RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Staðan á leigumarkaði í ljósi breytinga í New York 30.06.2026 15:48
Í Þetta helst í dag er sjónum beint að stöðunni á leigumarkaði hér á landi. Ákveðið var að frysta leiguverð í New York í lok síðustu viku. Væri æskilegt að fara svipaða leið hér? Rætt er við Kristínu Amalíu Líndal, hagfræðing hjá HMS, og Yngva Ómar Sigrúnarson, formann Samtaka leigjenda. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Stoðir styrkjast: Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður 29.06.2026 15:02
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef samruninn gengur eftir verður til risastórt fyrirtæki á ferðaþjónustumarkaði. Samanlagður starfsmannafjöldi fyrirtækjanna tveggja er rúmlega 1100. Eitt af því sem vekur athygli við þessa fyrirhugðuðu sameiningu Bláa lónsins og Arctic Adventures er að fjárfestin...
Takmörkuð áhrif lækkunar kakóverðs 26.06.2026 13:29
Í nýrri úttekt verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands, sem birt var í gær, kom fram að verð á vinsælum súkkulaði- og sælgætisvörum hefur hækkað um tæp 33 prósent að meðaltali frá júní 2024 til júní 2026 - og að miklar verðlækkanir á kakó og sykri undanfarið hafa ekki skilað sér í smásöluverð. Rætt er við Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóra Vísbendingar, og Bjarka Stein Benja...
Ójöfnuður til heilsu fer vaxandi 25.06.2026 15:27
Í gær birti embætti landlæknis nýja úttekt þar sem rýnt er í þróun á andlegri heilsu landsmanna undanfarinn áratug. Það vekur athygli að mikinn mun má sjá á öllum mælingum eftir fjárhagsstöðu, á þeim sem eiga erfitt með að ná endum saman og þeim sem eiga auðvelt með það, og munar yfirleitt tugum prósenta. Embættið telur niðurstöðurnar benda til þess að ójöfnuður til heilsu og vellíðanar fari vaxan...
Fólk sem var á Gauksstöðum gagnrýnir tímaramma rannsóknar 24.06.2026 16:59
Fólk sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði er ósátt við að tímarammi rannsóknar íslenska ríkisins á fósturheimilum nái ekki lengra fram í tímann en til ársins 2002. Tímamörk rannsóknarinnar miðast við gildistöku nýrra barnaverndarlaga þetta ár. Lög um rannsóknarnefndina voru samþykkt á Alþingi nú í júní. Fósturheimilið Gauksstaðir var starfandi í bænum Garði á Suðurnesjum á árunum 2009 til...
Þingveturinn að baki 23.06.2026 12:46
Á föstudaginn lauk Alþingi störfum þennan þingvetur og þingmenn héldu í sumarfrí. 188 frumvörp voru lögð fram og af þeim urðu 105 að lögum, 83 voru óútrædd og eitt ekki samþykkt. Rýnt er í stöðu mála með Viktori Orra Valgarðssyni, doktor í stjórnmálafræði. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Barátta frumbyggjanna við forseta Argentínu 22.06.2026 16:05
Kona sem tilheyrir samfélagi frumbyggja í suðurhluta Argentínu og berst gegn landnámi argentínska ríkisins í landinu var stödd hér á Íslandi í síðustu viku sem gestur á ráðstefnu sem fór fram í Háskóla Íslands. Konan heitir Moira Millán og tilheyrir ættbálki sem heitir Mapuche. Moira hefur setið í fangelsi vegna þessarar baráttu sinnar og segist vera í lífshættu og hafa fengið líflátshótun. Hún bý...
Hugmyndin um takmörk á íbúafjölda 18.06.2026 14:21
Svisslendingar höfnuðu því í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudaginn að setja takmörk á íbúafjölda landsins, þannig að ekki mættu fleiri búa þar en tíu milljónir. Rætt er við Ólaf Margeirsson, hagfræðing í Sviss, um atkvæðagreiðsluna og hugmyndina.
Ábendingar um ofbeldi í árabil en ekkert gerðist 16.06.2026 14:59
Barnaverndaryfirvöld fengu margar ábendingar um árabil fyrir 2019 að börn sem dvöldu á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði hefðu verið beitt harðræði og ótilhlýðilegum refsingum. Starfsmenn Barnaverndar Reykjavíkur fóru meira að segja þangað árið 2015 og sóttu dreng sem talið að hefði verið refsað með óásættanlegum hætti. Starfsmaður hjá barnaverndarnefnd Hafnarfjarðar taldi meðal annars að hún yr...
