IÐAN fræðsluetur

Augnablik í iðnaði

Business IS ↓ 134 episodes

Podcast by IÐAN fræðsluetur

Author

IÐAN fræðsluetur

Category

Business

Podcast website

www.idan.is

Latest episode

Dec 11, 2024

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Netöryggi og öryggismat með Sigurmundi P. Jónssyni ráðgjafa hjá Origo 04.07.2022

Það geta öll fyrirtæki orðið fyrir barðinu á tölvuþrjótum segir Sigurmundur Páll Jónsson ráðgjafi hjá Origo, líka iðnfyrirtæki. Hann fer hér yfir af hverju mikilvægt er að hafa tölvuöryggsimál á hreinu og kynnir til sögunnar öryggismat sem metur stöðu hvers fyrirtækis. Með því fæst yfirsýn yfir tölvuöryggi og hvar mögulegir öryggisbrestir liggja. Tölvuþrjótar eru nefnilega, að hans sögn, ekkert að...

Samtök íslenskra eimingarhúsa með Evu Maríu Sigurbjörnsdóttur formanni samtakanna 23.06.2022

Samtök íslenskra eimingarhúsa voru stofnuð til að standa vörð um íslenska áfengisframleiðslu. Eva María Sigurbjörnsdóttir líffræðingur er formaður samtakanna og er hún hér í einkar fræðandi spjalli um tilburð samtakanna, markmið þeirra og íslenska áfengisframleiðslu. Einnig er Eva María mjög fróð um sögu áfengisframleiðslu og neyslu Íslendinga í gengum árin. Skemmtilegt og líflegt spjall.

Nýsköpun í málaraiðn - alþjóðaverkefni þrettán landa. 13.06.2022

Þau Rakel Steinvör Hallgrímsdóttir náms- og starfsráðgjafi, Ólafur Ástgeirsson, leiðtogi bygginga- og mannvirkjagreina og Ásgeir Valur Einarsson verkefnastjóri á bygginga- og mannvirkjasviði eru fulltrúar alþjóðaverkefnis um nýsköpun í málariðan. Að verkefninu koma 23 aðilar frá 13 löndum. Hér fjalla þau um verkefnið og þá möguleika sem koma út úr slíku samstarfi.

Stafræn hæfni með Evu Karen Þórðardóttur framkvæmdastjóra Stafræna hæfniklasans 31.05.2022

Eva Karen Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Stafræna hæfniklasans, er sannfærð um að stafrænar lausnir eigi erindi við fyrirtæki í iðnaði. Hún segir iðnaðinn mislangt á veg kominn í innleiðingu stafrænna lausna og bendir á að Stafræni hæfniklasinn bjóði iðnfyrirtækjum upp á að greina og koma auga á möguleika til innleiðingar, en einnig að greina stafræna hæfni starfsmanna.

Nám í bíliðngreinum með þeim Ólafi og Hreini fagstjórum í Borgarholtsskóla 15.05.2022

Í þessum þætti ræðir Sigurður Svavar Indriðason leiðtogi bílgreina hjá Iðunni við þá félaga Hrein Á. Óskarsson og Ólaf G. Pétursson fagstjóra í bíliðngreinum við Borgarholtsskóla. Þeir hafa þurft að aðlaga sig gríðarlega að heftandi skipulagi síðustu ára og segja bíliðngreinarnar koma vel undan þeim tíma. Framundan séu spennandi tímar þar sem atvinnulifið og skólinn þurfa að taka heiðarlegt samtal...

Stjórnendur sem horfa inn á við ná árangri, með Thor Ólafssyni eiganda Strategic Leadership 08.05.2022

Thor Ólafsson er reynslumikill stjórnendaráðgjafi og stofnandi fyrirtækisins Strategic Leadership sem er með starfsemi víða um heim. Í þessu fróðlega viðtali kynnir Thor okkur fyrir hugmyndum sínum um stjórnun og mikilvægi þess að starfsmenn og stjórnendur geri sér grein fyrir eigin „egói“ og áhrifum þess. Thor er um þessar mundir að gefa út bókina Beyound Ego. The inner compass of counscious lead...

Notaði krísur til að efla reksturinn. Viðtal við Pál Ketilsson, útgefanda Víkurfrétta 02.05.2022

Grímur Kolbeinsson ræðir við Pál Ketilsson útgefanda Víkurfrétta um ferilinn, fjölmiðlun og tækniþróun í útgáfu.

