IÐAN fræðsluetur
Augnablik í iðnaði
Podcast by IÐAN fræðsluetur
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Konur í iðnaði með Margréti Halldóru Arnarsdóttur, formanni Félags Fagkvenna 25.11.2021 32:10
Margrét Halldóra Arnarsdóttir er formaður Félags fagkvenna en það er félag kvenna í karllægum iðngreinum. Sjálf er hún rafvirki og þekkir vel þær áskoranir sem fylgja því að starfa í iðngrein þar sem kynjahlutfall er ójafnt. Í viðtalinu fara þau Ólafur Ástgeirsson yfir víðan völl en þau ræða t.d. um val á námi, iðnnám, samningar, karllægt umhverfi og skort á kvenlægum fyrirmyndum í karllægum grein...
Ábyrgðamaður suðumála með Gerry McCarthy, IWE. 18.11.2021 12:12
Gerry McCarty hefur yfir þrjátíu ára reynslu í máliðnaðinum. Hann hefur unnið við kröfulýsingar, hönnun, suðu, rekstur og gæða- og CE merkingar auk þess að vera IWE (International Welding Engineer). Hér spjallar hann við Gústaf A. Hjaltason IWE um ábyrgðamann suðumála hjá fyrirtækum og námskeið sem hann kennir hjá IÐUNNI. Gerry á og rekur fyrirtækið Welding Quality Management Services Ltd á Írland...
Staða og framtíð íslenska eldhússins með Fanneyju Dóru Sigurjónsdóttur eiganda Hnoss 11.11.2021 34:09
Fanney Dóra Sigurjónsdóttir er matreiðslumaður með mikla ástríðu fyrir íslensku hráefni. Ragnar Wessman stjórnandi hlaðvarpsins fyrri matvæla- og veitingasvið fékk hana í spjall um stöðu og framtíð íslenska eldhússins. Fanney Dóra hefur nýopnað veitingastaðinn Hnoss í Hörpunni, ásamt Stefáni Viðarssyni. Fanney Dóra hefur verið í íslenska kokkalandsliðinu frá árinu 2017 og verið stjórnarmaður og va...
Prentlist, sköpun og hönnun með Goddi rannsóknarprófessor við LHÍ 05.11.2021 29:20
Guðmundur Oddur Magnússon, eða Goddur, eins og hann er betur þekkur er rannsóknarprófessor við Listaháskóla Íslands. Hann kom á dögunum í spjall til Gríms Kolbeinssonar um prentlistina, sköpun og hönnun og úr varð hið skemmtilegasa viðtal.
Vottunin Great Place to Work með Elínu Ólafsdóttur, sölu- og mannauðsstjóra hjá Flugger á Íslandi 28.10.2021 22:11
Elín Ólafsdóttir er sölu- og mannauðsstjóri hjá Flugger á Íslandi, en Flugger er eitt af fáum fyrirtækjum á Íslandi sem hefur farið í gegnum og staðist Great Place to Work vottunina. Elín segir okkur allt um Great Place to Work og hvaða ávinning vottunin og allt ferlið i kringum hana hefur fyrir bæði lítil og stór fyrirtæki.
Íslenski prentiðnaðurinn með Díönu Sigurfinnsdóttur viðskiptastjóra hjá Prentmet Odda 21.10.2021 19:18
Díana Sigurfinnsdóttir viðskiptastjóri hjá Prentmet Odda er reynslubolti í faginu. Hún segir stórar breytingar hafa átt sér stað í prentgeiranum á sínum starfsferli. Framtíðin er vissulega björt þar sem liggja tækifæri i umbúðaprentun en hún saknar vissulega bókaprentunarinnar. Skemmtilegt og fræðandi viðtal.
Rekstur trésmíðaverkstæðis með Dagmar Þorsteinsdóttur framkvæmdastjóra Tréborgar 14.10.2021 29:09
Dagmar Þorsteinsdóttir er framkvæmdatstjóri Tréborgar. Hún hefur starfað í geiranum í mörg ár og uppgötvaði ástríðuna fyrir trésmíði eftir að hafa rekið hótel í útlöndum og verið í háskólanámi. Dagleg störf trésmíðaverkstæðis eru mörg og krefjandi og tryggja þarf næg verkefni allan ársins hring.
