Pyngjan

Pyngjan

Business IS ↓ 266 episodes

Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda. 

Author

Pyngjan

Category

Business

Podcast website

Www.pyngjan.is

Latest episode

Feb 28, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Föstudagskaffið: Gervigreind og stafræn markaðssetning ásamt Sigurði Má 14.04.2023

Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið er sjóðheitt þennan morguninn en gestur þáttarins er Sigurður Már sem hefur verið djúpur í heimi stafrænnar markaðssetningar um nokkurt skeið og nú nýlega í gervigreind. Iddi er vant við látinn í dag enda framlengdi hann páskunum í könglaparadísinni fyrir austan en Addi var á staðnum og tók spjallið við Sigurð. Stórmerkilegt spjall sem allir ættu að hlusta á....

Ársreikningar: Knattspyrnusamband Íslands 11.04.2023

Sendu okkur skilaboð! Þar sem boltinn er farinn að rúlla í Bestu deildinni þá sáum við okkur tilknúna til að henda í knattspyrnuþema í dag. Knattspyrnusambandið sjálft er efniviður dagsins en óhætt að er að segja að sambandið hefur komist í krappan dans oft á tíðum undanfarin ár en stóra spurningin er auðvitað hvernig reksturinn gengur. Er allt í skrúfunni þar líka? Þið komist að því í þætti dagsi...

Föstudagskaffið: Bestu fjárfestar sem þú hefur aldrei heyrt um 07.04.2023

Sendu okkur skilaboð! Gleðilega páska kæru hlustendur! Við vonum að þið séuð öll jafnmiklir páskaungar og hann Iddi sem rúllaði upp páskaquiz-i dagsins. Þó það séu páskar var þátturinn þó ekki fullkomlega málaður gulu en Ingvi gefur Chandler bræðrum yfirferð sem eru eflaust bestu fjárfestar sem þú hefur aldrei heyrt um. Arnar er þó meira í páskaþemanu og fer yfir dýrustu páskaegg allra tíma en fer...

Ársreikningar: Góa 04.04.2023

Sendu okkur skilaboð! Já, kæru hlustendur! Nú fer að nálgast páska og því var vel við hæfi að taka fyrir eitt stk. sælgætisgerð. Fyrir valinu varð Góa en fyrirtækið er rótgróið og skipar stóran sess í páskaeggjaflóði Íslendinga um hverja páska. Við viljum svo óska öllum launþegum sem eru að taka meira en viku páskafrí góðs frís.

Föstudagskaffið: Ólafur Páll frá Dokobit kíkir í kaffi 31.03.2023

Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið er sjóðheitt þennan föstudaginn en til okkar kom Ólafur Páll Einarsson framkvæmdastjóri Dokobit á Íslandi. Dokobit er fyrirtæki sem vinnur að því að einfalda líf almennings með pappírslausum undirskriftum en í þættinum ræðum við þessa þörfu þjónustu fram og til baka. Mjög fróðlegur þáttur sem þú, kæri hlustandi, ættir ekki að láta fram hjá þér fara. Góða helgi...

Ársreikningar: Michelsen 28.03.2023

Sendu okkur skilaboð! Þá er það þriðji þáttur í örseríunni okkar sem kennd er við Vítiskúreka. Að þessu sinni eru það þó ekki eigendur sem eiga í hlut heldur viðskiptavinir, sem oft á tíðum eru hreinræktaðir vítiskúrekar. Michelsen er einhver elsta starfandi verslun landsins sem hóf rekstur 1909 á Sauðárkróki í ljósi framboðsskorts á úrasölum á Íslandi. Stórmerkileg saga og kynngimagnaður rekstur...

Föstudagskaffið: Steinarr Lár stofnandi Kúkú Campers kíkir í kaffi 24.03.2023

Sendu okkur skilaboð! Einn merkilegasti Pyngjuþáttur sem hefur verið gefinn út. Þessi þáttur er ráðgefandi. Við segjum ekki meir. Góða hlustun.

Ársreikningar: Ísteka 21.03.2023

Sendu okkur skilaboð! Við höldum ótrauðir áfram í seríunni "Kúrekar frá helvíti" en þetta er annar þáttur í seríunnar, þrátt fyrir að við höfum haldið því fram í byrjun þáttar að þetta væri sá fyrsti, enda alveg orðnir kolruglaðir á þessum seríum. Það má þó með sanni segja að hjá Ísteka eru hreinræktaðir vítiskúrekar, en starfsemin hefur verið ansi umdeild meðal almennings og því var vel...

