Gímaldið
Gímaldið
Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: gimaldid.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sirkabát #11: Verðbólgan og pennastrikið 12.02.2026 25:31
Árið hófst á vonbrigðum þegar árleg verðbólga skaust úr 4,5% í 5,2% á einum mánuði. En hvað liggur að baki? Þáttastjórnendur Sirkabát kafa ofan í vísitölu neysluverðs, skoða flokkana sem ýttu henni upp og reikna út hvað hefði gerst ef lagabreytingar á vörugjöldum ökutækja hefðu ekki tekið gildi um áramótin. Niðurstaðan: Gagnrýnin á gjaldahækkunina á við, en svartsýnisspáin kannski ekki. Lestu len...
Sirkabát #10: Innflytjendur og lífeyrisgreiðslur 11.02.2026 9:01
Nýlegar fréttir hafa bent á mikla fjölgun erlendra lífeyrisþega. En hvaða samhengi vantar? Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur hjá Hagstofunni bendir á að þótt fjöldinn hafi aukist hefur hlutfallið haldist lágt: aðeins 3,6% útlendinga á vinnumarkaði þiggja örorku- eða endurhæfingarlífeyri, samanborið við 18% Íslendinga. Gott dæmi um mikilvægi þess að greina tölur áður en þeim er slegið upp. Sirkab...
Barnaníðsefni ekki lengur bara í lokuðum hópum á netinu 09.02.2026 28:32
Hallur Hallsson, rannsóknarlögreglumaður hjá kynferðisbrotadeild, ræðir störf deildarinnar og alþjóðlegt samstarf til að finna og greina barnaníðsefni á netinu þar sem markmiðið er að koma þolendum til bjargar. Erla Hlynsdóttir ræðir við hann. Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Þú getur keypt áskrift og verið þannig með í að lýsa upp samfélagið. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
Hvað er eiginlega þetta ICE? 28.01.2026 14:29
Fjöldamótmæli gegn aðgerðum ICE hafa farið fram víða um Bandaríkin að undanförnu. Ríkisstjórn Trump hefur lagt mikla áherslu á fjölgun ICE-liða og þjálfunartími þeirra styttur til að koma sem flestum á göturnar sem fyrst. Þá hefur Trump snaraukið fjárframlög til ICE. Hvað þarf til að komast inn í ICE? Hversu miklum fjármunum er veitt í þetta fyrirbæri og hvað gerist næst í Bandaríkjunum? Erla Hlyn...
Lilja Alfreðs: Framsókn þarf að komast á eldhúsborð þjóðarinnar að nýju 27.01.2026 25:35
Lilja Dögg Alfreðsdóttir hefur tilkynnt um framboð til formanns Framsóknarflokksins, en hún er varaformaður flokksins. „Framsóknarflokkurinn á að mínu að mati að sækja fram og koma með lausnir," segir Lilja Alfreðsdóttir í viðtali við Gímaldið. Lilja nefnir til dæmis lausnir sem Framsókn geti talað fyrir á vettvangi efnahagsmála. „Ég viðurkenni að efnahagsstefna Kristrúnar kem...
Dagur B. Eggertsson: Norðurlöndin búa sig undir stríð 24.01.2026 44:06
„Norðurlöndin eru að búa sig undir stríð, ekki bara með hernaðaruppbyggingu heldur einnig með öðrum viðbúnaði til dæmis á sjúkrahúsum og með birgðasöfnun,“ segir Dagur B. Eggertsson þingmaður í viðtali við Gímaldið. „Maður vill ekki mála upp of dökka mynd en þetta er svolítið eins og í almannavörnunum að við verðum að vera samt heiðarleg með það sem getur teiknast u...
Sirkabát #9: Hugtökin hægri og vinstri sveiflast eftir deilumálum stjórnmála hverju sinni 21.01.2026 26:28
Hvað þýðir það að vera hægri- eða vinstrisinnuð í stjórnmálum? Viktor Orri Valgarðsson, doktor í stjórnmálafræði, útskýrir uppruna hugtakanna og hvernig merking þeirra breytist eftir tímabilum, löndum og deilumálum í stjórnmálum hverju sinni. Sirkabát er hlaðvarp sem Gímaldið gefur út. Í þáttunum er rýnt á bak við fréttir, gjarnan í tölfræði eða annað sem er til þess fallið að dýpka umræðuna. Gím...
Ingibjörg Isaksen kallar eftir samvinnu þvert á flokka í málefnum barna 20.01.2026 24:56
Í viðtali við Gímaldið fer Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins yfir stöðu flokksins, framtíðarsýn sína fyrir flokkinn og pólitíkina í þinginu. Ingibjörg hefur lýst yfir framboði til formanns flokksins. Sigurður Ingi Jóhannsson hættir sem formaður á flokksþingi Framsóknarflokksins í febrúar. Ingibjörg segir í viðtalinu að tækifæri felist í tómarúminu á vins...
Nágrannar: Óskeikult ráð að vera bara næs 17.01.2026 32:52
Nágrannar er nýtt hlaðvarp úr smiðju Gímaldsins sem Erla Hlynsdóttir stýrir. Við ætlum að fjalla um nágranna frá ýmsum hliðum. Við eigum öll nágranna. Þeir búa í búsinu við hliðina á okkur, í íbúðinni fyrir neðan okkur eða uppi á næstu hæð. Sumum nágrönnum kynnumst við en öðrum ekki. Við kynnumst broti af lífi nágranna okkar og þeir broti af okkar. Guðríður Haraldsdóttir er viðmælandi fyrsta þátta...
Einhverf Barbie og ósýnilegu stelpurnar 14.01.2026 7:59
Einhverf Barbie er ekki bara dúkka heldur tákn um sýnileika og viðurkenningu í heimi þar sem stelpur með einhverfu hafa lengi verið ósýnilegar. Erla Hlynsdóttir fjallar um einhverfa Barbie-dúkku sem er nýkomin á markað. Pistillinn birtist á áskriftamiðlinum Gímaldinu. Þú getur verið með í að styðja við Gímaldið með því að kaupa áskrift eða leggja til frjálst framlag .
Þjóðfélagið þarf að geta bognað án þess að brotna – Víðir Reynisson í viðtali um nýja stefnu í öryggis- og varnarmálum 10.01.2026 34:56
Þingmaðurinn Víðir Reynisson hefur víðtæka reynslu á sviði almannavarna og þjóðaröryggis. Aðalheiður Ámundadóttir blaðamaður ræðir við hann um viðbúnað á Íslandi ef til stríðsátaka kæmi og um nýja stefnu utanríkisráðherra í öryggis- og varnarmálum. Víðir starfaði við almannavarnir í rúma tvo áratugi áður en hann tók sæti á þingi, síðast sem sviðsstjóri almanna...
Sirkabát #8: Greindu Betur 08.01.2026 21:49
Ár hvert safnast 14-19 ára ungmenni saman og rýna í tölur og gögn í keppninni Greindu betur. Keppnin hefur vaxið mikið frá því hún hófst árið 2021. Keppninni er skipt upp í tvo aldursflokka eftir námsstigi og keppnisefnið er sniðið að getu hvers flokks. Tilgangurinn er að efla upplýsingalæsi grunn- og framhaldsskólanema. Kristín Ingvarsdóttir og Arndís Vilhjálmsdóttir hjá Hagstofunni ræða um ke...
Tala ársins 2025 30.12.2025 41:52
Hver er tala ársins 2025? Sirkabát rýnir í tölur ársins með gestum þáttarins. Tölur ársins segja margar og ólíkar sögur. Sirkabát fékk nokkra einstaklinga til að rýna í árið, velja sína uppáhalds tölu og deila með hlustendum. Arndís Vilhjálmsdóttir, teymisstjóri notendaþjónustu hjá Hagstofunni Emil Dagsson, doktorsnemi í hagfræði við Háskóla Íslands og starfsmaður deildar rannóknar og spár hjá Se...
Sirkabát - Þáttur 6 23.12.2025 15:25
Hvað er margar mismunandi tegundir af jólabjórum til sölu í ríkinu? Í þessum jólaþætti Sirkabát taka þáttastjórnendur sér fyrir hendur að greina þróun á sölu og breytingum á úrvali á jólabjór seldur er í verslunum ÁTVR.
Heillaður af bókum – Einar Kári Jóhannsson ritstjóri 18.12.2025 27:38
Í Bókapressunni fáum við innsýn inn í heim ritstjóra bóka í desember, en Einar Kári Jóhannsson hjá Benedikt bókaútgáfu er í viðtali við Erlu Hlynsdóttur. Fáar bækur hafa hreyft eins mikið við honum og bókin „Beðið eftir barbörunum“ – Waiting for the Barbarians eftir J. M. Coetzee. Starfsfólk bókaútgáfa þarf að ganga í flest störf í desember. Bókaútgefendur eru eins og á hlaupabretti í desember við...
Sirkabát - Þáttur 5 16.12.2025 16:43
Er jólamaturinn dýrari í ár en í fyrra? Þáttastjórnendur Sirkabát útbjuggu sína eigin jólamatarkörfu og reiknuðu út vísitölu jólaveisluverðs.
