IÐAN fræðsluetur

Augnablik í iðnaði

Business IS ↓ 134 episodes

Podcast by IÐAN fræðsluetur

Author

IÐAN fræðsluetur

Category

Business

Podcast website

www.idan.is

Latest episode

Dec 11, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Þrengt að blaðaljósmyndun, með Vilhelm Gunnarssyni blaðaljósmyndara 10.05.2023

Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari ræðir um framtíð blaðaljósmyndunar og minnkandi aðgengi ljósmyndara að því að skrá söguna. Það sé hætta á því að lítið sé myndað af daglegu lífi fólks nú þegar Fréttablaðið er horfið af vettvangi. Hann ræðir einnig sannar og ósannar myndir, gervigreind og það sem stóð upp úr á liðnu ári í ljósmyndun.

Kennslufræði fyrir iðnmeistara, með Elsu Eiríksdóttur dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands 25.04.2023

Háskóli Íslands býður upp á nám í kennsluréttindum sérhannað að þeim sem eru að fara að kenna starfsgrein í framhaldsskóla. Um er að ræða 60 eininga diplómanám á grunnstigi og geta þátttakendur sótt um leyfisbréf að hjá Menntamálastofnun að því loknu. Leyfisbréfið gildir í leik,- grunn- og framhaldsskóla.

Staðlar eru ferskvara, með Helgu Sigrúnu Harðardóttur framkvæmdastjóra Staðlaráðs 19.04.2023

Staðlar eru allt í kringum okkur án þess að við höfum endilega hugmynd um það. Þeir fjalla um allt milli himins og jarðar og geta verið alþjóðlegir, evrópskir, íslenskir, danskir eða tilheyrt einstökum atvinnugreinum. Helga segir það enga tilviljun að kreditkortin okkar eða snjallgreiðslur virka alls staðar í heiminum, að snjalltækin okkar geta talað saman, að metrinn er alls staðar jafn langur og...

Þrívíddarprentun, með Þórdísi Björgvinsdóttur og Ágústi Bjarkarsyni hjá 3D Verk 03.04.2023

Þórdís Björgvinsdóttir og Ágúst Bjarkarson reka fyrirtækið 3D verk og þó að það sé frekar nýtt af nálinni er nóg að gera hjá þeim. Í þessu fróðelga og skemmtilega spjalli fræða þau okkur um hvernig hægt er að nota þrívíddarprentun í íslenskum iðnaði og hverjir eru möguleikar og kostir við slíka notkun.

Formleg menntun matreiðslumanna á Íslandi, með Kristjáni Sæmundssyni matreiðslumeistara 23.03.2023

Hér er á ferðinni annar þáttur í röð hlaðvarpa sem eru lokaverkefni þeirra Dóru Svavarsdóttur og Þyrnis Hálfdánarsonar matreiðslumeistara og nema við Menntavísindasvið HÍ. Þættina unnu þau í samvinnu við Iðuna og fjalla um matreiðslunám, þá, nú og um alla framtíð. Annar þátturinn fjallar um formlega menntun matreiðslumanna á Íslandi

Gervigreind og ástandskoðun búnaðar, með Jóhannesi Kristjánssyni þjónustustjóra hjá HD 10.03.2023

Óskar Grétarsson leiðtogi málm- og véltæknigreina hjá Iðunni spjallar hér við Jóhannes Steinar Kristjánsson þjónustustjóra HD, en fyrirtækið er farið að nota gervigreind til að meta ástand á búnaði í stað þess að nota titringsmælingar.

Nýsköpun í iðnaði með Nönnu Elísu Jakobsdóttur, viðskiptastjóra á iðnaðar- og hugverkasviði SI 28.02.2023

Nanna ræðir hér um mikilvægi nýsköpunar í íslenskum iðnaði, stuðning stjórnvalda og sýn Samtaka iðnaðarins á framtíðina. Fjárfesting í rannsóknum og þróun og sérfræðiþekkingu er lykill að aukinni nýsköpun í íslensku atvinnulífi.

Hugverk og einkaleyfi, með Magneu Lillý Friðgeirsdóttur og Eiríki Sigurðssyni hjá Hugverkastofu 23.02.2023

Hugverk eru hugmyndir sem búið er að útfæra og eru verðmætar fyrir vöxt og velgengni fyrirtækja. Með því að vernda hugmyndirnar og nýta sér kosti markaðsetningar tengja viðskiptavinir vörumerki eða hönnun við t.d. vöruverð, gæði og góða þjónustu og skapa þannig traust til fyrirtækisins. Hér er á ferðinni mjög fróðlegt spjall um hugverk og einkaleyfi.