Föstudagskaffið: Bankarnir lána út peningana þína 17.03.2023

Sendu okkur skilaboð! Það er þungt yfir þennan föstudaginn hjá Idda en Addi er sprækur sem lækur. Lavazzabræðu eru mættir enn einn föstudaginn til að halda netbankakúrekum landsins uppfærðum. Í þættinum koma drengirnir inn á margt skemmtilegt, allt frá munnskoli og upp í bindiskyldu bankana. Missið ekki af því!

Ársreikningar: Heimstaden 14.03.2023

Sendu okkur skilaboð! Cowboys from hell er nýjasta sería úr framleiðslu Pyngjunnar og þar ríðum við á vaðið með Heimstaden, áður Heimavellir, sem hefur verið mikið í deiglunni síðastliðin ár. Við kryfjum þeirra nýjasta ársreikning og förum yfir söguna sem er einkar áhugaverð. 

Föstudagskaffið: Verður skattframtalið í mínus eða plús? 10.03.2023

Sendu okkur skilaboð! Það held ég kæru hlustendur. Þá er enn einn föstudagurinn runninn upp sem þýðir að föstudagskaffinu hefur verið sullað yfir allt borð. Það var á nægum fréttum að taka þessa vikuna en auk þess tuða þeir Addi og Iddi yfir kolefniseiningum og það ekki í fyrsta skiptið. Muniði svo eftir skattframtalinu. Gleðilegan föstudag.

Ársreikningar: Vinnustofa Kjarval 07.03.2023

Sendu okkur skilaboð! Í dag er það Vinnustofa Kjarval sem flestir alvöru netbankakúrekar hafa rambað inn á á einhverjum tímapunkti, en staðurinn er ekki einungis bar fyrir pabbastráka heldur líka vinnustofa, eins og nafnið gefur til kynna, en þar geta aðilar gerst meðlimir og haft skrifstofuaðstöðu ásamt alls kyns öðrum fríðindum sem betur verður farið yfir í þættinum. Góða hlustun.

Föstudagskaffið: Einungis auðfólk kemst í gegnum greiðslumat 03.03.2023

Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið er súrsætt þennan morguninn. Mormónar, greiðslumat og ríkasti svarti maður heims eru lykilorð þáttarins. Ekki missa af þessum þætti. Góða helgi.

Uppgjörið: Fjórði ársfjórðungur Nova - Skemmtanastjórn 02.03.2023

Sendu okkur skilaboð! Uppgjörið er þáttur þar sem við kryfjum uppgjör fyrirtækja á markaði ásamt stjórnendum. Við fórum í höfuðstöðvar Nova og tókum þau Margréti Tryggvadóttur forstjóra og Þórhall Jóhannsson fjármálastjóra tali og fórum yfir nýjasta uppgjör félagsins.

Ársreikningar: Hlemmur Mathöll 28.02.2023

Sendu okkur skilaboð! Það var löngu kominn tími á að kíkja á rekstrarmódel mathallar en í þætti dagsins tökum við fyrir Hlemm mathöll sem var fyrsta mathöllinn sem hóf rekstur í þeirri mynd sem við Íslendingar höfum vanist í dag. Stórskemmtilegur þáttur þó við segjum sjálfir frá! 

Föstudagskaffið: Amore, amore 24.02.2023

Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið er stútfullt þennan morguninn en Ingvi vildi tileinka þættinum ástinni, enda valentínusar- og konudagur ný liðinn. Einnig verður farið yfir hvað ríkisstarfsmenn eru að eyða peningum ríkisins í og fleira til. Léttur og þægilegur þáttur með morgunbollanum.

Ársreikningar: Kúkú Campers 21.02.2023

Sendu okkur skilaboð! Það eru tveir hugsjónamenn sem eiga sviðið í dag og það er óhætt að segja að þeir hlægi í dag. Hreinræktaðir HSHD sem fóru af stað með feita pælingu sem gekk upp og rúmlega það. Hér segjum við sögu Kúkú Campers sem er skólabókardæmi fyrir alla frumkvöðla. Góða hlustun.

