Gímaldið

Gímaldið

News IS ↓ 75 episodes

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡

Author

Gímaldið

Category

News

Podcast website

gimaldid.is

Latest episode

Jul 7, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

„Það er enginn að segja að allir eigi að hætta að keyra“ – Bílastæði og borgarumhverfi 02.05.2026

Tölum um bílastæði! Bílastæði hafa verið í brennidepli í kosningabaráttu á höfuðborgarsvæðinu. En hvað eru bílastæði? Hvaða tilgangi þjóna þau í borgarumhverfi og hvaða áhrif hefur það ef við fjölgum þeim stöðugt? Eyrún Magnúsdóttir ræðir við sérfræðinga um fyrirbærið bílastæði og skoðar hugmyndir annarra borga um bílastæði og tengsl þeirra við skipulag borga en einnig við líðan íbúa og heilsu. Vi...

Er umræðan um borgina á villigötum? – Kosningaþátturinn Börn og bílastæði hefur göngu sína 28.04.2026

Kosningaþáttur Gímaldsins rúllar af stað. Hann heitir Börn og bílastæði ! Stór hluti verkefna sveitarfélaga snýst um börn, velferð þeirra, menntun og lífsgæði. Miðað við umræðu fyrir þessar kosningar mætti þó halda að börn þrái fyrst og fremst eitt: bílastæði!  Í þáttunum verða málefnin í forgrunni en frambjóðendur fá frí. Í fyrsta þætti fara Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir yfir fjöl...

„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið“ – Umsögnin um Græna gímaldið sem aldrei átti að fara í loftið 18.04.2026

„Leyfi til að gera ljótar byggingar er mikið á Íslandi,“ voru orð sem Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt lét falla um Græna gímaldið og fóru fyrir mistök út með umsögn um verkefnið. Í viðtali sem birt er í hlaðvarpi Gímaldsins er rætt við Borghildi um tilurð þessara orða og viðbrögð við þeim innan borgarkerfisins en einnig um Græna gímaldið og um þróun í skipulagsmálum. Í þættinum, sem Gímald...

Sigríður Andersen ræðir ESB-tillögu stjórnarinnar og stöðuna í stjórnarandstöðu 14.04.2026

Sig­ríð­ur Á And­er­sen formaður þingflokks Miðflokksins seg­ir ESB-­­til­lög­u ríkisstjórnarinnar þurfa að taka breyt­ing­um í með­för­um þings­ins en telur að þing­menn meiri­hlut­ans séu of háð­ir ráð­herr­um sín­um. Hún býst við átökum í utanríkismálanefnd á lokaspretti þingvetrar. 

Birgir Ármannsson tekur til máls um fundarstjórn forseta 09.04.2026

Hvaða herr­um þjón­ar for­seti Al­þing­is og hver ræður dagskrá þingsins í raun og veru? Hvernig býr meirihlutinn sig undir málþóf og hvernig heldur forseti sönsum þegar allt verður vitlaust? Þess­um spurn­ing­um og mörg­um öðr­um svar­ar Birg­ir Ár­manns­son, fyrr­ver­andi þing­for­seti í við­tali um leikja­fræð­ina á Al­þing­i.

Þjálfuð til að berjast gegn eigin þjóð: Þórdís Kolbrún segir frá skipulögðum barnsránum 02.04.2026

Þór­dís Kol­brún R. Gylfa­dótt­ir ræð­ir skipu­lögð barns­rán Rússa í Úkra­ín­u; Um börn­in sem num­in hafa ver­ið á brott og eru rænd upp­runa sín­um með heila­þvott­i, hvern­ig unn­ið er að end­ur­heimt þeirra og hvern­ig Evr­ópa og al­þjóða­sam­fé­lag­ið geti og eigi að bregð­ast við. Gímaldið er áskriftarmiðill. Þú getur gerst áskrifandi hér 

Heppinn að geta einbeitt sér að loftslagsmálum 28.03.2026

Verðlaunablaðamaðurinn Kjartan Kjartansson ræðir hvernig hann nálgast fréttaskrif, áhugann á vísindum og hvernig fjölmiðlaumfjöllun um loftslagsmál hefur þróast.

Sirkabát #15: Skoðanakannanir 25.03.2026

Rík þörf er á umræðu um gæði þeirra skoðanakannana sem birtast víða í opinberri umræðu. Þetta segir Ólafur Þór Gylfason, sviðstjóri markaðarannsókna hjá Maskínu, en hann settist niður með þáttastjórnendum Sirkabát og ræddi um úrtaksrannsóknir hér á landi og erlendis og þær breytingar sem hafa átt sér stað á undanförnum áratugum. Hann segir sérstöðu Íslands í þessum efnum að hverfa og ræðir áskoran...

Pawel Bartoszek: Stuðningsfólk ESB geti lært af baráttunni gegn Brexit 07.03.2026

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar, ræðir Evrópumálin, sigursögu Póllands og Brexit. Hann telur óttann við að glata fullveldinu í viðskiptabandalögum fela í sér minnimáttarkennd. Öflug fullvalda ríki innan ESB beri vott um hið gagnstæða. Pawel segist ekki kvíða umræðu næstu mánaða. Ísland sé rótgróið lýðræðisríki og þjóðin eigi sér langa og ríka umræðuhefð.  Aða...

