Pyngjan
Pyngjan
Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Föstudagskaffið: Hvað gerðiru við peninginn sem frúin í Framsókn gaf þér? 13.09.2024 1:08:20
Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er vægast sagt stútfullur. 1 klst og 8 mín. af gæðatuði og fleiru til að gera hlustendur klára inn í helgina. Veðmál, hrun Evrópu, regluverk, upprunarvottorð, fjármálamýtur og margt fleira til. Takk fyrir að hlusta á okkur.
Föstudagskaffið: Tónlistarmenn mega ekki græða 06.09.2024 1:03:46
Sendu okkur skilaboð! Gleðilega helgi kæru launþegar! Hér fáiði ylvolgan þátt til að hlýja ykkur í umferðinni á leið til vinnu. Við erum til staðar fyrir ykkur og við viljum að þú vitir að þú skiptir máli.
Föstudagskaffið: Er LinkedIn nýja stefnumótaforritið? 30.08.2024 56:11
Sendu okkur skilaboð! Kæra Pynjusamfélag! Hér færum við ykkur þátt dagsins á silfurfati. Ekki gera þau mistök að láta hann sem vind um eyru þjóta því umfjöllunarefnin eru stórbrotin eins og alltaf hjá þeim Adda og Idda. Góða helgi, kæru launþegar!
Föstudagskaffið: Er Nike búið að missa það? 23.08.2024 53:40
Sendu okkur skilaboð! Kæru hlustendur! Þáttur dagsins er gott sem tímalaus svo það skiptir nákvæmlega engu máli hvenær þú hlustar á hann. Misheppnaðar markaðsherferðir, dvínandi markaðshlutdeil Nike og Fórnir risar eru dæmi um liði sem verður farið yfir svo þú, kæri hlustandi, vilt ekki missa af þessu. Gangið hratt um gleðinnar dyr um helgina!
Föstudagskaffið: Let's talk about Olive oil 16.08.2024 49:48
Sendu okkur skilaboð! Gleðilegan föstudag kæru Pyngjuhálsar. Þáttur dagsins er ekki eingöngu helgaður ólífuolíu þó titillinn gefi annað til greina. Að sjálfsögðu eru fréttir vikunnar á sínum stað og svo reifar Addi nýútgefinn ríkisreikning. Góðar stundir og góða helgi!
Föstudagskaffið: Er ekki komið nóg af parking fyrirtækjum á Íslandi? 09.08.2024 58:37
Sendu okkur skilaboð! Kæru vinir Pyngjunnar! Þeir eru mættir aftur saman tveir á bakvið hljóðnemana þeir Addi og Iddi með sjóðheitar fréttir og laglegar umfjallanir. Alls ekki missa af þessum, hann er rosalegur!
Föstudagskaffið: Arnór Hreiðarsson kíkir í kaffi 02.08.2024 1:14:45
Sendu okkur skilaboð! Í dag mætti til okkar afar sjaldgæfur blendingur launþega og frumkvöðuls. Svokallaður launkvöðull eða frumþegi - þið ráðið. Arnór starfar sem söluráðgjafi Business central hjá Origo á daginn en á kvöldin og um helgar sinnir hann sölu víns og kaffivéla. Stórskemmtilegur þáttur þó við segjum sjálfir frá og hellingur af fróðleiksmolum um business central fyrir ykkur braskarana.
Föstudagskaffið: Kampavínsspeki með Stefáni Einari 26.07.2024 1:25:06
Sendu okkur skilaboð! Í þessum stórskemmtilega þætti förum við yfir kampavínsmarkaðinn með Stefáni Einari en hann er ekki einungis fremsti blaðamaður landsins um þessar mundir heldur einnig sérfræðingur í kampavíni og líklega fremstur á landinu í þeim efnum einnig. Það var því vel við hæfi að fá hann til að skóla okkur til í þessum fræðum. Missið ekki af þessum!
Föstudagskaffið: Myndlistaspeki með Sigurði Sævari 19.07.2024 1:18:38
Sendu okkur skilaboð! Sigurð Sævar þarf vart að kynna fyrir landsmönnum, en hann er einn okkar allra efnilegasti myndlistamaður ef hann er þá ekki hreinlega kominn í flokk þeirra allra bestu. Við fórum yfir ferilinn og myndlistamarkaðinn ásamt fleiru í þessum stórskemmtilega þætti sem þú ættir ekki að missa af.
Föstudagskaffið: Kíró biz með Vigni Kíró 12.07.2024 1:23:01
Sendu okkur skilaboð! Brútal business þáttur fyrir ykkur þennan föstudaginn gott fólk. Vignir kíró er mikill hugsjónamaður og hefur náð stórbrotnum árangri á skömmum tíma sem eigandi Líf Kíró. Þáttur sem enginn með frumkvöðlablóð má láta fram hjá sér fara.
Föstudagskaffið: Idda vantar lompur 05.07.2024 1:07:31
Sendu okkur skilaboð! Gleðilegan föstudag kæru Pyngjuhálsar! Þáttur dagsins er stappaður af viðskiptum og vitleysu sem fyrr. Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist, þetta er Pyngjaaaan! Góða helgi kæru launþegar.
Föstudagskaffið: Pay me bitch 28.06.2024 1:05:28
Sendu okkur skilaboð! Það var stuð á þeim Adda og Idda þennan föstudaginn í stútfullum þætti af viðskiptum og vitleysu eins og svo oft áður. Allar kvartanir berist á pyngjan@pyngjan.is. Góðar stundir
Föstudagskaffið: Tilgátan um fækkun ferðamanna er leyst 21.06.2024 1:07:29
Sendu okkur skilaboð! Já þið sjáið það hér svart á hvítu kæru hlustendur að tilgátan er leyst og það er ekki vegna eldgoss né of sterkrar krónu. Þeir Addi og Iddi fara yfir víðan völl í þætti dagsins og segja má að hér sé eitthvað fyrir alla. Gangið hægt inn í helgina en ekki of hægt.