Föstudagskaffið: Áslaug Arna kíkir í kaffi 17.02.2023

Sendu okkur skilaboð! Við fögnum endalokum seríunnar okkar um ammóníakfnyk almennings með því að fá til okkar Áslaugu Örnu Pyngjumálaráðherra. Þar skólar hún okkur til í ríkismálum sem eru alltof flókin fyrir menn með tvær háskólagráður.

Ársreikningar: Ammóníakfnykur almennings (2/2) - Þjóðkirkjan, Þjóðleikhúsið & Háskóli Íslands 14.02.2023

Sendu okkur skilaboð! Þá er komið að seinni þættinum í seríunni sem enginn bað um. Þær voru nokkuð heitar umræðurnar að þessu sinni en Addi og Iddi sjá gríðarlega eftir því að hafa framleitt þessa seríu. Þjóðkirkjan, Þjóðleikhúsið og Háskóli Íslands eru stofnanir dagsins. Góða hlustun

Föstudagskaffið: 700 milljónir kjúklinga verða Ofurskálinni að bráð 10.02.2023

Sendu okkur skilaboð! Það er lærvolgt í dag kaffið og bakkelsið hefur aldrei verið sætara. Það er farið um víðan völl í Föstudags kaffi dagsins en þar ber þá helst að nefna Ofurskálina sem fer fram n.k. sunnudag. Auk þess ræðum við stýrivaxtahækkun, trúðadíl vikunnar á fasteignavefnum, dýrustu tölvuleikir heims, hvert peningur ríkisins fer og svo margt fleira. Gleðilegan föstudag kæru hlustendur.

Ársreikningar: Ammóníakfnykur almennings (1/2) - LÍN, RÚV & Harpa 07.02.2023

Sendu okkur skilaboð! Þá er komið að tveggja þátta seríu sem enginn bað um. Við kynnum með skömm: Ammóníakfnykur almennings! Í þessum fyrri þætti af tveim tökum við fyrir ríkisstofnanirnar LÍN, RÚV og Hörpu og gerum okkar besta við að miðla þeim upplýsingum sem fyrir liggja í bókum þeirra. Við firrum okkur allri ábyrgð á því sem fram kemur í þessum þætti. Góða hlustun.

Föstudagskaffið: Launþegi vikunnar lítur dagsins ljós 03.02.2023

Sendu okkur skilaboð! Bollinn var sótsvartur þennan morguninn hjá þeim Adda og Idda en þeir eru jafn ósammála um listamannalaun eins og þeir eru sammála um heilbrigðis fyrirkomulagið í Bandaríkjunum. Launþegi dagsins hefur göngu sína og að þessu sinni urðu 6 eða 7 fyrir valinu. Að lokum kemur í ljós að aldrei er nóg af verkefnastjórum hjá Reykjavíkurborg! Þetta og í raun margfalt meira til í þætti...

Ársreikningar: Storytel 31.01.2023

Sendu okkur skilaboð! Við höldum áfram í Sænska þemanu okkar og nú er það Storytel. Flestir kannast nú orðið við fyrirtækið en það sem kannski færri vita er það að það var Íslendingur að nafni Jón Hauksson sem stofnaði fyrirtækið árið 2005. Stórskemmtileg saga og ennþá skemmtilegri ársreikningur. Góðar stundir.

Föstudagskaffið: Daníel Andri og Egill Fannar frá Gorilla vöruhús kíkja í kaffi 27.01.2023

Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffi dagsins er troðið af sætabrauði en til okkar kíktu þeir Daníel Andri Pétursson og Egill Fannar Halldórsson, frumkvöðlar af guðsnáð sem eiga og reka bæði Wake Up Reykjavík og Gorilla vöruhús. Við förum yfir þeirra tæplega 10 ára feril í eigin rekstri og fræðumst um það sem er í gangi hjá þeim.

Ársreikningar: Partýbúðin 24.01.2023

Sendu okkur skilaboð! Í tilefni af 52. ársreikningaþætti okkar og 1 árs afmæli (talið frá getnaði) þá erum við í partýstuði og því ekki annað í stöðunni en að taka fyrir Partýbúðina sem hefur verið að skipa sér sess á meðal fremstu sjálfbæru peningaprentvéla landsins.

Listen to the Pyngjan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.