Saga veitingareksturs og matreiðslu á Íslandi, með Nönnu Rögnvaldardóttur 20.02.2023

Hér er á ferðinni fyrsti þáttur í röð hlaðvarpa sem eru lokaverkefni þeirra Dóru Svavarsdóttur og Þyrnis Hálfdánarsonar matreiðslumeistara og nema við Menntavísindasvið HÍ. Þættina unnu þau í samvinnu við Iðuna og fjalla um matreiðslunám, þá, nú og um alla framtíð. Fyrsta hlaðvarpið fjallar um sögu veitingareksturs og matreiðslu á Íslandi.

Alþjóðleg bókahönnunarverðlaun, með Antoni J. Illugasyni grafískum hönnuði 10.02.2023

Alþjóðleg bókahönnunarverðlaun, með Antoni J. Illugasyni grafískum hönnuði by IÐAN fræðsluetur

Umhverfisvæn framleiðsla á Metanóli, með Ómari Sigurbjörnssyni markaðsstjóra CRI 02.02.2023

Ómar Sigurbjörnsson er markaðsstjóri CRI. Hann er hér í fróðlegu spjalli um fyrirtækið sem stofnað var árið 2006 af tveimur Íslendingum og tveimur Bandaríkjamönnum sem vildi láta á það reyna að framleiða Metanol með efnahvarfi koldíoxíðs við vetni. Íslenskt hugvit sem vakið hefur heimsathygli.

Geðheilbrigðismál á vinnustöðum, með Helenu Jónsdóttur sálfræðingi hjá Mental ráðgjöf 17.01.2023

Helena Jónsdóttir sálfræðingur er hér í fróðlegu spjalli um geðheilgbriði á vinnustöðum og þann ómeðhöndlaða geðvanda sem gjarnar leiðir til kosnaðarsamra vandamála á borð við veikinda, minnkandi frmleiðni og aukna starfsmannaveltu. Þá er ótalin þjáning þeirra sem við vandann glíma og fjölskyldna þeirra. 25% af fólki þjáist af geðvanda, flestir þeirra fullorðnir og starfa á vinnumarkaði. Með því a...

Nýsköpun á vefhugbúnaði fyrir byggingariðnað, með Róberti Helgasyni framkvæmdastjóra KOT 17.01.2023

Fyrsti gestur Kristjönu í nýrri seríu um nýsköpun er Róbert Helgason framkvæmdastjóri KOT sem er íslenskt fyrirtæki sem þróar leiðandi vefhugbúnað fyrir byggingariðnað og fasteignamarkaðinn. Markmið Róberts er að bjóða upp á gagnvirka lausn sem býður upp á góða yfirsýn við sölu stærri fasteignaverkefna hér heima og á erlendum mörkuðum.

Jafnlaunavottun með Lovísu Jónsdóttur, gæðastjóra launa og jafnlaunavottunar hjá Brimborg 19.12.2022

Jafnlaunavottun er ætlað að vinna gegn kynbundnum launamun á íslenskum vinnumarkaði og stuðla þannig að jafnrétti kynjanna. Sigríður Lovísa Jónsdóttir, gæðastjóri launa og jafnlaunavottunar hjá Brimborg, er hér í fræðandi spjalli, en hún skrifaði BA ritgerð sina um jafnlaunavottun. Það sem kom á óvart var hve gagnleg vottunin er fyrir fyrirtækið ekki síður en stafsmenn þeirra.

Gæða- og öryggismál í byggingariðnaði með Eyjólfi Bjarnasyni, gæða- og öryggisstjóra Arnarhvols 07.12.2022

Eyjólfur Baranson gæða- og öryggsistjóri Arnarhvols er hér í fróðlegu og skemmtilegu spjalli um gæða- og öryggismál í byggingariðnaði. Hann telur að stundum sé erfitt að koma auga á fjárhagslegan ávinning af notkun gæðakerfa en sé það notað sem stjórntæki t.d. við framkvæmd, kostnaðareftirlit, framkvæmdaeftirlit og verkáætlun, komi ávinningurinn fljótlega í ljós.

Er auðvelt að finna fyrirtækið þitt á netinu? Viðtal við Óla Jóns, framkvæmdastjóra MCM á Íslandi 02.12.2022

Óli Jóns er með víðtæka reynslu þegar kemur að markaðsetningu og ráðgjöf. Hér útskýrir hann vel hvaða ávinningur felst í því að skrá fyrirtæki rétt á netinu. Það er afar mikilvægt að koma upp í leitinni þegar væntanlegur viðskiptavinur leitar að þjónustu á netinu og til þess eru ákveðnar leiðir farnar. Virkilega fróðlegt og skemmtilegt spjall.

