Myntkaup
Hlaðvarp Myntkaupa
Hlaðvarp Myntkaupa er nýtt hlaðvarp sem fjallar um allt tengt bitcoin og hvað er að gerast í hinum síbreytilega heimi rafmynta. Við fáum til okkar góða gesti og fjöllum um málefni sem tengjast rafmyntum. Myntkaup er vinsælasti staðurinn fyrir Íslendinga til að stunda viðskipti með Bitcoin og aðrar rafmyntir. Rúmlega 4% Íslendinga nota Myntkaup til þess að kaupa og selja bitcoin. Þú finnur okkur á myntkaup.is eða með því að sækja Myntkaup appið í App Store eða Google Play store.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Árið 2025 gert upp - Hvað ber árið 2026 í skauti sér? 03.01.2026 59:29
Í þessum þætti gera þeir félagar, Björn og Kjartan, upp árið sem var að líða. Var 2025 eingöngu ár vonbrigða eða er hægt að tala um einhverja sigra sem skiptu máli? Hvað þarf að gerast á þessu ári til þess að það einkennist af sigrum í stað vonbrigða? Einnig er farið yfir skemmtilega tölfræði um hlaðvarpið sjálft og hlustendum færðar kærar þakkir fyrir árið sem var að líða.
Miklar áhyggjur fjárfesta af stýrivaxtahækkun í Japan - Er þetta stormur í vatnsglasi? 20.12.2025 54:09
Í þessum þætti er meðal annars fjallað um 25 punkta stýrivaxtahækkun í Japan og eru vextir þar í landi nú þeir hæstu í 30 ár, en þó aðeins 0,75%. Fjárfestar hafa miklar áhyggjur haft af stýrivaxtahækkuninni, enda orsakaði slík hækkun einn versta dag síðustu ára í ágúst í fyrra. Margt fleira er þó fjallað um, bæði af jákvæðum og neikvæðum toga, til að mynda er farið yfir fyrsta árið hjá Donald Trum...
Seðlabankinn í USA lækkar stýrivexti um 25 punkta - Bitcoin heldur áfram að ströggla við 90k 13.12.2025 59:53
Í þessum þætti er rætt um stýrivaxtalækkun í USA, en eins og spár gerðu ráð fyrir voru þeir lækkaðir um 0,25%. Þrátt fyrir lækkun er rafmyntamarkaðurinn áfram lágstemmdur og hræðsla er enn ráðandi tilfinning á markaðnum. Í þessum þætti var einnig rætt talsvert um hvernig rétt væri að meta fyrsta ár Trump í forsetaembættinu með tilliti til rafmynta. Þá var einnig vikið að stöðu Strategy og fjallað...
$11T risinn Vanguard gefur grænt ljós á crypto - Hver verða áhrifin? 06.12.2025 1:06:50
Markaðurinn heldur áfram að vera heldur lágstemmdur en Bitcoin strögglar við að halda sér yfir 90k. Miklar áhyggjur hafa skapast um hvort Strategy verði mögulega þvingað til að selja hluta af BTC forða sínum. Þeir félagar, Kjartan og Björn, fjalla um þetta mál og komast að þeirri niðurstöðu að líklega sé ekki grundvöllur fyrir þessum áhyggjum eins og sakir standa. Á hinn bóginn tók markaðurinn vel...
Nautin vakna til lífsins og keyra Bitcoin yfir 90k - Mun Seðlabanki Bandaríkjanna liðka fyrir mörkuðum í desember? 29.11.2025 59:57
Í þessum þætti halda þeir félagar, Björn og Kjartan, áfram að ræða sveiflur síðustu vikna og greina þær frekar. Einnig er fjallað um áhugaverðar fréttir sem hafa ekki farið hátt, en eru þó sannarlega mikilvægar. Sjónarmiðum um að hið versta sé að baka er teflt fram og rök færð fyrir því, meðal annars að fastlega er gert ráð fyrir stýrivaxtalækkun í USA í desember og að fyrir liggur að seðlabankinn...
