Pyngjan

Pyngjan

Business IS ↓ 266 episodes

Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda. 

Author

Pyngjan

Category

Business

Podcast website

Www.pyngjan.is

Latest episode

Feb 28, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Ásmundur Atlason markaðsstjóri Dominos á Íslandi 11.07.2023

Sendu okkur skilaboð! Hann mætti til okkar Ási frá Dominos sem er líklega yngsti markaðsstjóri Dominos í heiminum. Hann jós úr sínum viskubrunni yfir þá Adda og Idda sem spurðu hann spjörunum úr, allt milli himins og jarðar um áttunda undur veraldar sem Dominos á Íslandi er. 

Föstudagskaffið: Við viljum verðstríð 07.07.2023

Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er af tímalausu tagi, enda liggur Addi á bakkanum á Tene að taka af sér tásumyndir þegar þessi þáttur kemur út. Þrátt fyrir það er þátturinn stútfullur af alls konar. heimsmeistari í sölu fasteigna, verðstríðið 2005, launþegi vikunnar, ríkisreikningar og verðbólgutips. Geri aðrir betur!

Lóa Dagbjört framkæmdastjóri Lindex á Íslandi 04.07.2023

Sendu okkur skilaboð! Í þessu stórkostlega viðtali fáum við til okkar Lóu Dagbjörtu framkvæmdastjóra Lindex sem hefur svo sannarlega fengið að kynnast velgengni. Þessi velgengni er þó vel verðskulduð enda var leið hennar á toppinn ekkert grín og í sumum tilfellum lyginni líkust. Hennar saga verður sögð í Pyngjunni í dag og við hvetjum hvert einasta mannsbarn til að leggja við hlustir!

Föstudagskaffið: Kúrekabanki: The good, the bad and the ugly 30.06.2023

Sendu okkur skilaboð! Það er sótsvart kaffið þennan fína föstudag en þeir Addi og Iddi eru mættir sem fyrr fyrir aftan míkrófónana að tuða. Þó er margt annað skemmtilegt í þættinum en fréttum vikunnar var að mestu sleppt, sér í lagi vegna þess að þátturinn er tekinn örlítið fyrir tímann og því getur margt breyst. Hver veit nema búið verði að reka Birnu bankastjóra þegar þátturinn kemur út. Látið y...

Snorri frá Jakobsson Capital 27.06.2023

Sendu okkur skilaboð! Hann kíkti til okkar hann Snorri Jakobsson sem heldur úti Jakobsson Capital. Við fórum yfir ferilinn, greiningar, markaðinn og bréfin í stórskemmtilegu og fræðandi viðtali.

Föstudagskaffið: Get busy or die trying 23.06.2023

Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffið hefur sjaldan verið ferskara. Addi og Iddi mæta fyrir framan mækinn með brúna gullið frá Túrin við hönd. Verðbólgutipsins líta dagsins ljós eftir smá frí, launþegi vikunnar, milljónamæringur vikunnar og fullt af fréttum til að tuða yfir. Frábær skemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Góða helgi.

Ernir Skorri (Rentaparty, Rentatent & Camp Boutique) 20.06.2023

Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er einn af þessum stórkostlegu þáttum þar sem við fáum að heyra sögu rekstrarmanns sem hefur gengið í gegnum súrt og sætt. Ernir Skorri mætti til okkar í Seðlabanka Kópavogs og sagði okkur alla sólarsöguna um vegferð sína í rekstri. Það er nánast ekkert sem maðurinn leigir ekki út og það má segja að hann lifi í annari vídd en við hin enda spáir hann í rúmmetrav...

Föstudagskaffið: Addi gaslýsir hagfræðinga 16.06.2023

Sendu okkur skilaboð! Það er sprengfullt í dag föstudagskaffið. Nóg af fréttum, fróðleik og fastir liðir eins og venjulega. Svo fær milljarðarmæringur vikunnar sitt pláss en þar var enginn minni maður en Silvio Berlusconi sem á merkilegan en umdeildan feril að baki. Missið ekki af sekúndu í dag. Góða helgi.

Stefán og Stefán frá Solid Clouds 13.06.2023

Sendu okkur skilaboð!

