einarhler
HLAÐLIST.
Hlaðvarp um arkitektúr, skipulag og byggingargeirann. Einar og Óskar munu taka viðtöl við fólk sem hefur ólíka aðkomu að byggingargreinunum, s.s. arkitekta, verkfræðinga, verktaka, stjórnmálamenn og fleirri. Einnig munu þeir rýna í bækur og fræðigreinar tengd arkitekúr, auk vettvangsferða og heimsóknir í áhugaverð fyrirtæki og til fólks. Einar Hlér rekur arkitektastofuna Sei Studio, ásamt konunni sinni Shruthi Basappa. Óskar Örn er með doktorsgráðu í arkitektasögu frá Columbia háskóla í New York og starfar um þessar mundir hjá skipulagi Reykjavíkurborgar.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
11. Þorsteinn Gunnarsson - Kirkjur Íslands 18.05.2026 1:02:53
Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi í rannsóknum og varðveislu íslenskra menningarminja. Hann var fyrstur Íslendinga til að sérhæfa sig í endurgerð eldri bygginga og hefur m.a. komið að endurreisn Viðeyjarstofu, Nesstofu, Bessastaðastofu, Alþingishússins og Hóladómkirkju. Þorsteinn hefur verið ritstjóri ritraðarinnar Kirkjur Íslands frá upphafi, en...
10. Lilja Pálmadóttir - Andinn og efnið 14.05.2026 39:42
Lilja Pálmadóttir er athafnakona og hrossabóndi á Hofi. Sem myndlistakona hefur hún einnig næmt auga fyrir byggingarlist og hefur átt frumkvæðið af því að láta reisa eða gera upp margar ólíkar byggingar, allar í hæsta gæðaflokki. Hún kom og sagði okkur frá þessum byggingum, samstarfi sínu við arkitekta ásamt mörgu fleirru.
9. Gylfi Ólafsson - Ísafjörður og Vestfirðir 09.05.2026 48:33
Gylfi Ólafsson var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er nú varaþingmaður Viðreisnar og oddviti Í-listans á Ísafirði, en listinn hefur verið í meirihluta þar síðan 2022. Gylfi fræðir okkur um ástandið á innviðum í sveitarfélaginu og þróun síðustu ára, ásamt því að fara yfir sögu nokkurra af helstu byggingum bæjarins. Nokkrir tenglar á umfjöllun um Ísafjarðarkirkju: https://timarit.i...
8. Vigfús Þór Hróbjartsson - Selfoss og skipulag 06.05.2026 46:08
Vigfús Þór er skipulagsfulltrúi Árborgar, en hefur einnig sinnt starfi skipulagsfulltrúa á mörgum öðrum stöðum á Suðurlandi. Við förum í hlutverk skipulagsfulltrúa, miðbæ Selfossar og fleirri atriði í þættinum.
7. Magnús Skúlason - Þétting byggðar og fagurfræðin 10.04.2026 50:59
Magnús Skúlason, arkitekt, á að baki langan og glæstan feril, bæði í einkageiranum og á opinbera sviðinu. Hann hefur starfað sem formaður byggingarnefndar Reykjavíkur, en er einnig einn af leiðtogunum í verndun eldri byggðar. Hann er vinsæll hjá fjölmiðlum þegar talað er um fréttir er tengjast byggingarmálum og Magnús fór yfir víðan völl í þættinum með okkur Óskari og Einari.
6. Ríkharður Kristjánsson - Verkfræði og bygginarrannsóknir 26.03.2026 1:12:37
Ríkharður Kristjánsson, oft kallaður verkfræðingur Íslands, kom til okkar og fór yfir þætti úr sínum goðsagnakennda starfsferil. Við ræðum hlutverk verkfræðinga, ráðhúsið og Hörpu, selinn og sauðkindina.
5. Andri Snær Magnason - Jötunsteinn og ljótleiki 18.03.2026 1:00:38
Andri Snær er þjóðþekktur rithöfundur sem gaf út bókina Jötunsteinn fyrir síðustu jól. Andri kom í spjall til okkar Óskars og sagði okkur frá þátttöku sinni í arkitektúr í gegnum tíðina, við ræddum bókina hans og aðra hluti sem tengjast kannski helst ljótleika í arkitektúr.
4. Hlökk Theodórsdóttir - Um Græna Gímaldið 24.02.2026 58:07
Í þættinum segir Hlökk okkur frá grein sinni "„Græna gímaldið“ við Álfabakka– hvað segir það okkur um stjórnsýslu skipulagsmála á Íslandi?", sem birtist í tímaritinu Stjórnmál og Stjórnsýsla undir lok árs 2025. Hlökk er meðal fremstu skipulagsfræðinga landsins og fer með okkur yfir sögu þessarar alræmdu byggingar ásamt öðrum málum. Hlekkur á greinina.
3. Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson, S. AP - Framtíð í arkitektúr 13.02.2026 58:52
Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson eru uppistaðan í stofunni s. ap arkitektar. Þau hafa verið áberandi á sviði arkitektúrs síðustu ár, m.a. með verkefnið Lavaforming, sem var valið sem fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2025. Einnig segja s.ap okkur frá tveimur verkefnum sem eru bæði við það að klárast, en í þeim verkefnum, Háteigsvegi 59 og Frakkastíg 1, hafa s.ap verið að ryð...
2. Hjörleifur Stefánsson - Frá hvílíku torfi til tómrar steypu 05.02.2026 1:03:42
Hjörleifur Stefánsson, arkitekt, hefur mikla reynslu af rannsóknum og skrifum um sögu bygginarlistar á Íslandi og hefur m.a. gefið út bækurnar Af jörðu og Hvílíkt torf - tóm steypa. Í þættinum leiðir Hjörleifur okkur frá landnámi til nútímans og fer yfir öll tímabil byggingarlistarsögunnar, þ.m.t. timburhúsatímabilið.
1. Pétur Ármannsson - Gunnar Hansson og skipulag Reykjavíkur 05.02.2026 1:11:02
Fyrsti þátturinn af hlaðvarpinu Hlaðlist. Óskar Örn og Einar Hlér byrja á að ræða við Pétur Ármannsson um ný útkomna bók um arkitektinn Gunnar Hansson. Einnig er talað um "skipulagsslys" í Reykjavík, ástandið á bygginarmarkaði og margt fleirra.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.