Gunnar Smári Egilsson
Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða. Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Author
Gunnar Smári Egilsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 30, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Rauða borðið 30. júní - Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar 30.06.2026 4:37:57
Þriðjudagur 30. júní Neyðarréttur, demókratar, öryrkjar, mæðgur og bragðlaukar Tekist er á um það fyrir dómstólum þessa dagana hvort akstur undir áhrifum megi réttlæta með neyðarrétti. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks. Gunnar Smári ræðir við Svein Mána Jóhannesson doktor í sagnfræði um bandaríska Demókrataflokkinn, ólíkar deildir hans, stefnu og markmið í aðdraganda kosninganna í...
Rauða borðið 29. júní - Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum 29.06.2026 4:55:51
Mánudagur 29. júní Frost, evran, Suður-Kínahaf og besta útgáfan af okkur sjálfum Páll Heiðar Pálsson fasteignasali ræðir stöðuna á fasteignamarkaði í samtali við Björn Þorláks og hvernig sótt er að nafni hans fasteignasölu. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir um Evrópu við Gunnar Smára, um Úkraínu, Evrópusambandið og evruna, veltir fyrir hvort rekja megi fólksflótta frá ríkjum Austur-Evrópu til...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Örnólfur Árna 27.06.2026 1:41:28
Laugardagur 27. júní Helgi-spjall: Örnólfur Árna Örnólfur Árnason segir okkur frá lífshlaupi sínu, blaðamennsku, ferðamennsku, bókum, leikritum, óperum og listahátíðum, frá gildi þess að ferðast og leyfa heiminum að breytast sér og samfélagi sem mætti breystast til betra vegar.
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 26 26.06.2026 1:46:14
Föstudagur 26. júní Vikuskammtur: Vika 26 Ásdís Olsen sér um Vikuskammt að þessu sinni með gestum sínum, þeim Árelíu Eydís Guðmundsdóttur dósent, rithöfundi og fráfarandi borgarfulltrúa, Einari Skúlasyni þjóðfræðingi og göngugarpi, Halldóri Baldurssyni myndlistarmanni og skopteiknara, og Stefáni Ingvari Vigfússyni sviðshöfundi og uppistandara.
Rauða borðið 25. júní - Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn 25.06.2026 4:38:11
Fimmtudagur 25. júní Dýravernd, framhaldsskólinn, ofbeldi, gervigreind og bekkurinn Tófan, hvalurinn og selurinn eru hluti af verðmætum sem Íslendingum ber að vernda. Þetta segir Rósa Líf Darradótir læknir sem segir að manninn hafi borið af leið eins og lýsi sér í svokallaðri “”mannmiðjuvillu”. Björn Þorláks ræðir við hana. Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir og María Hjálmtýsdóttir, framhaldsskólak...
Rauða borðið 24. júní - Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur 24.06.2026 4:35:43
Miðvikudagur 24. júní Trump, framhaldsskólinn, átök, heimur að farast og kórsöngur Sveinn Máni Jóhannesson sagnfræðingur, Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur og Ólafur Páll Jónsson heimspekingur ræða við Gunnar Smára Egilsson um tíma Trump. Sigurjón Magnús ræðir við Guðmund Hálfdánarson um átökin innanlands í samtímanum. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara ,ræðir við Gunna...
Rauða borðið 23. júní - Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður 23.06.2026 3:45:26
Þriðjudagur 23. júní Þjóðaratkvæðisgreiðslan, lagaleg álitamál, myndlæsi og heiður Óðinn Freyr Baldursson formaður Ungra Evrópusinna og Þórhildur Pálsdóttir stjórnarkona í Ungum gegn ESB útskýra fyrir Gunnari Smára hvers vegna þjóðaratkvæðagreiðslan í lok ágúst skiptir máli. Gísli Tryggvason lögmaður fer yfir lagaleg álitamál í fréttum líðandi stundar. Utanvegaakstur, hvalveiðar, réttur fólks til...
