Gímaldið

Gímaldið

News IS ↓ Odcinki: 75

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: gimaldid.is

Autor

Gímaldið

Kategoria

News

Strona podcastu

gimaldid.is

Ostatni odcinek

7 lip 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android 5 mln+ pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

„Aðgangur að húsinu en ekki öllum herbergjum“ í styrkjakerfi ESB 07.07.2026

Evrópskir styrktarsjóðir eru langstærsta alþjóðlega uppspretta styrkja inn í íslenskt vísinda-, mennta- og menningarsamfélag og aðgangur Íslands að þeim er vel tryggður í gegnum EES-samninginn. Ísland hefur þó enga formlega aðkomu þegar áætlanir eru mótaðar, en það myndi breytast með inngöngu í ESB. Þetta segir Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís, í viðtali við hlaðvarp Gímaldsins. Rann...

Kosningabaráttan: Geta gervimenni klofið þjóðina? 03.07.2026

Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir fara yfir kosningabaráttuna sem nú er að taka á sig mynd vegna atkvæðagreiðslunnar í ágúst. Þær ræða nýjar baráttuhreyfingar, gæði umræðunnar og þá hættu að erlend ríki reyni að hafa áhrif á niðurstöðuna með upplýsingaóreiðu. Af hverju er kosið um aðildarviðræður en ekki um aðild? Hvaða þýðingu hafa nýju já- og nei- hreyfingarnar fyri...

Borgin, Bretland og Brexit á röngunni 27.06.2026

Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða fyrstu hagræðingaraðgerðir nýs meirihluta í Reykjavík, tíu ára afmæli Brexit og óróa í breskum stjórnmálum, nýjan liðsmann Gímaldsins, áherslu á neytendaumfjöllun og nýja stjórnsýsluúttekt um Græna gímaldið. Hvað kemur í staðinn fyrir alla upplýsingafulltrúa borgarinnar? Verður upplýsingamiðluninni útvistað og mega borgarbúar búast við fleiri „lab...

Dýrasti matur Evrópu og sofandi íslenskir neytendur 24.06.2026

Hvergi í Evrópu er dýrara að kaupa í matinn en á Íslandi og hagnaður matvöruverslana heldur áfram að vaxa. Matvörurisar kenna launahækkunum um hátt matarverð en forstjóri Samkeppniseftirlitsins telur að samfélagið allt hafi brugðist. Lega landsins, sérstakur gjaldmiðill og tollavernd spili þar inn í, en ekki síður eigi öflug hagsmunagæsla matvörumarkaðarins sinn þátt í hækkunum. Þá megi löggjafinn...

Lesin grein: Frá þjóðaratkvæði til aðildar: atburðarrásin ef þjóðin segir já 20.06.2026

Lestur á fréttaskýringu af vef Gímaldsins um líklega tímalínu frá þjóðaratkvæðagreiðslu til fullgildrar aðildar Íslands að Evrópusambandinu, segi þjóðin já þann 29. ágúst næstkomandi. Í greininni er fjallað um:  Ferlið hjá ESB eftir móttöku tilkynningar frá Íslandi um vilja til að taka upp viðræður mikilvægi þess að umsókn Íslands frá 2009 er enn virk mótun samningsafstöðu hjá ESB og ríkjaráðstefn...

Íslenskan gæti staðið sterkar innan ESB 18.06.2026

Íslenskan myndi líklega standa sterkari innan Evrópusambandsins en utan þess, að mati Gauta Kristmannssonar, prófessors í þýðingafræði og deildarforseta íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands. Gauti er meðal þeirra sem sáu um túlkun í síðustu aðildarviðæðum Íslands og ESB, og hefur hann þegar fengið fyrirspurnir frá yfirmanni fjöltyngis á Evrópuþinginu um undirbúning að menntun fleiri túlka...

Þorgerður Katrín biður eldra fólk að íhuga jáið fyrir ungu kynslóðina 16.06.2026

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er gestur Gímalsins og ræðir áherslur í mögulegum viðræðum Íslands um aðild að Evrópusambandinu.  Hvaða ferill fer í gang ef þjóðin segir já í haust?  Hverjir verða valdir til að skilgreina samsningsafstöðu Íslands?  Hvað verður sett á oddinn í viðræðunum?  Er rétti tíminn núna til að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrá? Á Ísland að halda til streitu undanþágu til að...

Breyting en ekki umbylting fyrir íslensk fyrirtæki ef Ísland gengi í ESB 13.06.2026

Ef Ísland gengi í Evrópusambandið þá yrði það breyting fyrir íslensk fyrirtæki, en ekki endilega umbylting á einni nóttu.  Hugveitan Evrópustraumar vann skýrslu fyrir Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið þar sem greind eru áhrif aðildar á rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja og dregnir fram bæði kostir og gallar. Í samtali við Gímaldið segist höfundurinn vona að skýrslan sé gag...