Stafræn umbreyting í bílgreinum og framleiðslu – reynsla GTC og Volvo 07.10.2021 28:54
Kennarar og verkfræðingar frá GTC – Tækniskólanum í Gautaborg í námsferð hjá IÐUNNI fræðslusetri. Hópurinn heimsótti Borgarholtsskóla, Brimborg, Velti og Artic Trucks og fengu kynningu á starfsemi og nýjungum. Stafræn umbreyting virðist vera stóra áskorunin og hefur áhrif á bíliðnaðinn bæði hvað varðar framleiðslu, viðgerðir og þjónustuþætti . Sigurður sviðsstjóri bílgreinasviðs settist niður með...
Framtíð stafrænnar prentunar með Halldóri Ólafssyni hjá Pixel 30.09.2021 21:38
Halldór Ólafsson annars eigandi PIXEL segir frá sýn sinni á framtíð stafrænnar prentunar og stofnun fyrirtækisins. Það þótti djarft að stofna fyrirtækið árið 2003 en í raun má rekja sögu fyrirtækisins til ársins 1998 og áhrifum sem Halldór varð fyrir í Bretlandi. Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt síðasta áratug og framtíðin er björt.
Eftirlit á málmsuðu með Haraldi Baldurssyni hjá HB tækniþjónustu og Unnari Víðissyni hjá Eflu 23.09.2021 30:54
Hér ræðir Gústaf A. Hjaltason, fagstjóri suðumála hjá IÐUNNI fræðslusetri, við þá Haraldur Baldursson hjá HB tækniþjónustu og Unnar Víðisson frá Eflu um eftirlit á málmsuðu. Eftirlit með hönnun og framkvæmd á verkstað og hvernig gæðastöðlum er framfylgt. Þeir félagar ræða m.a. um skaðlausar prófanir á málmsuðu og hvað þarf til að sinna slíku eftirliti.
Námsstjórnunarkerfi með Aðalheiði Hreinsdóttur, framkvæmdastjóra LearnCove 16.09.2021 18:09
Aðalheiður segir að grunnhugmyndin af kerfinu hafi byrjað sem lokaverkefni nema við HR. Sú hugmynd hefur þróast yfir í fyrirtæki sem býður upp á fjölhæft alþjóðlegt fræðslu- og þjálfunarkerfi.
Áttin, styrkir til starfsmenntunar með Lísbet Einarsdóttur framkvæmdastjóra Starfsafls 09.09.2021 17:58
Lísbet Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Starfsafls, kíkti til okkar í Augnablik í iðnaði til að ræða Áttina. Áttin er vefgátt, sem greiðir leið fyrirtækja að umsóknum að starfsmenntasjóðum og fræðslusetrum, Aðilar að Áttinni eru auk IÐUNNAR, Starfsafl, Landsmennt, Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks, Rafmennt og Samband stjórnendafélaga.
Allt um loftræstikerfi með Karli H. Karlssyni framkvæmdastjóra Blikksmiðsins 11.06.2021 32:00
Kristján Kristjánsson sviðstjóri málm- og véltæknisviðs IÐUNNAR spjallar hér við Karl Hákon Karlsson framkvæmdastjóra Blikksmiðsins um hönnun, uppsetningu og rekstur loftræstikerfa.
