Pyngjan

Pyngjan

Business IS ↓ 266 episodes

Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og vansæla millistjórnanda. 

Author

Pyngjan

Category

Business

Podcast website

Www.pyngjan.is

Latest episode

Feb 28, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Föstudagskaffið: Er launþeginn að komast í tísku aftur? 06.10.2023

Sendu okkur skilaboð! Þeir voru stúrnir í morgunsárið þeir Addi og Iddi, enda bara mannlegir og vissulega ekki frá Túrin. Alls konar pælingar í dag. Farið hratt inn í helgina og ekki búa til merch að óþörfu. Góðar stundir.

Ársreikningar: Dohop (Áskrift) 03.10.2023

Sendu okkur skilaboð! Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.  

Föstudagskaffið: Appelsínusafi er vænn fjárfestingakostur 29.09.2023

Sendu okkur skilaboð! Kæru Pyngjuhálsar. Það má með sanni segja að þáttur dagsins sé stappaður af djús. Addi segir frá nýju verkefni - Auratal, Fréttir vikunnar krufnar, Launþegi vikunnar, Iddi talar um hrávöruna appelsínusafa og fróðleik úr sjávarútvegi. Eitthvað fyrir alla í dag - góða helgi!

Ársreikningar: World Class (Áskrift) 26.09.2023

Sendu okkur skilaboð! Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.  

Föstudagskaffið: Guðmundur framkvæmdastjóri Inkasso kíkir í kaffi 22.09.2023

Sendu okkur skilaboð! Hann mætti til okkar Guðmundur Magnason framkvæmdastjóri Inkasso og gerði upp stórbrotinn feril í þessu magnaða viðtali. BT, Hellisbúinn, Skífan, Latibær og Heimkaup eru allt verkefni sem Guðmundur hefur komið nálægt en í dag stýrir hann Inkasso með prýði og komst fyrir það í fréttirnar nýlega sem hann gerir upp með okkur Pyngjumönnum í dag. Ekki missa af mínútu hér!

Ársreikningar: Hvalur (Áskrift) 19.09.2023

Sendu okkur skilaboð! Restina af þessum þætti finniði undir https://pardus.is/pyngjan.  

Föstudagskaffið: Ríkisstarfsfólk ferðast fyrir 10 milljónir á dag 15.09.2023

Sendu okkur skilaboð! Já kæru hlustendur, Titill þáttarins segir allt sem segja þarf. Við þurfum aðhald og það er nákvæmlega það sem við veitum hér í dag. Ekki missa af mínútu.

Ársreikningar: KFC (Áskrift) 12.09.2023

Sendu okkur skilaboð! STÓRKOSTLEGUR þáttur hér á ferð. Tékkið á https://pardus.is/pyngjan fyrir áskrift að Pyngjubandalaginu. 

Föstudagskaffið: Óður til Búffett 08.09.2023

Sendu okkur skilaboð! Það var titringur í boði brúna gullsins frá Túrin í þætti dagsins. Fréttir vikunnar, Evrópa á niðurleið, Warren Buffet eru á meðal efnistaka, svo haldið ykkur fast.

Bjössi í Payday 05.09.2023

Sendu okkur skilaboð! Já það var heldur betur komið að því að Bjössi frá Payday kíkti til okkar Pyngjumanna. Við förum yfir stórmerkilegan ferilinn,  söluna á Payday (Sem er Pyngjunni að þakka) og margt fleira með þessum hugsjónamanni sem hlær í dag (HSHD). Góða hlustun!

Föstudagskaffið: Ásgeir tapar kapphlaupinu um manneskju ársins 01.09.2023

Sendu okkur skilaboð! Gleðilegan útborgunardag kæru launþegar. Þáttur dagsins er af betri endanum. Fréttir, tuð og stuð með brúnt gull við hönd. 

Braskþáttur Pyngjunnar 29.08.2023

Sendu okkur skilaboð! Pyngjumenn voru illa sviknir í aðdraganda þáttarins og þurftu þar af leiðandi að henda í hálf óundirbúinn þátt. Þátturinn er þó áhugaverður eins og allt sem við gerum en í honum köfum við ofan í alvöru braskráð og fleira til. 

Uppgjörið: Hálfsársuppgjör Nova - Skemmtanastjórn 28.08.2023

Sendu okkur skilaboð! Við fórum í höfuðstöðvar Nova og tókum þau Margréti Tryggvadóttur forstjóra og Þórhall Jóhannsson fjármálastjóra tali og fórum yfir árshelmingsppgjör félagsins og fleira til!

Föstudagskaffið: 30 milljarðar koma ekki í veg fyrir að osturinn sullist 25.08.2023

Sendu okkur skilaboð! Kæru Pyngjuhálsar, hér fáiði einn lítinn en þó rótsterkan bolla af föstudagskaffi. Góða hlustun og góða helgi.

Daði Kristjánsson framkvæmdastjóri Viska Digital Assets (1.hluti) 22.08.2023

Sendu okkur skilaboð! Kæru hlustendur, hér eruði komin í eyrnakonfekt par exelans. Hann kíkti til okkar hann Daði Kristjánsson sem áður starfaði 15 ár fjármálamarkaði en hefur nú sagt skilið við fiat bleðlana og komið á fót sérhæfðum rafmyntasjóð, fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Við förum með hann um viðan völl í þætti dagsins en komumst þó ekki nógu langt og því verður partur 2 síðar. Góða hlus...

