Gímaldið

Gímaldið

News IS ↓ 75 episodes

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡

Author

Gímaldið

Category

News

Podcast website

gimaldid.is

Latest episode

Jul 7, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Nágrannar: Óskeikult ráð að vera bara næs 17.01.2026

Nágrannar er nýtt hlaðvarp úr smiðju Gímaldsins sem Erla Hlynsdóttir stýrir. Við ætlum að fjalla um nágranna frá ýmsum hliðum. Við eigum öll nágranna. Þeir búa í búsinu við hliðina á okkur, í íbúðinni fyrir neðan okkur eða uppi á næstu hæð. Sumum nágrönnum kynnumst við en öðrum ekki. Við kynnumst broti af lífi nágranna okkar og þeir broti af okkar. Guðríður Haraldsdóttir er viðmælandi fyrsta þátta...

Einhverf Barbie og ósýnilegu stelpurnar 14.01.2026

Einhverf Barbie er ekki bara dúkka heldur tákn um sýnileika og viðurkenningu í heimi þar sem stelpur með einhverfu hafa lengi verið ósýnilegar. Erla Hlynsdóttir fjallar um einhverfa Barbie-dúkku sem er nýkomin á markað.  Pistillinn birtist á áskriftamiðlinum Gímaldinu. Þú getur verið með í að styðja við Gímaldið með því að kaupa áskrift eða leggja til frjálst framlag . 

Þjóðfélagið þarf að geta bognað án þess að brotna – Víðir Reynisson í viðtali um nýja stefnu í öryggis- og varnarmálum 10.01.2026

Þing­mað­ur­inn Víð­ir Reyn­is­son hef­ur víð­tæka reynslu á sviði al­manna­varna og þjóðar­ör­ygg­is. Aðalheiður Ámundadóttir blaðamaður ræð­ir við hann um við­bún­að á Ís­landi ef til stríðs­á­taka kæmi og um nýja stefnu utanríkisráðherra í ör­ygg­is-­ og varn­ar­mál­u­m. Víð­ir starf­aði við al­manna­varn­ir í rúma tvo ára­tugi áð­ur en hann tók sæti á þing­i, síð­ast sem sviðs­stjóri al­manna­...

Sirkabát #8: Greindu Betur 08.01.2026

Ár hvert safnast 14-19 ára ungmenni saman og rýna í tölur og gögn í keppninni Greindu betur. Keppnin hefur vaxið mikið frá því hún hófst árið 2021.  Keppninni er skipt upp í tvo aldursflokka eftir námsstigi og keppnisefnið er sniðið að getu hvers flokks. Tilgangurinn er að efla upplýsingalæsi grunn- og  framhaldsskólanema.  Kristín Ingvarsdóttir og Arndís Vilhjálmsdóttir hjá Hagstofunni ræða um ke...

Tala ársins 2025 30.12.2025

Hver er tala ársins 2025? Sirkabát rýnir í tölur ársins með gestum þáttarins. Tölur ársins segja margar og ólíkar sögur. Sirkabát fékk nokkra einstaklinga til að rýna í árið, velja sína uppáhalds tölu og deila með hlustendum.  Arndís Vilhjálmsdóttir, teymisstjóri notendaþjónustu hjá Hagstofunni Emil Dagsson, doktorsnemi í hagfræði við Háskóla Íslands og starfsmaður deildar rannóknar og spár hjá Se...

Sirkabát - Þáttur 6 23.12.2025

Hvað er margar mismunandi tegundir af jólabjórum til sölu í ríkinu? Í þessum jólaþætti Sirkabát taka þáttastjórnendur sér fyrir hendur að greina þróun á sölu og breytingum á úrvali á jólabjór seldur er í verslunum ÁTVR.

Heillaður af bókum – Einar Kári Jóhannsson ritstjóri 18.12.2025

Í Bókapressunni fáum við innsýn inn í heim ritstjóra bóka í desember, en Einar Kári Jóhannsson hjá Benedikt bókaútgáfu er í viðtali við Erlu Hlynsdóttur. Fáar bækur hafa hreyft eins mikið við honum og bókin „Beðið eftir barbörunum“ – Waiting for the Barbarians eftir J. M. Coetzee. Starfsfólk bókaútgáfa þarf að ganga í flest störf í desember. Bókaútgefendur eru eins og á hlaupabretti í desember við...

Sirkabát - Þáttur 5 16.12.2025

Er jólamaturinn dýrari í ár en í fyrra? Þáttastjórnendur Sirkabát útbjuggu sína eigin jólamatarkörfu og reiknuðu út vísitölu jólaveisluverðs. 

Jólabókaflóðið er afsprengi haftasamfélags 15.12.2025

Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, segir jólavertíðina mikilvæga fyrir rithöfunda en bendir á í viðtali við Gímaldið að innviðirnir sem styðja við bókmenntir séu brothættir. Bókabúðir séu til að mynda fáar, sérstaklega á landsbyggðinni, og skólabókasöfn fái ekki nægt fé til að börn hafi jafnt aðgengi að nýjum bókum. Félagið hefur látið til sín taka í höfundarréttarmálum að...

Pakkað í vörn í Evrópuumræðunni – um bræðibeitur og áhrif þeirra 15.12.2025

Úr pistli á Gímaldinu í dag: „Nú leggj­um við Ís­lend­ing­ar upp í aðra Evr­ópu­um­ræð­u. Það var vissu­lega fyr­ir­sjá­an­legt að fyrstu skref­in í henni yrð­u, líkt og í Bret­land­i, stíg­in með gíf­ur­yrð­u­m og hræðslu­á­róðri. Þetta hef­ur auð­vit­að bæði þann til­gang og þau áhrif að við sem vilj­um ræða Evr­ópu­mál, töp­um þræð­in­um og glór­unn­i, hopp­um á reiði­vagn­inn og för­um að tala...

Að skrifa barnabækur er hugsjónastarf 13.12.2025

Auður Jónsdóttir tekur barna- og ungmennabækur til umfjöllunar í Bókapressunni að þessu sinni. Að skrifa barnabækur er að vissu leyti hugsjónastarf því höfundur barnabókar fær talsvert minna fyrir hvert selt prentað eintak, einfaldlega vegna þess að barnabækur eru oft töluvert ódýrari en skáldsögur fyrir fullorðna. Þannig þarf fólk sem einbeittir sér að þessu mikilvæga – og í raun vanþakkláta – st...

Fólk með heilabilun þarf stuðning en ekki útskúfun. Veðmálafyrirtæki færa sig upp á skaftið í íþróttunum. 11.12.2025

Gímaldið hefur fjallað um heilabilunarsjúkdóma undanfarna daga. Fólk sem greinist ungt með heilabilun upplifir útskúfun af vinnumarkaði þegar það þyrfti í raun að fá skilning og rými til að átta sig á hlutunum. Við fjöllum í dag um verðmálafyrirtæki sem ganga sífellt lengra í því að komast að í íþróttaheiminum. Eistneskt körfuboltafélag, frá bænum Keila í Eistlandi, sem atti kappi við Tindastól í...

Krakkar eru ekki hræddir við neitt! 06.12.2025

Skáldaparið Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson eru bæði þekkt fyrir magnaðar skáldsögur, óhrædd við að beita rödd sinni. En þegar þau voru að lesa fyrir krakkana sína uppgötvuðu þau að krakkar eru ekki hræddir við neitt! Því byrjuðu þau að skrifa hrollvekjandi sögur fyrir krakka, svokallaðar hrekkjavökusögur sem komu út sem hljóðbækur hjá Storytel, fjórar bækur í fyrra og tvær í ha...

Sirkabát - Þáttur 4 04.12.2025

Í nýlegri tilkynningu frá barna- og menntamálaráðherra kemur fram að „áætlað sé að eitt af hverjum tíu börnum á Íslandi búi við fátækt.“ Er þessi tala rétt?  Þáttastjórnendurnir Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson ræða við Kolbein H. Stefánsson prófessor við HÍ um rannsóknir og mælingar á fátækt. 

Sirkabát - Þáttur 3 27.11.2025

Landsmönnum hefur fjölgað hratt á undanförnum árum og mannfjöldaspá Hagstofu Íslands spáir því að landsmenn gætu slagað í hálfa milljón á eftir um það bil tvo áratugi. Hversu nákvæm er þessi spá?  Á hvaða gögnum byggir hún? Og hvernig ber túlka hana? Þessum spurningum og fleirum munu þáttastjórnendur leitast við að svara í þriðja þætti Sirkabát.

Ný fjármögnunarleið fyrir íbúðir, ráðherra íhugar nýja rannsóknarnefnd og vangaveltur um Ísland sem nýlendu 26.11.2025

Lán eða ekki lán? – Ný leið til fjármögnunar er til skoðunar hjá Neytendastofu og Seðlabanka Íslands. Ráðherra dómsmála íhugar að setja á fót rannsóknarnefnd kvennamorða. Þetta kemur fram í aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um efni Gímaldsins. 

Andri Snær Magnason: Bók þarf mikilvægt erindi til að hafa skriðþunga 25.11.2025

„Ég hef alltaf þurft mikið erindi til að skrifa,” segir Andri Snær Magnason rithöfundur í viðtali við Auði Jónsdóttur í Bókapressunni. Hann ræðir nýja bók sína, Jötunstein, arkitektúr og tengsl byggingarsögunnar við tíðarandann.

Sigrar og áskoranir í málefnum fatlaðs fólks 22.11.2025

Stór hópur fatlaðs fólks fær ekki, fötlunar sinnar vegna, rafræn skilríki og getur þar af leiðandi ekki fylgt sínum málum eftir, til að mynda þegar kemur að heilsufari, fjármálum eða menntun.  Þetta er staðan í dag þrátt fyrir að fjórir ráðherrar hafi vorið 2023 undirritað viljayfirlýsingu um þróun á lausnum að rafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk.  Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka...

Þolinmóðasti flokkur landsins bíður færis 19.11.2025

Framsóknarflokkurinn hlaut verstu kosningu í sögu flokksins í síðustu alþingiskosningum og er frekar vansæll í sinni stjórnarandstöðu. Formannskosningar eru framundan og flokkurinn vinnur að því að finna sína fótfestu á pólitíska litrófinu að nýju. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um Framsóknarflokkinn, en Gímaldið birtir ítarlegar greiningu á stöðu flokksins og rýnir í möguleika...

Sirkabát - Þáttur 2 17.11.2025

Í öðrum þætti Sirkabát ræða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson við þau Ara Klæng Jónsson, doktor í félags- og lýðfræði og Jóhönnu Gunnarsdóttur, forstöðumann fræðasviðs á fæðinga- og kvenlækningasviði.  Þýðir hækkandi meðalaldur kvenna þegar þær eignast fyrsta barn endilega að frjósemi minnki? Hvað þýðir það að frjósemi sé minni meðal erlenda kvenna en íslenskra? Þessum spurningum...

Sirkabát - Þáttur 1 11.11.2025

Í Sirkabát skoða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson tölur úr fréttum og þjóðfélagsumræðunni og spyrja sig: Er umræðan rétt? Er hún röng? Eða svona sirkabát? Í fyrsta þættinum skoða þeir tölur Hagstofu Íslands um frjósemi kvenna á Íslandi. Hvað þýðir það þegar Hagstofan segir að frjósemi var 1,56 árið 2024? Hvernig hefur þetta breyst með árunum? Hefur breytt samsetning þjóðarinnar...

Beðið eftir Guðlaugi og Sanna heimilislaus 09.11.2025

Oddvitarnir og flokkarnir í borginni Und­ir­bún­ing­ur fyr­ir val á lista fyr­ir kosn­ing­ar til sveitar­stjórna er nú í full­um gangi hjá flokk­un­um. Það hef­ur gu­stað um marga odd­vita í Reykja­vík­ur­borg á kjör­tíma­bil­inu og þótt flest­ir þeirra vilji gefa kost á sér aft­ur er all­ur gang­ur á því hvort flokks­fé­lag­ar þeirra vilji veita þeim braut­ar­geng­i. Samkvæmt samantekt Gímaldsins...

Bókapressan - Þáttur 2 06.11.2025

Annar þáttur Bókapressunnar er kominn í loftið. Auður Jónsdóttir og Kristján Hafþórsson fá til sín Tómas Hermannsson útgefanda hjá Sögum. Hann hefur staðið að útgáfu ótal bóka um fótbolta og körfubolta, svo eitthvað sé nefnt, og segir skipta máli að börn fái bækur sem þeim þyki gaman að lesa og veki hjá þeim áhuga. 

Gímaldið - 5. nóvember 2025 05.11.2025

Zohran Mamdani er nýr borgarstjóri í New York. Hverju breytir kjör hans fyrir Demókrata og bandarísk stjórnmál? Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir ræða þessa nýjustu stjörnu bandarískra stjórnmála, viðspyrnuna gagnvart Trumpismanum og skoða hvaða áhrif þessar sviptingar vestra hafa á íslenska pólitík. 

Bókapressan - þáttur 1 03.11.2025

Gímaldið kynnir fyrsta bókaþáttinn. Hann heitir Bókapressan og umsjónarmenn eru þau Auður Jónsdóttir og Kristján Hafþórsson. Gestur þáttarins er enginn annar en Árni Helgason sem nýverið gaf út bókina Aftenging. 

Listen to the Gímaldið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.