Myntkaup

Hlaðvarp Myntkaupa

Business IS ↓ 114 episodes

Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.

Author

Myntkaup

Category

Business

Podcast website

myntkaup.is

Latest episode

Jul 4, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Lokafrestur MiCA liðinn í Evrópu - Hvaða áhrif hefur það? 04.07.2026

Í þessum þætti fara þeir félagar yfir það helsta á markaðnum. Í upphafi mánaðar leið lokafrestur samkvæmt MiCA löggjöfinni í Evrópu. Það þýðir að þjónustuveitendur sýndareigna (rafmyntakauphallir) verða að hafa starfsleyfi sem slíkir (CASP) til að mega veita viðskiptavinum þjónustu innan ESB og EES. Töluvert hátt hlutfall af áður starfandi þjónustuveitendum hefur ekki tekist að tryggja sér starfsl...

Samtal við Magnús Karl Ásmundsson, hagfræðing 27.06.2026

Í þessum þætti mætti góður gestur í sitt fyrsta skipti í hlaðvarpið. Magnús Karl Ásmundsson er hagfræðingur að mennt, en starfar sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins Tímaveru. Magnús fer yfir víðan völl, en fjallar meðal annars um mörg grundvallaratriði hagfræðinnar, Bitcoin, hagkerfið og hvernig lífið og þroskinn sem fylgir því fær mann til að átta sig á að stundum er raunveruleikinn flóknari en sv...

Nýr seðlabankastjóri USA slær á þunga strengi - Rauðu flöggin halda áfram að versna hjá Strategy 21.06.2026

Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Kevin Warsh, nýskipaður seðlabankastjóri Federal Reserve, fjallaði um í fyrstu ræðu sinni sem seðlabankastjóri hvernig hann sér fyrir sér breytt hlutverk seðlabankans gagnvart mörkuðum. Til þessa hafa fjárfestar treyst á leiðbeinandi stef frá seðlabankastjóra og jafnframt treyst því að seðlabankinn myndi alltaf grípa inn í þegar mark...

Verðbólga heldur áfram að aukast í USA - Örlög Clarity Act orðin tvísýn? 13.06.2026

Verðbólga jókst um 0,5% á ársgrundvelli milli mánaða í USA og nýjum seðlabankastjóra þar í landi virðist ansi þröngur stakkur sniðinn gagnvart breytingu stýrivaxta. Þá hafa líkur lækkað verulega á veðmálamörkuðum á því að Clarity frumvarpið verði samþykkt á þessu ári og eru þær nú metnar á um 50%. Fjallað er talsvert um þessi atriði, en sömuleiðis fjallar Björn ítarlega um þróun og sögu síðustu tv...

Þrettán dagar af samfelldu útflæði úr kauphallarsjóðum keyrir BTC undir 60k 06.06.2026

Í þessum þætti er rætt um stöðuna á crypto mörkuðum sem er vægast sagt uggvænleg um þessar mundir. Látlaust útflæði hefur verið úr kauphallarsjóðum eða um 4,4 milljarðar dollara á 13 dögum. Samhliða því hefur Fear and Greed mælikvarðinn hrapað niður á við og mælist nú 15, eða sem öfgakennd hræðsla. Sömu sögu, og reyndar verri, er að segja um aðrar helstu rafmyntir markaðarins. Tímar sem þessir rey...

Útflæði úr kauphallarsjóðum eykst verulega - Bitcoin nálgast 70k 30.05.2026

Í þessum þætti er rætt um það helsta á mörkuðum. Crypto markaðurinn heldur áfram að síga niður sem verður að teljast nokkur vonbrigði í ljósi þess að S&P500 vísitalan heldur áfram góðri siglingu. Áfram er óbreytt staða á Clarity frumvarpinu, þ.e. ekki er annað að segja en að reiknað er með því að frumvarpið verði tekið til afgreiðslu öldungardeildarinnar á næstunni. Þá er einnig fjallað talsve...

