Fjármálakastið

Fjármálakastið

Business IS ↓ 109 episodes

Fjármálakastið er hlaðvarp fyrir áhugafólk um fjármál, hagfræði og efnahagsmál. Í þættinum er rætt við fólk frá ýmsum áttum um efnahagsmál. Þættirnir koma út einu sinni í viku inn á allar helstu hlaðvarpsveitur og inn á podcast.is. Umsjónarmaður þáttarins er Magdalena Anna Torfadóttir.

Author

Fjármálakastið

Category

Business

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Þáttur 110 - Viðtal við Hermann Guðmundsson forstjóra Kemi 09.07.2026

Í þessum þætti er rætt um rekstur og vöxt fyrirtækisins Kemi sem Hermann Guðmundsson hefur stýrt um langt skeið. Rætt er um nýleg kaup Kemi á Fálkanum-Ísmar, vaxtartækifærin í geiranum á næstunni, nálgun Hermanns á rekstur og stjórnun fyrirtækja, efnahagsástandið og margt fleira. Vek athygli á fréttabréfi Fjármálakastsins en lesa má eldri bréf á fjarmalakastid.substack.com. Samstarfsaðili þáttarin...

Þáttur 109 - Viðtal: Fjártækni á Íslandi í sókn 02.07.2026

Í þessum þætti er rætt við Gunnlaug Jónsson stofnanda og stjórnarformann Reykjavík Fintech. Rætt er um vöxtinn sem hefur átt sér stað í fjártæknigeiranum, einkum að undanförnu, starfsemi Fjártækniklasans, tækifærin í fjártækni og á sviði gervigreindar og margt fleira. Ég vil einnig vekja athygli á nýju fréttabréfi Fjármálakastsins. Hægt er að lesa bréfin og gerast áskrifandi á fjarmalakastid.subst...

Þáttur 108 - Staða lítilla og meðalstórra fyrirtækja rædd 19.06.2026

Í þessum þætti er rætt um stöðuna í rekstrarumhverfi lítill og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um skýrslu sem unnin var af Reykjavík Economics fyrir Íslandsbanka sem ber heitið Óvissa út við sjóndeildarhring: Efnahagur lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Rætt er um þær áskoranir og tækifæri sem fyrirtækin standa frammi fyrir um þessar mundir, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á þeirra starfsemi, v...

Þáttur 107 - Efnahagsspjall við Kára hagfræðing hjá Arion 11.06.2026

Í þessum þætti er farið um víðan völl yfir efnahagsmálin. Kári Friðriksson hagfræðingur hjá Arion greiningu er gestur þáttarins. Í þættinum er rætt um verðbólguhorfur, hagvaxtarhorfur, fasteigna og byggingamarkaðinn, hvaða efnahagslegu áhrif innganga Íslands í ESB myndi hafa, atvinnuleysi, stöðuna á vinnumarkaði og fleira.

Þáttur 106 - Efnahagsspjall við Agnar Tómas Möller 21.05.2026

Í þessum þætti er rætt um ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti um 25 punkta. Einnig er rætt um efnahagsmálin, Opinber fjármál, sjávarútveginn og skuldabréfamarkaðinn.

Þáttur 105 - Viðtal við Hreiðar Má Hermannsson, forstjóra Eikar 08.05.2026

Í þessum þætti er rætt við Hreiðar Má Hermannsson forstjóra fasteignafélagsins Eikar. Rætt er um stöðu og horfur í rekstri Eikar, atvinnuhúsnæðismarkaðinn, horfur í efnahagsmálum og fleira.

Þáttur 104 - Efnahagsspjall með Unu Jónsdóttur hjá Landsbankanum 21.04.2026

Í þessum þætti er rætt um nýja Hagspá Landsbankans og efnahagsmálin. Rætt er við Unu Jónsdóttur aðalhagfræðing Landsbankans.