Stóru samtökin þegja: ASÍ og SA munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu 11.06.2026

Stór samtök á vinnumarkaði – ASÍ og SA – munu ekki lýsa afstöðu til ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst Sólveig Anna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Eflingar og einn forseta ASÍ, hefur lýst sinni skoðun en talar ekki fyrir hönd ASÍ Félag atvinnurekenda birti skýrslu með kostum og göllum aðildar fyrir atvinnulífið en telur ekki hlutverk sitt að lýsa afstöðu Íslenska yrði opinbert tungumál ESB ef til a...

Útgerðarmenn með reynslu af ESB jákvæðari fyrir aðild 09.06.2026

„Þeir sem enga hafa reynslu af ESB virðast hafa sterkustu skoðanirnar og sjá engin tækifæri,“ segir Hjálmar Vilhjálmsson, viðskiptafræðingur og framkvæmdarstjóri á uppsjávarsviði hjá Brimi hf. Hjálmar er einn fárra Íslendinga sem þekkja rekstur í sjávarútvegi innan ESB af eigin raun. Í viðtali við Gímaldið rekur hann hvernig viðhorf hans til ESB breyttust, hvað aðild að Evrópusambandinu myndi þýða...

Vonin liggur í samtalinu – Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir 03.06.2026

Þær hafa verið í forystu fyrir ólíka stjórnmálaflokka og segjast stundum rífast við sjónvarpið þrátt fyrir að vera hættar í pólitík. Í viðtali við Gímaldið ræða þær Hanna Birna Kristjánsdóttir og Svandís Svavarsdóttir um konur í pólitík, um erfiða en viðburðaríka tíma í borgarstjórn skömmu eftir hrun og það hvernig samvinna þvert á flokka skilar meiri árangri en átök.  Þáttastjórnandi er Eyrún Mag...

Sirkabát #17: Dýrtíð á Íslandi 01.06.2026

Hvað þýðir það þegar sagt er Ísland sé orðið 84 prósent dýrara en aðrar Evrópuþjóðir? Nýlega birti stéttarfélagið Viska greiningu sem sýndi fram ískyggilega þróun í verðlagi hér landi. Vörur og þjónustu umtalsvert dýrari hér landi en í nágrannaþjóðunum og verðlag hefur hækkað hraðar en í samanburðarlöndunum. Þáttastjórnendur fara ofan í saumanna á verðlagsmælingum og ályktunum sem draga má út frá...

Áhrif ESB-aðildar fyrir budduna og bókhaldið 25.05.2026

Gangi Ísland í ESB, kasti krónunni og taki upp evru, mun það hafa margvísleg áhrif á heimilin í landinu, fyrirtækin og ríkissjóð. En hvaða áhrif nákvæmlega? Við vitum það ekki fyrir víst. Það fer eftir því hvernig okkur semst og hvernig við höldum á spöðunum. Þingið spurði Hagfræðistofnun og í áliti stofnunarinnar má finna áhugaverðar vísbendingar um:  Aukin viðskipti og umsvif Breytingar á verðla...

Gímaldið kíkir í pakkann: Samningsmarkmið utanríkismálanefndar 23.05.2026

Gímaldið rýnir í nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar um ESB-tillögu ríkisstjórnarinnar. Í álitinu eru sett fram helstu markmið  aðildarviðræðna við ESB, ákveði þjóðin að þær skuli hefja á ný. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir óvenjuleg einkenni nefndarálitsins og hvernig það bætir upp snubbótta tillögu utanríkisráðherra.   Meðal umræðuefna í þættinum:   Dramatís...

R-listinn með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn 19.05.2026

Er hin svokallaða hægri sveifla á landinu jafn skýr og af er látið, eða er kannski vinstri sveifla sem öllum er að yfirsjást? Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir halda áfram að rýna í kosningaúrslitin og velta upp áhugaverðum vinklum og spurningum: Flokkar R-listans fá meira fylgi í Reykjavík en Sjálfstæðisflokkurinn Velgengni Miðflokksins er birtingarmynd klofningsins frá Framsókn fyrir...

Kosningaúrslitin: Lesið á milli línanna 17.05.2026

Hægri sveifla fór yfir landið í sveitarstjórnarkosningum. Gímaldið rýnir í niðurstöðurnar með tölfræðingnum Brynjólfi Gauta og stjórnmálaskýrandanum Aðalheiði Ámundadóttur. Í þættinum er meðal annars rætt um þetta: Meirihlutar féllu víða um land og hægri sveiflan er staðreynd Samfylkingin er næst stærsti flokkurinn í sveitarstjórnum á eftir Sjálfstæðisflokknum Sjálfstæðismenn eru í sókn og Píratar...

Næsti kafli í Reykjavík og það sem við hefðum átt að tala meira um 15.05.2026

Síðasti þátturinn í röðinni Börn og bílastæði, kosningaumfjöllun Gímaldsins, er kominn í loftið. Í þættinum ræða Aðalheiður Ámundadóttir og Erla Hlynsdóttir útlitið fyrir Reykjavík og málin sem þær hefðu viljað meiri umræðu um fyrir kosningar.  Töfratalan 12 sem allt snýst um Sviptingar í síðustu könnun fyrir kosningar Meirihlutaþreifingar gætu orðið meira spennandi en kosningarnar Hvernig munu hæ...

