Pyngjan
Pyngjan
Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Föstudagskaffið: Teslu fúskarar sitja eftir með sárt ennið 20.01.2023 45:49
Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið er sterkt þennan morguninn enda á nægu að taka og útkoman skemmtileg blanda af skemmtun og fróðleik. Líkt og nafn þáttarins gefur til kynna förum við yfir stóra verðlækkunarmál Teslu en auk þess lítum við yfir landslag upprunavottorða ásamt fleiri skemmtilegum fréttum úr liðinni viku. Góða helgi og góðar stundir.
Ársreikningar: Boozt.com 17.01.2023 1:09:13
Sendu okkur skilaboð! Þá er það stærsta netverslun norðurlandanna. Risinn hefur komið eins og stormsveipur inn á markað hér á landi og orðrómur er um að fatakeðjur hér á landi þurfi að fara að vara sig.
Föstudagskaffið: Daði Laxdal frá GAN kíkir í kaffi og ræðir veðmálageirann 13.01.2023 42:46
Sendu okkur skilaboð! Við fengum til okkar Daða Laxdal sem starfar hjá Bandaríska tæknifyrirtækinu GAN sem er félag á markaði ytra. Við fórum yfir veðmálageirann eins og hann leggur sig og fengum að skyggnast inn fyrir tjöld þessa umdeilda heims.
Ársreikningar: IKEA 10.01.2023 1:04:43
Sendu okkur skilaboð! IKEA er sannkallað húsgagna stórveldi sem flestir Íslendingar hafa átt viðskipti við. Raunar eru viðskiptin svo góð um þessar mundir að skv. síðasta ársreikning félagsins verslaði hvert íslenskt mannsbarn fyrir 38.000 kr. í IKEA að meðaltali. Þetta er þáttur sem þú vilt ekki missa af. Við biðjumst innilegrar afsökunar á villu sem kemur nokkrum sinnum fyrir í þættinum sem við...
Föstudagskaffið: Ríkidæmi páfans í miðri veðmálavertíð 06.01.2023 59:43
Sendu okkur skilaboð! Gleðilegt nýtt ár kæru Pyngjuhálsar! Kaffið í dag er súrsætt en nýlega féll okkur frá Benedikt XVI og til heiðurs hans tókum við létta umfjöllun um fjárhagshliðar Vatíkansins. Ásamt því förum við yfir skemmtilegar veðmálasögur og dreypum á vexti veðmála á netinu og fleira til. Eigiði góða helgi kæru vinir.
Ársreikningar: PLAY 03.01.2023 1:25:06
Sendu okkur skilaboð! Já kæru hlustendur, þið lásuð rétt. Við erum að byrja árið á sprengju. Það að reka flugfélag er ekkert grín en það er heldur ekkert grín að rýna í ársreikning flugfélags og við fengum svo sannarlega að finna fyrir því. Rekstur flugfélagsins PLAY hefur verið mikið á milli tannana á fólki undanfarið og hefur hver dómstdagsspáin á fætur annari gengið manna á milli. Við ákváðum a...
Föstudagskaffið: Áramótauppgjör með Gísla Frey og Stefáni Einari 30.12.2022 1:30:16
Sendu okkur skilaboð! Það eru stjörnublaðamennirnir, frumkvöðlarnir og bóksalarnir Gísli Freyr Valdórsson og Stefán Einar Stefánsson sem loka árinu með okkur Pyngjumönnum. Kampavín drukkið og árið gert upp. Takk fyrir hlustunina á árinu!
Ársreikningar: Hátíðarþáttur - Hvernig getur Jólahúsið orðið að milljarð króna business? 27.12.2022 41:01
Sendu okkur skilaboð! Í þessum sérstaka hátíðarþætti og jafnframt síðasta ársreikningaþætti ársins, lítum við yfir farinn veg og förum aftur í ræturnar. Við gerum jólahúsinu, sem var okkar fyrsti ársreikningur, frekari skil og förum yfir gengi þeirra á rekstrarárinu 2021. Við teljum jólahúsið geta orðið allt að milljarð króna business og förum yfir hvernig það gæti orðið að veruleika. Við óskum yk...
Föstudagskaffið: Jólakveðjur og streymistekjur 23.12.2022 43:05
Sendu okkur skilaboð! Það er hátíðlegt föstudagskaffið á heilögum Þorláki. Við förum yfir aðsendar jólakveðjur frá hlsutendum sem voru stórskemmtilegar. Einnig dreypum við á því hvernig réttur á streymistekjum er orðinn að fjárfestingarkosti og hvaða jólalög eru að þéna mestar streymistekjur. Að lokum förum við svo yfir jólagjafir fyrri ára. Gleðileg jól kæru Pyngjuhálsar!
