Heimildin
Heimildin - Hlaðvörp
Hlaðvarp Heimildarinnar
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: heimildin.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þjóðhættir #67: Skynjun einstaklinga á návist framliðinna 28.10.2025 28:26
Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón hafa dr. Dagrún Ósk Jónsdóttir og Sigurlaug Dagsdóttir, kennarar í þjóðfræði við Háskóla Íslands.
Þjóðhættir #66: Alþýðutónlist og Vaka - þjóðlistahátið 21.10.2025 48:08
Þjóðhættir er hlaðvarp sem fjallar um nýjar rannsóknir og fjölbreytta miðlun í þjóðfræði. Umsjón að þessu sinni hafa Auður Viðarsdóttir doktorsnemi og Kristinn Schram dósent í þjóðfræði. Hljóðjöfnun: Egill Viðarsson.
Eitt og annað: Óvissan um flaggskipið 05.10.2025 10:08
Árum saman hefur ríkt mikil óvissa um framtíð Palads, eins elsta kvikmyndahúss Kaupmannahafnar. Allar hugmyndir varðandi framtíð hússins hafa hingað til verið slegnar út af borðinu en nýjasta hugmyndin fær jákvæð viðbrögð.
Eitt og annað: Titringur í kálgörðunum 21.09.2025 9:00
Í Danmörku eru tugir þúsunda smáhýsa, svonefnd kolonihavehus, sem mörg hver hafa verið byggð í leyfisleysi og í trássi við lög og reglur. Borgaryfirvöld í Kaupmannahöfn vilja nú bregðast við og koma böndum á óreiðuna eins og það er orðað. Eigendur smáhýsanna eru uggandi.
Eitt og annað: Vilja fleiri kistur en færri duftker 07.09.2025 5:36
Margir danskir kirkjugarðar eru í fjárhagskröggum. Breyttir greftrunarsiðir valda því að tekjur garðanna hafa minnkað og duga ekki fyrir rekstrinum.
Eitt og annað: Hafmeyjan með stóru brjóstin 31.08.2025 8:24
Litla hafmeyjan í Kaupmannahöfn er þekkt víða um heim og flestir ferðamenn sem koma til borgarinnar í fyrsta sinn leggja leið sína út á Löngulínu til að sjá hana með eigin augum. Önnur og stærri stytta, Stóra hafmeyjan, hefur verið talsvert í fréttum að undanförnu, brjóst hennar fara fyrir brjóstið á embættismönnum í Dragør.
Eitt og annað: Enn lengist biðin 17.08.2025 8:21
Eftir margra ára seinkun og alls kyns vafstur var í apríl 2020 tilkynnt að göngin undir Femern beltið og samnefnt sund sem eiga að tengja Danmörku og Þýskaland saman yrðu tilbúin árið 2029, jafnt fyrir bíla og járnbrautarlestir. Nú er enn einu sinni komið babb í bátinn.
Eitt og annað: Kókaín, bananar og ferðatöskur 10.08.2025 7:57
Starfsfólki í 12 Coop verslunum í Danmörku brá í brún þegar verið var að bæta á bananahillurnar fyrir skömmu. Í bananakössunum voru ekki eingöngu bananar heldur einnig mörg hundruð kíló af kókaíni. Notkun á kókaíni hefur þrefaldast í Kaupmannahöfn á tíu árum og sömu sögu er að segja frá mörgum Evrópulöndum.
Eitt og annað: Ungir Svíar fengnir til að fremja voðaverk í Danmörku 27.07.2025 4:36
Tveir menn voru nýlega dæmdir til þungra refsinga í Bæjarrétti Kaupmannahafnar. Dómarnir hafa vakið athygli því þetta var í fyrsta sinn sem dæmt hefur verið, í Danmörku, fyrir að skipuleggja morð og ráða mann til verksins.
Samtal við samfélagið #15: Innflytjendur á Íslandi 07.07.2025 1:07:20
Ísland hefur tekið umtalsverðum breytingum undanfarna áratugi. Eftir að hafa löngum verið eitt einsleitasta samfélag í heimi er nú svo komið að nær fimmti hver landsmaður er af erlendu bergi brotinn. Innflytjendur hafa auðgað íslenskt samfélag á margvíslegan hátt og mikilvægt er að búa þannig um hnútana að allir sem hingað flytja geti verið virkir þátttakendur á öllum sviðum mannlífsins. Til að fr...
Eitt og annað: Færri vilja kunna brauð að baka 06.07.2025 7:50
Dæmigerður sunnudagsmorgunn er í hugum margra Dana skreppitúr í bakaríið eftir rúnstykkjum og vínarbrauði, og áður fyrr með viðkomu hjá blaðasalanum. Sífellt færri vilja gera baksturinn að ævistarfi og margir bakarar neyðast til að hafa lokað á sunnudögum. Lærðum bökurum hefur fækkað um 50 prósent á 10 árum.
Samtal við samfélagið #14: Ein af þessum sögum 02.07.2025 1:03:07
Ýmsir þættir hafa áhrif á hvar við ákveðum að búa til lengdar og hversu vel okkur líður í heimahögunum. Nýleg rannsókn sýnir til að mynda að einstaklingar sem búsettir eru í fáumennum byggðarlögum hérlendis og upplifa slúður um sitt ástarlíf eru tvöfalt líklegri til þess að ætla að flytjast búferlum en aðrir sem ekki upplifa slíkt. Til að færa okkur í allan sannleika um áhrif slúðurs á búsetu og b...