Davíð Þorláksson: Það verður engin sátt um Borgarlínu fyrr en hún byrjar að virka 06.03.2026

Davíð Þorláksson segist sjaldan heyra nýja spurningu eða hugmynd sem tengist Borgarlínunni. Vangaveltur og ýmis konar gagnrýni sem fram komi um Borgarlínuna sé almennt eitthvað sem hafi fyrir löngu verið svarað. Hann segir eðlilegt að fólk spyrji spurninga og það sé líka eðlilegt að verkefnið sé ekki endilega sérlega vinsælt. Innviðaverkefni, af þeirri stærðargráðu sem Borgarlínan er, njóti almenn...

Sirkabát #14: Hvað er verðbólga eiginlega að mæla? 05.03.2026

Í janúar 2026 uppfærði Hagstofan flokkunarkerfi vísitölu neysluverðs yfir í alþjóðlegan staðal sem nefnist COICOP 2018. En hvað þýðir það eiginlega – og hvernig er verðbólga mæld? Ásta Jenný Sigurðardóttir, teymisstjóri vísitölu neysluverðs á Hagstofunni, útskýrir hvernig neyslunni er skipt í flokka og hvaðan vogir mismunandi útgjaldaliða koma. Ef þú sérð tölu í fréttum og vilt vita meira, sendu o...

Sálfræðilegi samningurinn á íslenskum fjölmiðlamarkaði 02.03.2026

Þorsteinn Hjálmsson ræðir meistaraverkefni sitt í mannauðsstjórnun við HÍ: „Nei, en ég vinn á Ríkisútvarpinu. Það eru hinir sem eiga erfiðara.“ Upplifun blaða- og fréttamanna á sálfræðilega samningnum.  Þorsteinn segir að samningurinn sé sterkur í faginu en hann mótist á ólíkan hátt eftir því hvort blaðamennirnir starfa á RÚV eða einkareknum fjölmiðlum.  

Bókapressan: Anna Lea Friðriksdóttir nýr formaður FÍBÚT 02.03.2026

Bækur hafa alltaf verið stór þáttur í lífi Önnu Leu Friðriksdóttur sem nýverið var kjörin formaður Félags íslenskra bókaútgefenda fyrst kvenna. „Við vitum það að bóklestur fer minnkandi. Það er mest rætt um börnin og þeirra bóklestur. En ég held að yngstu börnin séu í raun meiri fyrirmyndir fyrir fullorðna heldur en fullorðnir fyrir börnin,“ segir Anna Lea í viðtali við Bókapressuna. Hún segir að...

Sirkabát #13: Hvernig notum við gögn í afbrotafræði? 28.02.2026

Hvernig eru afbrot í samfélaginu mæld og metin?  Fjölbreyttum upplýsingum er safnað um afbrot sem gefa vísbendingar um fjölda og þróun þeirra í samfélaginu. Haldið er utan um fjölda handtaka, ákærðra og fjölda sem sitja í gæsluvarðhaldi eða afplána dóm í fangelsi. Þrátt fyrir það ná gögn sem til eru ekki yfir nema brot af þeim afbrotum sem framin eru hverju sinni, flest afbrot eru hvergi tilkynnt...

Sirkabát #12: Afbrot og innflytjendur 24.02.2026

Tölur um ákærur á hendur erlendum ríkisborgurum hér á landi hafa verið nokkuð til umræðu eftir að dómsmálaráðuneytið sendi frá svar við fyrirspurn þingmanns sem reyndist innihalda reiknivillu, líkt og Gímaldið sagði frá í frétt um málið . Hvað má lesa úr þessum tölum og hvaða aðferðum er hægt beita til að skoða gögnin í réttu samhengi? Þetta er rætt í nýjasta þætti Sirkabát. Gímaldið er nýr áskrif...

Pólitík og fjölmiðlar – vikuspjall 21.02.2026

Blaðamenn Gímaldsins fara yfir mál sem fjallað hefur verið um í vikunni. Væringar innan VG og rekstrarstuðningur við fjölmiðla eru meðal þess sem er til umfjöllunar. Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift, hægt er að lesa eða hlusta 

Nágrannar: „Við erum svona lukkudýr“ 18.02.2026

Nágrannar eru nýir hlaðvarpsþættir Gímaldsins sem Erla Hlynsdóttir stýrir. Gestur hennar að þessu sinni er Anna Ólafsdóttir Björnsson sem hefur átt fjölmarga nágranna í gegn um tíðina, jafnvel þó hún hafi nú búið á sama stað í 45 ár. Anna talar um sig sem ákveðið lukkudýr í nágrannamálum og aldrei átt leiðinlega nágranna, ekki einu sinni nágranninn sem hún var fyrirfram vöruð við en reyndist síðan...

Sirkabát #11: Verðbólgan og pennastrikið 12.02.2026

Árið hófst á vonbrigðum þegar árleg verðbólga skaust úr 4,5% í 5,2% á einum mánuði. En hvað liggur að baki? Þáttastjórnendur Sirkabát kafa  ofan í vísitölu neysluverðs, skoða flokkana sem ýttu henni upp og reikna út hvað hefði gerst ef lagabreytingar á vörugjöldum ökutækja hefðu ekki tekið gildi um áramótin. Niðurstaðan: Gagnrýnin á gjaldahækkunina á við, en svartsýnisspáin kannski ekki. Lestu len...

Sirkabát #10: Innflytjendur og lífeyrisgreiðslur 11.02.2026

Nýlegar fréttir hafa bent á mikla fjölgun erlendra lífeyrisþega. En hvaða samhengi vantar? Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur hjá Hagstofunni  bendir á að þótt fjöldinn hafi aukist hefur hlutfallið haldist lágt: aðeins 3,6% útlendinga á vinnumarkaði þiggja örorku- eða endurhæfingarlífeyri, samanborið við 18% Íslendinga. Gott dæmi um mikilvægi þess að greina tölur áður en þeim er slegið upp. Sirkab...

Barnaníðsefni ekki lengur bara í lokuðum hópum á netinu 09.02.2026

Hallur Hallsson, rannsóknarlögreglumaður hjá kynferðisbrotadeild, ræðir störf deildarinnar og alþjóðlegt samstarf til að finna og greina barnaníðsefni á netinu þar sem markmiðið er að koma þolendum til bjargar. Erla Hlynsdóttir ræðir við hann. Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Þú getur keypt áskrift og verið þannig með í að lýsa upp samfélagið. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli. 

Hvað er eiginlega þetta ICE? 28.01.2026

Fjöldamótmæli gegn aðgerðum ICE hafa farið fram víða um Bandaríkin að undanförnu. Ríkisstjórn Trump hefur lagt mikla áherslu á fjölgun ICE-liða og þjálfunartími þeirra styttur til að koma sem flestum á göturnar sem fyrst. Þá hefur Trump snaraukið fjárframlög til ICE. Hvað þarf til að komast inn í ICE? Hversu miklum fjármunum er veitt í þetta fyrirbæri og hvað gerist næst í Bandaríkjunum? Erla Hlyn...

Lilja Alfreðs: Framsókn þarf að komast á eldhúsborð þjóðarinnar að nýju 27.01.2026

Lilja Dögg Alfreðsdóttir hefur tilkynnt um framboð til formanns Framsóknarflokksins, en hún er varaformaður flokksins. „Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn á að mínu að mati að sækja fram og koma með lausn­ir," segir Lilja Alfreðsdóttir í viðtali við Gímaldið. Lilja nefn­ir til dæm­is lausn­ir sem Fram­sókn geti tal­að fyr­ir á vett­vangi efna­hags­mála. „Ég við­ur­kenni að efna­hags­stefna Kristrún­ar kem­...

Dagur B. Eggertsson: Norðurlöndin búa sig undir stríð 24.01.2026

„Norð­ur­lönd­in eru að búa sig und­ir stríð, ekki bara með hern­að­ar­upp­bygg­ingu held­ur einnig með öðr­um við­bún­aði til dæm­is á sjúkra­hús­um og með birgða­söfn­un,“ seg­ir Dag­ur B. Eggertsson þingmaður í viðtali við Gímaldið. „Mað­ur vill ekki mála upp of dökka mynd en þetta er svo­lít­ið eins og í al­manna­vörn­un­um að við verð­um að vera samt heið­ar­leg með það sem get­ur teikn­ast u...

Sirkabát #9: Hugtökin hægri og vinstri sveiflast eftir deilumálum stjórnmála hverju sinni 21.01.2026

Hvað þýðir það að vera hægri- eða vinstrisinnuð í stjórnmálum? Viktor Orri Valgarðsson, doktor í stjórnmálafræði, útskýrir uppruna hugtakanna og hvernig merking þeirra  breytist eftir tímabilum, löndum og deilumálum í stjórnmálum hverju sinni. Sirkabát er hlaðvarp sem Gímaldið gefur út. Í þáttunum er rýnt á bak við fréttir, gjarnan í tölfræði eða annað sem er til þess fallið að dýpka umræðuna. Gím...

Ingibjörg Isaksen kallar eftir samvinnu þvert á flokka í málefnum barna 20.01.2026

Í við­tali við Gímald­ið fer Ingi­björg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins yf­ir stöðu ­flokks­ins, fram­tíð­ar­sýn sína fyr­ir flokk­inn og póli­tík­ina í þing­in­u. Ingibjörg hefur lýst yfir framboði til formanns flokksins. Sigurður Ingi Jóhannsson hættir sem formaður á flokksþingi Framsóknarflokksins í febrúar.  Ingibjörg seg­ir í viðtalinu að tæki­færi fel­ist í tóma­rúm­inu á vins...

Listen to the Gímaldið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.