Föstudagskaffið: Júní bumbur 09.06.2023

Sendu okkur skilaboð! Það er funheitt föstudagskaffið í dag og hefur sjaldan verið stappaðra. Fréttir vikunnar, Launþegi vikunnar, Neytendavaktin lítur dagsins ljós eftir frí, Hindenburg Research bregður fyrir aftur og við vitum ekki hvað og hvað. Sömuleiðis virðast matsölustaðir vera að ströggla en Arnar gat ekki látið ársreikningana í friði og þuldi upp meðaltals COGS+Laun úr veitingageiranum 20...

Gústi bakari 06.06.2023

Sendu okkur skilaboð! Nú hefur Pyngjan lagt ársreikninga til hliðar í bili en alla þriðjudaga í sumar munum við fá til okkar góða gesti og ræða rekstur og viðskipti. Það var enginn betur til þess fallinn en Gústi bakari að hefja þessa nýju vegferð með okkur en í þættinum fer hann yfir ferilinn sem rekstrarmaður en hann er upphafsmaðurinn á bakvið Brauð og co., Kastrup og BakaBaka. Stórskemmtilegt...

Föstudagskaffið: "Take-a-bow" Jón Björnsson forstjóri Origo kíkir í kaffi 02.06.2023

Sendu okkur skilaboð! Já þið lásuð rétt, kæru hlustendur! "Take-a-bow" Jón Björnsson mætti til okkar í sett! Í þættinum förum við yfir allt milli himins og jarðar um hans feril, allt frá barnæskunni á Seltjarnarnesi yfir í störf hans hjá Origo. Við gleymdum samt að ræða Tempo söluna sem eru mistök sem fara með okkur í gröfina. Góða hlustun!

Ársreikningar: DK hugbúnaður 30.05.2023

Sendu okkur skilaboð! Þá er það bókaraparadísin DK hugbúnaður sem tók bókhaldsheiminn með stormi upp úr aldamótum. Það er enginn möguleiki á því að þú hafir verið í rekstri og ekki heyrt minnst á DK svo þetta er þáttur fyrir alla alvöru kúrekana þarna úti. Þetta er síðast ársreikningaþáttur í bili áður en við breytum um áherslur svo það er eins gott að þið drekkið í ykkur alla visku við hlustun.

Föstudagskaffið: We're still standing! 26.05.2023

Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er tileinkaður íslenskum almenning sem verið er að limlesta með hverjum fundi peningastefnunefndar sem líður. Þátturinn er uppfullur af fréttum og tuði yfir þeim, launþegi vikunnar á sínum stað, milljónamæringur vikunnar á sínum stað og verðbólgutips vikunnar heldur áfram göngu sinni. Missið ekki af þessum. Við stöndum með ykkur kæru launþegar.

Ársreikningar: Fiskikóngurinn 23.05.2023

Sendu okkur skilaboð! Það var aldrei spurning hvort, heldur hvenær Fiskikóngurinn yrði tekinn fyrir af okkur Pyngjubræðrum. Við getum glatt ykkur með því kæru hlustendur að sá dagur er upprunninn. Góða hlustun.

Föstudagskaffið: Ekki stofna fyrirtæki af gamni þínu 19.05.2023

Sendu okkur skilaboð! Föstudagskaffinu hefur verið sullað á borðið í þriðja skipti maí mánaðar og það er sjóðheitt þennan föstudaginn. Yngsti milljarðarmæringur vikunnar lítur dagsins ljós, launþegi vikunnar, verðbólgutips vikunnar, fréttir vikunnar og yfirferð á stofnun fyrirtækis. Við leggjum ekki meira á ykkur kæru hlustendur. Gangið hratt um gleðinnar dyr.

Ársreikningar: Sameind 16.05.2023

Sendu okkur skilaboð! Við kynnum til leiks fyrirtækið Sameind sem er ótvíræður sigurvegari COVID-19 faraldursins! Allir og ömmur þeirra ættu orðið að kannast við Sameind eftir faraldur veirunnar skæðu en þau stóðu meðal annars fyrir mótefnamælingum sem varð einhverskonar tískuvara á tímabili. Í þættinum tökum við einnig smá útúrdúr og förum snögglega yfir ævintýrið í kringum Rapid test ehf. sem st...

