Pyngjan
Pyngjan
Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Föstudagskaffið: Margt það fína er framleitt í Kína og það vita Gummi og Lína 22.07.2022 46:47
Sendu okkur skilaboð! Í Föstudagskaffi dagsins er m.a. tekið á stóra máli líðandi fréttaviku en það er hið margrómaða gleraugnamál. Svo er góðvinur þáttarins, Elon Musk búinn að koma sér í vandræði sem fyrr og Evrópu sambandið hækkar vexti í fyrsta sinn í 11 ár. Ásamt þessu brá nokkrum liðum fyrir í þætti dagsins og þar ber helst að nefna Milljónamæringur vikunnar, Fyllibytta vikunnar og Deep into...
Ársreikningar: Líf & List 19.07.2022 48:56
Sendu okkur skilaboð! Já nú erum við vissir um að einhverjir iði í skinninu fyrir hlustun dagsins en Líf og list er þessi týpiska "go-to" gjafavöruverslun margra fyrir brúðkaupið eða jólagjöfina. En hver hefur ekki velt því fyrir sér hvurslags formúgur liggja í Pyngjunni hjá þeim? Hér fáiði svörin, hlustendur góðir og meira til! Þátturinn er í boði: Keldan - https://keldan.is/ Payday -...
Föstudagskaffið: Hver Íslendingur spanderar 9 lítrum af olíu á dag (að meðaltali) 15.07.2022 40:52
Sendu okkur skilaboð! kaffinu hefur verið sullað þennan föstudaginn. Í dag eru tvö mál á dagskrá: Olíuviðskipti og hagkerfi í múslima ríkjum. Þátturinn er í boði: Baka Baka - https://www.bakabaka.is/ Landsbankans - https://www.landsbankinn.is/einstaklingar/kort-og-greidslur/aukakronur Lavazza - https://www.lavazza.is/ Skruf
Ársreikningar: Fjarðarkaup 12.07.2022 1:14:49
Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er helgaður kaupmanninum á horninu. Fjarðarkaup er the ultimate hornskaupmaður en fyrirtækið hefur verið starfrækt frá árinu 1973 og virðist hvergi nærri hætt. Reksturinn hefur að öllum líkindum skilað Sigurbergi eiganda á meðal ríkustu aðila landsins en upphæðirnar sem koma fram í ársreikningum félaga tengd honum eru lygilegar. Þátturinn er í boði: Keldan - ht...
Föstudagskaffið: Allir Norðmenn eru milljónamæringar 08.07.2022 46:54
Sendu okkur skilaboð! Gleðilegt föstudagskaffi kæru hlustendur. Í þætti dagsins er norski olíusjóðurinn m.a. ræddur gaumgæfilega og í ljós kemur að þetta er stærsti þjóðarsjóður heims. Ingvi fer yfir uppruna Lavazza og svarar spurningunni afhverju enginn sé stúrinn frá Túrin og svo að sjálfsögðu endum við á milljónamæringi vikunnar sem er stórmögnuð saga af stofnanda Costco sem vann sig upp frá þv...
Ársreikningar: Costco 05.07.2022 1:06:40
Sendu okkur skilaboð! Já þið lásuð rétt. Costco er okkar nýjasta bráð, en hver man ekki eftir brjálæðinu sem fylgdi innreið þeirra á íslenskan markað? Við teygjum okkur inn fyrir þeirra djúpu pyngju og skoðum samanburð á "svipuðum" fyrirtækjum á Íslandi. Góðar stundir.
Fösudagskaffið: Áfengissala Heimkaupa mun gera okkur öll að alkóhólistum 01.07.2022 40:32
Sendu okkur skilaboð! Já, það er heitt og sótsvart kaffið þennan föstudaginn en í þætti dagsins verður tekið á stóra áfengismáli Heimkaupa og saga einokunar á áfengi rakin. Ingvi kynnir okkur svo fyrir milljónamæringi vikunnar sem þó lést í vikunni en einnig tekur hann fyrir lista af ríkustu erfingjum heims. Einnig bregður fyrir lista yfir ríkustu gæludýrum heims en á toppnum trónir þýski shepherd...
Ársreikningar: Stjörnu (popp & snakk) 28.06.2022 56:56
Sendu okkur skilaboð! Ársreikninga Pyngja dagsins er sennilega sú sem hefur komið okkur hvað mest á óvart. Skyggnst var inn fyrir pyngjur hins fornfræga Iðnmarks sem er fyrirtækið á bakvið Stjörnupopp og Stjörnusnakk en félagið er á hraðri leið að verða að öflugu fjárfestingafélagi sem auk framleiðslu á gæðavörum á orðið gommu af fasteignum, dass af hlutabréfum og nóg af snakki.
