Pyngjan

Pyngjan

Business IS ↓ 266 episodes

Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda. 

Author

Pyngjan

Category

Business

Podcast website

Www.pyngjan.is

Latest episode

Feb 28, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Föstudagskaffið: Finale (Takk, en bless) 28.02.2025

Sendu okkur skilaboð! Kæra Pyngjusamfélag! Allt tekur enda og þar er Pyngjan engin undantekning. Þetta hafa verið 3 ánægjuleg ár en nú, eftir 268 þætti, mætast þeir Addi og Iddi í hinsta sinn fyrir aftan míkrófóninn. Við viljum þakka ykkur öllum kærlega fyrir hlustunina í gegnum árin - heiðurinn er án nokkurs vafa okkar megin. Megi Pyngjur ykkar þyngjast á komandi tímum, fjárfestingar bera ávöxt o...

Ársreikningar: Finale - SKEL & Lifandi vísindi 21.02.2025

Sendu okkur skilaboð! Þá er komið að síðasta ársreikningaþætti Pyngjunnar og því þriggja ára vegferð að ljúka. Það kom því ekkert annað til greina en að taka fyrir House of SKEL en svo þurftum við auðvitað að leita í ræturnar og gefa út þátt í anda upphaflegrar Pyngju sem innihélt tvo ársreikninga. Því ákváð Iddi að taka fyrir Lifandi vísindi sem er ansi skemmtilegur rekstur. Við viljum þakka öllu...

Föstudagskaffið: Pabbi má ég kíkja í Járnfjallið? 14.02.2025

Sendu okkur skilaboð! Kæru vinir Pyngjunnar. Þetta mun verða okkar næstsíðasta Föstudagskaffi og því er vel við hæfi að hafa það í lengri kanntinum. Þessi þáttur er gjörsamlega stappaður af viðskipti og vitleysu. Eigið yndislega helgi!

Ársreikningar: Isavia 07.02.2025

Sendu okkur skilaboð! Kæru hlustendur Pyngjunnar! Þá er komið að næstsíðasta ársreikningaþættinum okkar og það er enn eitt ríkisapparatið. Þó lítur út fyrir að vel sé haldið á spöðunum hjá Isavia, ólíkt mörgum öðrum eignum í eigu ríkisins. Saga er sjón ríkari!

Föstudagskaffið: Let's talk about Tom (Time to say goodbye) 31.01.2025

Sendu okkur skilaboð! Já þið heyrðuð rétt, kæru vinir. Pyngjan er á leið í frí - langt frí! Við munum þó dæla í ykkur P-vítamíni út febrúar svo í guðanna bænum verið með okkur þangað til. Þáttur dagsins er einn af þessum klassísku, fréttir, tuð, umfjöllun og hagnýtur fróðleikur.

Ársreikningar: Brim 24.01.2025

Sendu okkur skilaboð! Í dag tökum við fyrir sögu og rekstur Brims sem er eitt stærsta útgerðarfélag landsins. Iddi droppar alvöru value bombum hægri, vinstri, enda sérfræðingur í þessum efnum.

Föstudagskaffið: Besta mögulega ár launþegans er gengið í garð 17.01.2025

Sendu okkur skilaboð! Kæru hlustendur Pyngjunnar! Við óskum ykkur góðrar helgar og gleðilegs árs. Ef þú ert launþegi er ekkert nema launað frí í vændum svo ekki fara að stofna þinn eigin rekstur á þessu ári. Góðar stundir.

Ársreikningar: Tandur 10.01.2025

Sendu okkur skilaboð! Hið hreinasta hreinlæti er næst á dagskrá. Bjarni Ármanns virðist sjá í framtíðina og er ótvíræður keisari hreinlætis á Íslandi. Við förum yfir söguna, næyjasta ársreikning og fleira til í dag. Góða helgi.

Föstudagskaffið: Saga hlutabréfa á Íslandi með Þórði Pálssyni 03.01.2025

Sendu okkur skilaboð! Það hlaut að koma að því! Geitin sjálf, Tóti Páls kíkti á okkur upp í Seðlabanka Kópavogs og settist á bakvið míkrófóninn. Í þættinum kynnumst við manninum og förum á hundavaði yfir sögu hlutabréfa á íslandi en sjálfur hefur Tóti séð tímanna tvenna í þeim efnum. Stórkostlegur þáttur sem, eins og svo oft áður, enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Gleðilegt nýtt ár, kæru kúre...

Föstudagskaffið: 2024 uppgjör ásamt Helga Frímannssyni 27.12.2024

Sendu okkur skilaboð! Við fengum til okkar fyrrum hlutabréfamiðlarann Helga Frímannsson sem hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli fyrir greiningar á hlutabréfum á launþegaforritinu LinkedIn á árinu. Við fórum í manninn sem á langan feril að baki í heimi fjármála og auk þess gerðum upp árið 2024. Sannkölluð áramótasprengja fyrir ykkur, kæru kúrekar. Það verður bjart yfir 2025!

Ársreikningar: Innnes 20.12.2024

Sendu okkur skilaboð! Heildsöluundrið Innnes (með þremur N-um) er eitt þessara fyrirtækja sem lætur hökur falla í gólfið. Allt í eigu eins manns og hefur vöxturinn verið slíkur að maður á vart til aukatekið orð. Verði ykkur að góðu, kæru hlustendur!