Bitcoin missir dampinn og strögglar við að komast yfir 80k á ný 23.05.2026

Í þessum þætti er rætt um það helsta sem gerst hefur á mörkuðum. Ekkert nýtt er að segja um Clarity-frumvarpið en væntingar standa áfram til þess að það verði lagt fyrir öldungardeildina á næstunni. Útflæði heldur áfram úr BTC og ETH kauphallarsjóðum, en innflæði er sterkt í XRP, SOL og HYPE kauphallarsjóðina. Þá búa fjárfestar sig undir aukna táknvæðingu á eignamörkuðum. Þetta og margt fleira í þ...

Verðbólgutölur valda vonbrigðum - Clarity frumvarpið færist nær lagasetningu 16.05.2026

Í þessum þætti er farið yfir viðburðaríka viku. Vikan hófst á slæmum fréttum, en verðbólga í Bandaríkjunum virðist vera að aukast umfram spár og bjartsýni fjárfesta um stýrivaxtalækkanir þar í landi fer minnkandi. Ekki bætti úr skák að 13. maí var sá dagur sem mest útflæði var úr BTC kauphallarsjóðum, meira en 630 milljónir dollara. Hins vegar bárust stór tíðindi úr öldungardeildinni en Clarity fr...

Ætlar Michael Saylor að selja BTC?? 09.05.2026

Í þessum þætti ræða þeir félagar helstu vendingar á markaðnum. Bjartsýni heldur áfram að aukast á mörkuðum, en BTC hefur haldið sæmilega velli yfir 80k síðustu daga og hlutabréfavísitölur víðs vegar um heiminn slá endurtekið ný met. Þá hafa líkur á samþykki Clarity Act á þessu ári aukist talsvert og er reiknað með því að það verði að lögum á þessu ári. Helsta fréttin er hins vegar án nokkurs vafa...

Tveir grænir mánuðir í röð fyrir Bitcoin - Mesta innflæði í kauphallarsjóði á árinu í apríl 02.05.2026

Í þessum þætti ræða þeir félagar það helsta sem gerðist á markaðnum í vikunni. Stýrivöxtum var haldið óbreyttum í Bandaríkjunum. Bitcoin ráðstefnan í Las Vegas vekur lítinn áhuga og lítið umtal. Stofnanafjárfestar virðast mjög bjartsýnir gagnvart Bitcoin og bálkakeðjutækninni. Bókahornið og margt fleira í þessum þætti.

Norður-kóreskir tölvuþrjótar valda enn á ný titringi 25.04.2026

Bitcoin hefur aðeins sótt í sig veðrið samhliða sannfærandi hækkunum á öðrum mörkuðum. Því miður varð DeFi markaðurinn hins vegar fyrir áfalli þegar hakkarar, sem taldir eru vera á vegum Norður-Kóreu, náðu að komast yfir umtalsverð verðmæti af svokölluðu rsETH og nota það til að taka gríðarleg verðmæti af einum rótgrónasta DeFi vettvangi markaðarins, Aave. Fjárfestar spyrja sig nú hvort raunverule...

S&P500 og Nikkei ná hæstu hæðum - Bitcoin hótar 80k 18.04.2026

Í þessum þætti er farið yfir það helsta á rafmyntamarkaðnum. Hlutabréf í Bandaríkjunum hafa, þrátt fyrir ólguna í heimsmálunum, náð hæstu hæðum á ný og rafmyntir hafa sömuleiðis haldið áfram upp á við eftir miklar lægðir á undan. Goldman Sachs, einn stærsti fjárfestingabankinn í Bandaríkjunum, hefur bæst í hóp þeirra aðila sem munu bjóða upp á Bitcoin kauphallarsjóð. Þetta og margt fleira er rætt...

Bitcoin heldur sjó yfir 70k samhliða talsverðu innflæði í kauphallarsjóði 11.04.2026

Í þessum þætti er farið yfir stöðuna á markaðnum. Morgan Stanley BTC kauphallarsjóðurinn fer ágætlega af stað og Bitcoin hefur tekist ágætlega að halda sér yfir 70k. Þeir félagar Kjartan og Björn velta nokkrum stjórnspekilegum álitaefnum fyrir sér. Þá er fjallað um nýlegar kenningar um hver Satoshi Nakamoto er.

Morgan Stanley kynnir til leiks BTC kauphallarsjóð á bestu kjörum markaðarins 04.04.2026

Í þessum þætti er rætt um nokkurn veginn óbreytt ástand markaðarins. Allir markaðir virðast um þessar mundir hanga á ummælum Trumps um framgang átakanna í Íran og virðast hver ummæli sveifla mörkuðum í báðar áttir. Eins og rafmyntafjárfestar hafa fengið að venjast virðast góðar fréttir hreyfa takmarkað við markaðnum eins og sakir standa, en það verður að teljast stórfrétt að Morgan Stanley, einn s...

Hræðsla markaðarins mælist aftur öfgakennd - Villandi fréttaflutningur af Clarity frumvarpinu? 28.03.2026

Síðastliðinn föstudag bárust jákvæðar fréttir af framgangi Clarity frumvarpsins þess efnis að það yrði brátt samþykkt án þess að takmarka rétt crypto fyrirtækja til að greiða viðskiptavinum vexti á stöðugleikamyntir. Markaðurinn brást við með talsverðum hækkunum þvert yfir helstu rafmyntir. Nokkrum dögum síðar kom í ljós að þessar fréttir stóðust ekki nánari skoðun og gengu hækkanirnar til baka og...

Seðlabankinn í Bandaríkjunum heldur stýrivextum óbreyttum og viðrar áhyggjur um efnahagshorfur 21.03.2026

Í þessum þætti halda þeir félagar áfram að fjalla um bjarnarmarkaðinn. Í vikunni átti sér stað klassískt "bear market pump" þegar BTC fór í 76k, sem var síðan selt rakleiðis niður aftur. Fjallað er um afstöðu Seðlabankans í Bandaríkjunum um framtíðarhorfur í efnahagsmálum, Michael Saylor og Strategy, önnur BTC "Treasury" fyrirtæki, og margt fleira.

Bjartsýni á markaðnum eykst lítillega - Er meiri sársauki í vændum? 14.03.2026

Fear and Greed mælikvarðinn hefur verið fastur vikum saman í "Extreme Fear" en mælist nú í um 30, eða "Fear". Sannleikurinn er þó áfram sá að Bitcoin og rafmyntamarkaðurinn í heild sinni er ekki sannfærandi og virðist sem margir reikni með því að botninn sé ekki að baki enn. Björn og Kjartan eiga samtal um hvernig þetta blasir allt við þeim, ásamt því að fara yfir helstu frétti...

Trump tjáir sig um Clarity Act og setur pressu á þingið - Bitcoin reynir aftur að komast yfir 70k 07.03.2026

Í þessum þætti fjalla þeir félagar einkum um Clarity Act og ummæli Trump, en hann birti þráð í vikunni þar sem hann sagði að þingið verði að samþykkja Clarity Act og hundsa kröfur banka þar í landi um að rafmyntafyrirtækjum verði meinað að greiða vexti af stöðugleikamyntum. Sömuleiðis var frétt um að Trump hefði fundað með Brian Armstrong, forstjóra Coinbase. Þessi þáttur er fyrsti sinnar tegundar...

Er risinn Jane Street arkitektinn að bjarnarmarkaðnum eða er verið að hengja bakara fyrir smið? 28.02.2026

Í vikunni sem er að líða bárust fregnir af málshöfðun gegn markaðsrisanum Jane Street fyrir meint lögbrot sem eiga að hafa verið ein helsta ástæðan fyrir verðhruni Terra Luna árið 2022. Samhliða þeim fréttum skapaðist umfjöllun á X og víðar þess efnis að Jane Street hefði markvisst keyrt verð Bitcoin niður með daglegri sölu gífurlegs magns af Bitcoin, sem hefði hætt frá og með málsókninni. Bitcoin...

Hvað þarf að gerast til að Bitcoin fangi athygli markaðarins á ný? 21.02.2026

Fremur tíðindalítið var á rafmyntamörkuðum síðastliðna viku og litlar hreyfingar voru á gengi helstu rafmynta. Stærstu tíðindin eru áframhaldandi stigmögnun í deilum Bandaríkjanna og Íran og virðist sem óhjákvæmilegt sé að til einhverra stríðsátaka komi. Mestur hluti þessa þáttar fór þó í samræður um þær gríðarlegu tækniframfarir sem hafa átt sér stað undanfarið á sviði gervigreindar og er sú tilg...

Er Bitcoin að glíma við tilvistarkreppu? 14.02.2026

Bjarnarmarkaðurinn heldur áfram að sannreyna tilvist sína en rafmyntir, margar hverjar, glíma við spurningar um hvernig þær réttlæta tilvist sína sem tækni og eignaflokkur. Ef Bitcoin er áhættuvörn eða eign sem er til þess fallin að verja verðmæti yfir lengri tíma af hverju er myntin þá um 50% niður á meðan gull hefur átt methækkanir að baki undanfarið? Hvernig nákvæmlega er bálkakeðjutæknin að fa...

Bitcoin fellur undir 60K - Meira en 50% lækkun frá októbermánuði 07.02.2026

Segja má að söguleg hræðsla hafi heltekið rafmyntamarkaði síðustu daga. Eftir látlausar lækkanir á gengi BTC niður fyrir 70.000$ fyrstu dagana í febrúar fylgdi fimmtudagurinn, 5. febrúar, eftir með svæsnu verðfalli og fór Bitcoin niður fyrir 60.000$ um stutta stund, í um 59.800$. Solana fór um skamma hríð undir 70$ og sömu sögu mátti segja um flestar aðrar rafmyntir. Hræðsla mældist í 5 í Fear &am...

Trump heldur ræðu í Davos - Heitir því að USA verði "Crypto Capital of the world" 24.01.2026

Í þessum þætti ræða þeir félagar, Björn og Kjartan, um áframhaldandi lægð á rafmyntamörkuðum. Enn ríkir óvissa um lögmæti tolla Trumps, en reiknað var með niðurstöðu Hæstaréttar í þeim efnum um miðjan janúar. Þeirri niðurstöðu hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma, en almennt er búist við að hún muni liggja fyrir í febrúar. Þá hafa áhyggjur um efnahagsmál og stýrivexti í Japan enn á ný vaknað m...

Sakamálarannsókn hafin gagnvart Jerome Powell - Eru alvarlegir brestir í CLARITY Act? 17.01.2026

Í þessum þætti var sjónum einkum beint að tveimur viðfangsefnum. Annars vegar er rætt um nýhafna sakamálarannsókn gagnvart Jerome Powell vegna óhemju mikils kostnaðar á endurbótum við byggingu seðlabankans. Hins vegar er rætt um áhyggjur sem hafa verið opinberaðar, meðal annars af hálfu Brian Armstrong, forstjóra Coinbase, vegna CLARITY frumvarpsins sem markaðurinn hefur bundið miklar vonir við að...

Stórsigur fyrir Strategy og Bitcoin - Morgan Stanley sækir um þrjá kauphallarsjóði fyrir rafmyntir 10.01.2026

Morgan Stanley Capital International (MSCI) hefur ákveðið að hætta við áform sín um að útiloka Strategy og önnur sambærileg félög frá helstu vísitölum sínum. Þetta verður að teljast stórsigur fyrir markaðinn í heild sinni enda hafa margir verið þeirrar skoðunar að þessi áform hafi verið einn helsti drifkraftur hrunsins eftirminnilega, 10. október síðastliðinn. Athygli vekur að á sama tíma tilkynni...

Listen to the Hlaðvarp Myntkaupa podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.