IÐAN fræðsluetur

Augnablik í iðnaði

Business IS ↓ 134 episodes

Podcast by IÐAN fræðsluetur

Author

IÐAN fræðsluetur

Category

Business

Podcast website

www.idan.is

Latest episode

Dec 11, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Fræðslumál hjá Arion banka - með Ölmu Hannesdóttur fræðslustjóra 11.12.2024

Fræðslumál hjá Arion banka - með Ölmu Hannesdóttur fræðslustjóra by IÐAN fræðsluetur

Maí er mánuður nýsköpunar á Íslandi 10.05.2024

Edda Konráðsdóttir framkvæmdastjóri og einn stofnenda Iceland Innovation Week er viðmælandi okkar í Augnablik í iðnaði. Hún segir frá dagskránni í ár sem er mjög viðamikil. Von er á metfjölda fjárfesta á viðburðinn í ár sem fer fram 14.-16.maí í Kolaportinu og er haldin í fimmta sinn. Hvert ár hafa Edda og hennar teymi aðlagað sig að aðstæðum í samfélaginu hverju sinni. Edda segir frá reynslu sinn...

Fræðslustjóri að láni, með Guðrúnu Blandon mannauðsstjóra VHE 15.04.2024

VHE fór því nýlega í gegnum verkefnið Fræðslustjóri að láni. „Helstu markmið með verkefninu var að fá heildaryfirsýn yfir fræðsluþörfina og skipuleggja fræðslustarf framtíðarinnar“ segir Guðrún Blandon mannauðsstjóri. Hún mælir aukna starfsánægju hjá starfsfólki sem hún vill tengja beint við verkefnið. Þetta og margt fleira í þessu fræðandi og skemmtilega spjalli

Erasmus+ ævintýri í Tallin, með Ástrósu Elísu Eyþórsdóttur bakara hjá Bláa lóninu 03.04.2024

Við útskrift úr bakaraiðn fann Ástrós fyrir faglegri þreytu og langaði í nýja reynslu sem myndi styrkja hana sem fagmann. Hún kynnti sér því Erasmus+ fyrir nýsveina og setti stefnuna á Kaupmannahöfn. Málin þróuðust þó þannig að hún endaði á því að fara til Tallin í Eistlandi og sér ekki eftir þeirri ákvörðun. Helen Gray leiðtogi alþjóðaverkefna hjá Iðunni spjallar hér við Ástrósu um reynsluna af þ...

Fræðslumál hjá Samkaupum, með Guðna Erlendssyni mannauðsstjóra 22.03.2024

Eva Karen Þórðardóttir hjá Effect ræðir hér við Guðna Erlendsson mannauðsstjóra Samkaupa. Mikil saga og menning er fyrir fræðslu hjá Samkaupum. Kaupmannsskólinn var rekinn eins og hefðbundinn skóli með staðbundnum námskeiðum sem nú hafa verið færð mikið til yfir í rafræna fræðslu. Covid hjálpaði til við að ýta undir umbreytinguna þó að vissulega hafi sú vinna verið hafin áður. Guðni segir Samkaup...

Fræðslumál hjá Isavia, með Gerði Pétursdóttur fræðslustjóra 15.03.2024

Alþjóðaflugvöllurinn í Keflavík fær til sín margar milljónir gesta ár hvert. Það kallar á að starfsfólk viti nákvæmleg til hvers er ætlast af því og hlotið viðeigandi þjálfun. Gerður Pétursdóttir fræðslustjóri Isavia er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli en hún hefur ásamt öflugu teymi byggt upp Isavia skólann síðan árið 2016.

Tilskipun ESB um upplýsingagjöf í sjálfbærni, með Jennifer Schwalbenberg lögfræðingi 22.02.2024

Ásgeir Valur Einarsson leiðtogi sjálfbærnimála hjá Iðunni ræðir hér við Jennifer Schwalbenberg lögfræðing um tilskipun ESB um sjálfbærniupplýsingagjöf og hvernnig hún á eftir að hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki. Upplýsingagjöf í sjálfbærni felur í sér hvernig við komum á framfæri þeim upplýsingum sem við erum að safna um sjálfbærniþætti og tilgreinir þau markmið og stefnur sem settar eru...

Starfsemi Tækniseturs og nýsköpun, með Guðbjörgu H. Óskarsdóttur framkvæmdastjóra Tækniseturs 21.02.2024

Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir framkvæmdastjóri Tækniseturs er hér í afar fróðlegu spjalli við Kristjönu Guðbrandsdóttur leiðtoga nýsköpunar hjá Iðunni. Tæknisetur byggir á fjögurra áratuga reynslu á sviði efnistækni, lífvísinda og orkumála. Það er öflugur samstarfsaðili í hagnýtum rannsóknar og þróunarverkefnum og býr yfir sérhæfðum búnaði og aðstöðu sem er gagnast sprotafyrirtækjum á sviði hátækni.