Samtal við samfélagið #13: Væntingar barna af erlendum uppruna til menntunar 17.06.2025 44:22
Í hlaðvarpi vikunnar spjallar Sigrún við Evu Dögg Sigurðardóttur en hún tók nýlega við stöðu lektors í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Eva lauk doktorsnámi í félagsfræði frá Kent háskólanum í Bretlandi árið 2021. Í doktorsritgerð sinni einbeitti hún sér að væntingum erlendra nemenda á Íslandi til framtíðarinnar. Þær Sigrún ræða um doktorsnámið hennar, helstu niðurstöðurnar úr ritgerðinni með áh...
Eitt og annað: 0,0 prósent alkóhól 15.06.2025 6:31
Eftirspurn eftir óáfengum bjór eykst stöðugt. Í fyrra náði aukningin níu prósentum á heimsvísu. Því er spáð að þessi þróun haldi áfram á komandi árum og dönsk bjórfyrirtæki bregðast við.
Eitt og annað: Kannski ekki deigur dropi úr krananum 08.06.2025 6:00
Ef ekki verður gripið til aðgerða má búast við miklum skorti á ómenguðu neysluvatni á Kaupmannahafnarsvæðinu á næsta áratug. Þetta má lesa í nýrri skýrslu frá fyrirtækinu Hofor sem sér um öflun og dreifingu orku og vatns í Kaupmannahöfn og nágrenni.
Þjóðhættir #65: Hlautbollar, draumkonur og Jarðskinna 05.06.2025 47:00
Gestur þáttarins er að þessu sinni Kári Pálsson, þjóðfræðingur. Kári er fróður um ýmislegt sem tilheyrir fortíð okkar og sögu en hann var ungur þegar áhugi hans á þjóðsögum, Íslendingasögunum og norrænni trú kviknaði.
Samtal við samfélagið #12: Áherslur og skipulag verkalýðsfélaga 02.06.2025 54:27
Hvergi á byggðu bóli er stéttarfélagsaðild eins mikil og Íslandi en um 90% launafólks hér á landi tilheyrir stéttarfélagi. Styrkur verkalýðshreyfinga hérlendis sem erlendis ræðst hins vegar ekki einungis af fjölda félagsbundinna meðlima heldur ekki síður af áherslum, skipulagi og því hvernig verkalýðsfélög kjósa að beita sér.
Samtal við samfélagið #11: Sjálfhverfa samfélaga og þjóðernishyggja í heimsfaraldri 27.05.2025 54:42
Stundum æxlast lífið þannig að hlutir frestast og það á svo sannarlega við um hlaðvarp vikunnar. Í því ræðir Sigrún við Bjarka Þór Grönfeldt sem var lektor við Háskólann við Bifröst þegar viðtalið var tekið vorið 2023. Síðan hafa leiðir Bjarka legið í ýmsar áttir, en hann var meðal annars aðstoðarmaður Guðmundar Inga Guðbrandssonar fyrrverandi Félags- og vinnumarkaðsráðherra en vinnur nú sem sérfr...
Eitt og annað: Með ömmu um hálsinn? 25.05.2025 6:20
Dönsk kona hefur sent danska þinginu tillögu sem gerir ráð fyrir að nota megi ösku látinna Dana í skartgripi. Lögum samkvæmt er það bannað í Danmörku en heimilt í mörgum löndum. Margir Danir vilja rýmri reglur varðandi jarðneskar leifar ættingja.
Þjóðhættir #64: Draumar, huldufólk og rökkrin: Þjóðsagnir íslenskra kvenna 21.05.2025 42:12
Gestur þáttarins er Júlíana Þóra Magnúsdóttir doktor í þjóðfræði, en doktors rannsókn Júlíönu bar yfirskriftina „Með eigin röddum: Sagnahefðir íslenskra kvenna undir lok nítjándu aldar og í byrjun tuttugustu aldar“. Í þættinum segir Júlíana frá rannsókn sinni, en hún greindi sagnir 200 kvenna, sem varðveittar eru í hljóðritasafni Árnastofnunnar. Þetta eru sagnir sem Hallfreður Örn Eiríksson safnað...
Samtal við samfélagið #10: Ójöfnuður í menntun: Framtíðarsýn og áskoranir innflytjenda í atvinnumálum 20.05.2025 53:41
Í þessum nýja þætti af hlaðvarpinu tekur David Reimer viðtal við Thomas Zimmermann sem er nýdoktor við félagsfræðideild háskólans í Frankfurt.
Þjóðhættir #63: Flateyri, sveppasósur og svæðisvitund 14.05.2025 35:23
Gestur þáttarins er Sæbjörg Freyja Gísladóttir þjóðfræðingur. Sæbjörg Freyja er búsett á Flateyri sem var vettvangur meistararitgerðar hennar í þjóðfræði. Þar rannsakaði Sæbjörg hvað felst í svæðivitund þeirra sem búsettir eru á Flateyri og samskipti ólíkra hópa samfélagsins. Sæbjörg hefur enn gaman að því að velta fyrir sér samfélaginu sem hún býr í og hvað hefur áhrif á viðhorf íbúanna þar.
Eitt og annað: 100 ára og enn að stækka 11.05.2025 7:07
Árið 1920, þegar dönsk stjórnvöld keyptu landskika á Amager-eyjunni við Kaupmannahöfn, grunaði líklega fáa að þarna yrði innan fárra áratuga fjölmennasti vinnustaður í Danmörku. Kastrup-flugvöllur er 100 ára.
Þjóðhættir #62: Hulduverur, safnastarf og köldu ljósin Hafnafirði 07.05.2025 28:03
Gestur þáttarins er Svanhvít Tryggvadóttir þjóðfræðingur sem starfar um þessar mundir á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Svanhvít lýsir leið sinni í þjóðfræðina og segir frá BA ritgerð sinni þar sem hún rannsakaði sagnaheim Vestur Íslendinga, hvaða þjóðtrúarverur fluttust yfir hafið og hvernig þeim vegnaði á nýjum stað.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.