Gjá milli grasrótar og kjósenda? 15.06.2026 15:42
Það styttist í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið og reglulega birtast niðurstöður skoðanakannana sem gefa mögulega mynd af því sem koma skal. Það sem vakti einna helst athygli í niðurstöðum könnunar Maskínu fyrir DV um helgina var afstaða stuðningsfólks vinstriflokkanna sem vilja að Ísland standi utan Evrópusambandsins, VG og Sósíalista, en 83,3 prósent kjósenda...
Hyllir undir lok stærstu mansalsrannsóknar sögunnar 12.06.2026 14:59
Stærsta mansalsrannsókn sem komið hefur upp á Íslandi hefur nú staðið yfir í meira en tvö ár. Þetta er rannsóknin á meintum brotum víetnamska viðskiptamannsins Quang Lé sem rak veitingastaðinn Wok On í Reykjavík og fleiri. Hver er staðan á rannsókninni núna og um hvað snýst þetta sérstæða mál Rætt er við lögreglumanninn Gunnar Axel Davíðsson sem stýrir rannsókninni á málinu hjá lögreglunni á höfuð...
Curaçao og fámennar þjóðir á stórmótum 11.06.2026 15:40
Í dag hefst heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem að þessu sinni er haldið í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada. Í þætti dagsins er rýnt í eyríkið Curaçao og hvað skýri velgengni fámennari þjóða á stórmótum. Rætt er við Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor í málefnum Suður-Ameríku, Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði sem hefur sérhæft sig í íþróttum, og Jóhann Má Helgason, sparkspeking. Umsjón: I...
Kaldvík í brimróti á Austfjörðum 10.06.2026 14:14
Laxeldisfyrirtækið Kaldvík á Austfjörðum á í verulegum fjárhagslegum erfiðleikum um þessar mundir. Ástæðan er fyrst og fremst tap vegna vetrarsára og laxadauða hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið þurfti meðal annars að slátra löxum hjá sér sex mánuðum á undan áætlun vegna þessa. Kaldvík ætlaði sér að framleiða ríflega sextán þúsund tonn af eldislaxi á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en endaði á því að framl...
Er hægt að treysta gervigreindinni í samtali um ESB? 09.06.2026 14:59
Við höldum áfram að ræða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið - og beinum nú sjónum okkar að áhrifum gervigreindar í upplýsingaöflun og umræðu. Fjölmargar spurningar hafa vaknað um ýmislegt sem tengist Evrópusambandinu og mögulegri aðild Íslands - og borið hefur á því að fjöldi fólks noti gervigreind - ólík spjallmenni - við upplýsingaöflun. Rætt er við Hafstein Ei...
Samhengi uppsagna og 10 milljarða arðgreiðslu Kviku banka 08.06.2026 17:00
Kvika banki tilkynnti um uppsagnir á ellefu starfsmönnum sama daginn í síðustu viku og hluthafafundur bankans ákvað að greiða rúmlega 10 milljarða króna sérstaka arðgreiðslu út úr bankanum. Fimm stærstu hluthafar bankans eru lífeyrissjóðir. Hvað segja lífeyrissjóðirnir um þessa arðgreiðslu og þessar uppsagnir samhliða henni? Fjallað er um þetta og samhengi þessara arðgreiðslu en hún var ákveðin sk...
Vaxandi skuldir fyrirtækja í byggingastarfsemi 05.06.2026 14:30
Í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands kemur fram að skuldir fyrirtækja í byggingastarfsemi hafi vaxið síðustu misseri og að merki séu um vaxandi vanskil, þótt þau séu enn tiltölulega lítil. Þá er það nefnt að lánveitendur þurfi að gæta að aukinni áhættu í geiranum. Húsnæðisverð hafi lækkað að raunvirði, íbúðum á sölu fjölgað og lengur taki að selja eignir, sérstaklega nýjar í...
Sjúkrahúsið veitir loksins upplýsingar um verktakagreiðslur til lækna 04.06.2026 16:30
Fastráðnir læknar á Sjúkrahúsinu á Akureyri voru með verktakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk sem námu á bilinu 33 milljónum og niður í rúmlega hálfa milljón króna fyrir þau árið 2024. Þetta eru verktakagreiðslur ofan á önnur laun sem eru mishá eftir starfshlutfalli. Níu læknar, eða eignarhaldsfélög þeirra og samlagsfélög í flestum tilfellum, fengu þessar verktakagreiðslur. Heildargreiðslur sjú...