Rauða borðið 22. júní - Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar 22.06.2026 4:07:30
Mánudagur 22. júní Starmer, hvalir, Kína, gervigreind, arkitekt og hjólastígar Keir Starmer hefur sagt af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og þar með sem forsætisráðherra Breta. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur í London spáir í spilin í breskum stjórnmálum og innan Verkamannaflokksins í spjalli við Gunnar Smára. Valgerður Árnadóttir hvalavinur ræðir við Björn Þorláks um mótmæli gegn hva...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir 20.06.2026 2:14:01
Laugardagur 20. júní Helgi-spjall: Jóhanna Jónasdóttir Lífshlaup Jóhönnu minnir helst á dramatíska kvikmynd þar sem söguhetjan býr við allsnægtir, frægð og frama þegar eiginmaðurinn biður um skilnað og veröldin hrynur til grunna. Í ljós kemur að á bak við glansmyndina er brotin kona með skelfilega áfallasögu og átröskun. Samhliða því að upplifa líf sitt í rúst fer Jóhanna að stunda hugleiðslu sem...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 25 19.06.2026 1:37:52
Föstudagur 19. júní Vikuskammtur: Vika 25 Við förum yfir fréttir vikunnar og stöðu samfélagsins á þessum kvenfrelsisdegi með þeim fjórum konum. Margrét Örnólfsdóttir handritshöfundur, Hlédís Maren Guðmundsdóttir varaborgarfulltrúi, Steinunn Ólína Hafliðadóttir myndlistarkona og Jenný Kristín Valberg teymisstýra í Bjarkarhlíð greina málin, stöðuna og stefnuna.
Rauða borðið 18. júní - Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn 18.06.2026 3:41:20
Fimmtudagur 18. júní Utanríkis, Íran & Trump, ybbigoggur og bekkurinn Við byrjum á spjalli Björns, Ásdísar og Gunnar Smára. Svo kemur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisràðherra og fer yfir átakamál í ítarlegu samtali við Björn Þorláks. ESB, Trump, Gaza, efnahagsmálin innanlands og hræðsluáróður ber á góma. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir samkomulag Trumpstjórnarinnar og klerkastjórn...
Rauða borðið 16. júní - Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti 16.06.2026 3:47:07
Þriðjudagur 16. júní Samgöngur, samfélagsmiðlar, ESB, skíði og körfubolti Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra fer yfir samgönguáætlun með Gunnari Smára, ræðir mikla umferð á veikbyggðum vegum, göng, brýr, sjóflutninga og innanlandsflug. Viðar Halldórsson félagsfræðingur fer yfir kosti og galla þess að banna börnum aðgengi að samfélagsmiðlum. Bretar hafa fylgt fordæmi Ástrala og hyggjast banna öllu...
Rauða borðið 15. júní - Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB 16.06.2026 5:11:00
Mánudagur 15. júní Edition-málið, þjóðmál, brjóst, Kína og ESB Réttarhöld um svokallað Edition mál þar sem tvennt lét lífið fjalla um fjarstæðukenndan hrylling. Magnea Marínósdóttir ræðir við Björn Þorláks um hvernig það var að vera viðstödd réttarhöldin. Kristín Ástgeirsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir og Þröstur Ólafsson ræða við Sigurjón Magnús um helstu þjóðmál, erjur í Samfylkingunni og fleira....
Rauða borðið - Helgi-spjall: Árni Pétur 13.06.2026 1:41:48
Laugardagur 13. júní Helgi-spjall: Árni Pétur Árni Pétur Guðjónsson leikari ársins kemur í helgi-spjall og segir frá hippanum í sér, leikaranum, hommanum, alkanum og ýmsum fleiri.
Föstudagur 12. júní Vikuskammtur: Vika 24 12.06.2026 1:14:22
Föstudagur 12. júní Vikuskammtur: Vika 24 Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla, Björgvin G. Sigurðsson, fyrrum ráðherra, Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður, ræða ólguna í Samfó, útlendingamál, menntamál, ESB, efnahagsmál og íslenska blíðviðrið. Björn Þorláks sér um þáttinn.
Rauða borðið 11. júní - Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list 11.06.2026 3:04:06
Fimmtudagur 11. júní Flokksórói, menntun öryrkja, lögblind börn, ESB og list Þórarinn Snorri Sigurgeirsson stjórnmálafræðingur og skristofufstjóri hjá Þroskahjálp er einn hvatamanna yfirlýsingar fjölda fólks úr Samfylkingunni gegn stefnubreytingar forystu flokksins í málefnum flóttafólks. Hann segir Gunnari Smára hvers vegna. Anna Margrét Bjarnadóttir, Hrönn Stefánsdóttir og Þórdís Bjarnleifsdótti...
Rauða borðið 10. júní - Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga 10.06.2026 5:05:51
Miðvikudagur 10. júní Ærumeiðingar, heimsmálin, ESB-skýrsla, námsleiðir og jóga Margrét Friðriks á frettin.is ræðir spillta íslenska yfirstétt sem hún segir stöðugt vinna gegn sér. Hún ræðir nýfallinn ærumeiðingadóm, eigin áfallasögu og gönguna með Jesú Kristi í samtali við Björn Þorláks og Ásdísi Olsen. Gunnar Smári ræðir við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor um heimsmálin, stríðin og ESB. Hallgrím...