Ársreikningar: Pósturinn 20.12.2022 57:32
Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er drekkfullur af djús um fyrirtæki sem hefur snert öll okkar á einn hátt eða annan. Ef þú hefur sent jólakort eða sleikt frímerki eru allar líkur á því að Íslandspóstur eigi þar í hlut. Það lítur út fyrir að pósturinn sé að líta bjartari daga eftir örlítið havarí síðustu ár sem við Pyngjumenn fögnum vel. Þar sem þetta er síðasti ársreikningaþáttur fyrir jól vi...
Föstudagskaffið: Sólveig Hanna og samtökin sjö (6) 16.12.2022 55:15
Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffi dagsins býður upp á gæsahúð eftir gæsahúð. Mikið tuð og mikið af "Hot takes". Alma leigufélag skúrkar vikunnar, N4 að éta í sig framlög til fjölmiðla og svo fræðumst við um hvað í andskotanum þessir kjarasamningar, stéttarfélög, bandalög, regnhlífarsamtök, aðildafélög og allt þetta er. Einnig bjóðum við upp á milljónamæring vikunnar sem allir ættu að...
Ársreikningar: Baggalútur 13.12.2022 53:05
Sendu okkur skilaboð! Í dag bjóðum við upp á stórmerkilegan þátt um fyrirtækið, hljómsveitina, heimasíðuna og bóka- og tónlistaútgáfuna Baggalút sem fyrir löngu hefur stimplað sig inn í hug og hjörtu þjóðar. Ferlega flottur bisniss og alvöru djús í boði Pyngjubræðra Adda og Idda í dag. Takið kvittun.
Föstudagskaffið: Jóhannes framkvæmdastjóri Aurbjargar kíkir í kaffi 09.12.2022 1:00:03
Sendu okkur skilaboð! Í föstudagskaffi dagsins fáum við til okkar Jóhannes Eiríksson framkvæmdastjóra Aurbjargar. Um víðan völl var farið en fyrirtækið er á mikilli siglingu um þessar mundir og óhætt er að segja að þau séu stórhuga. Lionel Messi kemur einnig við sögu en hann og Jóhannes áttu börn á sama leikskóla í Barcelona og eðlilega vildum við forvitnast um það nánar. Gleðilegan föstudag!
Ársreikningar: Friðheimar 06.12.2022 51:11
Sendu okkur skilaboð! Friðheimar er næst á dagskrá hjá okkur og það má með sanni segja að þar sé um að ræða sannkallað tómataveldi. Þegar betur er að gáð má sjá að Friðheimar eru hið eilífa vaxtarfyrirtæki og eru hvergi nærri hætt. Þrátt fyrir örlítinn skell fyrsta Covid árið lítur út fyrir að fyrirtækið hafi náð að rétta úr kútnum og með hugsjónamennskuna að vopni eru þeim allir vegir færir.
Föstudagskaffið: Skot af gini eða marengsterta í morgunmat? 02.12.2022 43:45
Sendu okkur skilaboð! Gleðilegan föstudag kæru Pyngjuliðar. Langt síðan síðast! Við erum mættir aftur galvaskir með tuð, fróðleik og alls konar handa ykkur. Handbært fé fyrirtækja á markaði, möguleg innskráning Pyngjunnar í fjölmiðlanefnd og ungir bankastjórar eru meðal umræðuefnis í þætti dagsins. Eigiði yndislega helgi!
Ársreikningar: Fótbolti.net 29.11.2022 56:06
Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er helgaður boltabrjálæðingunum þarna úti. Það er full vinna að brauðfæða hungrað fótboltaáhugafólk á Íslandi og þar hefur fótbolti.net staðið sig með prýði og er vinsælasta fótboltafréttasíða landsins. Við kíkjum inn fyrir pyngjur miðilsins og ræðum hvernig hægt væri að auka tekjur félagsins á einfaldan hátt. Góða hlustun!
Föstudagskaffið: Davíð í Smitten kíkir í kaffi 25.11.2022 1:10:08
Sendu okkur skilaboð! Það var alvöru orka í Seðlabanka Kópavogs þegar Davíð Örn Símanorson meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten mætti til okkar í kaffi. Þar jós hann úr sínum viskubrunni en það er óhætt að segja það að hann er einn okkar allra efnilegasti frumkvöðull. Spjallað var um fortíð, nútíð og framtíð auk öflugrar vegferðar Smitten sem hefur verið í gífurlega örum vexti frá stofnun. Vi...
Ársreikningar: Hótel Rangá 22.11.2022 41:17
Sendu okkur skilaboð! Það var alveg kominn tími á að kíkja inn fyrir pyngjur í hótelgeiranum og fyrir valinu varð Hótel Rangá. Frissi Páls hefur gert vel í uppbyggingu hótelsins en segja má að Hótel Rangá sé orðið að nokkurskonar veldi í dag. Góða hlustun!
Föstudagskaffið: Heiðar Guðjónsson kíkir í kaffi 18.11.2022 1:00:43
Sendu okkur skilaboð! Þegar að við héldum að það væri ekki hægt að gera Föstudagskaffið bragðbetra, þá kemur til okkar Heiðar Guðjónsson og ausir yfir okkur visku úr sínum botnlausa brunni. Farið er yfir víðan völl í þættinum, allt frá bekkpressu og upp í fall siðmenningar, en milljónamæringur vikunnar verður að sjálfsögðu á sínum stað og það vildi svo til að milljónamæringur sá er vinur Heiðars....
Ársreikningar: Golfklúbbur Reykjavíkur 15.11.2022 1:05:21
Sendu okkur skilaboð! Áfram höldum við með Reykajvíkurþemað og að þessu sinni er það Golfklúbbur Reykjavíkur. Golf er vaxandi áhugamál í heiminum en þar er Ísland engin undantekning og prentun seðla klúbbsins í samræmi við það. Við afsökum staðreyndavillur sem kunna að koma fram í þættinum. Góða hlustun.
Föstudagskaffið: META hendir í uppsögn ala Efling 11.11.2022 44:49
Sendu okkur skilaboð! Það var drekkhlaðið föstudagskaffið þennan morguninn. Mikið af fréttum og mikið fjör. Auðæfi Scam Bankfraud þurrkuðust út á einum sólarhring, allir brjálaðir út af Svala, Bubbi Morthens prentar peninga, Bláa Lónið á markað og fl. fréttir. Svo hafa fjöldauppsagnir verið í tísku á árinu og fer Iddi yfir stærstu hópuppsagnir sögunnar og fleira til. Góða helgi!
Ársreikningar: Háskólinn í Reykjavík 08.11.2022 56:23
Sendu okkur skilaboð! Í þætti dagsins er akademían sjálf tekin fyrir og njörvuð niður. Háskólinn í Reykjavík er einkarekinn skóli sem þó reiðir sig á talsverð fjárframlög frá hinum opinbera. Í þættinum koma fram ýmsar merkilegar staðreyndir um sögu og rekstur skólans en einnig skoðum við stöðu annara menntastofnanna til samanburðar. Það er óhætt að segja að þessi batterí séu ansi fjárfrek, sem er...
Föstudagskaffið: Skyggnst inn í ársreikninga listafólks 04.11.2022 44:33
Sendu okkur skilaboð! Það er sjóðheitt föstudagskaffið í dag og við þorum að fullyrða að það hafi aldrei verið betur blandað. Uppfærsla um stöðu SS, Grikk eða *ott, Ársreikningar listafólks, viðskiptaeldi Mr. Beast, óábyrgar viðskiptaráð og fl. á boðstólnum. Góða hlustun og góða helgi kæru launþegar nær og fjær.
Ársreikningar: Forlagið 01.11.2022 58:34
Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er stórmerkilegur. Við kryfjum m.a. gangverkið sem liggur að baki bókaútgáfu. Sömuleiðis veltum við fyrir okkur bókabransanum í heild, samkeppni við hljóðbækur og að sjálfsögðu förum við yfir nýjasta ársreikning Forlagsins. Jólabókaflóðið er handan við hornið svo þetta er okkar framlag í flóruna. Góðar stundir. Þátturinn er í boði: Jómfrúin - https://www.jomfru...
Föstudagskaffið: Versta söluherferð sögunnar 28.10.2022 33:01
Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er í styttra lagi en þó er bollinn sterkur og góður. Við förum yfir einhverja verstu söluherferð sem heyrst hefur á mp3 formi og dreypum á fréttum vikunnar. Góða helgi! Þátturinn er í boði: Brauð og co. - https://www.braudogco.is Gorilla vöruhús - https://gorillavoruhus.is/ Lavazza - https://www.lavazza.is/ Aukakrónur Landsbankans - https://www.landsbankinn.is/...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.