Pyngjan

Pyngjan

Business IS ↓ 266 episodes

Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda. 

Author

Pyngjan

Category

Business

Podcast website

Www.pyngjan.is

Latest episode

Feb 28, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Ársreikningar: Fjármál sveitarfélaganna (1/2) - Landsbyggðin 03.05.2022

Sendu okkur skilaboð! Í þætti dagsins drukknum við Pyngjubræður í grunnu lauginni. Við gerðum heiðarlega tilraun til þess að fara yfir 2021 ársreikninga sex stærstu sveitafélaga á landsbyggðinni (Þó aðeins fimm). Afraksturinn gæti orðið umdeildur en við reyndum okkar besta í að miðla þessum óspennandi upplýsingum. Tengill á veflausn Brynjólfs Gauta: https://bggj.shinyapps.io/maelabord_arsreikninga...

Föstudagskaffið: Er Range Rover bólan að hefjast á ný? 29.04.2022

Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið er nýr þáttur hjá Pyngjunni þar sem Arnar og Ingvi renna á léttu nótunum yfir nokkrar vel valdar fréttir úr viðskiptalífinu síðastliðna viku en auk þess mun föstum liðum bregða fyrir reglulega. Þættirnir koma inn á föstudagsmorgnum og eru ætlaðir Pyngjuaðdáendum til yndisauka yfir föstudagsbollanum fyrir vinnu, á leið í vinnu, við vinnu, í kaffitímanum eða bar...

Ársreikningar: Core (NOCCO) & Nexus 26.04.2022

Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er ekki af verri endanum þó við segjum sjálfir frá en í honum kryfjum við yfirgengilega upprisu Core heildsölu sem er hvað þekktust fyrir drykkjarvörumerkið NOCCO sem kom yfir landann líkt og flóðbylgja árið 2015 og virðist ekki vera á neinni útleið. Heimildir Pyngjunnar herma að Core sé búið að tryggja samninga við risastóran birgja sem hingað til hefur verið...

Ársreikningar: Leynilaugin & Gunnars 19.04.2022

Sendu okkur skilaboð! Það er óhætt að segja að þáttur dagsins sé gjörsamt eyrnakonfekt þó hann sé eflaust ekki mikið fyrir augað. Uppgangur Leynilaugarinnar, betur þekkt sem Secret Lagoon, er lýginni líkastur og ef kíkt er á ROI (Return on investment) félagsins er ekki ólíklegt að vasareiknirinn sýni villumeldingu. Hvað Gunnars varðar þá mun ykkur hlustendum líklega ekki gruna hvurslags sukkerí og...

Ársreikningar: Uppskeruhátíð 1.seríu ásamt Jakobi Birgissyni 12.04.2022

Sendu okkur skilaboð! Í þætti dagsins er fyrsta sería Pyngjunnar gerð upp. Okkur til halds og traust er Jakob Birgisson grínisti, uppistandari og auglýsingasmiður sem hefur verið einn okkar dyggasti hlustandi frá byrjun. Farið var yfir landslag fyrstu seríu á léttu nótunum og eins og öllum góðum uppskeruhátíðum sæmir voru viðurkenningar veittar fyrir hin ýmsu verk.

Föstudagskaffið: Hóf í búðum SKEL á næsta tungli 08.04.2022

Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið er nýr þáttur hjá Pyngjunni þar sem Arnar og Ingvi renna á léttu nótunum yfir nokkrar vel valdar fréttir úr viðskiptalífinu síðastliðna viku en auk þess mun föstum liðum bregða fyrir reglulega. Þættirnir koma inn á föstudagsmorgnum og eru ætlaðir Pyngjuaðdáendum til yndisauka yfir föstudagsbollanum fyrir vinnu, á leið í vinnu, við vinnu, í kaffitímanum eða bar...

Ársreikningar: SS & Klappir (First North special) 05.04.2022

Sendu okkur skilaboð! ATHUGIÐ - þessi þáttur er ekki fjárfestingarráðgjöf.  Í þætti dagsins kíkjum við á tvö félög sem eiga það sameiginlegt að vera með hluta eignarhalds á First North markaðnum. Fyrirtækin eru þó eins ólík og þau gerast en SS hefur verið grunninnviður í íslenskri matarmenningur frá árinu 1907 á meðan Klappir er tiltölulega nýlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í grænum lausnum.  SS -...