Þáttur 103 - Spjall um tækni og hugverkaiðnaðinn 17.04.2026

Í þessum þætti er rætt við Sigríði Mogensen, sviðstjóra iðnaðar og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins. Rætt er um nýja atvinnustefnu stjórnvalda, framþróun á sviði gervigreindar og vöxt hugverkaiðnaðarins en Samtök iðnaðarins gáfu út skýrslu um það málefni á dögunum. ---------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 102 - Viðtal við Andra Þór Guðmundsson 26.03.2026

Í þessum þætti er rætt við Andra Þór Guðmundsson sem starfaði lengi vel sem forstjóri Ölgerðarinnar sem nú heitir Bera. Rætt er um þær breytingar sem eru í farvatninu hjá fyrirtækinu, vaxtartækifærin hjá fyrirtækinu, nýtt hlutverk Andra Þórs innan fyrirtækisins, efnahagshorfur og ýmislegt fleira. ---------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 100 - Praktísk ráð í rekstri frá Sólveigu í Strata Advisory 20.02.2026

Í þessum þætti er rætt við Sólveigu Gunnarsdóttur fjármálaráðgjafa og eiganda Strata Advisory. Rætt er um rekstur fyrirtækja, námskeiðið Praktík í rekstri sem ráðgjafarfyrirtækið stendur fyrir, efnahagsástandið, hvernig skattahækkanir ríkisstjórnarinnar eru að hafa áhrif á fyrirtæki í rekstri og margt fleira. -------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmal...

Þáttur 99 - Efnahagsspjall við Þórð Pálsson 09.02.2026

Í þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá. Rætt var um vaxtaákvörðunina í síðustu viku, stöðuna á vinnumarkaði, ríkisfjármálin, áhrifin sem gervigreindin mun hafa á efnahagslífið, fjártækni og samruna á bankamarkaði. ----------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 98 - Viðtal við Daða Kristjánsson hjá Visku sjóðum 03.02.2026

Í þessum þætti er rætt við Daða Kristjánsson framkvæmdastjóra Visku sjóða. Rætt er um tækifærin á sviði gervigreindar um þessar mundir bæði fyrir fyrirtæki og starfsmenn, vaxtaákvörðun Seðlabankans sem verður tilkynnt á morgun og fleira. ----------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 97 - Björn Berg: „Gott að hafa ofnæmi fyrir skuldum“ 22.01.2026

Í þessum þætti er rætt við Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafa um persónuleg fjármál og markmiðasetningu í fjármálum. Hann segir að besta fjármálaráðið sem hann gefi fólki gjarnan er að þróa með sér ofnæmi fyrir því að skulda og kveðst ekki vera hrifinn af því viðhorfi sem virðist vera ríkjandi um að nánast ómögulegt sé fyrir fyrstu kaupendur að komast inn á fasteignamarkaðinn. Þá er einnig ræt...

Þáttur 96 - Spjall um skatta, regluverk og landeldi 15.01.2026

Í fyrsta þætti ársins 2026 er rætt við Orra Hauksson stjórnarformann First Water og fyrrum forstjóra Símans. Farið var um víðan völl og meðal annars rætt um fjárfestingar í landeldi, starfsemi First Water og hvað sé á döfinni hjá fyrirtækinu. Þá var einnig rætt um erindi Orra á Skattadegi Deloitte, horfur í efnahagsmálunum og fleira. ------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/...

Þáttur 95 - Efnahagsspjall með Kára í Arion 27.10.2025

Í þessum þætti var rætt um efnahagsmálin við Kára Friðriksson hagfræðing í Arion greiningu. Rætt var um áhrifin af biluninni á Grundartanga á efnahagslífið, áhrifin af falli Play á ferðaþjónustuna, vaxta og verðbólguhorfur og horfur á fasteignamarkaði í kjölfar nýlegs dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða. Þá var farið yfir nýja Hagspá Arion banka og að lokum rætt um skýrslu bankans um stöðuna...

Þáttur 94 - Yfirferð yfir Q2 uppgjörin með Helga Frímanns 17.09.2025

Fjármálakastið snýr aftur eftir smá sumarfrí og er þétt dagskrá fram undan í haust. Í þessum þætti er farið yfir allt það helsta sem fram kom í uppgjörum skráðu félaganna í Kauphöllinni fyrir annan ársfjórðung þessa árs. Helgi Frímannsson fjárfestingaráðgjafi hjá New Iceland Advisors mætti í settið til Magdalenu Torfadóttur. Í þættinum er rætt um horfur í starfsemi allra félaganna og einnig hverni...

Þáttur 93 - Spjall um rafmyntir, markaði og bankasamruna 08.07.2025

Í þessum þætti er rætt um rafmyntamarkaði og allt það helsta sem hefur gerst í geiranum að undanförnu. Einnig er farið yfir mikla skuldasöfnun í Bandaríkjunum og þá staðreynd að fjárfestar eru í meiri mæli farnir að horfa til þess að fjárfesta utan Bandaríkjanna. Þá er einnig rætt um horfur á innlendum og erlendum mörkuðum og loks velt vöngum um nýjustu vendingar í samrunamálum banka. ------------...

