Pyngjan

Pyngjan

Business IS ↓ 266 episodes

Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda. 

Author

Pyngjan

Category

Business

Podcast website

Www.pyngjan.is

Latest episode

Feb 28, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Uppgjörið: þriðji ársfjórðungur Nova - Skemmtanastjórn 27.10.2022

Sendu okkur skilaboð! Uppgjörið er þáttur þar sem við kryfjum uppgjör fyrirtækja á markaði ásamt stjórnendum. Við fórum í höfuðstöðvar Nova og tókum þau Margréti Tryggvadóttur forstjóra og Þórhall Jóhannsson fjármálastjóra tali og fórum yfir þriðja ársfjórðung fyrirtækisins.

Ársreikningar: SalesCloud 25.10.2022

Sendu okkur skilaboð! Þó þú hafir kannski ekki heyrt um SalesCloud, þá eru miklar líkur á því að þú hafir átt viðskipti við þau, en SalesCloud er hugbúnaðarfyrirtæki sem hefur verið að vaxa gríðarlega síðustu misserin. Ein af vörum fyrirtækisins eru nýstárleg kassakerfi sem sífellt verða vinsælli hjá rekstraraðilum en sömuleiðis halda þau úti fjölda annara lausna. Þessi þáttur er fullkomin blanda...

Föstudagskaffið: Góður mannauðsstjóri er eins og góð rotþró 21.10.2022

Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffi dagsins er hið fullkomna jafnvægi á milli tuðs, fræðslu og glens. Yfir fréttum vikunnar var tuðað, yfir hagvexti og milljónamæringi vikunnar var fræðst og yfir ráðum vikunnar var glensað. Hin fullkomna blanda. Í guðanna bænum missið ekki af! Þátturinn er í boði: Brauð og co. - https://www.braudogco.is Gorilla vöruhús - https://gorillavoruhus.is/ Lavazza - https...

Ársreikningar: Múlakaffi 18.10.2022

Sendu okkur skilaboð! Flest höfum við heyrt minnst á Múlakaffi í gegnum tíðina án þess þó að átta okkur á því hvurslags veldi liggur þar að baki. Fyrirtækið er rótgróið og líklega með elstu fjölskyldufyrirtækjum landsins, en sögu þess má rekja aftur til ársins 1962. Fyrirtækið er með veglegt og vel dreift eignasafn en við vorum sammála því að þarna vantaði inn rafmyntir til að fullkomna eignasafni...

Föstudagskaffið: Trygginga breakdown með Friðriki framkvæmdastjóra Verna 14.10.2022

Sendu okkur skilaboð! Í Föstudagskaffi dagsins veltum við fyrir okkur tryggingum og hvernig þær hafa þróast. Það er bókstaflega hægt að tryggja allt núorðið, en tæknin kallar á breytingar. Í seinni hluta þáttar fáum við til okkar Friðrik Þór Snorrason framkvæmdastjóra Verna, sem hefur verið að ryðja sér til rúms á bílatryggingamarkaði, og ræðum þessar breytingar á léttu nótunum. Þátturinn er í boð...

Ársreikningar: Solid Clouds 11.10.2022

Sendu okkur skilaboð! Solid Clouds er íslenskt tölvuleikjafyrirtæki sem skaust upp í almenningsvitund þegar þau skráðu sig á First North markað í fyrra í vel heppnuðu útboði. Félagið vinnur nú myrkranna á milli í þróun á nýjum tölvuleik, Starborne: Frontiers sem löngu er kominn á gjalddaga og því er eðlilegt að hluthafar leiti eftir svörum, sem þó eru torfundin. Í þættinum veitum við aðhald og vel...

Föstudagskaffið: Bændur garga úr hlátri eftir hækkun SS í vikunni 07.10.2022

Sendu okkur skilaboð! Kaffið er milt í dag með dass af flóaðri mjólk. Í fyrsta sinn í íslenskri hlaðvarpssögu var hellt upp á Lavazza í beinni. Umræður dagsins voru mismunandi, allt frá graskerskryddi og upp í loðnubrest. Svo má ekki gleyma því að það er góðæri hjá bændum eftir hækkanir vikunnar. Við minnum á fréttabréf Pyngjubandalagsins - skráning á pyngjan.is. Góða helgi! Þátturinn er í boði: G...

Ársreikningar: Svens 04.10.2022

Sendu okkur skilaboð! Já kæru hlustendur, lengi höfum við beðið eftir þessum ársreikning! Svens kom eins og stormsveipur inn á markað í apríl mánuði 2020 og hefur síðan átt ævintýralegu gengi að fagna. Svens rekur 9 verslanir í dag þrátt fyrir aðeins 2 og hálft ár í rekstri sem hlýtur að vera einhverskonar einsdæmi á Íslandi. Lífleg yfirferð og skemmtilegar pælingar sem þú vilt ekki missa af. Muni...