Allt um vottanir í kæli- og frystiiðnaði með Kristjáni Kristjánssyni sviðstjóra hjá IÐUNNI 03.06.2021 18:07
Allt um vottanir í kæli- og frystiiðnaði með Kristjáni Kristjánssyni sviðstjóra hjá IÐUNNI by IÐAN fræðsluetur
Framleiðsla á Ólafsson gini með Arnari J. Agnarssyni, framkvæmdastjóra Eyland Spirits 20.05.2021 19:20
Framleiðsla á Ólafsson gini með Arnari J. Agnarssyni, framkvæmdastjóra Eyland Spirits by IÐAN fræðsluetur
Af hverju eigum við að byggja grænt með Þóru Margréti Þorgeirsdóttur sérfræðingi hjá HMS 13.05.2021 24:04
Af hverju eigum við að byggja grænt með Þóru Margréti Þorgeirsdóttur sérfræðingi hjá HMS by IÐAN fræðsluetur
Önnur hlið á bókaútgáfu með Júlíu og Gretu hjá Signatúra Books 06.05.2021 23:09
Önnur hlið á bókaútgáfu með Júlíu og Gretu hjá Signatúra Books by IÐAN fræðsluetur
Stafrænar lausnir í skipulags- og byggingarmálum með Guðmundi K. Jónssyni hjá Planitor 29.04.2021 30:33
Stafrænar lausnir í skipulags- og byggingarmálum með Guðmundi K. Jónssyni hjá Planitor by IÐAN fræðsluetur
Alþjóðlega vottuð rafbílanámskeið með Sigurði S. Indriðasyni bílaverkfræðingi 22.04.2021 29:04
Spjall um rafbílanámskeið IÐUNNAR sem hefur hlotið alþjóðlega vottun með Sigurði Indriðasyni. Í þessu viðtali vörpum við ljósi á ferlið og ávinning vottunarinnar fyrir bíliðnaðinn og þá sem í honum starfa.
Fagháskólanámið í HR og hvernig það nýtist iðnmenntuðum með Lilju Björk Hauksdóttur 15.04.2021 19:38
Lilja Björk Hauksdóttir er verkefnastjóri fagháskólanáms við HR þar sem fagaðilar með iðnmenntun stunda nám. Okkur lék fórvitni á að vita hvernig þetta nýttist fólki með iðnmenntun og fengum hana í heimsókn.
Allt um gluggaísetningar með Bergþóri Inga Sigurðssyni byggingatæknifræðingi 26.03.2021 26:42
Bergþór Ingi er verkefnastjóri hjá Jáverk og skrifaði BSc ritgerð sína í byggingatæknifræði við Háskólann í Reykjavík um aðferðir til ísetnigar og þéttingar meðfram gluggum og hurðum. Þar fjallar hann sérstaklega um kröfur, leiðbeiningar, þróun, aðferðir og mistök.
Gervigreind með Sveini Hannessyni hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Crayon 18.03.2021 27:17
Gervigreind með Sveini Hannessyni hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Crayon by IÐAN fræðsluetur
Stafræn umbreyting með Þresti Sigurðssyni sérfræðingi í þjónustu og nýsköpun 12.03.2021 24:55
Þröstur Sigurðsson, skrifstofustjóri hjá þjónustu- og nýsköpunarsvið hjá Reykjavíkurborg fræðir okkur um um stafræna umbreytingu. Hann útskýrir hvað er stafræn umbreyting, hvernig slíkt ferli byrjar og hvað getur mögulega farið úrskeiðis. Þetta eru hollráð fyrir þá sem vilja kynna sér málaflokkinn betur eða hyggja á starfræna umbreytingu í sínu vinnuumhverfi,
Stafrænar viðurkenningar gera þekkingu þína sýnilegri og verðmætari. Viðtal við Helen Gray 04.03.2021 24:04
Stafrænar viðurkenningar gefa útskriftarskírteinum dýpri merkingu og nýja vídd. Þetta er mikil framför og snýst umræðan núna um notkunarmöguleikana, áreiðanleikann og virðið sem þetta gefur. Helen Gray, þróuanrstjóri IÐUNNAR er hér í fræðandi spjalli um stafrænar viðurkenningar og framtíð þeirra.
Hlutverk og starfsemi stéttarfélaga með Finnbirni Hermannssyni formanni Byggiðnar 25.02.2021 33:12
Viðtal við Finnbjörn Hermansson formann Byggiðnar, félag byggingarmanna. Við ræðum lítilega sögu Byggiðn ásamt því að fræðast um hlutverk og starfsemi stréttarfélaga almennt.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.