Orkuskipti í bíliðnaði með Jónasi K. Eiríkssyni forstöðumanni vörustýringar hjá Öskju 23.11.2022

Jónas Kári Eiríksson ræðir hér við Sigurð S. Indriðason um rafvæðingu bílaflota Íslensinga og stöðu markaðarins. Hann ræðir einnig um þróun rafhlaðna og hvert hún stefnir.

Umbrot er nátengt myndlist með Jóni Óskari myndlistarmanni 03.11.2022

Jón Óskar myndlistarmaður er hér í fróðlegu spjalli við Grím Kolbeinsson. Jón Óskar segist hafa rambað í nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Þar fann hann þó fljótt sína fjöl og með náminu fór hann fljótt að vinna við umbrot dagblaða. Hann starfaði á Vísi og á Helgarpóstnum og hefur frá mörgu skemmtilegu að segja.

Vistvæn mannvirkjagerð, með Þóru M. Þorgeirsdóttur framkvæmdastjóra mannvirkja og sjálfbærni hjá HMS 20.10.2022

Byggjum grænni framtíð er samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð en það á meðal annars rætur sínar að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri mannvirkja og sjálfbærni hjá HMS er hér í fróðlegu spjalli við Ólaf Ástgeirsson leiðtoga bygginga- og mannvirkjagreina hjá Iðunni. H...

Flokkun og endurvinnsla málma með Högna Auðunssyni hjá Málma 14.10.2022

"Það eru verðmæti í öllu brotajárni" segir Högni Auðunsson eigandi Málma sem er hér í fræðandi spjalli við Sigursvein Óskar, nýjan stjórnanda málm- og véltækni hluta Augnabliks í iðnaði. Fyritækið keppist við að kaupa málma af fólki sem oft áttar sig ekki á þeim verðmætum sem í þeim liggja.

Forvarnarstarf Virk með Ingibjörgu Loftsdóttur sviðstjóra forvarna hjá Virk 06.10.2022

Ingibjörg Loftsdóttir sviðsstjóri forvarna hjá Virk er hér í mjög fræðandi viðtali um það hvernig starfsumhverfi hefur áhrif á líðan og afköst starfsmanna. Hvaða leiðir stjórnendur geta farið til að viðhalda trausti og opnum samskiptum og hvernig hægt er að bregðast við ef starfsmaður þarf stuðning til að takast á við erfiðleika.

Heimsmeistaramót ungra bakara, með Finni Ívarssyni og Haraldi Þorvaldssyni 29.09.2022

Ísland átti tvo fulltrúa á heimsmeistaramóti ungra bakara, þá Finn Guðberg Ívarsson og Matthías Jóhannesson. Mótið fór fram í Berlín og höfnuðu þeir félagar í 4. sæti. Þetta var í fyrsta skipti sem Ísland tók þátt í mótinu. Ólafur Jónsson spjallar hér við Finn og þjálfara liðsins, Harald Árna Þorvaldsson fagkennara í bakaraiðn um tildrög keppninnar, undirbúning og gott gengi.

Myndlæsi, gervigreind og útgáfa bóka með Bergrúnu Írisi mynd- og rithöfundi 22.09.2022

Bergrún Íris Sævarsdóttir mynd- og rithöfundur ræðir um blómlega útgáfu barna- og unglingabóka, gervigreind og list og skort á stuðningi stjórnvalda við íslenska teiknara. Myndlæsi sé afar mikilvægt vaxandi kynslóð í heimi þar sem úir og grúir af fölskum fréttum, myndskeiðum og upplýsingum.

Heimsmeistaramótið í kjötskurði með Jóni Gísla Jónssyni, kjötiðnaðarmanni 15.09.2022

Landslið kjötiðnaðarmanna er nýkomið heim frá því að taka þátt í heimsmeistaramóti í kjötskurði sem fór fram í Sacaramento í Bandaríkjunum. Þrettán þjóðir keppa á mótinu og er íslenska liðið eina Norðurlandaþjóðin sem tekur þátt. Jón Gísli Jónsson landsliðamaður er hér í skemmtilegu og fræðandi viðtali um aðdraganda, keppnina sjálfa og þá möguleika sem hún gefur.

Hvernig nýtast giggarar iðnfyrirtækjum með Hörpu Magnúsdóttur framkvæmdastjóra Hoobla 02.09.2022

Harpa Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Hoobla er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli um möguleika lítilla og meðalstórra iðnfyrirtækja að ráða til sín stjórnendur í tímabundið starf eða lágt starfshlutfall. Hún nefnir að studnum skapist álagspunktar í rekstri eða þörf fyrir tímabundna ráðningu og þá sé gott að geta leitað til þjónustu eins og Hoobla.

Listen to the Augnablik í iðnaði podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.