Föstudagskaffið: Fasteignir, fasteignir, fasteignir 30.09.2022

Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er ljúffengur eins og volg flóuð mjólk í veikindum. Fréttir vikunnar drekkhlaðnar af fróðleik, stórar ráðningar og Addi fór yfir 5 arðbærustu fjárfestingakostina m.v. áhættu, a.k.a. fasteignir, en Iddi dreypti á velgengi Roger Federer utan vallar. Sá hefur þénað! Munið svo í guðanna bænum að taka kvittun! Þátturinn er í boði: Gorilla vöruhús - https://gorillavo...

Ársreikningar: Já 27.09.2022

Sendu okkur skilaboð! Fyrirtækið Já ætti að vera orðið flestum landsmönnum kunnugt, enda hefur það snert líf okkar flestra á einn hátt eða annan síðastliðin 17 ár. Í upphafi hélt Já utan um rekstur símaskrárinnar sem þó hefur verið lögð niður í dag, en þá hefur fyrirtækið gegnt mikilvægu hlutverki hér á landi á sviði upplýsingatækni síðustu ár og heldur meðal annars úti já.is, 1818, Vöruleit Já og...

Föstudagskaffið: Eyþór Máni framkvæmdastjóri Hopp kíkir í bolla 23.09.2022

Sendu okkur skilaboð! Í Föstudagskaffi dagsins fáum við að skyggnast inn fyrir stórmerkilega starfsemi rafskútufyrirtækisins Hopp en framkvæmdastjóri fyrirtækisins Eyþór Máni Steinarsson kíkti til okkar í mjög svo áhugavert spjall. Þessi þáttur mætti helst ekki fram hjá neinum fara enda koma fram upplýsingar um fyrirtækið sem ekki hafa litið dagsins ljós í fjölmiðlum fyrr en nú en sömuleiðis er þe...

Ársreikningar: Nespresso 20.09.2022

Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins tekur á Kaffirisanum Nespresso sem hefur verið starfrækur á Íslandi í tæp 5 ár en hefur á þessum skamma tíma náð undraverðum árangri. Iddi fer yfir uppruna merkisins sem náði svo sannarlega ekki vinsældum á einni nóttu og Addi fer yfir sögu rekstursins á Íslandi.  Að lokum viljum við taka það fram að við erum gallharðir Lavazza menn!  Þátturinn er í boði: Jómfr...

Föstudagskaffið: Fjárhagur hinna konungsbornu 16.09.2022

Sendu okkur skilaboð! Kaffi dagsins er svart, vel sykrað og funheitt! Fjárhagur hinna konungsbornu er þema þáttarins en eftir fráfall Elísabetar Bretlandsdrottningu í síðustu viku hafa eflaust margir velt því fyrir sér hvernig honum er háttað. Hér fáiði svörin! Þátturinn er í boði: Aukakrónur Landsbankans - https://www.landsbankinn.is/einstaklingar/kort-og-greidslur/aukakronur Lavazza - https://ww...

Ársreikningar: Hopp 13.09.2022

Sendu okkur skilaboð! Kæru hlustendur, það er komið að því! Ársreikningurinn sem við höfum beðið eftir eins og börn eftir jólunum er lentur! Kæru Pyngjuhálsar, við kynnum 2021 ársreikning rafskútu- og hugbúnaðarfyrirtækisins Hopp. Það þarf ekki að fjölyrða meira um það. Góða hlustun! Jómfrúin - https://www.jomfruin.is/ Landsbankinn - https://www.landsbankinn.is/postlistar Keldan - https://keldan.i...

Föstudagskaffið: Eru lénabraskarar lénsherrar 21.aldarinnar? ft. Þór Jensen frá ISNIC 09.09.2022

Sendu okkur skilaboð! Lénsherra eða lénsdrottinn var aðalsmaður eða þjóðhöfðingi (konungur eða keisari) sem var í aðstöðu til að veita undirmönnum sínum land eða aðra fjárhagslega aðstöðu að léni. Undirmennirnir tóku landið eða aðstöðuna formlega að láni (léni) og var það því kallað lén og þiggjandinn lénsmaður. Að jafnaði fylgdu léninu skyldur og þá miðað við að tekjurnar nægðu til að standa undi...

Ársreikningar: ISNIC 06.09.2022

Sendu okkur skilaboð! Kæru hlustendur! Þáttur dagsins er vægast sagt áhugaverður og fjallar um sjálfbæru peningavélina ISNIC. Félagið sem heitir Internet á Íslandi ehf. fer með það hlutverk að nýskrá íslensk lén og fyrir það taka þau 6.293 kr á ári. Það er vart frásögufærandi nema fyrir þær sakir að félagið fer með einkarétt á sölu .is léna. Hrein einokunarstaða fyrirtækisins á .is lénum hefur far...