Föstudagskaffið: Þú gleypir ekki Pivot töfluna 12.05.2023

Sendu okkur skilaboð! Búið er að hella Lavazza í bollana þennan fagra föstudag og bakkelsið er á borðinu. Í þætti dagsins eru engar fréttir heldur bara ískaldar staðreynir um hitt og þetta. Eurovision, Pivot taflan, Uppruni Emojis (Tjákn), Stutt viðskiptasaga manns sem fékk gervigreind til að breyta $100 í $25.000 og fleira til. Eigiði yndislega Eurovision helgi kæru Pyngjuhálsar!

Ársreikningar: Lyfjaval 09.05.2023

Sendu okkur skilaboð! Áfram höldum við í heilbrigðisgeiranum en að þessu sinni er það Apótekskeðjan Lyfjaval. Fyrirtækið er þekkt fyrir sína einstaklega hentugu bílalúguþjónustu sem var algjör bylting fyrir margan viðskiptavininn. Svo kann að vera að House of SKEL komi fyrir í þessum þætti. Góða hlustun!

Föstudagskaffið: Kalli verður krýndur í Westminster en Addi og Iddi í gufunni 05.05.2023

Sendu okkur skilaboð! Ef þessi þáttur væri bolli, þá væri hann stútfullur af sjóðheitu Lavazza  kaffi. Við Tökum á ýmsu í dag: fréttir vikunnar, Launþegi vikunnar, May the 4th be with you,  Ólga vegna kostnaðar við krýningu á Kalla konung, Lénabraskari aldarinnar, AirBnb speki og meira til. Gangið hratt um gleðinnar dyr um helgina.

Ársreikningar: Livio Reykjavík 02.05.2023

Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er ekki af verri endanum en þetta er fyrsta einkarekna heilbrigðisþjónustan sem þeir Addi og Iddi kynna sér. Án þess að ætla að gefa upp of mikið hér í þessari lýsingu þá er óhætt að segja að þetta lið lepur ekki dauðan úr skel. Svo er eldfimt hitamál um miðjan þátt sem eflaust mun særa viðkvæmar sálir, en við erum ekki sálfræðingar svo leitið annað ef þið vilj...

Föstudagskaffið: Eru Backstreet boys eignamenn? 28.04.2023

Sendu okkur skilaboð! Líkt og í síðustu viku er þáttur dagsins gjörsamlega drekkhlaðinn af efni, svo miklu að við komumst ekki yfir allt en það verður að hafa það! Í dag var þó rætt um allt milli himins og jarðar, Wrexham ævintýrið, fjárhagsstaða Backstreet strákanna, Tekjuhæstu tónleikaferðalög sögunnar, sumarstarfs auglýsing Seðlabankans, nýr lemmon drykur og fleira til. Látið Idda og Adda ekki...

Ársreikningar: Acro Verðbréf 25.04.2023

Sendu okkur skilaboð! Það hlaut að koma að því að þeir Addi og Iddi skyldu kafa sér ofan í pyngju fjármálafyrirtækis. Fyrir valinu varð Acro Verðbréf sem hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin ár og hafa lagt sitt að mörkum við að þjóna kúrekum og nú nýlega netbankakúrekum í gegnum nýtt smáforrit. Stórskemmtilegur þáttur þar sem ný kennitala lítur dagsins ljós og sitthvað fleira. Góða hlustun.

Föstudagskaffið: Verðbólguráð Adda og Idda 21.04.2023

Sendu okkur skilaboð! Þáttur dagsins er gjörsamlega troðfullur af efni og það fer vel á þeim félögum í þætti dagsins, enda með Lavazza í æð. Launþegi vikunnar, nóg af fréttum og tuði yfir þeim, auðæfi Ryan Reynolds krufinn til mergjar og síðast en ekki síst verðbólguráð í boði Adda og Idda. Við leggjum ekki meira á ykkur í bili. Gangið hratt um gleðinnar dyr um helgina kæru launþegar.

Ársreikningar: Útfararþjónusta Rúnars Geirmundssonar 18.04.2023

Sendu okkur skilaboð! Gleðilegan þriðjudag, kæru hlustendur! Í dag lokum við þáttarröðinni "Cowboys from hell" þó svo að fyrirtæki dagsins séu á engan hátt vítiskúrekar. Allar kvartanir berist til Idda. Þáttur dagsins er þó stórmerkilegur enda höfum við aldrei nokkurn tíman snert á útfararbransanum en eftir hlustun verður þú, kæri hlustandi, uppfullur af fróðleik um bransann og það er al...

Listen to the Pyngjan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.