Jólabókaflóðið er afsprengi haftasamfélags 15.12.2025 29:47
Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, segir jólavertíðina mikilvæga fyrir rithöfunda en bendir á í viðtali við Gímaldið að innviðirnir sem styðja við bókmenntir séu brothættir. Bókabúðir séu til að mynda fáar, sérstaklega á landsbyggðinni, og skólabókasöfn fái ekki nægt fé til að börn hafi jafnt aðgengi að nýjum bókum. Félagið hefur látið til sín taka í höfundarréttarmálum að...
Pakkað í vörn í Evrópuumræðunni – um bræðibeitur og áhrif þeirra 15.12.2025 13:53
Úr pistli á Gímaldinu í dag: „Nú leggjum við Íslendingar upp í aðra Evrópuumræðu. Það var vissulega fyrirsjáanlegt að fyrstu skrefin í henni yrðu, líkt og í Bretlandi, stígin með gífuryrðum og hræðsluáróðri. Þetta hefur auðvitað bæði þann tilgang og þau áhrif að við sem viljum ræða Evrópumál, töpum þræðinum og glórunni, hoppum á reiðivagninn og förum að tala...
Að skrifa barnabækur er hugsjónastarf 13.12.2025 56:26
Auður Jónsdóttir tekur barna- og ungmennabækur til umfjöllunar í Bókapressunni að þessu sinni. Að skrifa barnabækur er að vissu leyti hugsjónastarf því höfundur barnabókar fær talsvert minna fyrir hvert selt prentað eintak, einfaldlega vegna þess að barnabækur eru oft töluvert ódýrari en skáldsögur fyrir fullorðna. Þannig þarf fólk sem einbeittir sér að þessu mikilvæga – og í raun vanþakkláta – st...
Fólk með heilabilun þarf stuðning en ekki útskúfun. Veðmálafyrirtæki færa sig upp á skaftið í íþróttunum. 11.12.2025 22:59
Gímaldið hefur fjallað um heilabilunarsjúkdóma undanfarna daga. Fólk sem greinist ungt með heilabilun upplifir útskúfun af vinnumarkaði þegar það þyrfti í raun að fá skilning og rými til að átta sig á hlutunum. Við fjöllum í dag um verðmálafyrirtæki sem ganga sífellt lengra í því að komast að í íþróttaheiminum. Eistneskt körfuboltafélag, frá bænum Keila í Eistlandi, sem atti kappi við Tindastól í...
Krakkar eru ekki hræddir við neitt! 06.12.2025 49:07
Skáldaparið Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson eru bæði þekkt fyrir magnaðar skáldsögur, óhrædd við að beita rödd sinni. En þegar þau voru að lesa fyrir krakkana sína uppgötvuðu þau að krakkar eru ekki hræddir við neitt! Því byrjuðu þau að skrifa hrollvekjandi sögur fyrir krakka, svokallaðar hrekkjavökusögur sem komu út sem hljóðbækur hjá Storytel, fjórar bækur í fyrra og tvær í ha...
Sirkabát - Þáttur 4 04.12.2025 29:58
Í nýlegri tilkynningu frá barna- og menntamálaráðherra kemur fram að „áætlað sé að eitt af hverjum tíu börnum á Íslandi búi við fátækt.“ Er þessi tala rétt? Þáttastjórnendurnir Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson ræða við Kolbein H. Stefánsson prófessor við HÍ um rannsóknir og mælingar á fátækt.
Sirkabát - Þáttur 3 27.11.2025 24:49
Landsmönnum hefur fjölgað hratt á undanförnum árum og mannfjöldaspá Hagstofu Íslands spáir því að landsmenn gætu slagað í hálfa milljón á eftir um það bil tvo áratugi. Hversu nákvæm er þessi spá? Á hvaða gögnum byggir hún? Og hvernig ber túlka hana? Þessum spurningum og fleirum munu þáttastjórnendur leitast við að svara í þriðja þætti Sirkabát.
Ný fjármögnunarleið fyrir íbúðir, ráðherra íhugar nýja rannsóknarnefnd og vangaveltur um Ísland sem nýlendu 26.11.2025 17:58
Lán eða ekki lán? – Ný leið til fjármögnunar er til skoðunar hjá Neytendastofu og Seðlabanka Íslands. Ráðherra dómsmála íhugar að setja á fót rannsóknarnefnd kvennamorða. Þetta kemur fram í aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um efni Gímaldsins.
Andri Snær Magnason: Bók þarf mikilvægt erindi til að hafa skriðþunga 25.11.2025 54:07
„Ég hef alltaf þurft mikið erindi til að skrifa,” segir Andri Snær Magnason rithöfundur í viðtali við Auði Jónsdóttur í Bókapressunni. Hann ræðir nýja bók sína, Jötunstein, arkitektúr og tengsl byggingarsögunnar við tíðarandann.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.