Föstudagskaffið: Payday fær payday 18.08.2023

Sendu okkur skilaboð! Brúna gullið frá Túrin hefur aldrei runnið eins ljúft niður í Iddan eftir alltof langa fjarveru. Addi hefur þó gert sig heimakominn í stúdíóinu síðustu vikur með brúna gullið sér við hönd og því ögn spakari. Þessar andstæður trufla þó ekki gæði þáttarins í dag sem er rosalegur svo ekki sé meira sagt. Allt það helsta og meira til. Farið varlega á menningarnótt kæru launþegar.

Föstudagskaffið: Laugardagskaffið með Aronmola 11.08.2023

Sendu okkur skilaboð! Í þætti dagsins fékk Addi til liðs við sig leikarann, áhrifavaldinn, hlaðvarparann og lífskúnsterinn Aron Má Ólafsson, betur þekktur sem Aronmola á samfélagsmiðlum. Saman ræddu þeir heima og geima en þó aðallega um peninga í leiklistinni. Þið viljið alls ekki missa af þessum þætti gott fólk.

Elmar Gunnarsson framkvæmdastjóri Vettvangs 08.08.2023

Sendu okkur skilaboð! Það var löngu kominn tími á það að fá til okkar hann Elmar frá Vettvangi en Vettvangur er heitasta hugbúnaðarhús/vefstofa landsins. Við ræðum braskarann Elmar, reksturinn, hönnunarspretti, Umbraco, Worpress og fleira til í þessu stórskemmtilega spjalli. Við mælum ekki með því að missa af þessum.

Föstudagskaffið: Pyngjan heldur til Omaha ásamt Jakobi Birgis 04.08.2023

Sendu okkur skilaboð! Í afleysingum fyrir Idda stökk Jakob Birgis inn sem hefur gert það gott í uppistandi hér á landi. Addi og Jakob léku á als oddi í þætti dagsins þar sem fréttir vikunnar, kókaínfaraldur, Launþegi vikunnar, Verðbólgutips og fleira litu dagsins ljós. Gleðilega Verslunarmannahelgi kæru hlustendur og gangið hratt um gleðinnar dyr.

Mark Dixon founder and CEO of IWG (Formerly Regus) 01.08.2023

Sendu okkur skilaboð! From Bar brawls in Australia to running a billion dollar business! We got the chance to meet Mark Dixon. His tales of entrepreneurship, traveling the world and running a business in today's mad mad world. Mark is a gentleman and a scholar! Pyngjan approved.

Föstudagskaffið: Júlí bumbur 28.07.2023

Sendu okkur skilaboð! Því miður fyrir ykkur, kæru launþegar, þá hittir þessi föstudagur ekki á útborgunardag en örvæntið ekki því þessi föstudagur hittir á glænýtt föstudagskaffi. Í dag er boðið upp á alls konar og við vonumst sannarlega til þess að stytta ykkur stundirnar fram að útborgunardegi. Góðar stundir.

Björn Berg fjármálaráðgjafi 25.07.2023

Sendu okkur skilaboð! Hann kíkti til okkar hann Björn Berg sem nýverið hóf óháða, sjálfstæða fjármálaráðgjöf. Í þessu stórskemmtilega spjalli var dreypt á ýmsu en við kynntumst manninum sjálfum, ræddum Saudi peninga, bókaútgáfu, hlutdeildarlán, lífeyrismál, lífið í eigin rekstri og margt fleira. Ekki láta þér detta í hug að missa af einni mínútu í þætti dagsins!

Föstudagskaffið: Einnar stjörnu Pyngja 21.07.2023

Sendu okkur skilaboð! Brúnt gull, fréttir vikunnar, launþegi vikunnar, Sonic branding og síst en ekki síðast, þá fékk Pyngjan einnar stjörnu einkunnargjöf. Þegar að við héldum að við værum allra, þá kom í ljós að svo var ekki. Success has enemies. Góða helgi.

TripAdvisor: The Situation 18.07.2023

Sendu okkur skilaboð! Afbrigðilegur ársreikningaþáttur í kjölfar fjarveru Adda sem enn hefur ekki náð sér eftir að hafa innbyrt hreint etanól. Gísli Eyland, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Sýn og Fúndemental fjárfestir hljóp í skarðið og fór yfir þrjár ástæður þess að TripAdvisor gæti verið verulega undiverðlagt á hlutabréfamarkaði. Iddi hrútskýrði sögu félagsins og gaslýsti (urðaði yfir) Steph...

Föstudagskaffið: Ástin sigrar alltaf 14.07.2023

Sendu okkur skilaboð! Kæru hlustendur! Þáttur dagsins er er fyrsti sinnar tegundar hjá Pyngjunni þar sem Addi og Iddi taka upp í gegnum fjarbúnað. Já, tæknin er ótrúleg og það er þátturinn einnig. Góða hlustun.

Listen to the Pyngjan podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.