einarhler
HLAÐLIST.
Hlaðvarp um arkitektúr, skipulag og byggingargeirann. Einar og Óskar munu taka viðtöl við fólk sem hefur ólíka aðkomu að byggingargreinunum, s.s. arkitekta, verkfræðinga, verktaka, stjórnmálamenn og fleirri. Einnig munu þeir rýna í bækur og fræðigreinar tengd arkitekúr, auk vettvangsferða og heimsóknir í áhugaverð fyrirtæki og til fólks. Einar Hlér rekur arkitektastofuna Sei Studio, ásamt konunni sinni Shruthi Basappa. Óskar Örn er með doktorsgráðu í arkitektasögu frá Columbia háskóla í New York og starfar um þessar mundir hjá skipulagi Reykjavíkurborgar.
Besuch unbedingt die Website des Podcasts und unterstütze die Macher: podcasters.spotify.com
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
22. Roger Mullin - Prototypes for a Landscape 08.10.2026 52:09
Roger Mullin is an architect and educator at the School of Architecture at Dalhousie University in Halifax, Nova Scotia. His work uses drawing and design-build to explore landscape, coastal communities and the materials of industry. Between 2015 and 2018 he brought four groups of architecture students to Iceland for 12-day field trips. In 2024 he was a visiting professor at the Iceland University...
21. Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Cela, Basalt - Baðmenning og Feneyjar 2027 05.10.2026 1:00:42
Sigríður Sigþórsdóttir og Hrólfur Karl Cela reka arkitektastofuna Basalt ásamt fleirrum. Basalt er ein allra öflugasta arkitektastofa landsins með langa reynslu af ýmsum tegundum verkefna. Stofan er þekktust fyrir sérkunnáttu sína í hönnun baðstaða og Sigga og Hrólfur segja okkur frá sínum verkefnum, þeirra þátttöku í Feneyjarstvíeyringnum á næsta ári og margt fleirra.
20. Ásta Logadóttir - Birta í byggingum 28.09.2026 1:07:11
Ásta Logadóttir starfar sem lýsingarhönnuður hjá verkfræðistofunni Lotu og hefur tekið virkan þátt í stefnumótun og starfi tengt lýsingu á opinberum vettvangi. Ásta fer með okkur í gegnum yfir alla þætti er varða lýsingu og reglugerðir, samanburð við hin Norðurlöndin og margt fleirra.
19. Gunnar Kristjánsson - Þegar hús brenna 21.09.2026 1:07:11
Grunnar Kristjánsson rekur Brunahönnun slf. og hefur verið stórtækur á sviði brunahönnunar í 30 ár. Við ræddum helstu bruna síðustu ára á Íslandi og afleiðingar þeirra, en komum einnig aðeins inn á Grenfell brunann í London, þróun innan fagsins og margt fleirra.
18. Páll Ársæll og Áróra Árnadóttir, HMS - Lífsferilsgreiningar 14.09.2026 48:48
Í þættinum komu Páll og Áróra til okkar til þess að tala um innleiðingu lífsferilsgreininga og aðra þætti tengda umhverfismálum í byggingariðnaðinum. Páll og Áróra eru hluti af sjálfbærniteymi HMS og höfðu bæði mikla reynslu í þeim geira áður en þau gengu til liðs við HMS.
17. Snædís Traustadóttir - Fornverk 07.09.2026 59:03
Snædís Traustadóttir er lærður smiður með sérþekkingu á fornu handverki. Hún hefur fengist við ýmis verkefni, m.a. endurnýjun á þaki Landakotskirkju en hún kennir einnig námskeið í fornverki um allt land. Snædís er um þessar mundir einnig í meistaranámi í Noregi, hún kom og sagði okkur frá því og fræddi okkur um ýmislegt er varðar gömlu aðferðirnar.