Ársreikningar: Hreyfill & Mandí 29.03.2022

Sendu okkur skilaboð! Í þætti dagsins eru tekin fyrir tvö ólík fyrirtæki sem þó haldast hönd í hönd í virðiskeðju íslensks skemmtanalífs. Framboðsskortur Hreyfils virðist vera að gera landann gráhærðan um þessar mundir en lifir þó nokkuð góðu lífi með pungdjúpar pyngjur í sínum vörslum, þrátt fyrir taprekstur árin 2019 og 2020. Mandí hefur átt ævintýralegu gengi að fagna frá því þau komu Shawarma...

Ársreikningar: Blush & Sómi 22.03.2022

Sendu okkur skilaboð! Þegar þriðjudagsklukkurnar hringja, þá er komin ný Pyngja í boði Arnars og Ingva! Í þætti dagsins er boðið upp á tvo ársreikninga af dýrari gerðinni. Gerður í Blush hefur séð tímana tvenna, þrátt fyrir ungan aldur og það má með sanni segja að hún sé fullkomin skilgreining á HSHD (Hugsjónakona sem hlær í dag). Eigendur Sóma virðast einnig hlægja alla leið í bankan  ár eftir ár...

Ársreikningar: Löður & Brauð og co. 15.03.2022

Sendu okkur skilaboð! Það er óhætt að segja að þáttur dagsins sé ekki af verri endanum. Sem fyrr verða skoðuð tvö landsþekkt fyrirtæki sem þó hafa átt misjöfnu gengi að fagna. Það hreinlega sér ekki fyrir endan á velgengni Löðurs þar sem stefnt er að arðgreiðslu sem á sér engin fordæmi í sögu Pyngjunnar. Brauð og co. hafa hins vegar átt á brattann að sækja þegar vel er að gáð, þrátt fyrir gífurleg...

Ársreikningar: Eldum rétt & Te og kaffi 08.03.2022

Sendu okkur skilaboð! Í þætti dagsins tökum við fyrir tvö skemmtileg fyrirtæki að vanda. Eldum rétt hafa verið í gríðarlegum vaxtafasa undanfarið en þó var það ekkert hægðarverk fyrir eigendur að koma fyrirtækinu á réttan kjöl. Te og Kaffi hafa átt erfið rekstrarár undanfarið en árið 2020 var þeim gjöfult í ljósi óvenju lágs launakostnaðar. Farið eru um víðan völl og m.a. nýjar kennitölur kynntar...

Ársreikningar: Hjallastefnan & Lindex 01.03.2022

Sendu okkur skilaboð! Í dag verða pyngjur tveggja ólíkra rekstraraðila skoðaðar. Fyrirtækin sem um ræðir eru Hjallastefnan og Lindex og ættu að vera orðin flestum landsmönnum kunnug. Í þættinum eru lifandi samræður m.a. um óvænt ættartengsl, ritdeilur um hafragraut á leikskólum og margt fleira. Hjallastefnan - 5:35 Lindex - 24:20

Ársreikningar: Søstrene Grene & Slippfélagið 22.02.2022

Sendu okkur skilaboð! Í dag köfum við ofan í tvær mydarlegar pyngjur að vanda. Systurnar Grene virðast pumpa arði úr pyngjunni í lange baner á meðan langtíma skuldlaus pyngja Slippfélagsins er í þann mund að springa. Við biðjumst velvirðingar á misháum raddstyrk í þættinum. Two weeks á tökkunum.. Við lofum hlustendum að þetta komi ekki fyrir aftur! Søstrene Grene - 4:27 Slippfélagið - 24:56

Ársreikningar: SAMbíó & Flatey Pizza 15.02.2022

Sendu okkur skilaboð! Sem fyrr verða tvær pyngjur skoðaðar í þætti dagsins. SAMbíóin áttu erfitt Covid ár 2020 á meðan Flatey þyngdi pyngjur eigenda á árinu. Í þættinum eru ræddar merkilegar staðreyndir um rekstur félaganna, allar helstu rekstrartölur þeirra uppljóstraðar og sagan rakin.  SAMbíóin - 4:50 Flatey Pizza - 29:08

Ársreikningar: Ísbíllinn & Omnom 11.02.2022

Sendu okkur skilaboð! Í þessum þætti köfum við ofan í pyngjur Ísbílsins og Omnom og sjáum hvað leynist í þeim.  Ísbíllinn - 5:00 Omnom - 24:35

Ársreikningar: Jólahúsið á Akureyri & Jói Útherji 08.02.2022

Sendu okkur skilaboð! Í þessum fyrsta þætti eru teknir fyrir ársreikningar Jólahússins á Akureyri og Jóa Útherja. Við skyggnumst inn fyrir pyngjur fyrirtækjanna og ræðum helstu lykilstærðir þeirra fram og aftur.  Jólahúsið á Akureyri - 6:26 Jói Útherji - 17:54

Listen to the Pyngjan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.