Deilt um skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum 03.06.2026 14:40
Í dag beinum við sjónum okkar að skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum - sem nokkuð hefur verið deilt um í vikunni. Rætt er við Arnald Sölva Kristjánsson, formann fjármálaráðs og lektor í vinnumarkaðshagfræði.
Þar sem pappírsslóðin endar: Börn voru vistuð í Bakkakoti í trássi við lög 2005 02.06.2026 17:29
Börn voru vistuð á fósturheimilinu Bakkakoti í Landeyjum árið 2005 án þess að eigendur Bakkakots hefðu haft leyfi til þess frá sveitarfélaginu að taka að sér fósturbörn. Þetta var brot á nýjum barnaverndarlögum sem samþykkt voru árið 2004. Þegar þetta komst upp bannaði félagsþjónustan í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu eiganda Bakkakots, Þóru Bernódussdóttur, að taka að sér fleiri fósturbör...
Saga og sálfræði vítaspyrnunnar 01.06.2026 14:50
Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að vítaspyrnum - sögu og sálfræði vítaspyrnunnar - bæði í ljósi helgarinnar og heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu sem hefst í næstu viku. Rætt er við Stefán Pálsson, sagnfræðing og sparkspeking, og Daða Rafnsson, íþróttasálfræðing. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Ört stækkandi risi Jóns Ásgeirs kaupir 25 fasteignir af kaupfélagi 29.05.2026 15:59
Í byrjun mánaðarins var sagt frá því að Kjörbúðin í Bolungarvík, sem er í eigu smásölufyrirtækisins Dranga, myndi loka. Degi áður en þessi frétt var sögð sendu Drangar frá sér tilkynningu um að fyrirtækið ætlaði sér að kaupa 25 fasteignir af dótturfélag Kaupfélags Suðurnesja víða um allt. Ein af þessum eignum er fasteignin á Bolungarvík sem hefur hýst starfsemi Kjörbúðarinnar. En hvað liggur á bak...
Endurskoðun samgöngusáttmála í kjölfar kosninga 28.05.2026 16:45
Við höldum áfram umræðu um sveitarstjórnarmál í þætti dagsins - og beinum nú sjónum að mögulegum breytingum á framkvæmdum sem tengjast samgöngum á höfuðborgarsvæðinu - en þau mál voru mikið rædd í aðdraganda kosninga og breytingum lofað. Rætt er við Þorstein R. Hermannsson, framkvæmdastjóra Betri samgangna. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Héraðsdómurinn í plastbarkamálinu og tregða sænska ríkisins til að greiða skaðabætur 27.05.2026 16:51
Einn af uppljóstrurunum í plastbarkamálinu svokallaða í Svíþjóð, Oscar Simonson brjóstholsskurðlæknirinn og blaðamaðurinn Bosse Lindqvist furða sig á því að sænska ríkið hafi ekki haft frumkvæði að því að greiða skaðabætur í málinu. Þeir eru til viðtals vegna dómsins sem féll í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku. Þar fékk eftirlifandi eiginkona fyrsta plastbarkaþegans, Andemariams Beye...
Óvissa um samning milli Írana og Bandaríkjamanna 26.05.2026 14:55
Í þætti dagsins er sjónum beint að samningi milli Írana og Bandaríkjamanna. Rætt er við Gísla Jónsson, sérfræðing hjá Geislavörnum ríkisins, Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Kjartan Orra Þórsson, sérfræðing í málefnum Írans.
Sagan af þyrlu Jims Ratcliffes og rörinu á kókómjólkinni 22.05.2026 16:42
Hvaða áhrif hefur það á lítið samfélag eins og Vopnafjörð á Austfjörðum þegar einn ríkasti maður heims hefur stundað fjárfestingar þar í áratug? Þarna er rætt um Jim Ratcliffe, milljarðamæringinn enska, sem er sennilega bæði ríkasti og þekktasti athafnamaður sem hefur stundað fjárfestingar á Íslandi. Samkvæmt lista tímaritsins Forbes er hann í 153 sæti yfir ríkustu menn í heimi. Hann á eignir upp...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.