Umferðaröryggi, með Ólafi Guðmundssyni sérfræðingi í umferðaröryggismálum 09.02.2024

Ólafur Guðmundsson sérfræðingur í umferðaröryggismálum er hér í fróðlegu spjalli um umferðaröryggi, innviði og bifreiðar. Þeir Sigurður Svavar Indriðason, leiðtogi bílgreina hjá Iðunni, fara m.a. yfir hvað er vel gert í þeim efnum og hvað má betur fara.

Fræðslumál hjá Vatnajökulsþjóðgarði, með Ragnheiði Björgvinsdóttur mannauðsstjóra 02.02.2024

Ragnheiður Björgvinsdóttir er hér í léttu og skemmtilegu spjalli við Evu Karen Þórðardóttur um fræðslumál hjá Vatnajökulsþjóðgarði. Vatnajökulsþjóðgarður er stærsti þjóðgarður í vestur Evrópu og nær yfir 15% af Íslandi. Þjóðgarðurinn nær til átta sveitafélaga. Um 50 starfsmenn starfa við þjóðgarðinn allan ársins hring. Sumarið er svo mjög annasamur tími með 120 starfsmenn, sem dreifast út um allt...

Ævintýri í Evrópu í gegnum Erasmus+, með Ingu Birnu Antonsdóttur hjá Iðunni 26.01.2024

Inga Birna Antonsdóttir alþjóðafulltrúi hjá Iðunni er hér í skemmtilegu spjalli um möguleika Erasmus+ styrkjakerfinsins sem er ætlað að auka möguleika á skiptinámi og lærdómi erlendis í gegnum Erasmus+.

Sketchup, með Birni Jóhannssyni landslagsarkitekt hjá Urban Beat Design 16.01.2024

Hér spjalla þeir Óskar Grétarsson leiðtogi málm- og véltæknigreina hjá Iðunni og Björn Jóhannsson landslagsarkitekt um notkunarmöguleika SketchUp forritsins fyrir iðnaðinn. Þeir fjalla sérstaklega um námskeið sem Björn heldur hjá Iðunni þar sem farið er í grunninn á forritinu, Sketchup pro og Layout og Twinmotion og sýndarveruleika. Sérstakar vinnubúðir eru einnig í boði þar sem fólk getur unnið a...

Fræðslukerfi fyrir fyrirtæki, með Sóloni Guðmundssyni eiganda Avia 18.12.2023

Það er að mörgu að hyggja þegar velja á fræðslukerfi fyrirtækja. Eitt er að velja rétta kerfið og hitt er að hanna og setja upp viðeigandi fræðslu sem þjónar þörfum fyrirtækisins. Sólon Guðmundsson eigandi Avia er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli en fyrirtæki hans sérhæfir sig í hönnun fræðslukerfis sem og framleiðslu á efni inn í kerfið.

Rafvæðing stærri bíla, með Agli Jóhannssyni forstjóra Brimborgar 12.12.2023

Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar er hér í skemmtilegu og fróðlegu spjalli um rafvæðingu stærri bíla bæði með tilliti til stöðunnar í dag en einnig þá möguleika sem framtíðin býr yfir. Sigurður Svavar Indirðason, leiðtogi bílgreina hjá Iðunni stýrir þættinum.

Erno Viitanen from Stadin AO in Finland 06.12.2023

In this episode we learn about the Finnish impression on the Icelandic workplace, vocational educational systems, and the importance of international collaboration. Helen Gray, leader of international projects at Iðan talks to Erno who visited us through Erasmus+

Fræðslugreiningar í fyrirtækjum, með Evu Karen Þórðardóttur eiganda Effect 20.11.2023

Eva Karen Þórðardóttir eigandi Effect hefur þróað verkfæri sem greinir hæfni starfsfólks og skilar persónulegri fræðsluáætlun til fyrirtækis, niður á hvern starfsmann. Þannig fæst betri yfirsýn yfir hæfnigatið sem liggur innan fyrirtækisins. Starfsfólk sér þá hvar það er statt og hvar það stendur miðað við sitt teymi. Þarna er því verkfæri til að sjá betur hvar hver og einn stendur. Starfsfólk get...