Er þín viðskiptalausn í skýinu? Viðtal við Andra Má Helgason vörustjóra hjá Advania 22.04.2022

Andri Már Helgason, vörustjóri hjá viðskiptalausnum Advania, spjallar við okkur um viðskiptalausnir í skýinu.

AutoDesk forritin með Finni Fróðasyni arkitekt hjá Cad teiknistofu 13.04.2022

Í þessu hlaðvarpi ræðir Gústaf A. Hjaltason ábyrgðarmaður suðumála hjá IÐUNNI við Finn Fróðason arkitekt. Þeir ræða meðal annars um möguleika AutoDesk forritanna fyrir iðnaðinn og hvernig á að nýta möguleika hvers forrits sem best.

Rekstur og hönnun með Hjalta Karlssyni hönnuði í New York 30.03.2022

Hjalti Karlsson fór til náms til Bandaríkjanna og rekur nú hönnunarfyrirtæki í New York. Hann er hér í spjalli við Grím Kolbeinsson um námið, fyrirtækjarekstur, búsetuna erlendis og þau tækifræri sem liggja í hönnun.

Rafeldsneyti með Jóni Heiðari Ríkharðssyni, vélaverkfræðingi hjá EFLU 24.03.2022

Hér ræðir Sigurður Svavar Indriðason sviðstjóri bilgreinasviðs IÐUNNAR við Jón Heiðar Ríkharðsson vélaverkfræðingu um hvað rafeldsneyti er og hversu stóran þátt mun það eiga í orkuskiptum hér á landi. Umræðan hefur snúist mikið til um bíliðnaðinn og skiptin frá brunaheyfilsbílum yfir í rafbíla. En hvað með allar aðrar samgöngur og flutningsmáta og hver er framtíðin í þeim efnum?

Raki og mygla í húsum með Sylgju Dögg Sigurjónsdóttur líffræðingi 13.03.2022

Í þessum þætti fjallar Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir um raka og myglu í húsum. Sylgja hefur starfað við byggingariðnaðinn í hartnær 16 ár og vinnur nú sem ráðgjafi hjá Eflu verkfræðistofu ásmt því að kenna á námskeiðum hjá Iðunni. Sylgja er sérfræðingur í raka- og mygluskemmdum og þekkir það af eigin raun að búa í rakaskemmdu húsnæði. Sú lífsreynsla varð m.a. til þess að hún sérhæfði sig á þessum ve...

Kjötiðn og landslið kjötiðnaðarmanna með Jóhanni Frey Sigurbjarnasyni landsliðsmanni 11.03.2022

Hér ræðir Ólafur Jónsson, sviðstjóri Matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR, við Jóhann Frey Sigurbjarnason kjötiðnaðarmann, en hann á sæti í landsliði kjötiðnaðarmanna. Jóhann er bjartsýnn á gott gengi landsliðsins og telur iðngreinina vera í mikilli sókn. Hann leggur áherslu á samvinnu matreiðslumanna og kjötiðnaðarmanna og segir hana geta aukið vöruúrval þar sem viðskiptavinir eru alltaf að leita að...

Allt um sveinspróf með Svani K. Grjetarssyni formanni sveinsprófsnefndar í húsasmíði 03.03.2022

Svanur Karl Grjetarsson framkvæmdastjóri Mótx er hér í fróðlegu spjalli við Ólaf Ástgeirsson sviðstjóra bygginga- og mannvirkjasviðs IÐUNNAR um sveinspróf. Svanur Karl er formaður sveinsprófsnefndar í húsasmíði og segir hér frá mikilvægum þáttum er varða prófið, undirbúning, framkvæmd og hvað hafa beri í huga þegar kemur að sveinsprófi. Þeir fara líka yfir hvaða möguleika nemi hefur ef tilskildum...

Persónuvernd með Dóru Sif Tynes lögfræðingi hjá Advel lögmanni 25.02.2022

Dóra Sif Tynes lögmaður er sérfræðingur í persónuvernd. Hér er hún í spjalli við Augnablik í iðnaði um persónuvernd í stafrænum heimi með fókusinn á GDPR. Við ræddum m.a. um hvers vegna GDPR er mikilvægt og hvernig innleiðingin hefur gengið síðust ár hjá íslenskum fyrirtækjum.

Prentbransinn og fleiri spennandi verkefni með Birgi Jónssyni forstjóra Play 18.02.2022

Birgir Jónsson forstjóri Play er prentari í grunninn. Hann sótti sér framhaldsmenntun í prentrekstrarfræði og telur að sú menntun hafi nýst sér mjög vel í þeim störfum sem hann hefur tekið sér fyrir hendi. „Ég er pönkari og segi því það sem þarf" segir Birgir í viðtalinu en hann hefur tekið að sér stór og flókin verkefni sem oft hafa reynt á. Birgir er einnig með skoðanir á prentun og prentiðnaðin...