Föstudagskaffið: Rolex rússíbani á hraðri leið til helvítis 02.09.2022

Sendu okkur skilaboð! Það er sjóðheitt á könnunni þennnan föstudagsmorguninn sem fyrr. Vísitala neysluverðs er krufin niður í öreindir, Rolex úrin eru að falla í verði og áhugaverð spá um framtíð óvirkra innviða bensínsstöðva. Góða helgi! Þessi þáttur er í boði: BAKABAKA - https://www.bakabaka.is/ Lavazza - https://www.lavazza.is/ Aukakrónur Landsbankans - https://www.landsbankinn.is/einstaklingar...

Ársreikningar: Billboard 30.08.2022

Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er fullur af djús um Billboard bransann en það vill svo til að á Íslandi er fyrirtæki sem sérhæfir sig í auglýsingum á skiltum, eitthvað sem við Pyngjumenn héldum að væri deyjandi iðnaður. Þó kemur í ljós að þetta er einn hraðast vaxandi auglýsingaflokkurinn sem er vægast sagt athyglisvert. Góða hlustun! Þátturinn er í boði: Jómfrúin - https://www.jomfruin.is/...

Föstudagskaffið: Líf bílasalans ásamt Hjálmari Erni 26.08.2022

Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið hefur aldrei verið eins heitt og þennan morguninn. Fyrsti gestur þáttarins lítur dagsins ljós og það er enginn minni maður en Hjálmar Örn, grínisti og lífskúnster. Hann rennir yfir sína sögu hjá Brimborg þar sem hann vann sig upp af sópnum og fræðir okkur um líf bílasalans. Missið ekki af því! Þessi þáttur er í boði: SKRUF BAKABAKA - https://www.bakabaka.is/ L...

Uppgjörið: Hálfsársuppgjör Nova - Framkvæmdarstjórn 25.08.2022

Sendu okkur skilaboð! Í þessum fyrsta þætti af Uppgjörinu fáum við þrjá af fimm meðlimum framkvæmdarstjórnar Nova í spjall og förum yfir nýtt hálfsársuppgjör félagsins sem kom út við lokun markaða í dag. 

Ársreikningar: Brimborg 23.08.2022

Sendu okkur skilaboð! Það var alveg kominn tími á að fara að skoða bílabransann og það er heldur betur tilfellið hjá okkur Pyngjumönnum í dag. Fyrirtæki dagsins er Brimborg sem er þó ekki bara bílasala, heldur einnig öruggur staður til að vera á, eins og þau segja sjálf en fyrirtækið er rótgróið á íslenskum markaði og hóf rekstur árið 1977 með innflutning á Daihatsu bifreiðum frá Japan. Allar götu...

Föstudagskaffið: Peningar tala 19.08.2022

Sendu okkur skilaboð! LIV golfmót í Saudi-Arabíu, Bed, Bath and Beyond (BBBY) hlutabréfin, Short squeeze og dúkkubransinn eru nokkur af umfjöllunarefnum þennan föstudaginn. Sjóðheitt föstudagskaffi sem þú skalt ekki missa af! Þessi þáttur er í boði: SKRUF BAKABAKA - https://www.bakabaka.is/ Aukakrónur Landsbankans - https://www.landsbankinn.is/einstaklingar/kort-og-greidslur/aukakronur Lavazza - h...

Ársreikningar: 66°Norður 16.08.2022

Sendu okkur skilaboð! WE ARE BACK (WAB) Kæru hlustendur! Við erum mættir aftur eftir alltof langt sumarfrí og til að byrja með látum þá tókum við fyrir 66°Norður sem hefur verið ansi vinsæl ósk hjá meðlimum í Facebookhópnum okkar "Deep into Pyngjan". Fyrirtækið hefur verið starfrækt frá árinu 1926 og er því eitt elsta íslenska fatamerkið en það er óhætt að segja að eigendur félagsins í d...

Föstudagskaffið: Ekki mæta með sveðju í sultugerð 12.08.2022

Sendu okkur skilaboð! WAB - WE ARE BACK. Hættir við að hætta. Föstudagskaffið í dag lá á fleti eins og piltur í leti. Addi fór yfir Tesla, Musk,  Twitter á meðan Johnny stillir upp stillans fyrir hús SKEL og dótturfyrirtækja.  Iddi fór yfir myndbandablætið sem einkennir ASMR og kemur með áskorun á átvaglið  í eldhúsinu.  Síðasti söludagur þáttarins er í dag en hann er í boði BAKABAKA, Landsbankans...

Ársreikningar: Petit barnavöruverslun 26.07.2022

Sendu okkur skilaboð! Með þessum þætti lokum við okkar stuttu seríu "Winter of working moms" og það með látum! Barnavöruverslunin Petit hefur verið í hröðum vexti undanfarin misseri en þrátt fyrir ungan lífaldur hefur fyrirtækið skipað sig í sessi sem ein vinsælasta barnavöruverslun landsins. Við viljum taka það fram að við förum í viku sumarfrí eftir þennan þátt og því verður enginn árs...

Listen to the Pyngjan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.