Ársreikningar: Múrbúðin 13.12.2024

Sendu okkur skilaboð! Dömur mínar og herrar! Þáttur dagsins er tileinkaður öllum iðnaðarmönnum þarna úti. Feykilega skemmtilegt fyrirtæki sem hefur barist með kjafti og klóm fyrir skynsamri verðlagningu í áranna rás.

Föstudagskaffið: Bara aðdáendur (Only fans) 06.12.2024

Sendu okkur skilaboð! Já kæru vinir Pyngjunnar - loksins eru Addi og Iddi mættir saman á ný og eru með drekkhlaðinn þátt fyrir ykkur í dag. Allt um only fans, fréttir vikunnar og fleira til. 

Ársreikningar: Sky Lagoon 29.11.2024

Sendu okkur skilaboð! Pyngjan kynnir stórmerkilegan þátt, þar sem stutt en ótrlúleg saga Sky Lagoon, er reifuð. Lónið birtist skyndilega á Kársnesinu og engu líkara en að það hafi verið reist yfir nótt en framkvæmdin átti sér þó nokkurra ára aðdraganda. Fyrirtækið er sannkölluð prentvél af bestu gerð og ætti þátturinn að ná að næra peningaheilastöðvar netbankakúrekans og rúmlega það.

Föstudagskaffið: Skattamál flokkanna með Gunnari Úlfarssyni 22.11.2024

Sendu okkur skilaboð! Þegar kemur að efnahagsstefnum stjórnmálaflokkanna eru fáir fróðari en Gunnar Úlfarsson hagfræðingur Viðskiptaráðs sem kom og kjaftaði við okkur í heilar 100 mínútur - minna mátti það ekki vera. Gunnar og kollegar hans hjá Viðskiptaráði héldu nýverið kosningafund með fulltrúum frá flestum flokkum þar sem kynntur var til leiks nýr kosningaáttaviti sem mælir annars vegar afstöð...

Ársreikningar: SÝN 15.11.2024

Sendu okkur skilaboð! Kæur Pyngjuhálsar, í dag er það fjarskipta- og fjölmiðlarisinn SÝN sem verður tekinn fyrir. 

Föstudagskaffið: Jón Kári Eldon kíkir í kaffi 08.11.2024

Sendu okkur skilaboð! Hann Jón Kári Eldon er svo sannarlega ekki við eina fjölina felldur, en hann kíkti til okkar í kaffi og ræddi störf sín fyrir Apparatus, Dr.football, listamanninn Jón Kára og fleira til. Þetta er þáttur sem við hreinlega bönnum Pyngjuliðum að missa af.

Uppgjörið: Þriðji ársfjórðungur Nova 2024 - Skemmtanastjórn 05.11.2024

Sendu okkur skilaboð! Við hittum þau Möggu framkvæmdastjóra og Lalla fjármálastjóra hjá Nova og fórum yfir þriðja ársfjórðung hjá þeim.

Ársreikningar: Skólamatur 01.11.2024

Sendu okkur skilaboð! Skólamatur ehf. hefur verið í deiglunni undanfarið og sér í lagi vegna niðurgreiðslu ríkisins á skólamat fyrir grunnskóla. Við gerum sögunni og rekstrinum skil í þessu stykki sem þú, hlustandi góður, ættir ekki að láta framhjá þér fara.

Föstudagskaffið: Supreme luxury 25.10.2024

Sendu okkur skilaboð! Hér fáiði einn rjúkandi volgan bolla í kuldanum, beint úr smiðju Adda & Idda. Megi helgin verða ykkur gæfusöm.

Ársreikningar: Ísey útflutningur 18.10.2024

Sendu okkur skilaboð! Já þeir strokka skyrið sem eiga það! Ísey útflutningur hefur verið í vaxtafasa síðastliðin ár þrátt fyrir nokkrar misheppnaðar útrásir. Við gerum þessu öllu skil og fleira til í þætti dagsins!

Föstudagskaffið: Mömmubloggarar are so back! 11.10.2024

Sendu okkur skilaboð! Stútfullur þáttur af viðskiptum og vitleysu fyrir ykkur, kæru netbankakúrekar og fagfjárfestar. Megi helgin verða ykkar!

Ársreikningar: EIK fasteignafélag 04.10.2024

Sendu okkur skilaboð! Hluthafar Eikar liggja undir yfirtökuárás Langasjós fyrir 11 kr. á hlutinn. Hvað gerist? Við munum ekki svara því í dag, en við munum hrútskýra margt er kemur að sögu og rekstri fyrirtækisins.

Föstudagskaffið: Seljiði sullið, kaupiði gullið! 27.09.2024

Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er af dýrari gerðinni og það er gullið líka. Allt þetta helsta - fréttir fróðleikur, fágæti og fíflalæti. Góða helgi, kæru launþegar!

Ársreikningar: Ölgerðin 20.09.2024

Sendu okkur skilaboð! Kæru hlustendur, þið lásuð rétt! Ársreikningarnir hafa litið dagsins ljós á ný hjá okkur Pyngjumönnum og er þessi þáttur sá fyrsti í 12 þátta seríu þar sem ársreikningaþættir verða gefnir út annanhvern föstudag. Við byrjum á stórveldinu af Grjóthálsi - sjálf Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Gjörið svo vel.

Listen to the Pyngjan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.