Gas og gaslagnir með Þránni Sigurðssyni framkvæmdastjóra Gastec 10.02.2022

Þráinn Sigurðsson er eigandi og framkvæmdastóri Gastec. Hann sérhæfir sig í flestu því sem tengist gasbúnaði, tengjum, gaslögnum og gasöryggi. Hér er hann í spjalli við Gústaf A. Hjaltason IWE og fagstjóra suðumála hjá IÐUNNI.

Endurvinnsla bifreiða með Aðalheiði Jakobsen hjá Netpörtum 04.02.2022

Aðalheiður Jacobsen er eigandi og framkvæmdastjóri Netparta. Fyrirtækið sérhæfir sig í endurvinnslu bifreiða með umhverfisvænum hætti og endurnýtingu bílaparta.

Evrópukeppni Bocuse d‘Or með Sigurjóni B. Geirssyni matreiðslumanni 27.01.2022

Hér er rætt við Sigurjón Braga Geirsson matreiðslumann, en hann verður fulltrúi Íslands í Evrópukeppni Bocuse d‘Or í Búdapest núna í mars. Tíu efstu sætin í Evrópukeppninni ávinna sér rétt til að keppa í aðalkeppninni í Lyon árið 2023. Sigurjón býr yfir gríðarlegri reynslu sem fulltrúi í kokkalandsliði Íslands, keppandi og þjálfari. Hér er á ferðinni fróðlegt og skemmtilegt spjall um leiðina til L...

Útgáfa og sala á ljósmyndabókum með Marteini Jónassyni 23.01.2022

Útgáfa og sala á ljósmyndabókum með Marteini Jónassyni by IÐAN fræðsluetur

Breytt landslag á prentmarkaðinum með Guðmundi R. Guðmundssyni eiganda Prentmets Odda 13.01.2022

Guðmundur Ragnar Guðmundsson á og rekur prentsmiðjuna Prentmet Odda ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttur. Þau hjónin hafa byggt upp fyrirtækið sem býður upp á fjölbreytta prentun og reka útibú á Selfossi og á Akureyri. Guðmundur segir mikil tækifæri liggja í umbúðaprentun og segir neytendur meðvitaða um umbúðir. Þá telur hann að bókaprentun muni ekki snúa aftur til Íslands í þ...

Talning á nýbyggingum með Friðriki Ólafssyni viðskiptastjóra hjá Samtökum iðnaðarins 06.01.2022

Friðrik Ólafsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins, ræðir hér við Ólaf Ástgeirsson, sviðsstjóra hjá IÐUNNI um talningu á nýbyggingum og hvers vegna svo mikilvægt er að hafa slíka talningu rétta, sérstaklega með tilliti til fjármögnunar verka.

Stærsta byltingin er hljóðbókin en prentaða bókin heldur velli 21.12.2021

Grímur Kolbeinsson ræðir við Halldór í nýjasta þætti Augnabliks í iðnaði um breytingar í bókaútgáfu, taugastríðið í jólabókaflóðinu og hvað íslenskar prentsmiðjur ættu að gera í samkeppni við erlendar prentsmiðjur.

Netspjall og snjallmenni með Yngva Tómassyni hjá Leikbreyti 20.12.2021

Það eru mikil tækifæri í sjálfvirknivæðingu og notkun snjallmenna, m.a. til að svara endurteknum spurningum segir Yngvi. Við sérsníðum lausnir fyrir hvern og einn viðskiptavin með því að innleiða netspjall til að byrja með. Þannig söfnum við algengum spurningum til fyrirtækisins og þegar þeim hefur verið safnað saman er snjallmennið tilbúið með svörin.

Réttingar á bílum, staða og framtíð með Gunnlaugi Jónssyni og Vali Helgasyni bifreiðasmiðum 09.12.2021

Hér ræða þeir Valur Helgason og Gunnlaugur Jónsson bifreiðasmiðir við Sigurð Svarar Indriðason um réttingabransann á Íslandi. Hvar hann stendur í dag og hvernig þeir félagar sjá framtíðina fyrir sér í faginu. Báðir eru þeir með áralanga reynslu og hafa komið að vottunum, endurmenntun og sveinsprófum í bifreiðasmíði.

Listen to the Augnablik í iðnaði podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.