Föstudagskaffið: Tips fyrir fyrirtækjaeigendur & servíettusamningar 14.06.2024 1:04:43
Sendu okkur skilaboð! Föstudagur er genginn í garð og það þýðir aðeins eitt kæru hlustendur, það er Ylvolgur Kalli og business. Farið varlega inn í helgina.
Föstudagskaffið: Dr. Pepper sækir í sig veðrið en Evrópa hrynur 07.06.2024 1:01:32
Sendu okkur skilaboð! Já það er drekkhlaðinn þáttur úr smiðju Pyngjunnar þennan föstudagsmorguninn. Fréttir, fróðleikur og frábær hlaðvörpun í boði Adda og Idda. Eigið yndislega helgi, kæru launþegar.
Föstudagskaffið: Koma Kónga- og Drottningardeildirnar til Íslands? 31.05.2024 1:07:31
Sendu okkur skilaboð! Gleðilegan föstudag, kæru launþegar! Þáttur dagsins er sá besti hingað til. Þú munt samt auðvitað ekki komast að því nema þú hlustir. Takk fyrir okkur.
Föstudagskaffið: Misheppnað útboð, suðupunktur Ingu Tinnu & K-pop 24.05.2024 1:07:05
Sendu okkur skilaboð! Það var uppi fótur og fit í Seðlabanka Kópavogs þegar þeir Addi og Iddu settust á bakvið hljóðnemana þennan föstudagsmorguninn. Austurlandablæti Idda heldur áfram en í dag fjallar hann um K-pop markaðinn, ásamt 8-pop sem Addi hefur mikla reynslu af. Auk þess eru fréttir vikunnar á sínum stað og svo slær Iddi botninn í þetta með umfjöllun sinni um rauða humarinn sem er gjaldþr...
Föstudagskaffið: Hlutafjárútboð, Memebréf & Brunnahagkerfi 17.05.2024 1:07:17
Sendu okkur skilaboð! Gleðilegan föstudag kæru Pyngjuhálsar! Þáttur dagsins er drekkhlaðinn af fréttum og fróðleik sem endranær, enda nóg um að vera í vikunni. Við hvetjum því alla til að leggja við hlustir og sömuleiðis taka kvittun fyrir öllu sem þú kaupir.
Föstudagskaffið: Er tími snjallsímans uppurinn? 10.05.2024 1:05:27
Sendu okkur skilaboð! Í þætti dagsins erum við með nóg af fréttum og svo kemur Iddinn með tvær heimsklassa umfjallanir. Þetta er einn af þessum þáttum sem enginn má missa af. Góð helgi, kæru kúrekar og launþegar.
Föstudagskaffið: vinnustaðar topplistinn snýr aftur 03.05.2024 1:03:39
Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er stappaður af gúmmelaði fyrir okkar ástkæru netbankakúreka. Fréttir vikunnar, Inn- og útflutningur á Ítalíu, milljarðamæringur vikunnar og að ógleymdum vinnustaðar topplistanum í boði Idda. Góða helgi kæru launþegar!
Föstudagskaffið: María Lena stofnandi M-Fitness & Hannes karlinn hennar 26.04.2024 1:06:39
Sendu okkur skilaboð! Þau komu til okkar María og Hannes sem saman reka fatamerkið M-Fitness. Saga þeirra er stórmerkileg en merkið hefur hlotið mikillar velgengni sem kom svo sannarlega ekki af sjálfri sér, en í þættinum rekja þau söguna aftur og gefa okkur smjörþef af því hvernig skal bera sig að í frumkvöðlastarfsemi. Þennan þátt skaltu ekki láta framhjá þér fara, kæri hlustandi!
Föstudagskaffið: Iddi dreypir á einum Welding 19.04.2024 54:23
Sendu okkur skilaboð! Stútfullt föstudagskaffi að vanda - tvær umfjallanir frá Iddanum og fréttir vikunnar hjá Addanum. Góðar stundir
Föstudagskaffið: Krónískur afsláttur hlutabréfa í Kóreu 12.04.2024 1:03:11
Sendu okkur skilaboð! Í þætti dagsins má heyra yfirborðskennda en þó merkilega umfjöllun um Suður-Kóreskan markað og krónískan hlutabréfaafslátt þar í landi. Við kynnum einnig til leiks nýjan dagskrárlið og svo eru fréttir vikunnar á sínum stað. Gangið hratt inn um gleðinar dyr um helgina kæru kúrekar.
Föstudagskaffið: Iddi fjárfestir í Tequila 05.04.2024 1:05:41
Sendu okkur skilaboð! Já kæru hlustendur, við Pyngjumenn látum ekki deigan síga þennan föstudaginn frekar en þann fyrri , en þáttur dagsins er stútfullur af alls konar lostæti. Fréttir vikunnar, tuð og umfjöllun á heimsmælikvarða um fjárfestingar í Tequila. Gangið af hörku inn í helgina!
Föstudagskaffið: Um páskana ætlar Yssi að skíða, skíða, skíða en Assi ætlar vera heima að.... 29.03.2024 1:07:47
Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið er lengra en föstudagurinn langi þennan föstudaginn. Samsæriskenningar um landbúnaðarmálið, verðlagning skíðasvæða og Óopnir reikningar ríkisins teknir fyrir í lengsta þætti á lengsta degi ársins.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.