Sesselja Vilhjálms
Athafnafólk
Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.
Author
Sesselja Vilhjálms
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 2, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
81. Einar Örn Einarsson, meðstofnandi Serrano, Zócalo og Wok to Walk á Íslandi 02.07.2025 1:19:28
Viðmælandi þáttarins er Einar Örn Einarsson , stofnandi og forstjóri Zócalo . Zócalo er keðja af mexíkóskum skyndibitastöðum sem eru allir reknir sem sérleyfisstaðir meðal annars í London, Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Einar er fæddur árið 1977, gekk í Verzlunarskóla Íslands og kláraði síðar BA gráðu í hagfræði frá Northwestern University í Chicago. Eftir útskrift flutti Einar aftur til Íslands og...
80. Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLK 27.06.2025 1:28:48
Viðmælandi þáttarins er Ragna Sara Jónsdóttir , stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLK . Fyrirtækið er vaxandi íslenskt hönnunarmerki sem hannar og framleiðir vörur úr endurnýjanlegu efni. Ragna er fædd árið 1973 og lá leið hennar í Menntaskólann við Hamrahlíð og síðan lauk hún BA námi í mannfræði frá Háskóla Íslands og starfaði við blaða- og fréttamennsku um árabil. Ragna lauk því næst MSc gráðu í...
79. Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís 27.01.2025 1:25:26
Viðmælandi þáttarins er Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Prís matarverslunarinnar. Gréta er fædd árið 1980 og alin upp á Flateyri og síðar í Seljahverfinu í Reykjavík. Hún fór í Menntaskólann í Reykjavík áður en hún fór út í skiptinám til Bandaríkjanna og útskrifaðist síðan úr Menntaskólanum við Hamrahlíð. Gréta María er með BS og MS próf í verkfræði frá Háskóla Íslands. Gréta hefur víð...
78. Davíð Örn Símonarsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten 24.01.2025 1:19:12
Viðmælandi þáttarins er Davíð Örn Símonarson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten . Smitten er vinsælasta stefnumótaforrit Íslands og stefnir að því að verða stórleikandi á markaði sem Tinder, Bumble og Hinge og önnur stefnumótaforrit hafa hafa ráðið ríkjum. Smitten býður upp á einstaka nálgun þar sem prófílar eru leikjavæddir og persónuleg tengsl eru í forgrunni. Davíð er fæddur árið 1990 og...
77. Pétur Þór Halldórsson, stofnandi og forstjóri S4S 16.01.2025 1:15:44
Viðmælandi þáttarins er Pétur Þór Halldórsson , forstjóri S4S . S4S rekur skóbúðirnar Steinar Waage, Kaupfélagið, Ecco, Skechers og S4S Premium Outlet, ásamt AIR verslununum og Ellingsen í Reykjavík og á Akureyri. S4S rekur einnig heildverslun og á dótturfélagið S4S Tæki sem er tækjadeild Ellingsen. Það vinna um 180 manns hjá S4S ehf. og veltir fyrirtækið um 5,5 ma kr. Pétur er fæddur árið 1964 og...
76. Guðmundur Hafsteinsson, frumkvöðull 14.01.2025 1:30:13
Viðmælandi þáttarins er Guðmundur Hafsteinsson oftast kallaður Gummi, frumkvöðull og stjórnarformaður Icelandair. Gummi hefur starfað hjá stærstu tæknifyrirtækjum í heimi ásamt því að koma að stofnun nokkurra sprotafyrirtækja. Gummi fæddist á Húsavík árið 1975 og er alinn upp í Breiðholtinu. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og kláraði BS próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands...
75. Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku 29.11.2024 1:33:20
Viðmælandi þáttarins er Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku sem er þriðji stærsti raforkuframleiðandi á Íslandi og byggir á grunni Hitaveitu Suðurnesja sem var stofnuð í árslok 1974. HS Orka á og rekur fjórar virkjanir, tvær jarðvarmavirkjanir og tvær vatnsaflsvirkjanir. Það starfa um 90 manns hjá fyrirtækinu og veltir fyrirtækið um 16 ma. kr. Tómas er fæddur árið 1968 og alinn upp á Seltjarna...
74. Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, meðeigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi 27.11.2024 1:09:15
Viðmælandi þáttarins er Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir , stofnandi og meðeigandi Lindex og Gina Tricot á Íslandi. Lindex er sænsk verslunarkeðja sem selur kven- og barnaföt og Gina Tricot er sænsk tískukeðja sem selur kvenmannsföt. Lóa er fædd árið 1979 og alin upp í Flóanum og á Selfossi. Hún gekk í Menntaskólann í Kópavogi og lauk síðan BS prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Eftir...
73. Benedikt Skúlason, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Lauf 11.11.2024 1:50:36
Viðmælandi þáttarins er Benedikt Skúlason , stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf . Lauf er þekktast fyrir framúrstefnulega hjólagaffla sína, en framleiðir nú og selur malar-, götu- og fjallahjól um allan heim. Benedikt er fæddur árið 1984 og alinn upp í Grafarvoginum. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík og lauk síðan BS prófi í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og MS prófi í iðnaðarverkfræði frá C...
72. Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Síríus 07.11.2024 1:20:56
Viðmælandi þáttarins er Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir , forstjóri sælgætisgerðarinnar Nóa Siríus . Sælgætisgerðin var stofnað árið 1920 og framleiðir og selur súkkulaði og sælgæti en árið 2021 var fyrirtækið selt til norska matvæla samsteypunnar Orkla. Sigríður Hrefna er fædd árið 1977 og ólst upp í Breiðholtinu í Reykjavík. Hún gekk í Menntaskólann við Reykjavík og lauk síðan embættisprófi í l...
71. Finnur Oddsson, forstjóri Haga 09.10.2024 1:17:56
Viðmælandi þáttarins er Finnur Oddsson, forstjóri Haga. Hagar er samstæða fyrirtækja sem starfa á íslenskum matvöru-, sérvöru- og eldsneytismarkaði og starfa um 2.600 starfsmenn hjá samstæðunni. Dótturfélög í samstæðu Haga eru Hagar verslanir ehf., (Bónus, Hagkaup og Aðföng), Olís ehf., Bananar (dreifingaðili á grænmeti og ávöxtum), Noron (Zara), Eldum rétt og Stórkaup heildverslun. Finnur er f...
70. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Köru Connect 20.09.2024 1:09:19
Viðmælandi þáttarins er Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir , stofnandi og framkvæmdastjóri Köru Connect , sem tengir saman starfsmenn fyrirtækja við ólíka sérfræðinga í velferð og geðheilbrigðisþjónustu. Í dag býður Kara Connect upp á nýja vöru, velferðartorg fyrirtækja, sem getur nýst stjórnendum vel til að styðja starfsfólk við ólíkar áskoranir í lífi og starfi. Margir kannast við Þorbjörgu úr pólitík...
69. Finnur Pind, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Treble 18.09.2024 1:09:58
Viðmælandi þáttarins er Finnur Pind, framkvæmdastjóri og meðstofnandi Treble Technologies , sem er fyrirtæki sem framleiðir hugbúnað til hljóðhermunar (e. sound simulation). Hugbúnaður Treble er nýttur af fyrirtækjum út um allan heim í bygginga-, tækni- og bílageirum til þess að hanna betri hljóðupplifanir og draga úr hávaða, meðal annars af mörgum af stærstu tækni- og verkfræðifyrirtækjum heims....
68. Margrét Harðardóttir, Senior Vice President hjá Arggosy Real Estate 13.09.2024 1:19:48
Viðmælandi þáttarins er Margrét Harðardóttir , Senior Vice President hjá Arggosy Real Estate Partners (AREP) þar sem hún er yfir fjáröflun og fjárfestatengslum. Fyrirtækið stýrir framtakssjóðum sem fjárfesta í ákveðnum tækifærum í fasteignum á lægra miðstigi markaðarins (e. lower middle market) og hefur nú yfir $3,5 milljarða af fasteignum í stýringu. Margrét er alin upp í Bandaríkjunum og á Ísla...
67. Tryggvi Björn Davíðsson, meðstofnandi indó 29.08.2024 1:30:14
Viðmælandi þáttarins er Tryggvi Björn Davíðsson , meðstofnandi Indó sparisjóðs. Indó kom inn á fastmótaðan bankamarkað í byrjun síðasta árs og hefur hrist upp í markaðnum með því að bjóða upp á nýja einfalda bankaþjónustu á góðum kjörum. Tryggvi er fæddur árið 1973 og ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur. Hann gekk í Menntaskólann á Akureyri og lauk B.S. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.S. grá...
66. Sindri Már Finnbogason, stofnandi Tixly (Tix.is) 01.07.2024 1:54:10
Viðmælandi þáttarins Sindri Már Finnbogason, sem er sjálflærður forritari, en hann byrjaði að forrita á Sinclair Spectrum aðeins 7 ára gamall. Hann kláraði ekki framhaldsskóla heldur fór að vinna sem forritari hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Innn sem þróaði vefumsjónarkerfið LiSA. Árið 2003 stofnaði hann Miði.is sem seldi miða á alla viðburði á Íslandi í mörg ár en Miði.is keypti svo miðasölufyrirtækið...
65. Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga hf. 18.06.2024 1:43:02
Viðmælandi þáttarins er Haraldur Þórðarson, forstjóri Skaga , móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og SIV eignastýringar. Hann er fæddur árið 1979 í Reykjavík og er ættaður úr Dölunum á Vesturlandi en ólst upp í Seljahverfinu í Reykjavík. Haraldur gekk í Menntaskóla Reykjavíkur og þaðan lá leiðin í Háskólann í Reykjavík þar sem hann lauk BS prófi í viðskiptafræði. Hann lauk svo MBA-gráðu frá...