16. Ásta Birna og Stefanía, ARKIBYGG - Frá Seyðisfirði til Bíldudals 31.08.2026 53:44
Ástíður Birna Árnadóttir og Stefanía Helga Pálmarsdóttir reka saman arkitektastofuna ARKIBYGG, sem stofnuð var árið 2020. Stofan hefur unnið til fjölda verðlauna, þrátt fyrir ungan aldur, en þær hafa einnig verið að vinna mikið í verkefnum á Seyðisfirði og Bíldudal og annars staðar á landinu.
15. Páll Hjaltason - Skipulag Reykjavíkur 2040 24.08.2026 52:36
Páll Hjaltason er einn eiganda +Arkitekta og hefur komið víða við á löngum ferli. Árið 2010 var hann í 7. sæti á lista Besta flokksins og varð í kjölfarið borgarfulltrúi og formaður Skipulagsráð. Páll segir okkur frá tímanum í Reykjavík og m.a. frá gerð aðalskipulags Reykjavíkur 2040, sem nú er í gildi.
14. Auður Hreiðarsdóttir, ESJA - Hófleg þétting og ferðamannastaðir 08.06.2026 49:32
Auður Hreiðarsdóttir rekur arkitektastofuna ESJA. Stofan er tiltölulega ný og var stofnuð í Danmörku í byrjun áratugarins. ESJA hefur fengist við rannsóknarverkefni, haft sigur í samkeppnum og fengist við ferðamannaverkefni. Við töluðum um allt þetta og margt fleirra með Auði.
13. Anna María Bogadóttir - Niðurrif 01.06.2026 1:04:35
Anna María Bogadóttir er prófessor í arkitektúr við Listaháskóla Íslands. Hún rekur einnig stofuna Úrbanistan og hefur komið að útgáfu margra bóka um arkitektúr á íslensku. Við töluðum við Önnu Maríu um niðurrif bygginga og tengist það helst bók hennar, Jarðsetning, sem kom einnig út sem kvikmynd árið 2021.
12. Hildigunnur Sverrisdóttir - Samfella og rákun 25.05.2026 1:06:25
Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt og fyrrum deildarforseti arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands, hefur sinnt kennslu, rannsóknum og ráðgjöf í tengslum við félagspólitískt samhengi manngerðs umhverfis, m.a. sem gestaprófessor við Yale. Í þættinum notar Hildigunnur hugmyndir Deleuze og Guattari sem linsu á íslenskt landslag, borgarskipulag og samspil markaðs- og lýðræðis. Einnig ræðir hún kennsl...
11. Þorsteinn Gunnarsson - Kirkjur Íslands 18.05.2026 1:02:53
Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, hefur um áratuga skeið verið í fararbroddi í rannsóknum og varðveislu íslenskra menningarminja. Hann var fyrstur Íslendinga til að sérhæfa sig í endurgerð eldri bygginga og hefur m.a. komið að endurreisn Viðeyjarstofu, Nesstofu, Bessastaðastofu, Alþingishússins og Hóladómkirkju. Þorsteinn hefur verið ritstjóri ritraðarinnar Kirkjur Íslands frá upphafi, en...
10. Lilja Pálmadóttir - Andinn og efnið 14.05.2026 39:42
Lilja Pálmadóttir er athafnakona og hrossabóndi á Hofi. Sem myndlistakona hefur hún einnig næmt auga fyrir byggingarlist og hefur átt frumkvæðið af því að láta reisa eða gera upp margar ólíkar byggingar, allar í hæsta gæðaflokki. Hún kom og sagði okkur frá þessum byggingum, samstarfi sínu við arkitekta ásamt mörgu fleirru.
9. Gylfi Ólafsson - Ísafjörður og Vestfirðir 09.05.2026 48:33
Gylfi Ólafsson var áður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða og er nú varaþingmaður Viðreisnar og oddviti Í-listans á Ísafirði, en listinn hefur verið í meirihluta þar síðan 2022. Gylfi fræðir okkur um ástandið á innviðum í sveitarfélaginu og þróun síðustu ára, ásamt því að fara yfir sögu nokkurra af helstu byggingum bæjarins. Nokkrir tenglar á umfjöllun um Ísafjarðarkirkju: https://timarit.i...