Þáttur 92 - Spjall um bankasamruna, markaðinn og fleira 29.05.2025

Í vikunni sendu stjórnir Arion banka og Íslandsbanka bréf til stjórnar Kviku þar sem óskað var eftir samrunaviðræðum við Kviku. Þá er ekki langt síðan Íslandsbankaútboðið kláraðist og hlutabréfamarkaðurinn hefur tekið við sér að undanförnu. Í síðustu viku voru vextir lækkaðir um 25 punkta og verðbólgan mælist nú 3,8%. Í þessum þætti er rætt um þessi mál ásamt fleiru við Má Wolfgang Mixa, dósent í...

Þáttur 91 - Efnahagsspjall með Jóni Bjarka 14.05.2025

Í þessum þætti er farið yfir efnahagsmálin en Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka mætti í settið. Rætt er um væntingar fyrir stýrivaxtaákvörðunina í næstu viku, væntingingar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um hjöðnun verðbólgu og horfur á því sviði. Þá var einnig rætt um áhrif mögulegra tolla áforma Bandaríkjaforseta á íslenskt efnhagslíf og horfur á innlenda hlutabréfamarkaðnum. ---------...

Þáttur 90 - Spjall um gervigreind og fjármál 19.04.2025

Í þessum þætti er rætt við Söfu Jemai stofnanda og framkvæmdastjóra Víkonnekt. Rætt er um gervigreind almennt, hvernig hægt er að nýta hana í fjárhagslegum ákvarðanatöku, hvað er nýjast í fræðunum, hvað er fram undan, hvernig standa íslensk fyrirtæki á þessu sviði og margt fleira. -------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 89 - Spjall um englafjárfestingar og nýsköpun 30.03.2025

Í þessum þætti er rætt við Jón Inga Bergsteinsson formann ICEBAN - Samtök englafjárfesta á Íslandi og fjárfesti. Rætt er um englafjárfestingar, fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja, stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum nýsköpunarfyrirtækja og ýmislegt fleira. ------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Þáttur 88 - Spjall um rekstrarumhverfi fjölmiðla, efnahagshorfur og fleira 17.03.2025

Í þættinum er rætt við Gunnar Úlfarsson hagfræðing Viðskiptaráðs um nýja úttekt Viðskiptaráðs á rekstraumhverfi fjölmiðla. Einnig er rætt um hagræðingartillögur fyrir ríkisstjórnina, gagnrýni á frumvarp um almannatryggingar, leigubílalögin og fleira. Þá er spáð í spilin hvað Seðlabankinn gerir við næstu vaxtaákvörðun sem verður næstkomandi miðvikudag og hvaða áhrif tollastríð myndi hafa á Ísland....

Þáttur 87 - Efnahagsspjall við Konráð Guðjóns 15.02.2025

Í þessum þætti er rætt við Konráð Guðjónsson hagfræðing. Rætt er um efnahagshorfur hér heima og erlendis, ríkisfjármálin, kjarasamningana, fasteignamarkaðinn og fleira. Þá er farið yfir spurningar frá hlustendum þar sem meðal annars er komið inn á hans sýn á mögulegan samruna Arion og Íslandsbanka. Léttu nóturnar eru á sínum stað. --------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirv...

Þáttur 86 - Spjall um rekstrarumhverfi banka og fjártækni 04.02.2025

Í þessum þætti er rætt við Ingvar Haraldsson greininga- og samskiptastjóra Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Rætt var um rekstrarumhverfi fjármálafyrirtækja, regluverkið og séríslenskar kröfur á banka. Einnig er rætt um hvað sé fram undan hjá SFF og um nýlega ráðstefnu samtakanna á sviði fjártækni. Léttu nóturnar eru á sínum stað ásamt spurningum frá hlustendum. ---------------- Fyrirvari: ht...

Þáttur 85 - Efnahagshorfur með aðalhagfræðingi Arion 17.01.2025

Í þessum þætti er rætt við Ernu Björg Sverrisdóttur aðalhagfræðing Arion banka. Rætt var um ganginn í efnahagslífinu á síðasta ári og horfurnar fyrir þetta ár. Spáð í spilin varðandi þróun verðbólgu og vaxta og rætt um ganginn í útflutningsgreinum Íslands ásamt fleiru. ------------ Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid

Listen to the Fjármálakastið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.