64. Anna Regína Björnsdóttir, forstjóri Coca Cola á Íslandi 12.06.2024 1:03:03
Viðmælandi þáttarins er Anna Regína Björnsdóttir , forstjóri Coca-Cola Europacific Partners á Íslandi (CCEP). CCEP er leiðandi fyrirtæki í neytendavöru á heimsvísu og er með starfsemi í 30 löndum í Evrópu, Asíu og Eyjaálfu. Starfsmenn fyritækisins eru 45 þúsund og þjónar fyrirtækið yfir 600 milljón neytendum. Anna Regína er fædd árið 1982 og er alin upp í Kópavogi. Hún gekk í Menntaskólann í Kópav...
63. Ægir Þorsteinsson, meðstofnandi Hopp og framkvæmdastjóri Aranja 29.04.2024 1:16:54
Viðmælandi þáttarins er Ægir Þorsteinsson , framkvæmdastjóri Aranja og einn stofnanda Hopp . Ægir er fæddur árið 1985 og ólst upp á Seltjarnarnesi og á Landsbyggðinni. Hann flutti að heiman eftir 10. bekk til að fara á tölvubrautina í Iðnskólanum og hélt áfram í Háskólann í Reykjavík þar sem hann kláraði B.S. í tölvunarfræði. Ægir vann að netbönkum Landsbankans eftir útskrift og síðan hjá Red Gate...
62. Halla Tómasdóttir, frumkvöðull og forstjóri B-Team 26.03.2024 1:17:36
Viðmælandi þáttarins er Halla Tómasdóttir , forstjóri B-Team og frambjóðandi til forsetakosninga Íslands árið 2024. B-Team eru samtök alþjóðlegra leiðtoga sem vinna saman að sjálfbærni, jafnrétti, jöfnuði og aukinni ábyrgð í forystu og viðskiptum. Halla er fædd árið 1968 og ættuð af Vestfjörðum og úr Skagafirði en alin upp á Kársnesinu í Kópavogi. Hún er rekstrarhagfræðingur frá Auburn University...
61. Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs CRI 26.02.2024 1:26:30
Viðmælandi þáttarins er Björk Kristjánsdóttir , framkvæmdastjóri rekstrar- og fjármálasviðs Carbon Recycling International (CRI). CRI hefur þróað leiðandi tæknilausn á heimsvísu sem gerir viðskiptavinum þeirra kleift að framleiða metanól á umhverfisvænan hátt úr koltvísýringi og vetni, sem síðan er hægt að nýta sem grænan orkugjafa eða í efnavörur. Í dag starfa rúmlega þrjátíu m...
60. Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Öldu 21.02.2024 1:27:50
Viðmælandi þáttarins er Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé , stofnandi og framkvæmdastjóri Öldu . Alda er hugbúnaðarfyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að meta og auka fjölbreytileika og inngildingu með örfræðslu, inngildingarkönnun, aðgerðaráætlun og mælaborði. Alda hugbúnaðurinn fór í loftið haustið 2023 og var í lok þess árs valinn á lista ráðgjafafyrirtækisins Gartner yfir leiðandi tæknilausnir sem b...
59. Garðar Stefánsson, framkvæmdastjóri Good Good 04.02.2024 1:20:16
Viðmælandi þáttarins er Garðar Stefánsson , meðstofnandi og forstjóri matvælafyrirtækisins GOOD GOOD. Fyrirtækið framleiðir m.a. sykurlausar sultur, sætuefni og súkkulaði- og hnetusmjör. GOOD GOOD hefur safnað um $25m+ frá fjárfestum og sækir nú fram á Bandaríkjamarkaði. Garðar er fæddur árið 1984 og ólst upp í Langholtshverfinu. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi í hagfræði...
58. Jón Þór Gunnarsson, forstjóri Kaldalóns 31.01.2024 1:14:42
Viðmælandi þáttarins er Jón Þór Gunnarsson , forstjóri Kaldalóns, fasteignafélags sem er skráð á íslenska aðalmarkaðinn. Jón er fæddur árið 1985 og ólst upp í Hafnarfirðinum. Hann gekk í Verslunarskóla Íslands og lauk síðan BS prófi umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og MS prófi í byggingaverkfræði frá DTU háskólanum í Danmörku. Jón hefur starfað sem verkfræðingur hjá Mannviti, s...
57. Birgir Örn Birgisson, fjárfestir og fv. forstjóri Dominos 30.01.2024 1:26:37
Viðmælandi þáttarins er Birgir Örn Birgisson, fjárfestir og fyrrverandi forstjóri Domino’s. Birgir er fæddur árið 1972 og ólst upp á Borgarnesi og fór síðan í Menntaskólann á Akureyri. Hann flutti til Reykjavíkur og lauk BS í hagfræði frá Háskóla Íslands og frá Pompeu Fabra Barcelona. Birgir starfaði í 10 ár sem forstjóri Domino’s á Íslandi og 13 ár sem “Group Managing Director” hjá Strax en hann...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.