8. Vigfús Þór Hróbjartsson - Selfoss og skipulag 06.05.2026 46:08
Vigfús Þór er skipulagsfulltrúi Árborgar, en hefur einnig sinnt starfi skipulagsfulltrúa á mörgum öðrum stöðum á Suðurlandi. Við förum í hlutverk skipulagsfulltrúa, miðbæ Selfossar og fleirri atriði í þættinum.
7. Magnús Skúlason - Þétting byggðar og fagurfræðin 10.04.2026 50:59
Magnús Skúlason, arkitekt, á að baki langan og glæstan feril, bæði í einkageiranum og á opinbera sviðinu. Hann hefur starfað sem formaður byggingarnefndar Reykjavíkur, en er einnig einn af leiðtogunum í verndun eldri byggðar. Hann er vinsæll hjá fjölmiðlum þegar talað er um fréttir er tengjast byggingarmálum og Magnús fór yfir víðan völl í þættinum með okkur Óskari og Einari.
6. Ríkharður Kristjánsson - Verkfræði og bygginarrannsóknir 26.03.2026 1:12:37
Ríkharður Kristjánsson, oft kallaður verkfræðingur Íslands, kom til okkar og fór yfir þætti úr sínum goðsagnakennda starfsferil. Við ræðum hlutverk verkfræðinga, ráðhúsið og Hörpu, selinn og sauðkindina.
5. Andri Snær Magnason - Jötunsteinn og ljótleiki 18.03.2026 1:00:38
Andri Snær er þjóðþekktur rithöfundur sem gaf út bókina Jötunsteinn fyrir síðustu jól. Andri kom í spjall til okkar Óskars og sagði okkur frá þátttöku sinni í arkitektúr í gegnum tíðina, við ræddum bókina hans og aðra hluti sem tengjast kannski helst ljótleika í arkitektúr.
4. Hlökk Theodórsdóttir - Um Græna Gímaldið 24.02.2026 58:07
Í þættinum segir Hlökk okkur frá grein sinni "„Græna gímaldið“ við Álfabakka– hvað segir það okkur um stjórnsýslu skipulagsmála á Íslandi?", sem birtist í tímaritinu Stjórnmál og Stjórnsýsla undir lok árs 2025. Hlökk er meðal fremstu skipulagsfræðinga landsins og fer með okkur yfir sögu þessarar alræmdu byggingar ásamt öðrum málum. Hlekkur á greinina.
3. Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson, S. AP - Framtíð í arkitektúr 13.02.2026 58:52
Arnhildur Pálmadóttir og Arnar Skarphéðinsson eru uppistaðan í stofunni s. ap arkitektar. Þau hafa verið áberandi á sviði arkitektúrs síðustu ár, m.a. með verkefnið Lavaforming, sem var valið sem fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum árið 2025. Einnig segja s.ap okkur frá tveimur verkefnum sem eru bæði við það að klárast, en í þeim verkefnum, Háteigsvegi 59 og Frakkastíg 1, hafa s.ap verið að ryð...
2. Hjörleifur Stefánsson - Frá hvílíku torfi til tómrar steypu 05.02.2026 1:03:42
Hjörleifur Stefánsson, arkitekt, hefur mikla reynslu af rannsóknum og skrifum um sögu bygginarlistar á Íslandi og hefur m.a. gefið út bækurnar Af jörðu og Hvílíkt torf - tóm steypa. Í þættinum leiðir Hjörleifur okkur frá landnámi til nútímans og fer yfir öll tímabil byggingarlistarsögunnar, þ.m.t. timburhúsatímabilið.
1. Pétur Ármannsson - Gunnar Hansson og skipulag Reykjavíkur 05.02.2026 1:11:02
Fyrsti þátturinn af hlaðvarpinu Hlaðlist. Óskar Örn og Einar Hlér byrja á að ræða við Pétur Ármannsson um ný útkomna bók um arkitektinn Gunnar Hansson. Einnig er talað um "skipulagsslys" í Reykjavík, ástandið á bygginarmarkaði og margt fleirra.
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet