimildamynd Yrsu Roca Fannberg um Grund, Natasha S. um rússneskar bókabúðir 18.02.2025

Kvikmyndagerðakonan Yrsa Roca Fannberg hefur starfað á hjúkrunarheimilinu Grund undanfarin 16 ár meðfram því að búa til heimildamyndir og kenna skapandi heimildamyndagerð í Háskóla Íslands. Árið 2014 frumsýndi hún Salóme en hún fjallaði um móður Yrsu og samband þeirra mæðgna en líka um samband kvikmyndagerðamanns við viðfangsefni sitt. Árið 2019 kom Síðasta haustið, mynd um síðasta haust ábúenda á...

Listen to the Víðsjá podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.