Bitcoin í frjálsu falli - Nautin virðast lömuð af hræðslu. Hvar er botninn? 22.11.2025 1:03:36
Í þessum þætti halda þeir félagar, Björn og Kjartan, áfram að ræða látlausar lækkanir rafmyntamarkaðarins, en Bitcoin var hársbreidd frá því að falla undir 80.000$ í vikunni. Megináhersla var lögð á að greina ástæður þessa verðhruns, en óhætt er að segja að fæstir greinendur hafi séð eitthvað í líkingu við þetta fyrir. Ýmsar tilgátur hafa þó verið settar fram og var fjallað um nokkrar af þeim og l...
Hið opinbera í USA hefur starfsemi á ný - Crypto markaðurinn heldur áfram á hraðri niðurleið 15.11.2025 57:50
Eftir lengstu lokun í sögu hins opinbera í Bandaríkjunum tók það aftur til starfa á miðvikudaginn, eftir 43 daga lokun. Langflestir markaðsgreinendur gerðu ráð fyrir að markaðir myndu bregðast við með hækkunum en raunin varð þvert á móti. Bitcoin féll aftur undir 100k og í þetta skiptið kröftuglega, eða niður í 94.000$. Þá fór Ethereum nálægt 3.000$ og Solana fór undir 140$. Í þættinum þá halda þe...
Bitcoin fellur undir 100k og ofsafengin hræðsla grípur um sig 08.11.2025 1:07:58
Óhætt er að segja að nautin hafi mátt muna fífil sinn fegurri á rafmyntamarkaðnum undanfarnar vikur og glæstar vonir rafmyntafjárfesta um síðasta fjórðung þessa árs hanga á bláþræði eftir látlausar lækkanir. Bitcoin er í þessum rituðu orðum rétt tæplega 102.000$ eftir rúmlega 20% fall frá toppnum og lítur út fyrir að 100k múrinn gæti fallið aftur á næstu dögum. Þá hafa aðrar rafmyntir farið mun ve...
Stýrivextir lækkaðir um 25 punkta í USA - Powell varar þó við bjartsýni um frekari lækkanir 01.11.2025 50:47
Í þessum þætti er fjallað um ákvörðun Seðlabanka Bandaríkjanna um að lækka stýrivexti um 0,25 prósentustig, niður í 3,75-4,00% og af hverju markaðurinn brást skömmu síðar við með talsverðum lækkunum. Þá er vikið að samskiptum Bandaríkjaforseta og forseta Kína sem markaðurinn fylgist grannt með og farið yfir það hvort vænta megi samkomulags milli ríkjanna þar sem Bandaríkin slaka á tollum gagnvart...
Ætlar Seðlabanki Bandaríkjanna að taka rafmyntum opnum örmum? 25.10.2025 54:58
Bitcoin hefur haldið velli sæmilega vel, 100k múrinn hefur haldið samfleytt frá verðfallinu 10. október síðastliðinn. Einn stjórnarmeðlimur í stjórn Seðlabanka Bandaríkjanna flutti ræðu í byrjun vikunnar þar sem hann fjallaði mjög jákvætt um crypto markaðinn og bálkakeðjutæknina og hefur markaðurinn brugðist vel við. Þá náðaði Donald Trump CZ, fyrrverandi forstjóra Binance í vikunni og hafa verið...
Mesta hrun í sögu rafmyntamarkaðarins - Er bjarnarmarkaður skollinn á? 18.10.2025 1:13:14
Á föstudagskvöldið 10. október síðastliðinn, í kjölfar þess að Donald Trump tilkynnti á Truth Social að vænta mætti 100% tolla á Kína, átti sér stað einhver svakalegasti atburður í sögu rafmyntamarkaðarins. Bitcoin stóð af sér storminn ágætlega og hélt velli yfir 100.000$ genginu og að einhverju leyti má segja það sama um Ethereum og Solana, þótt gengi þeirra mynta hafi lækkað talsvert meira. Aftu...
Var 126.000$ BTC toppurinn? 11.10.2025 1:00:57
Þessi þáttur var tekinn upp í hádeginu, föstudaginn 10. október 2025. Fyrr í vikunni hafði Bitcoin náð nýjum hæðum í rétt rúmlega 126.000$. Kvöldið eftir að þátturinn var tekinn fékk rafmyntamarkaðurinn, og þá sér í lagi aðrar rafmyntir en Bitcoin, að kynnast allra hrottalegustu dýfu síðari tíma eftir tilkynningu Trumps um 100% tolla á Kína. Þegar þetta er ritað hefur markaðurinn jafnað sig talsve...
