Heimildin

Heimildin - Hlaðvörp

News IS ↓ 302 episodes

Hlaðvarp Heimildarinnar

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: heimildin.is

Author

Heimildin

Category

News

Podcast website

heimildin.is

Latest episode

Oct 25, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Eitt og annað: Málverkið af danska kónginum 25.10.2026

Í Friðriksborgarhöllinni á Norður – Sjálandi má sjá málverk af dönskum þjóðhöfðingjum, langt aftur í aldir. Fyrsta málverkið af Friðriki X eftir að hann varð konungur Danmerkur var afhjúpað fyrir skömmu. Verkið er umdeilt.

Eitt og annað: Óttast stefnubreytingu hjá DR 10.10.2026

Danskir leikarar, leikstjórar, handritshöfundar, myndatökumenn og fleiri sem unnið hafa að gerð leikinna sjónvarpsþátta hjá Danska sjónvarpinu, DR, óttast stefnubreytingu undir stjórn nýs yfirmanns. Minni áhersla verði lögð á gerð vandaðra leikinna þáttaraða, sem hafa verið ein helsta skrautfjöður DR mörg undanfarin ár og skapað miklar tekjur.

Eitt og annað: Comté eða ekki Comté 27.09.2026

Í Frakklandi gilda mjög ákveðnar reglur varðandi framleiðslu osta, nánar tiltekið eru reglurnar 170 talsins. Mjög strangt eftirlit er með framleiðslunni enda mikið í húfi því franskir ostar eru heimsfrægir fyrir gæði. En stundum koma upp vandamál sem erfitt er að leysa, því hafa framleiðendur Comté ostanna fengið að kynnast að undanförnu.

Þjóðhættir #74: Þjóðhættir á Vöku þjóðlisthátíð #1 18.09.2026

Þennan þátt af Þjóðháttum flytja Kristinn Schram og Auður Viðarsdóttir ykkur beint af þjóðlistahátíðinni Vöku, tekinn upp í lifandi flutningi í Salnum í Kópavogi. Við kynnumst hljóðritasafni Stofnunar Árna Magnússonar með Rósu Þorsteinsdóttur, fáum innsýn í dagskrá hátíðarinnar og spjöllum við Atla Frey Hjaltason um þjóðdansa, tónlist og þjóðlistir. Þetta er fyrri þáttur af tveimur þar sem við tök...

Eitt og annað: Tromp á hendi Trumps? 13.09.2026

Danski herinn hefur árum saman mátt búa við niðurskurð, sem bæði hefur bitnað á tækjum og mannskap. Slæmur aðbúnaður og léleg laun hafa orðið til þess að færri sækjast eftir hermennskunni. Nýlega varð danski flotinn að aflýsa leiðangri til Grænlands vegna þess að ekki var hægt að manna leiðangursskipið. Slíkar fréttir skaða ímynd flotans og geta verið vatn á myllu Bandaríkjaforseta.

Eitt og annað: 50 þúsund slysagildrusvalir 02.08.2026

Á húsum í Danmörku eru að minnsta kosti 50 þúsund svalir sem eru beinlínis hættulegar, að mati Dönsku byggingatæknistofnunarinnar. Fyrir skömmu lést húsvörður íbúðablokkar í Kaupmannahöfn þegar litlar svalir á húsinu hrundu.

Eitt og annað: Ruslið eftir Kanana á Grænlandi 19.07.2026

Í tengslum við yfirlýsingar og áhuga Donald Trump um yfirráð og kaup á Grænlandi hefur lítið verið talað um viðskilnað bandaríska hersins á fyrrverandi herstöðvum í landinu. Í þeim efnum er síður en svo allt í sómanum.

Eitt og annað: Af pedalanum á bensíngjöfina 05.07.2026

Ungum Dönum sem hjóla daglega í skólann eða til vinnu hefur fækkað talsvert á síðustu árum. Í Danmörku fjölgar bílum ár frá ári og á heimilum þar sem áður var til einn bíll eru þeir nú iðulega tveir, jafnvel þrír.

Eitt og annað: Vonast eftir bandaríska hernum 21.06.2026

Þótt meirihluti Grænlendinga vilji ekkert með Bandaríkjamenn hafa gegnir öðru máli um íbúa Narsarsuaq. Þeir binda miklar vonir við að bandaríski herinn komi þar upp herstöð.

Eitt og annað: Glansinn hverfur af stígvélunum 07.06.2026

Svartar bjarnarskinnshúfur, rauðir jakkar, bláar buxur, byssustingur og gljáandi stígvél. Þetta er hátíðarbúningur lífvarða dönsku hirðarinnar. Samkvæmt reglum um aðbúnað á vinnustöðum verður nú slakað á kröfum um háglansandi skófatnað varðanna.

Eitt og annað: 50 gráðu frost, 12 menn og 100 hundar 22.02.2026

Sirius deild danska hersins er ekki daglega í fréttum en gegnir mikilvægu hlutverki. Þessi fámenna deild á sér langa sögu en nafnið Sirius (Hundastjarnan) er ekki tilviljun. Sirius deildin hefur eftirlit með stærsta þjóðgarði heims.