Föstudagskaffið: Ásgeir í Aurabankanum og Skattaparadísin Stöðvarfjörður 24.06.2022 40:28
Sendu okkur skilaboð! Við þorum nánast að fullyrða að föstudagskaffið hafi aldrei verið eins heitt og í dag. Það er hreinlega farið um of víðan völl til að summera það upp hér í nokkrum setningum svo við segjum bara hlustun er sögu ríkari!
Ársreikningar: Kírópraktorstöð Reykjavíkur 21.06.2022 1:03:18
Sendu okkur skilaboð! Í þætti dagsins förum við yfir iðnað sem allir vilja heyra um. Viðskiptamódel kírópraktorstöðva hefur lengi verið landanum hugleikið en það segir sig sjálft að troðfull biðstofa af sjúklingum sem tekur ekki lengur en 5-10 mínútur að meðhöndla sé ávísun á sjálfbæra peningavél. Eða hvað?
Föstudagskaffið: Ásgeir hvetur fyrstu kaupendur til að rotta sig saman við íbúðarkaup 17.06.2022 43:41
Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið þennan morguninn er stútfullt af fréttum, drama og tuði. Arnar efast um skoðanir tveggja virtustu hagfræðinga landsins og tuðar yfir hagstjórn Seðlabankans sem fyrr. Ingvi leiðir okkur í gegnum shrinkflation, sem hann sjálfur kallar samdráttarbólgu, en þýði hver fyrir sig. Einnig bregður fyrir fjaðrafoki í danska kvikmyndaiðnaðinum og drama í rafmyntasamfélagi...
Ársreikningar: Ísbúð Huppu 14.06.2022 59:38
Sendu okkur skilaboð! Eftir ótal fyrirspurnir þá létum við loks verða að því að fara yfir Huppuævintýrið, en ísbúðin hefur á skömmum tíma náð að festa sig í sessi sem ein vinsælasta ísbúð landsins og rekur í dag 7 útibú. Við förum yfir rekstrarsögu fyrirtækisins frá upphafi ásamt samanburði við aðrar ísbúðir á markaðnum sem eru þónokkrar. Góða hlustun!
Föstudagskaffið: Búlgörsk vinkona Ásdísar Ránar á bak og burt með $4B 10.06.2022 45:13
Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið er vægast sagt í heitara lagi þennan morguninn en þátturinn er stútfullur af spjalli og pælingum. Ingvi fer yfir top 3 verstu Crypto svindl sögunnar sem eru vægast sagt áhugaverð. Gunnars, sem allir hlustendur Pyngjunnar ættu að kannast við, var nýlega selt til Kaupfélags Skagfirðinga sem verður gert nánari skil í þætti dagsins. Milljónamæringur vikunnar er á...
Ársreikningar: Útboð Nova (1/2) - Samantekt 07.06.2022 43:50
Sendu okkur skilaboð! Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum sem fylgst hafa með fréttum nýlega að skráning Nova á hlutabréfamarkað er yfirvofandi en þáttur dagsins, sem er tvískiptur, er helgaður útboðinu frá toppi til táar. Í þessum fyrri hluta rennum við létt yfir sögu fyrirtækisins, snertum aðeins á fjárfestakynningunni og reifum nýjasta ársreikning fyrirtækisins.
Ársreikningar: Útboð Nova (2/2) - Margrét Tryggvadóttir (Forstjóri) & Magnús Árnason (Stafræn þróun og markaðsmál) 07.06.2022 50:19
Sendu okkur skilaboð! Í þessum seinni þætti af útboði Nova koma til okkar þau Margrét Tryggvadóttir forstjóri og Magnús Árnason yfirmaður stafrænnar þróunar og markaðsmála. Við förum yfir söguna, reksturinn og framtíðarhorfur í skemmtilegu spjalli sem enginn Pyngjuunnandi ætti að láta framhjá sér fara!
Föstudagskaffið: Netbankakúrekarnir leggjast á ráðin 03.06.2022 32:23
Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið sullast út um allt borð þennan morguninn en meðal umræðuefna er frekari greining á morgunkornaumræðunni úr síðasta þætti, en okkur áskotnuðust sölutölur á íslenska markaðnum frá ónefndum die hard aðdáanda. Niðurstöður á útboði Ölgerðarinnar koma einnig við sögu ásamt tilkynningu fyrir næsta ársreikningaþátt Pyngjunnar. Svo er Milljónamæringur vikunnar á sínum...
Ársreikningar: Nings 31.05.2022 51:34
Sendu okkur skilaboð! Asíski veitingastaðurinn Nings ætti að vera orðinn flestum Íslendingum kunnugur en staðurinn hefur verið í rekinn í 31 ár og átt góðu gengi að fagna... að minnsta kosti út á við en ef ársreikningar staðarins eru skoðaðir má lesa aðra sögu. Í þættinum fara Arnar og Ingvi yfir þunga rekstrarsögu Nings sem er umvafin skuldum og tapi. Já, það eru ekki alltaf jólin í þessu en þó...
Föstudagskaffið: Er Cocoa Puffs að hasla sér völl á próteinmarkaði? 27.05.2022 36:11
Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið þennan föstudaginn er ekki volgt og viðurstyggilegt frekar en fyrri vikuna. Stutt en hnitmiðuð yfirferð um morgunkornarmarkaðinn og endurkomu Cocoa Puffs aftur til Íslands ásamt ítarlegri yfirferð um hafnaboltaliðið Savannah Bananas. Að lokum rýnum við í pyngju Haralds Ueno sem er drekkhlaðin og flæðir krónum og aurum í ríkissjóð, skattgreiðendum öllum til góð...
Ársreikningar: Hið Íslenzka Reðasafn 24.05.2022 53:30
Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er undirlagður getnaðarlimum í orðsins fyllstu merkinu. Hið Íslenzka Reðasafn hefur síðastliðin 25 ár haldið úti hundruðum þeirra til sýnis og er fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Mögnuð saga um þetta sértæka áhugamál Sigurðar Hjartarsonar sem vatt heldur betur upp á sig!
Föstudagskaffið: Við erum stödd í miðri Ásgeirsbólgu 20.05.2022 40:00
Sendu okkur skilaboð! Það er sótsvart og sykurlaust föstudagskaffi dagsins! Helvítis verðbólgan (Ásgeirsbólgan) kemur við sögu eins og svo oft áður en nú með fróðlegu og skemmtilegu ívafi, Möet og Louis Vuitton er í eigu sama manns og Davíð frá Unity leggur sitt á vogarskálarnar í baráttu við loftslagsdjöfulinn. Þetta og margt fleira í Föstudagskaffinu!
Ársreikningar: Útboð Ölgerðarinnar (2/2) - Andri Þór Guðmundsson forstjóri 17.05.2022 42:04
Sendu okkur skilaboð! Í þessum seinni hluta tökum við viðtal við sjálfan forstjóra Ölgerðarinnar, Andra Þór Guðmundsson og spurðum hann spjörunum úr. Nauðsynleg hlustun fyrir alla þá sem hafa hug á að taka þátt í útboðinu!
Ársreikningar: Útboð Ölgerðarinnar (1/2) - Samantekt 17.05.2022 45:30
Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er tvískiptur, en í þessum fyrri hluta rennum við yfir nýjasta ársreikning Ölgerðarinnar og fjárfestakynningu fyrir komandi útboð. Í síðari hluta (sem kemur inn seinna í dag) mun Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðarinnar mæta til okkar í létt spjall um fyrirtækið og útboðið sem er framundan.
Föstudagskaffið: Steve Jobs fann ekki upp tölvumúsina 13.05.2022 44:18
Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffi dagsins er stútfullt af allskonar fróðleik, misjafnlega nytsömum þó. Ef þú átt Ipod niðri í geymslu þá getur þú selt hann á fúlgu fjár. Eurovision keppnin kemur einnig við sögu en auðvitað var ekki hægt að skauta fram hjá keppninni þar sem Arnar er Euromaniac. Að lokum fer Ingvi svo yfir fall rafmyntarinnar Terra (LUNA) sem hefur fallið um rúm 99% síðasta sóla...
Ársreikningar: Fjármál sveitarfélaganna (2/2) - Höfuðborgarsvæðið 10.05.2022 1:00:38
Sendu okkur skilaboð! Í þætti dagsins gerum við aðra tilraun í að upplýsa hlustendur um fjármál sveitarfélaganna. Að þessu sinni var höfuðborgarsvæðið skoðað nánar en það eru Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes. Til að hrista aðeins upp í þessu fór Ingvi svo yfir veitingar flokanna á kosningardag en sjálfur kýs hann þann flokk sem býður upp á bestu veitingar...
Föstudagskaffið: Seðlabankastjóri spilar á fiðluna á meðan húsnæðismarkaður brennur 06.05.2022 38:02
Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið er veglegt að þessu sinni. Raðfullnægingarfrumkvöðullinn og Ólígarkinn Oleg Tinkov og Pútín í hár saman, Ásgeir Seðlabankastjóri óumdeildur skúrkur vikunnar og leiðinlegu snekkju aparnir sem sprengja skalann í rafeignamyndun, svo fátt eitt sé nefnt í föstudagskaffi dagsins. Föstudagskaffi Pyngjunnar er í boði Brauð & co. og Lavazza kaffi.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.