RÚV

Heimskviður

News IS ↓ 263 episodes

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 11, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sumar-Heimskviður - Sala Palomu 11.07.2026

Við höldum áfram með Sumar-Heimskviðurnar og rifjum upp mál frá liðnum vetri og þátturinn í dag er helgaður einu máli. Það er saga Palomu, sem við getum nú líklega ekki kallað annað en harmsögu. Paloma Shemirani, frá suðausturhluta Bretlands, var aðeins 23 ára þegar hún lést úr eitilfrumukrabbameini í fyrrasumar. Þegar hún greindist sjö mánuðum áður, voru taldar 80% líkur á að hún næði fullum bata...

Sumar-Heimskviður - Breskur aðall 04.07.2026

Við höldum áfram að rifja upp valin brot frá liðnum vetri og nú er komið að þeim sem fæðast með silfurskeið í munninum. Þó sum þeirra hafi þurft að skila henni. Það er allavega raunin með fyrra umfjöllunarefnið okkar í dag, manninn sem áður var kallaður Andrés prins, en nú Andrew Mountbatten Windsor eftir að hann var sviptur öllum sínum tiltlum og meðfæddri meðgjöf í lífinu. Anna Lilja Þórisdóttir...

Sumar-Heimskviður - Fréttaljósmyndir og framtíð fjölmiðla 27.06.2026

World Press Photo fögnuðu 70 ára afmæli í fyrra og samtökin fóru í naflaskoðun í tilefni tímamótana. Við ræddum við Joumana El Zein Khoury, framkvæmdastjóra World Press Photo, fyrr í vetur. Við rifjum upp eftirminnilegustu fréttaljósmyndir sögunnar. Myndir sem breyttu heiminum. Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þe...

Sumar-Heimskviður - Afmælisþátturinn 20.06.2026

Við sendum út Heimskviðuþátt númer 250 í mars og héldum upp á það með því að segja örsögur utan úr heimi. Í tilefni dagsins sögðum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en grófum upp hluti sem færri þekkja. Svo kynntumst við fleirum sem ekki eru eins vel þekktir, en ættu kannski að vera það. Við fjölluðum um hundakallinn Lars Lökke Rasmussen, badmintonmeistarann Jens Frederik Nielsen, áhrifavald fr...

Sumar-Heimskviður - Netið 13.06.2026

Umfjallanir dagsins tengjast allar netinu sem við notum allan daginn og oft allt og mikið. Við notum það mikið, @ merkið gamla góða. Við hömrum það inn oft á dag en þekkjum kannski ekki öll söguna. Það var sýningargripur á nýlistasafninu í New York þegar við fjölluðum um það í október í fyrra. Það sem kannski færri vita er að merkið sjálft á sér nokkur þúsund ára sögu og hefur þar af leiðandi ekki...

Sumar-Heimskviður - Tækni 06.06.2026

Hálfleiðara þekkja fæstir en þeir eru engu að síður í lífi okkar allra, nauðsynlegir í öllum helsta tæknibúnaði samtímans. Stærsti hluti þeirra er framleiddur í Taívan. Hvernig tókst Taívan að verða svona framarlega í framleiðslu á þessari tækninauðsyn? Og hvað þýðir þetta fyrir öryggi landsins? Eru meiri líkur á innrás vegna þessarar dýrmætu tæknikunnáttu? Eða virkar hún sem skjöldur? Dagný Hulda...

260 - Hraðstefnumót í Heimskviðum 30.05.2026

Þetta er síðasti þátturinn fyrir sumarfrí og hann verður af því tilefni með óhefðbundnu sniði. Við ætlum að kynnast fjölda einstaklinga sem eru eða hafa verið áberandi í heimsmálunum og kynnast þeim betur. Þarna eru meðal annars stjórnmálamenn, sjónvarpslæknar, áhrifavaldar, tónlistarmenn og ferfætlingar svo eitthvað sé nefnt.

259 - Afganistan og óumflýjanlegur samruni í Hollywood 23.05.2026

Það styttist í þau tímamót að fimm ár verði liðin frá því að Afganistan féll í hendur talibana. Reglulega hafa borist fréttir af síversnandi aðstæðum Afgana, sér í lagi stúlkna og kvenna. En hvernig er staðan í Afganistan, nú þegar talibana hafa verið við völd í tæp fimm ár ílandinu? Við kynnum okkur það í þættinum og heyrum líka af samruna tveggja af stærstu kvikmyndaverunum í Hollywood. Eftir up...

258 - Styr um Starmer, fjölþáttaógnir og þjóðvegur 66 16.05.2026

Það er kjördagur og Heimskviður fjalla um samgöngumál, húsnæðismál og þjóðfélagsumræðuna, reyndar með sínu nefi. Allra augu eru á Downingstræti 10 þessa dagana. Þetta hefur verið erfið vika hjá Keir Starmer forsætisráðherra Breta, og margir sem spá því að hann verði ekki langlífur í embætti. Ég ætla aðeins að skoða hvers vegna hann er svona óvinsæll og hvað taki við. Kjördagur í dag og annar dagur...

