RÚV

Heimskviður

News IS ↓ 263 episodes

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 11, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

241 - Komandi kosningar og framhaldsmyndir 17.01.2026

Árið hófst með hvelli úti í heimi, en hvaða áhrif hafa atburðirnir á komandi kosningar? Kólumbíumenn kjósa á árinu, á meðan Trump reynir að styrkja ítök sín í Suður Ameríku og margir Evrópubúar horfa til kosninga í Ungverjalandi þar sem Viktor Orban hefur haldið um stjórnartauma í 15 ár. 2026 verður ár framhaldsmyndanna í bíó. Við rýnum í dagskrána með manni sem veit allt um Avengers heiminn og al...

10.01.2026
Heimskviður - hátíðarútgáfan 20.12.2025

Við veljum saman brot af því besta í síðasta þættinum fyrir jól. Við fjölluðum um Sharenting í nóvember og áform yfirvalda á Spáni að setja skorður á það hverju foreldrar megi deila af börnum sínum á netinu og hverju ekki. Og svo reyndum við að svara stærri spurningum, hversu miklu af lífi barna er í lagi að deila á samfélagsmiðlum? Hvað þurfum við að hafa í huga og hverjar geta hætturnar verið? S...

240 - Jákvæðu fréttirnar 13.12.2025

Við verðum á jákvæðum og uppbyggilegum nótum í Heimskviðum í síðasta þættinum fyrir jól. Þátturinn verður því með örlitlu jólaívafi, við skoðum jólamyndir og jólatónlist en fyrst og fremst ætlum við að segja ykkur jákvæðar og skemmtilegar fréttir utan úr heimi. Til dæmis hvernig ástralskur áhrifavaldur kom því til leiðar að 88 ára gamall ekkill frá Michigan í Bandaríkjunum gat loks hætt að vinna....

239 - Kínverska kraftaverkið og orð ársins, bræðibeita 06.12.2025

Það eru ekki nema tæp fimmtíu ár síðan kommúnistastjórnin í Kína þar ákvað að opna hagkerfið, leyfa erlendar fjárfestingar og sleppa markaðsöflunum lausum, þó með stífum skilyrðum. Það sem hefur gerst síðan þá er stundum kallað kínverska kraftaverkið: Kína breyttist úr því að vera eitt af fátækustu ríkjum heims í eitt af þeim ríkustu. Hagkerfið þar er nú samkvæmt sumum mælikvörðum það stærsta í he...

238 - Jarðgöng í Færeyjum og lýtaaðgerðir stjarnanna 29.11.2025

Það eru fáir jafn duglegir að gera jarðgöng og Færeyingar - í það minnsta miðað við höfðatölu. 23 tvíbreið jarðgöng eru þar núna - ríflega tvöfalt fleiri en á Íslandi. Nú eru Færeyingar með háleitar áætlanir um næstlengstu neðansjávargöng í heimi, sem yrði jafnframt langdýrasta framkvæmd í sögu Færeyja. En þessar áætlanir er umdeildar, bæði efnahagslega og pólitískt. Hallgrímur Indriðason fer með...

237 - Eitrað fyrir eiginmönnum og loftslagsmálin 22.11.2025

Fjöldi ungverskra kvenna tók upp á því að eitra fyrir eiginmönnum sínum með afleiðingum að yfir þrjú hundruð manns dóu. Þetta gerðist í ungversku þorpi fyrir um hundrað árum síðan. Höfuðpaurinn var ljósmóðir sem jafnan var kölluð Súsí frænka. Í störfum sínum kynntist hún vel aðstæðum fólks sem oft voru nöturlegar. Hún útvegaði konum því eitur og leiðbeindi þeim. Margir eiginmannanna í þorpinu beit...

236 - Myndbirtingar af börnum á samfélagsmiðlum og mannfjöldaspá á komandi áratugum 15.11.2025

Að deila eða ekki deila, það er spurningin. Hversu miklu af lífi barna er í lagi að deila á samfélagsmiðlum? Hvað þurfum við að hafa í huga og hverjar eru hætturnar? Ólöf Ragnarsdóttir ætlar að segja okkur allt um fyrirbæri sem kallast sharenting og stjórnvöld á Spáni vilja setja lög um. Afhverju er fæðingartíðni stöðugt að lækka í heiminum og hvaða efnahagslegu og pólitísku afleiðingar hefur það...

235 - Gleymda stríðið og svanasöngur Downton Abbey 08.11.2025

Við rýnum í stríðsátökin í Súdan og hrottalegar aftökur sem þeim tengjast í Heimskviðum í dag. Það er stundum kallað gleymda stríðið því fjölmiðlar fjalla mun minna um það en önnur sem hafa geisað síðustu ár og áratugi. Það er þrátt fyrir að þar hafa á annað hundrað þúsund verið drepin, tugmilljónir þurft að reiða sig á neyðaraðstoð og eina mestu hungursneyð síðustu áratuga. Alþjóðaglæpadómstóllin...

234 - Stríð gegn eiturlyfjum og Airbnb 01.11.2025

Ráðamenn í Barcelona hafa lýst yfir stríði gegn Airbnb og ætla að losa sig við skammtímaleigufyrirtækið á næstu tveimur til þremur árum. Mýmargar íbúðir eru leigðar út til ferðamanna í borginni sem hefur slæm áhrif á húsnæðisverð og þar með íbúa. Svo fjöllum við um stríðið gegn eiturlyfjum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið í róttækar hernaðaraðgerðir síðustu vikur sem hann segir beinast...

233 - Forsætisráðherrann og prinsinn 25.10.2025

Það bárust söguleg tíðindi þanan í vikunni þegar Sanae Takaichi tók við embætti forsætisráðherra, fyrst kvenna. Hennar helsta fyrirmynd í stjórnmálum er Margaret Thatcher fyrrum forsætisráðherra Bretlands og er hún, líkt og fyrirmyndin, stundum kölluð járnfrúin. Hún þykir litríkur karakter og hefur unun af þungarokki, bílum og mótorhjólum. Stefna hennar þykir íhaldssöm og á sama tíma og það þykir...

232 - Harmsaga Palomu Shemirani 18.10.2025

Paloma Shemirani, frá suðausturhluta Bretlands, var aðeins 23 ára þegar hún lést úr eitilfrumukrabbameini í fyrrasumar. Þegar hún greindist sjö mánuðum áður, voru taldar 80% líkur á að hún næði fullum bata með lyfjameðferð. Móðir hennar, Kate Shemirani, er þekkt í Bretlandi. Hún missti leyfi sitt sem hjúkrunarfræðingur í kórónuveirufaraldrinum fyrir að dreifa skaðlegum upplýsingum um Covid-19. Kat...

231 - Friður á Gaza, leiðtogakrísa í Evrópu og @ merkið 11.10.2025

Við fjöllum um vopnahlé á Gaza og langa og grýtta leið til friðar milli Ísraela og Palestínumanna. Við tölum við Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor í sögu Miðausturlands, um framhaldið og hlutverk Hamas í friðarviðræðunum. Svo fjöllum við um stjórnarkreppuna í Frakklandi og þá erfiðu stöðu sem margir Evrópuleiðtogar eru í um þessar mundir, þar sem hart er sótt að þeim bæði úr austri og vestri....

230 - Fótboltadraumar Kínverja og tækniundur Taívans 04.10.2025

Í Heimskviðum í dag ætlum við til Asíu og fræðast bæði um fótbolta og hálfleiðara. Líklega eru margir að heyra um hálfleiðara í fyrsta sinn en þeir eru nauðsynlegir í öllum helsta tæknibúnaði samtímans. Stærsti hluti þeirra er framleiddur í Taívan. Hvernig tókst Taívan að verða svona framarlega í framleiðslu á þessari tækninauðsyn? Og hvað þýðir þetta fyrir öryggi landsins? Eru meiri líkur á innrá...

229 - Ljósmyndirnar sem breyttu heiminum og upplýsingaáróður í stríði 27.09.2025

World Press Photo fagnar 70 ára afmæli á árinu. Samtökin fóru í naflaskoðun í tilefni tímamótana. Við ræðum við Joumana El Zein Khoury, framkvæmdastjóra World Press Photo, í þættinum og rifjum upp eftirminnilegustu fréttaljósmyndir sögunnar. Myndir sem breyttu heiminum. Svo segir Dagný Hulda Erlendsdóttir okkur allt um upplýsingaáróður í stríði. Þessi upplýsingahernaður er margslunginn. Hann er í...

228 - Raddir frá Palestínu og menningarstríð 20.09.2025

Við heyrum raddir frá Palestínu og Ástralíu í Heimskviðum í dag, við ætlum að fjalla um þjóðarmorð á Gaza og menningarstríð. Í vikunni bættist nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna í sístækkandi hóp þeirra sem segja að Ísrael fremji þjóðarmorð á Gaza. Ísraelsher hóf landhernað í Gaza-borg, með skelfilegum afleiðingum, og á sama tíma beittu Bandaríkin enn og aftur neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þ...

227 - Þjóðarmorð og sakhæfi stríðsglæpamanna 13.09.2025

Hryllingurinn á Gaza og grimmdarverk Ísraels hafa verið heimsbyggðinni ljós í bráðum tvö ár. Á síðustu misserum hefur afstaða stjórnvalda víða um heim harðnað mjög og nú eru evrópskir þjóðarleiðtogar farnir að kalla hernað Ísraela þjóðarmorð. En hvernig er þjóðarmorð skilgreint og hvað breytist ef hernaður Ísraela er flokkaður sem þjóðarmorð? Í seinni hluta þáttarins ætlum við að huga að geðheilsu...

226 - 20 ár frá Katrínu og spennandi þingkosningar í Noregi 06.09.2025

Rétt rúm 20 ár eru frá einu mesta eignatjóni sem orðið hefur vegna náttúruhamfara í Bandaríkjunum. Það var eftir að fellibylurinn Katrina gekk yfir New Orleans í Louisiana og fleiri nálæg ríki. Hamfarirnar, og viðbragðið við þeim, eða viðbragðsleysi, þóttu sýna svart á hvítu kynþáttaójöfnuðinn í Bandaríkjunum. Það er alltaf fróðlegt að fá sögur þeirra sem voru á staðnum og við heyrum frá Jóni Björ...

Sumarheimskviður - Bjargvættir 30.08.2025

Við fjöllum um bjargvætti í Sumarheimskviðum í dag en þetta er síðasti þáttur sumarsins. Í næstu viku hefjast Heimskviður að nýju. Og í síðasta þættinum ætlum við að fjalla um þá sem gera sitt besta til að gagnast góðum málefnum, það er annars vegar að bjarga flækingshundum í Taílandi og hins vegar írska tungumálinu. Hip-hop tríóið Kneekap frá Norður-Írlandi rappar bara á írsku og helsta markmiðið...

Sumarheimskviður - Kynbombur 23.08.2025

Kynbombur verða til umfjöllunar í þættinum í dag. Fyrir 35 árum skaust Pamela Anderson fram á sjónarsviðið sem kyntákn - bæði í tímaritum og sjónvarpsþáttunum um Strandverðina sem slógu í gegn um allan heim. Nú er hún aftur farin að leika í kvikmyndum og hefur meira að segja verið tilnefnd til verðlauna. Það hefur gengið á ýmsu í hennar lífi þess á milli, en hún hefur meðal annars notað stöðu sína...

Sumarheimskviður - Sjóslys 16.08.2025

Skútuslys, kafbátastrand og stóra-legóslysið verða umfjöllunarefni þáttarins. Við byrjum á því eina sem var mannskætt, en í haust fjölluðum við um það þegar lúxussnekkja sökk við strendur Sikileyjar. Svo er það kafbátastrandið í sænska skerjagarðinum. Þetta var í október 1981 en þá var Svíþjóð miðdepill heimspressunnar í nokkra daga. Og svo endum við þáttinn á umfjöllun um legóslysið

Sumarheimskviður - Andlegt og yfirnáttúrulegt 09.08.2025

Andlegt og yfirnáttúrulegt er yfirskrift þáttarins í dag. Þetta síðarnefnda snýr að því hvernig risasteinarnir í Stonehenge á Englandi komust þangað, en það er margt á huldu um hvernig Stonehenge var byggt og hvaða hlutverki það gegndi. Og svo þetta andlega, það er andleg heilsa íþróttamanna. Við ætlum að rifja upp umfjöllun Hallgríms Indriðasonar um afreksíþróttamenn sem hafa átt í þessum erfiðle...

Sumarheimskviður - Loftslagsbreytingar 02.08.2025

Við fjöllum um áhrif loftslagsbreytinga í þættinum í dag og förum víða, förum í kælifrí á norðlægar slóðir og förum til Ástralíu og Suðurskautslandsins. Við byrjum í kuldanum á Suðurskautslandinu en leiðangursmenn þar komust í heimsfréttirnar í vor þegar maður sem þar er í rúmlega árslöngum leiðangri var sakaður um gróft ofbeldi og líflátshótanir gegn félögum sínum í leiðangrinum. Hann var sagður...

Sumarheimskviður - Einræðisherrar 26.07.2025

Einræðisherrar verða fyrirferðamiklir í þætti dagsins. Við fjöllum um svalasta einræðisherra heims, að eigin sögn, og svo þann sem virðist vilja feta í fótspor hans með svo margt, og þeirra nána samband. Sá fyrrnefndi en Nayib Bukele, forseti El Salvador og sá síðarnefndi er Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. Á stuttum stjórnmálaferli hefur Nayib Bukele gjörbreytt El Salvador, morðtíðni hefur læ...

Sumarheimskviður - Nágrannar 19.07.2025

Donald Trump er ekki fyrsti forseti Bandaríkjanna sem viðrar hugmyndir um kaup á Grænlandi. Harry Truman vildi kaupa Grænland í upphafi kalda stríðsins og Andrew Johnson skoðaði hugmyndina sömuleiðis á nítjándu öld. Fljótlega eftir áramót, þegar mest fór fyrir umræðunni um ásælni Trumps í Grænland, skoðaði Birta sögulegan áhuga Bandaríkjanna á Grænlandi og flókið samband Danmerkur og Grænlands. Og...

Listen to the Heimskviður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.