Eitt og annað: Þýski bílabransinn í bobba 08.02.2026

Flestir stærstu bílaframleiðendur í Þýskalandi eiga í miklum erfiðleikum. Starfsfólki í þýskum bílaverksmiðjum fækkaði um 114 þúsund á síðasta ári og útlitið fram undan er ekki bjart. Kínverjar hafa á örfáum árum „reykspólað“ inn á bílamarkaðinn.

Eitt og annað: Fjölgun í hernum veldur vanda 25.01.2026

Fjölgað verður um mörg þúsund manns í danska hernum á næstu árum. Slík fjölgun mun, að mati sérfræðinga, hafa mikil áhrif á danskan vinnumarkað og kalla á vinnuafl frá öðrum löndum. Framleiðsla vopna og skotfæra verður jafnframt stóraukin í Danmörku.

Eitt og annað: Kuggurinn: Á meðal merkustu fornleifa sem fundist hafa í Danmörku 11.01.2026

Þegar starfsmenn danska Víkingaskipasafnsins könnuðu hafsbotninn úti fyrir Kaupmannahöfn fyrir nokkrum árum vegna fyrirhugaðra stórframkvæmda grunaði þá ekki að þar leyndist fjársjóður, skipsflak frá 15. öld. Flakið er talið meðal merkustu fornleifa sem fundist hafa í Danmörku.

Þjóðhættir #73: Jólaskammturinn, laufabrauð og mandarínuát 23.12.2025

Þátturinn verður með hátíðlegu sniði því nú nálgast jólin þar sem allskonar kræsingar og lystisemdir verða á borðum landsmanna. Við ferðumst aftur í tímann og heyrum hvað fólk, sem fætt var um aldamótin nítjánhundruð, borðaði í sinni æsku, forvitnumst um laufabrauð í samtíð og fortíð og veltum fyrir okkur ógætilegu mandarínuáti. Gestir þáttarins er miklir matgæðingar, þjóðfræðingarnir Guðrún Gígja...

Eitt og annað: Færa sig sífellt upp á skaftið 21.12.2025

Á Eystrasalti og svæðinu þar umhverfis eru mestar líkur á að Rússar reyni að beita hervaldi gegn NATO-ríkjum. Þetta kemur fram í nýju áhættumati Leyniþjónustu danska hersins. Rússar færa sig í auknum mæli upp á skaftið og sýna ógnandi framferði.

Þjóðhættir #72: Sjálfbærni og matarhættir 16.12.2025

Hvernig getum við lifað sjálfbærara og betra lífi fyrir okkur sjálf og heiminn þegar kemur að því hvað við látum ofan í okkur? Gestur Þjóðhátta að þessu sinni er Auður Viðarsdóttir, doktorsnemi í þjóðfræði. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands...

Eitt og annað: Hægfara aldursforseti 14.12.2025

Kemst þótt hægt fari er málsháttur sem flestir kannast við. Hann á sannarlega við grænlandshákarlinn sem verður ekki kynþroska fyrr en við 156 ára aldur og getur orðið 400 ára, eldri en nokkurt annað hryggdýr. Hann setur þó engin hraðamet, nær mest 2,7 kílómetra hraða á klukkustund, syndir kafsund.

Þjóðhættir #71: Ljósmæður, meðganga og hjátrú 09.12.2025

Að þessu sinni verður umfjöllunarefni þáttarins spennandi nýsköpunarverkefni sem tveir nemendur í þjóðfræði, Birta Diljá Ögmundardóttir og Kári Thayer, unnu síðastliðið sumar í samstarfi við Þjóðháttadeild Þjóðminjasafn Íslands, Ljósmæðrafélag Íslands og Evu Þórdísi Ebenezerdóttur, doktorsnema í þjóðfræði. Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Um...

Eitt og annað: Hafa sofið á verðinum 30.11.2025

Ef netsambandið klikkar fer allt til fjandans, nema viðbúnaður sé til staðar, og það er hann ekki hér í Danmörku,“ sagði ráðherra almannavarna í dönsku ríkisstjórninni eftir að netið lá niðri klukkustundum saman í lok október, vegna bilunar. „Danir og margar aðrar þjóðir hafa sofið á verðinum,“ sagði ráðherrann.

Þjóðhættir #70: Á slóðum þjóðlagatónlistar, þjóðdansa og þjóðernis 18.11.2025

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Eitt og annað: Eitt þekktasta skip í sögu Danmerkur 16.11.2025

Margir þekkja hið vinsæla lag Kim Larsen, Jutlandia, en það hefst á orðunum „Det var i 1949 eller cirka der omkring da der var krig I Korea“. Færri þekkja sögu þessa merka skips sem hófst árið 1934 og lauk fyrir 60 árum í Bilbao á Spáni.

Þjóðhættir #69: Reðursafnið, gestabækur og torfbæir 11.11.2025

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Þjóðhættir #68: Fjárréttir á Íslandi fyrr og nú 04.11.2025

Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

Eitt og annað: Stolið fyrir milljónir á hverjum degi 02.11.2025

Þjófnuðum úr dönskum matvöruverslunum hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Í fyrra var daglega stolið vörum fyrir 5,5 milljónir danskra króna. Þar við bætast þjófnaðir úr annars konar verslunum. Kaupmenn vita vart sitt rjúkandi ráð í baráttunni við þjófana.

Listen to the Heimildin - Hlaðvörp podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.