257 - Staðan í Venesúela og leikvangar fyrir kvennknattspyrnu 09.05.2026

Athygli heimsbyggðarinnar var á Venesúela í byrjun árs þegar bandarískir hermenn tóku forseta landsins, Nicolás Maduro og eiginkonu hans Ciliu Flores, höndum og fluttu í fangelsi í New York þar sem þeim er enn haldið. Trump lýsti því yfir að boðað yrði til kosninga og að Bandaríkin tækju yfir olíuframleiðslu landsins. Þrátt fyrir að vera risastórt fréttamál féll það fljótlega í skuggann af öðrum m...

256 - Aldarafmæli Attenborough og áttræðir rapparar 02.05.2026

Þátturinn í dag er eins konar óður til öldunga. Annars vegar fjöllum við um einn virtasta og dáðasta mann samtímans, David Attenborough. Hann veðrur 100 ára þann 8.maí næstkomandi. Anna Lilja Þórisdóttir fer yfir sögu og arfleið Attenborough. Og svo eru það Pete og Bas, Bretar sem eru að nálgast áttrætt en eru að rappa á fullu, nýkomnir frá Bandaríkjunum, eru núna á Evróputúr. Bjarni Pétur segir o...

255 - Skálmöld í Nígeríu og Læknar án landamæra á ófriðarsvæðum 25.04.2026

Það hefur verið ófriðlegt í norðurhluta Nígeríu stærstan hluta aldarinnar, meðal annars vegna uppgangs hryðjuverkasamtakanna Boko Haram. Mannrán, morð og önnur ofbeldisverk hafa verið tíð. Eftir að dregið hafði úr ofbeldisverkum blossuðu þau upp aftur í fyrra, og nú er ástandið verra en nokkru sinni. Margir samverkandi þættir skýra ástæðuna, bæði samfélagslegir og efnahagslegir. Hallgrímur Indriða...

254 - Kjarnorka, 40 ár frá Chernobyl og Rússar lokka útlendinga á vígvöllinn 18.04.2026

Það styttist í að það verði heil 40 liðin frá kjarnorkuslysinu í Chernobyl. Áhrifanna gætir enn, söguna þekkja flestir en það tók nokkurn tíma að fyrir önnur lönd að átta sig á því sem hafði gerst. Sovésk yfirvöld reyndu að halda slysinu leyndu og það var ekki fyrr en geislavirk efni voru farin að berast til og mælast í andrúmslofti nágrannaríkjanna að ljós var að eitthvað verulega alvarlegt hafði...

253 - Kosningar í Ungverjalandi. manntal á Indlandi og saga JFK yngri 11.04.2026

Það er kjördagur í Ungverjalandi á morgun en þá fara fram einar mest spennandi kosningar í Evrópu í langan tíma. Viktor Orban, sem hefur verið við völd í 16 ár, mælist með minna fylgi samkvæmt könnunum, og Peter Magyar, sem býður sig fram gegn honum gæti orðið næsti forsætisráðherra. Við heyrum frá Birni Malmquist sem er í Búdapest. Hann segir að þar sé mikil bjartsýni fyrir sigri Peters Magyar, s...

252 - Þróunaraðstoð dregst saman og Harry Potter og arfleiðin erfiða 04.04.2026

Þróunaraðstoð hefur dregist mikið saman undanfarið og í raun aldrei minna en á nýliðnu ári. Þjóðir heims forgangsraða þessari aðstoð sífellt aftar á listann. Mest munar þarna um Bandaríkin, sem hafa dregið saman seglin þegar þróunaraðstoð er annars vegar um eina 24 milljarða. Þýskaland, Frakkland, Bretland, Holland, Belgía, Sviss og Svíþjóð hafa gert það sömuleiðis. Og afleiðingar þessara ákvarðan...

251 - Kosningar í Færeyjum og Danmörku og áhyggjur af einkalánum 28.03.2026

Samkvæmt okkar útreikningum voru samtals 4.308.068 Norðurlandabúar á kjörskrá í tvennum kosningum sem fóru fram í vikunni. Það var kosið í Danmörku á þriðjudag og í Færeyjum á fimmtudag. Við ætlum að kafa aðeins í úrslitin í báðum löndum, skoða kosningabaráttuna og fleira. Svo segjum við ykkur allt um einkalán sem valda sérfróðum á fjármálamarkaði talsverðum áhyggjum. Hætturnar í heimshagkerfinu e...