Við þurfum að geta rekið samfélagið fyrir okkur öll 15.05.2026

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir lifir og hrærist í samfélagi jaðarsettra hópa. Hún er framkvæmdastjóri Samhjálpar og stjórnarkona í samtökum gegn fátækt og félagslegri einangrun. Hún segir það tvennt ólíkt að reka fyrirtæki og að reka samfélag, og að Reykjavík spili í annarri deild en önnur sveitarfélög þegar kemur að þjónustu við jaðarsett fólk.  Erla Hlynsdóttir ræðir við Guðrúnu Ágústu í nýjasta þ...

Eru tölur í kosningabaráttu til að upplýsa eða sannfæra? 14.05.2026

Í þættinum fara Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Georg Gylfason úr hlaðvarpinu Sirkabát yfir nokkrar áhugaverðar tölur sem tengjast sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu ásamt Eyrúnu Magnúsdóttur. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eyða tæpum fjórum sólarhringum á ári í umferð – en er þetta stór tala? Við hvað á að miða? Hvernig stendur Reykjavík fjárhagslega og hvaða sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu...

Á borgin að fela einkaðilum verkefnin eða sjá um þau sjálf? 13.05.2026

Í þættinum er rætt við prófessor í stjórnmálafræði um þá leið sveitarfélaga að útvista verkefnum til einkaaðila.  Hvaða flokk­ar vilja fela einka­að­il­um verk­efnin í Reykjavík? Hvaða flokk­ar vilja að borg­in vinni öll verk sjálf?  Kostn­að­ur við út­vist­un verk­efna er oft van­met­inn og sparnaður ofmetinn Eftirliti með einkaaðilum sem veita opinbera þjónustu er ábótavant  Kjörnir fulltrúar mi...

Hinsegin bókmenntir í brennidepli á bókmenntahátíðinni Queer Situations 13.05.2026

Ásta Kristín Benediktsdóttir bókmenntafræðingur hefur sérhæft sig í hinsegin bókmenntum. Hún segir bókmenntir ekki hlutlausar heldur sýni þær okkur ákveðna mynd af samfélaginu.  Hinsegin bókmenntahátíðin Queer Situations fer fram í maí og þar er Ásta með erindi sem ber yfirskriftina: Hver má skrifa (um) hinsegin bókmenntir? Vangaveltur um væntingar og tjáningarfrelsi .  Erla Hlynsdóttir ræðir við...

Málefnin sem kjósendur leggja áherslu á — Skipulagsmál á toppnum 11.05.2026

Skipulagsmál og málefni leik- og grunnskóla eru þeir tveir málaflokkar sem flestir íbúar leggja áherslu á vegna komandi sveitarstjórnarkosninga, hvort sem litið er til Reykjavíkur, nágrannasveitarfélaga borgarinnar, eða íbúa á landsbyggðinni.  Þetta sýna niðurstöður Þjóðmálakönnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um viðhorf til málefna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí.  Rúnar Vilhjá...

Gísli Marteinn: Reykjavík á að bera sig saman við aðrar höfuðborgir 09.05.2026

Margt kemur Gísla Marteini Baldurssyni spánskt fyrir sjónir í umræðu flokkanna um skipulagsmál í Reykjavík.  Í þættinum Börn og Bílastæði er rætt við Gísla Martein um Reykjavík í samanburði við aðrar borgir og þau öngstræti sem umræðan um skipulagsmál er komin í í aðdraganda kosninga. Er raunhæft að bera Reykjavík saman við aðrar borgir?  Hvernig væri Reykjavík ef þéttingin væri eins og í París? A...

Bannorðin í stefnuskrám flokkanna og sundlaugar ofar Sundabraut 06.05.2026

Rýnt í stefnuskrár flokkanna í borginni. Eru þær innantóm loforð eða fullar fyrirheitum um það sem koma skal? Þættinum stýra Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir. Fjallað er um: Sundlaugar oftar nefndar en Sundabraut í stefnuskránum Nokkur bannorð virðast vera í stefnum flokkanna Allir vilja bæta leikskóla en greinir á um það hvort rekstrarform leysir vanda Flokkar sem hafa stutt samgöngu...

Sirkabát #16: Mælingar á atvinnuleysi 04.05.2026

Hvort eru atvinnulausir rúmlega níu þúsund eða nálega átján þúsund talsins? Tvær stofnanir hafa umsjón með að telja fjölda hverju sinni, Vinnumálastofnun og Hagstofa Íslands. Mælingar beggja stofnana á atvinnuleysi fylgjast venjulega að. Nú ber hins vegar svo við að munur á mælingunum hefur aukist mikið á sama tíma og fólki án vinnu hefur fjölgað vegna kólnunar í hagkerfinu. 

Słuchaj podcastu Gímaldið w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS