Gímaldið
Gímaldið
Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: gimaldid.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sigrar og áskoranir í málefnum fatlaðs fólks 22.11.2025 21:09
Stór hópur fatlaðs fólks fær ekki, fötlunar sinnar vegna, rafræn skilríki og getur þar af leiðandi ekki fylgt sínum málum eftir, til að mynda þegar kemur að heilsufari, fjármálum eða menntun. Þetta er staðan í dag þrátt fyrir að fjórir ráðherrar hafi vorið 2023 undirritað viljayfirlýsingu um þróun á lausnum að rafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka...
Þolinmóðasti flokkur landsins bíður færis 19.11.2025 29:28
Framsóknarflokkurinn hlaut verstu kosningu í sögu flokksins í síðustu alþingiskosningum og er frekar vansæll í sinni stjórnarandstöðu. Formannskosningar eru framundan og flokkurinn vinnur að því að finna sína fótfestu á pólitíska litrófinu að nýju. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um Framsóknarflokkinn, en Gímaldið birtir ítarlegar greiningu á stöðu flokksins og rýnir í möguleika...
Sirkabát - Þáttur 2 17.11.2025 28:55
Í öðrum þætti Sirkabát ræða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson við þau Ara Klæng Jónsson, doktor í félags- og lýðfræði og Jóhönnu Gunnarsdóttur, forstöðumann fræðasviðs á fæðinga- og kvenlækningasviði. Þýðir hækkandi meðalaldur kvenna þegar þær eignast fyrsta barn endilega að frjósemi minnki? Hvað þýðir það að frjósemi sé minni meðal erlenda kvenna en íslenskra? Þessum spurningum...
Sirkabát - Þáttur 1 11.11.2025 17:58
Í Sirkabát skoða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson tölur úr fréttum og þjóðfélagsumræðunni og spyrja sig: Er umræðan rétt? Er hún röng? Eða svona sirkabát? Í fyrsta þættinum skoða þeir tölur Hagstofu Íslands um frjósemi kvenna á Íslandi. Hvað þýðir það þegar Hagstofan segir að frjósemi var 1,56 árið 2024? Hvernig hefur þetta breyst með árunum? Hefur breytt samsetning þjóðarinnar...
Beðið eftir Guðlaugi og Sanna heimilislaus 09.11.2025 26:31
Oddvitarnir og flokkarnir í borginni Undirbúningur fyrir val á lista fyrir kosningar til sveitarstjórna er nú í fullum gangi hjá flokkunum. Það hefur gustað um marga oddvita í Reykjavíkurborg á kjörtímabilinu og þótt flestir þeirra vilji gefa kost á sér aftur er allur gangur á því hvort flokksfélagar þeirra vilji veita þeim brautargengi. Samkvæmt samantekt Gímaldsins...
Bókapressan - Þáttur 2 06.11.2025 46:55
Annar þáttur Bókapressunnar er kominn í loftið. Auður Jónsdóttir og Kristján Hafþórsson fá til sín Tómas Hermannsson útgefanda hjá Sögum. Hann hefur staðið að útgáfu ótal bóka um fótbolta og körfubolta, svo eitthvað sé nefnt, og segir skipta máli að börn fái bækur sem þeim þyki gaman að lesa og veki hjá þeim áhuga.
Gímaldið - 5. nóvember 2025 05.11.2025 32:26
Zohran Mamdani er nýr borgarstjóri í New York. Hverju breytir kjör hans fyrir Demókrata og bandarísk stjórnmál? Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir ræða þessa nýjustu stjörnu bandarískra stjórnmála, viðspyrnuna gagnvart Trumpismanum og skoða hvaða áhrif þessar sviptingar vestra hafa á íslenska pólitík.
Bókapressan - þáttur 1 03.11.2025 42:11
Gímaldið kynnir fyrsta bókaþáttinn. Hann heitir Bókapressan og umsjónarmenn eru þau Auður Jónsdóttir og Kristján Hafþórsson. Gestur þáttarins er enginn annar en Árni Helgason sem nýverið gaf út bókina Aftenging.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.