250 - Afmælisþáttur - hin hliðin 21.03.2026

Þátturinn í dag er afmælisþáttur en nú eru Heimskviðuþættirnir orðnir 250. Í tilefni dagsins segjum við sögur fólks sem við þekkjum vel, en gröfum upp hluti sem færri þekkja. Svo kynntumst við fleirum sem ekki eru eins vel þekktir, en ættu kannski að vera það. Við fjöllum um hundakallinn Lars Lökke Rasmussen, badmintonmeistarann Jens Frederik Nielsen, áhrifavald frá Gaza, næsta leiðtoga Norður-Kór...

249 - Mannaveiðar með drónum og endurkoma Anthony Kim 14.03.2026

Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum Rússlandshers. Kherson er í suðurhluta Úkraínu, við ána Dnipro. Hinum megin við ána eru rússneskir hermenn sem herja á borgarbúa alla daga með drónum. Á drón...

248 - Saga og samfélagið í Íran og flóttamenn þá og nú 07.03.2026

Íran er nú daglega í fréttum eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á landið fyrir viku síðan. Írönsk kona sem flúði heimalandið og hefur búið á Íslandi í fjögur ár segist vona að Íranar í Íran öðlist frelsi og frið og að þeir geti gengið til frjálsra kosninga. Fólk óski þess eftir harðstjórn klerkastjórnarinnar síðustu tæplega 40 ár. Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir heyrði sögu hennar. Það eru tí...

247 - Endalok Stranger Things og almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum 28.02.2026

Endalok verða rauður þráður í Heimskviðum í dag. Það eru vægast sagt umdeild endalok þáttaraðarinnar Stranger things, en óhætt að segja að það séu margir ósáttir við þau. Svo eru það möguleg endalok almannaþjónustumiðla í Bandaríkjunum. Það er stefna bandaríkjastjórnar að draga úr umfangi þessara miðla sem reka staðbundnar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um öll Bandaríkin. Núna séu komnir fjöldi sjál...

246 - Trainspotting og óður til MTV 21.02.2026

Kvikmyndin Trainspotting er þrítug um þessar mundir. Hún kom fyrst í kvikmyndahús 23. febrúar 1996 og hefur síðan öðlast sess í kvikmyndasögunni og er að mörgum talin meðal bestu kvikmynda tíunda áratugarins. Myndin fjallar um vinahóp í Edinborg í Skotlandi sem er djúpt sokkinn í heróínneyslu. En Trainspotting er miklu meira en en saga af ógæfusömum vinum, eins og Dagný Hulda Erlendsdóttir komst a...

245 - Sterar á Ólympíuleikum og þrengt að elítunni í Rússlandi 14.02.2026

Það hefur gengið á ýmsu á vetrarólympíuleikunum sem nú standa yfir. Játningar um framhjáhald, fótbrot og ásakanir um svindl og typpastækkanir er meðal þess sem hefur verið í umræðunni. Í þættinum ætlum við að fjalla um mál Sydney Milani sem var meinuð þátttaka á leikunum eftir að sterar mældust í henni. Hún þvertekur fyrir að hafa tekið stera og segir efnin hafa mælst í henni vegna kærasta hennar,...

244 - Átök innan Bandaríkjanna og Heated Rivalry 07.02.2026

Það er ekki skortur á umfjöllun um Bandaríkin og bandaríska ráðamenn í fréttum þessi misserin. Mest ber á ákvörðunum Bandaríkjastjórnar á alþjóðasviðinu en minna er fjallað um það sem er að gerast innanlands. Það hefur stundum verið talað um að ráðamenn í Bandaríkjunum séu flinkir í því að snúa athyglinni annað þegar erfið mál koma upp - hefja árásir eða stríð einhvers staðar til að draga athyglin...

243 - Nick Fuentes og pöndupólitík 31.01.2026

Nick Fuentes er kristinn þjóðernissinni og kynþáttahatari og vill að hvítir, kristnir karlmenn fari með tögl og hagldir í bandarískum stjórnmálum. Hann hefur sagst vera á móti lýðræði því það steypi saman ólíkum og ósamræmanlegum hagsmunum. Lýðræði leiði alltaf á endanum til þess að þjóðríkið bíði óafturkræfan skaða. Hann segist líka elska Hitler, hefur lagst gegn því að konur séu útivinnandi, tal...

242 - Grænland, færeyska handboltaævintýrið og Beckham fjölskyldan 24.01.2026

Ítrekuð ummæli Donalds Trump Bandaríkjaforseta um yfirtöku á Grænlandi hafa ekki aðeins valdið stjórnmálamönnum þar áhyggjum. Almenningur er líka uggandi, og þó að Trump hafi nú útilokað að beita valdi til að taka yfir Grænland er fólk enn í óvissu um framhaldið. Hallgrímur Indriðason fjallar um þetta en hann kom frá Grænlandi í síðustu viku. Hann segir okkur frá því hvernig Grænlendingum líður, t...

Listen to the Heimskviður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.