Rauða borðið 9. júní - Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús 09.06.2026 5:09:01
Þriðjudagur 9. júní Persónulegt hrun, heilahreistingur, áfengi, stengjafræði og veitingahús Einlægt samtal um persónulegt hrun og þá miklu auðmýktina sem þarf til að biðja um hjálp, í viðtali Ásdísar við Arnór Má Másson markþjálfa. Mjög alvarlegur heilahristingur leiddi til þess að Valgerður Árnadóttir missti getu til að sinna einföldustu verkefnum. Hún komst í gegnum erfiðleikana eins og hún segi...
Rauða borðið - Helgi-spjall: Sigfinnur 09.06.2026 2:24:58
Laugardagur 6. júní Helgi-spjall: Sigfinnur Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur segir okkur frá kvíða æskunnar, veikindum foreldra sinna, trúrrleit sinni, reynslu af dauðanum og hvernig fólk tekur honum, voninni og öðru sem hjálpar.
Rauða borðið 8. júní - Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM 08.06.2026 5:05:00
Mánudagur 8. júní Sprungnir meirihlutar, röddin, Hildur, túrismi og HM Ofurlaun nokkurra sveitarstjóra hafa verið til umræðu að loknum kosningum. Þá gekk meirihluti í Hafnarfirði úr skaftinu vegna trúnaðarbrests. Þorsteinn Gunnarsson hefur skrifað ritgerð sem kann að varpa ljósi á álitamál í íslenskri sveitarstjórnarpólitík. Björn Þorláks ræðir við hann. Að finna sína eiginlegu rödd fæst með því a...
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 23 05.06.2026 2:06:00
Föstudagur 5. júní Vikuskammtur: Vika 23 Kverkatak Írans á Vesturlöndum, bein Jónasar, græðgi og brottfararbúðir koma við sögu í Vikuskammti að þessu sinni. Sara Oskarsson læknanemi, Magnea Marínósdóttir ráðgjafi, Margrét Tryggvadóttir rithöfundur og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir fyrrum þingmaður eru gestir Björns Þorlákssonar. Þau ræða fréttir og helstu þjóðmál líðandi stundar.
Rauða borðið 4. júní - Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál 04.06.2026 3:20:10
Fimmtudagur 04. júní Vitsmunakreppa, þurfamenn, bókmenntir, listir og neytendamál Sverrir Norland rithöfundur ræðir þverrandi áherslu á vitsmuni en aukinn þunga á öryggi í samtali við Björn Þorláks. Ragnheiður Kristjánsdóttir prófessor segir Gunnari Smára frá breytingum á fátæktarlögum 1927 þar sem þurfamenn fengu meðal annars kosningarétt, en fram að því missti fólk þann rétt ef það þáðu stuðning...
Rauða borðið 3. júní - Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar 03.06.2026 3:22:33
Miðvikudagur 3. júní Ofbeldi, öryrkjar, fánar, íbúðamarkaður og sundlaugar Hrundið hefur verið af stað landsátaki gegn kynbundnu ofbeldi næstu fimm árin. Linda Dröfn Gunnarsdóttir ræðir í samtali við Björn Þorláks átakið, flutning athvarfsins, samstöðu og stuðning en einnig ökklabönd og kyrkingartök. Unnur Hrefna Jóhannsdóttir blaðakona og öryrki ræðir við Gunnar Smára um stöðu öryrkja í samfélagi...
Rauða borðið 2. júní - Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn 02.06.2026 4:17:33
Þriðjudagur 2. júní Bitbein, mygluveiki, villistrákar, ferðaþjónustufúsk og hringvegurinn Páll Valsson rithöfundur og ævisagnaritari Jónasar Hallgrímssonar skýrir fyrir Birni Þorláks hvers vegna hann telur það góða hugmynd að grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar. Hugmyndin hefur vakið deilur meðal fræðimanna. Aðalheiður Sigursveinsdóttir stjórnunarráðgjafi og listakona varð fyrir alvarlegum áhrif...
Rauða borðið 1. júní - Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun 01.06.2026 4:24:08
Mánudagur 1. Júní Lyfjahagsmunir, pólitík, fasteignasala og menntun Hagsmunir sem stýra lyfjarannsóknum og heilbrigðiskerfinu eru miklir og spurningar vakna hvort árangursrík og ódýr meðferð gegn krabbameini sé ekki í boði vegna hagsmuna lyfjafyrirtækja? Ásdís Olsen ræðir við Karl Snæbjörnsson lækni og Jón Ármann Steinsson sem segist hafa náð bata af fjórða stigs krabbameini með lyfi sem læknar er...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.