Bergþór Másson - Bitcoin: Sannleikur, sameiningarkraftur og sanngirni 04.10.2025 1:18:51
Í þessum þætti tók athafnamaðurinn, Bergþór Másson, hús á okkur og við áttum gott samtal. Bergþór hefur vakið mikla athygli í fjölmiðlum undanfarið fyrir hugrakka ákvörðun um að selja fasteign sína og kaupa Bitcoin í staðinn, en hann fjallaði meðal annars um þá ákvörðun í þættinum Ísland í dag. Í þættinum rekur Bergþór bakgrunn sinn og sögu og fer yfir hvað varð til þess að hann komst að þeirri ni...
Víkingur Hauksson snýr aftur - Hvenær nær Bitcoin 1.000.000$? 27.09.2025 1:37:20
Í þessum þætti kíkti stórvinur okkar og Bitcoin sérfræðingurinn Víkingur Hauksson í stúdíóið og fjallaði listilega um viðfangsefni sem hefur verið honum mjög hugleikið undanfarin 3 ár: Vöxtur Bitcoin samkvæmt veldislögmáli. Sjón er sögu ríkari og mælum við eindregið með áhorfi, ekki eingöngu hlustun. Víkingur sýnir gröf sem benda til þess að Bitcoin vaxi samkvæmt veldislögmáli, ekki aðeins með til...
Stýrivaxtalækkun í USA - Solana fer yfir 250$ - Hverju má búast við á fjórða ársfjórðungi? 20.09.2025 59:58
Í þessum þætti er fjallað um lækkun stýrivaxta í Bandaríkjunum, en markaðir hafa brugðist vel. S&P500 vísitalan er í hæstu hæðum, og helstu rafmyntir nálgast sömuleiðis hæstu hæðir. Solana heldur áfram að gera gott mót og má rekja það talsvert til skráðra fyrirtækja á markaði sem eru að kaupa SOL, svokallaðra SOL Treasury Companies. Þá er að sjálfsögðu fjallað um helstu fréttir og farið yfir s...
Solana leiðir hækkanir í september - Vaxtalækkun framundan 13.09.2025 1:00:19
Septembermánuður hefur tvímælalaust farið betur af stað en margir þorðu að vona. Aðrar rafmyntir en Bitcoin hafa staðið sig vel og ber þar helst að nefna Solana, þótt segja megi að flestar af helstu myntunum hafi hækkað talsvert frá byrjun mánaðar. Í þessum þætti er sjónum einkum beint að jákvæðri atburðarás fyrir Solana og Björn fjallar um af hverju hann reiknar með auknu fjármagnsflæði inn í Sol...
Ágústmánuður gerður upp á rafmyntamörkuðum - Hvað er World Liberty Financial? 06.09.2025 1:02:30
Í þessum þætti er ágústmánuður gerður upp og gerð grein fyrir forsendum septembermánaðar eins og þær blasa við Birni og Kjartani, en í sögulega samhengi hafa þessir tveir mánuðir verið þeir slökustu á rafmyntamörkuðum. Einnig er fjallað ítarlega um nýjasta framtak Trump fjölskyldunnar í heimi rafmynta; World Liberty Financial (WLFI) og Björn gefur óhlutdrægt álit á því verkefni og hvort WLFI tóken...
ETH nær hæstu hæðum frá upphafi, rétt tæplega 5.000$ - Er Solana næst? 30.08.2025 1:01:04
Eftir erindi Jerome Powell í Jackson Hole 22. ágúst síðastliðinn eru greiningaraðilar sannfærðir um að vænta megi 25 punkta vaxtalækkun um miðjan september. Markaðurinn brást við með miklum hækkunum og náði Ethereum hæstu hæðum, eða rétt tæplega 5000$ og Solana hefur haldið sér yfir 200$. Bitcoin hefur hins vegar sigið niður frá því að það náði hæstu hæðum í um 124.000$ og vilja margir meina að þa...
Guðlaugur Steinarr Gíslason - Hver er staða og hlutverk rafmynta í fjármálum heimsins í dag? 23.08.2025 1:20:59
Guðlaugur Steinarr Gíslason, fjármálahagfræðingur og fjárfestingastjóri hjá Visku Digital Assets, fjallar um þróun Bitcoin og bálkakeðjutækninnar síðustu ár og hvernig staða og hlutverk rafmynta er óðum að vaxa og styrkjast í fjármálalífi heimsins í dag. Guðlaugur fjallar um hvernig Bitcoin hefur þroskast og færir rök fyrir því af hverju hann telur ólíklegt að við sjáum bjarnarmarkaði endurtaka si...
Ævintýralegar hækkanir ETH halda áfram - Ríkir meiri spenna á Wall Street gagnvart ETH en BTC? 16.08.2025 53:30
Verðbólgutölur í Bandaríkjunum (CPI) komu betur út en spár gerðu ráð fyrir og brugðust markaðir vel við og greiningaaðilar reikna nú með stýrivaxtalækkun í september. Rafmyntir hafa staðið sig vel það sem af er ágúst, en óhætt er að segja að engin eign hefur haft tærnar þar sem ETH hefur hælana síðustu vikur og nálgast myntin nú óðfluga hæstu hæðir frá nóvember 2021. Í þessum þætti ræða þeir félag...
Trump veitir 401k lífeyrissjóðum heimild til að fjárfesta í rafmyntum 10.08.2025 55:21
Í vikunni gaf Donald Trump út forsetatilskipun sem veitir 401k lífeyrissjóðum í Bandaríkjunum heimild til þess að fjárfesta í rafmyntum. Fjárfestar eru mjög bjartsýnir yfir fregnunum, enda sitja sjóðirnir á gríðarlegum fjármunum. Ethereum heldur ótrautt áfram með miklum látum og er gengi ETH myntarinnar yfir 4.000$ í þessum skrifuðu orðum. SEC hefur nú formlega lokið öllum málaferlum gagnvart Ripp...
SEC tilkynnir "Project Crypto" - Hvað felst í því og hvað þýðir það fyrir altcoins? 02.08.2025 46:26
Markaðir hafa brugðist illa við blaðamannafundi Jerome Powell, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, sem haldinn var á miðvikudaginn eftir að hann hafði tilkynnt að stýrivextir yrðu óbreyttir í 4,25-4,5%. Powell treysti sér ekki til að vera bjartsýnn um vaxtalækkun í september og um leið tóku markaðir að lækka. Þrátt fyrir það eru þeir félagar, Björn og Kjartan, sammála um að mikið tilefni sé til bjarts...
Bitcoin hægir á sér og fjárfestar spyrja: Er Ethereum besta fjárfestingin á markaðnum í dag? 26.07.2025 53:59
Rafmyntamarkaðir hafa haldið vel í hækkanir undanfarinna vikna, en Bitcoin virðist ætla að þurfa nokkrar tilraunir til að keyra yfir 120k. Ethereum hefur hins vegar hækkað um meira en 50% síðustu 30 daga og gífurlegt fjárstreymi hefur verið í ETH kauphallarsjóðina á Wall Street. Þetta og fjölmargt annað var rætt í þessum þætti, meðal annars að Trump Media félagið keypti BTC fyrir 2 milljarða Banda...
Rafmyntamarkaðir áfram á fleygiferð - Þrjú crypto frumvörp samþykkt í Washington - Hvar stoppar XRP? 20.07.2025 57:18
Í þessum þætti er fjallað ítarlega um atburðarás liðinnar viku í Washington þar sem þrjú lagafrumvörp voru samþykkt með afgerandi og þverpólitískum meirihluta. Litlu munaði að ekkert yrði úr crypto vikunni en forseti Bandaríkjanna beitti sér fyrir, og náði því í gegn, að crypto vikan næði fram að ganga. Ýmis teikn eru á lofti um að aðrar rafmyntir láti nú loks ljós sitt skína eftir marga mánuði í...
Bitcoin nær hæstu hæðum á ný - nálgast 120k 12.07.2025 57:51
Í þessum þætti er fjallað um miklar hækkanir undanfarna daga á rafmyntum, en Bitcoin fór í um 118.800$ á föstudaginn, ETH fór yfir 3000$ og XRP fór nálægt 3$. Athygli vekur að ekki er hægt að benda á neinar sérstakar fréttir sem valda þessum hækkunum. Þeir félagar Björn og Kjartan fara þó yfir nokkur áhugaverð atriði sem styðja bjartsýn viðhorf gagnvart komandi vikum og mánuðum.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.