Filmun og húðun bíla, með Hjalta Halldórssyni bifreiðasmið hjá HS bílaréttingum og sprautun 09.11.2023

Hjalti Halldórsson er bifreiðasmiður og einn af tveimur eigendum HS bílaréttingar og sprautun. Hann er hér í fróðlegu viðtali við Sigurð Svavar Indriðason, leiðtoga bílgreina hjá Iðunni um filmun og húðun á lakk bifreiða.

Tim Schaumburg from Kassel in Germany 02.11.2023

"Mobility Beyond Borders" explores workplace culture, vocational education, and workplace inclusion with insights from Tim Schaumburg, a German public administration intern.

Gervigreind í sjálfvirknivæðingu véla, með Sindra Ólafssyni tæknistjóra gervigreindar hjá Marel 26.10.2023

Sindri Ólafsson verkfræðingur er tæknistjóri gervigreindar hjá Marel. Hann er hér í skemmtilegu og fróðlegu spjalli við Kristjönu Guðbrandsdóttur leiðtoga nýsköpunar hjá Iðunni um starfið og helstu áskoranir framtíðarinnar.

Nýtt ráðuneyti og starfsmannamál, með Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, ráðherra 04.10.2023

Í tilefni mannauðsdagsins 6. október 2023 ræddi Íris Sigtryggsdóttir við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þær ræddu um þær áskoranir sem Áslaug Arna stóð frammi fyrir við myndun nýs ráðuneytis á gerbreyttum grunni. Áslaug Arna ræddi sérstaklega um hvernig hún stýrir starfsmannamálum í sínu ráðuneyti, leggur áherslu á að byggja upp sterka vinnumenningu og ve...

Rekstur prentsmiðju á Egilsstöðum, með Gunnhildi Ingvarsdóttur eiganda Héraðsprents 19.07.2023

Hjónin Gunnhildur Ingvarsdóttir og Þráinn Skarphéðinsson hafa rekið Héraðsprent í rúm 50 ár. Gunnhildur er hér í afar skemmtilegu og fræðandi viðtali við Kristjönu Guðbrandsdóttur, leiðtoga prent- og miðlunar hjá Iðunni, um rekstur og þróun prentsmiðjunnar.

Ungt fólk í iðnaði, með Margréti Arnarsdóttur formanni IÐN-UNG 13.07.2023

Margrét Arnarsdóttir rafvirki og formaður IÐN-UNG segir mikilvægt að hlusta á raddir ungs fólks í iðnaði. Margrét er hér í skemmtilegu og fróðlegu spjalli um IÐN-UNG, hlutverk þess og framtíðarplön.

Námið í matvælagreinum við MK, með Baldri Sæmundssyni mat- og framreiðslumeistara og kennara við MK 29.06.2023

Hér er á ferðinni fjórði þáttur í röð hlaðvarpa sem eru lokaverkefni þeirra Dóru Svavarsdóttur og Þyrnis Hálfdánarsonar matreiðslumeistara og nema við Menntavísindasvið HÍ. Þættina unnu þau í samvinnu við Iðuna og fjalla um matreiðslunám, þá, nú og um alla framtíð. Fjórði þátturinn fjallar um námið í matvælagreinum í MK

Vaxtasprotar Orkuveitu Reykjavíkur, með Ellen Ýr Aðalsteinsdóttur framkvæmdastýru mannauðs OR 14.06.2023

Orkuveita Reykjavíkur hlaut verðlaunin Menntasproti atvinnulífsins 2023 fyrir verkefnið Vaxtasproti OR. Verkfnið hefur verið í gangi í 3 ár en upphaflega var farið af stað með það til að hafa áhrif á menninguna og það má með sanni segja að það hafi tekist. Ellen Ýr bendir á að þeir aðilar sem hafa farið í gengum prógrammið eru sannkallaðir kyndilberar nýrra tíma og hafa áhrif beint inn á sín starf...

Upplýsingagjöf í sjálfbærni, með Snjólaugu Ólafsdóttur sviðstjóra hjá Ernst & Young 30.05.2023

Upplýsingagjöf í sjálfbærni felur í sér hvernig við komum á framfæri þeim upplýsingum sem við erum að safna um sjálfbærniþætti og tilgreinir þau markmið og stefnur sem settar eru varðandi m.a. kolefnisspor, loftlagsmál og starfsmannastefnu. Hér spjallar Ásgeir Valur Einarsson leiðtogi sjálfbærni hjá Iðunni við Snjólaugu Ólafsdóttur sviðstjóra sjálfbærniráðgjafar hjá Ernst & Young.

Listen to the Augnablik í iðnaði podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.